Morgunblaðið - 01.09.2021, Side 24

Morgunblaðið - 01.09.2021, Side 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2021 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Það sem ég kanna í þessari bók er vald ritdómarans, togstreitan í kringum það og hversu viðkvæmt þetta vald er. Það er alltaf verið að takast á um það, það er alltaf verið að grafa undan því og draga það í efa en það getur líka þótt mjög ógnvekj- andi,“ segir Auður Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur um nýja bók sína Þvílíkar ófreskjur: Vald og virkni ritdóma á íslensku bók- menntasviði. Verkið byggir á dokt- orsritgerð Auðar í bókmenntafræði sem hún varði árið 2016. Ekki hefur áður verið gerð svona umfangsmikil rannsókn á ritdómum á Íslandi. Auður segir að efnisvalið megi rekja til meistararitgerðar hennar um Ólöfu frá Hlöðum þar sem hún kannaði móttökurnar sem hún fékk á sínum tíma. „Þá bar ég saman rit- dóma sem voru skrifaðir um Ólöfu frá Hlöðum og um karlrithöfunda frá sama tíma til þess að sjá hvort það væri einhver munur. Mér fannst þetta svo áhugaverð textategund, það var svo mikil pólitík í þessu, svo mikil undirliggjandi togstreita. Þarna voru rithöfundar sem voru að skrifa ritdóma hver um annan. Bak við neikvæða ritdóma getur legið alls konar saga, persónuleg eða pólitísk.“ Verkið er sett upp í tímaröð. „Þetta varð í grófum dráttum eins og saga íslenskra ritdóma, alveg frá því þeir koma fyrst fram í fyrstu íslensku tímaritunum. Ég fer jafnvel enn þá lengra aftur og fjalla um hvernig þetta textaform verður til í Evrópu með prentmiðlunum og hvernig það mótast af prentuðum miðlum,“ segir Auður. Dregur upp ákveðna átakafleti „Þetta er fræðileg bók sem byggir á frumrannsóknum. Það hafa ekki margir rannsakað þetta á þennan hátt þótt fólk hafi auðvitað skrifað um gagnrýni. Það eru þá oft skoð- anagreinar frekar en að fólk sé að grúska í sögunni og greina texta- formið sem slíkt. Ég hugsa þetta aðallega sem einhvers konar grunn sem væri hægt að byggja meira á. Það eru þarna hugmyndir um ein- kenni og virkni gagnrýninnar og fyrstu drög að gagnrýnissögu.“ Þrátt fyrir að bókin sé að mestu hugsuð fyrir fræðimenn á hún líka erindi við þá sem hafa áhuga á gagnrýni. „Ótrúlega margir hafa bæði áhuga og skoðun á bókmenntagagnrýni þannig að ég held að margir gætu verið forvitnir.“ Þegar Auður fór að rannsaka íslenska ritdóma kom í ljós að það eru yfirleitt sömu grundvallar- atriðin sem er verið að takast á um í umræðu um ritdóma. „Það er þetta vald ritdómarans. Hvernig getur ritdómarinn tekið sér þetta vald? Getur hann misnotað það? Hvernig getur hann krafist þess að aðrir samþykki það að hann sé einhvers konar yfirvald í þessum efnum? Mér fannst áhugavert að sjá að um- ræðan snýst mikið um sömu hlutina allt fram á okkar daga og það er hægt að draga upp ákveðna átaka- fleti.“ Fræðilega leggur Auður upp með að ritdómarar starfi á mörkum ýmissa sviða. „Þeir eru alltaf að fara yfir mörk einhverra sviða sem eru yfirleitt talin aðskilin. Annars vegar er það til dæmis hið persónulega og hins vegar hið faglega og opinbera. Við krefjumst þess af gagnrýn- endum að þeir séu heiðarlegir. Þetta tengist náttúrulega blaða- mennskunni og þar á maður að vera hlutlaus og segja satt og rétt frá. En bókmenntir og listir snúa svo mikið inn á við, að hinu persónu- lega. Ritdómarinn þarf að segja satt og rétt frá sínum upplifunum, því sem honum finnst um verkin. Það kemur oft fram að það versta sem ritdómari gæti verið sé hræsnari sem lætur pólitík eða ytri þrýsting hafa áhrif á sig í stað þess að vera hreinskilinn.“ Þarna skarast hlut- leysið sem tilheyrir opinberu svæði blaðamennskunnar og hreinskilni og persónulegt mat ritdómarans. „Bókmenntir eru líka mjög per- sónulegar og eru oft taldar fram- lenging af höfundinum. Þannig að það getur virkað eins og verið sé að ráðast persónulega á höfundana.