Morgunblaðið - 01.09.2021, Side 28
Töfrar eldhússins
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara herbergi,
heldur upplifun
Hvort sem þú leitar að innbyggðum heimilistækjum
gæddum nýjustu tækni, rómantískri eldavél í sumar-
bústaðinn, litríkum matvinnslutækjum í eldhúsið eða
nýrri fallegri innréttingu erum við með frábæra valkosti
fyrir þig. Vöruúrval Eirvíkur er afar fjölbreytt og ættu
allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Af hverju
að vera eins og allir hinir - þegar maður getur verið
einstakur!
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík,
sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 11-15
Íslensk-norski djasskvartettinn Astra heldur tónleika í
Vinaminni á Akranesi í kvöld kl. 20. Astra var stofnaður
með það í huga að hnýta saman íslensku og norsku
djasssenuna með því að skapa samvinnu sem væri ein-
stök og landamæralaus, segir á miðasöluvefnum tix.is.
Þeir Sigurður Flosason saxófónleikari og Andrés Þór gít-
arleikari, í samstarfi við norska bassaleikarann Andreas
Dreier og trommuleikarann Anders Thorén, hljóðrituðu
sína fyrstu plötu, In Orbit, í fyrra og var hún gefin út af
norsku AMP-plötuútgáfunni í mars á þessu ári. Í kvöld
mun kvartettinn leika úrval laga af plötunni og mun
Frederik Willmow leika á trommur í stað Thorén.
Astra leikur lög af In Orbit
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 244. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Vængmaðurinn Jónatan Ingi Jónsson lék frábærlega
með FH í ágúst þegar hann skoraði fjögur mörk og
lagði upp önnur fimm í fimm leikjum í úrvalsdeild karla
í mánuðinum. Í leikjunum fimm unnu FH-ingar tvo
sigra, gerðu tvö jafntefli og töpuðu einum leik. Liðið
siglir lygnan sjó um miðja deild, er í 6. sæti þegar þrjár
umferðir eru óleiknar. „Þetta er náttúrlega ekki það
sem við stefndum að. Við ætluðum okkur að vera í bar-
áttu um titilinn og vera við toppinn,“ sagði Jónatan
Ingi meðal annars í samtali við Morgunblaðið. »22
Hafnfirðingar ætluðu sér mun
stærri hluti í úrvalsdeild karla
ÍÞRÓTTIR MENNING
það hefur eiginlega alltaf verið fært.“
Hann segist ekki hafa ákveðið fjölda
ferða á árinu fyrirfram en hafi gælt
við að reyna að fara 150 sinnum. „Ég
miða við að fara þrisvar til fimm sinn-
um í viku og svo sjáum við til hverju
það skilar. Vonandi get ég byrjað að
hlaupa aftur fljótlega en gangan á
Esjuna er í forgangi.“ Hann bætir
við að ýmist fari hann snemma á
morgnana eða eftir kennsluna á dag-
inn. „Í sumar fór ég alltaf strax eftir
að ég vaknaði, hef farið upp að Steini
á 34 mínútum en er yfirleitt um 38 til
40 mínútur á leiðinni. Tek svo lengri
tíma í að fara niður til þess að hlífa
hnjánum. Notaði alltaf stafi í fyrra en
ekki eins oft í ár og í fríinu í sumar
fór ég 40 sinnum á 30 dögum.“
Katrín Heiða Jónsdóttir, íþrótta-
fræðingur og eiginkona Bergþórs,
gengur nánast alltaf með honum, er
búin að fara 112 sinnum í ár, þar af
fimm sinnum sl. sunnudag, en annars
er hann einn á ferð. „Mér finnst líka
gott að ganga einn, ekki síst til þess
að hreinsa hugann, ef svo má að orði
komast. Það er mikil andleg upplyft-
ing fólgin í því að komast í snertingu
við náttúruna á göngu og ég líki því
ekki saman hvað þessi hreyfing gerir
manni gott miðað við að hanga