“ Farið yfir ýmis mörk Einn kaflinn í bók Auðar ber tit- ilinn „Dóninn í fjölskylduboðinu“ og fjallar um það hve vandmeðfarna stöðu gagnrýnandi hefur í litlu samfélagi eins og á Íslandi. Hvern- ig getur maður ráðist á frænda sinn eða nágranna og rakkað niður bókina hans? „Í prentmiðlunum skapast hlutlaust svæði þar sem maður hefur þetta form sem er oft mjög vel afmarkað innan prent- miðlanna og innan þessa forms er leyfilegt að fara yfir mörk sem þú færir annars ekki yfir,“ segir Auð- ur. Þar skapist pláss þar sem hægt sé að gagnrýna kunningja eða ein- hverja sem eru hærra settir í sam- félaginu. „En það er alltaf verið að takast á um það hvað má og hvað má ekki. Átökin snúast mikið um hvort þetta sé dónaskapur og hvort fólk sé að misnota vald sitt, hrein- lega af einhverjum annarlegum hvötum, einhverjum persónulegum hvötum, vilji öðlast frægð og frama, vilji ná sér niður á ein- hverjum persónulega, stjórnist af pólitík og svo framvegis. Eða hvort gagnrýnin spretti upp af hreinum hvötum, til að vernda bókmennt- irnar, í þágu samfélagsins. Í svona litlu samfélagi getur þú orðið dón- inn sem ert alltaf með einhverjar leiðinlegar athugasemdir og það er ekki eftirsóknarvert að vera í því hlutverki.“ Auður einblínir mest á prent- miðla í rannsókn sinni en ritdómar virðast í auknum mæli vera að fær- ast yfir á netið. „Á 21. öldinni hafa rafrænir miðlar verið að taka svo- lítið yfir. Það eru ákveðin hvörf sem verða þar. Slagkraftur gagn- rýninnar virðist ekki vera jafn mik- ill og ritdómarnir virðast ekki vera jafn áhrifamiklir. Þeir fá þennan slagkraft frá prentmiðlunum sem hafa yfirbragð valdsins, einhvers sem maður tekur mark á. En á net- inu er miklu meiri gagnvirkni og andinn hefur breyst. Það eru aðrar reglur í umræðunni þar, það er ekki vel séð að fólk sé mjög gagn- rýnið eða harkalegt. Þetta er eitt- hvað sem er greinilega að breyt- ast.“ Áhrif kynjapólitíkur Rannsókn Auðar nær í raun að þessum breytingum og í lokaorðum bókarinnar veltir hún því fyrir sér hvort við þurfum hreinlega að end- urhugsa tilgang og eðli gagnrýni. Auður lagði áherslu á að hafa kvengagnrýnendur með í þessari sögu ritdóma. „Kvenhöfundar detta oft út þegar sagan er skrifuð seinna svo ég eyddi miklum tíma í að leita uppi konur sem hafa verið að skrifa gagnrýni í gegnum tíðina. Það eru náttúrulega margar konur, alltaf fleiri en maður heldur, þegar mað- ur fer að leita eftir því. Mér fannst mikilvægt að hafa þá vídd inni í þessu auk þess að spá svolítið í það hvaða áhrif kynjapólitíkin hefur haft á bókmenntaumræðuna. Það er eitthvað sem ég er mjög ánægð með að hafa gert og það var eigin- lega ekki annað hægt en að leggja áherslu á það.“ Að lokum segist Auður hafa haft gaman að rannsóknarvinnunni og margt áhugavert hafi komið upp úr krafsinu. „Ritdómar eru oft hress- andi lestur, og þeim fylgja ritdeilur og átök. Það er skemmtilegt að mörgu leyti. Það var harka í gagn- rýninni hérna áður fyrr svo þetta gat verið svolítið svakalegur lestur. Gagnrýnin er mildari og kurteisari í dag en það var alls ekki hægt að saka gagnrýnendur um að vera of kurteisir hér áður fyrr.“ Morgunblaðið/Eggert Bókmenntafræðingur „Átökin snúast mikið um hvort þetta sé dónaskapur og hvort fólk sé að misnota vald sitt, hreinlega af einhverjum annarlegum hvötum,“ segir Auður um þá umræðu sem oft skapast í kringum ritdóma. Um togstreitu, ritdeilur og átök - Auður Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur kannar vald og virkni ritdóma í nýju verki - Byggir á doktorsritgerð - Leggur grunn að íslenskri gagnrýnissögu með umfangsmikilli rannsókn Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is Kórstjóri Sinfóníu- hljómsveitar San Francisco, hinn sænski Ragnar Bohlin, hefur sagt upp störfum eftir að gerð var krafa um að starfsmenn hljómsveitarinnar framvísi vottorði um bólusetningu gegn Covid-19. Þessar reglur tóku gildi á opinberum viðburðum í San Francisco-borg 20. ágúst. Bohlin segir þar með upp starfi sínu til fjór- tán ára og þykir samstarfsfélögum hans það miður, þótt skiptar skoð- anir séu innan raða Sinfóníunnar um ástæður uppsagnarinnar. Bohlin hefur talað gegn bólusetn- ingum á samfélagsmiðlum sínum. Í skilaboðum til miðilsins San Fran- cisco Chronicle segist hann harma það að Sinfóníuhljómsveitin taki þátt í að skerða rétt fólks til frið- helgi einkalífs, sjálfsákvörðunar- réttar yfir eigin líkama og upplýsts samþykkis. Segir upp vegna kröfu um bólusetningu Ragnar Bohlin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.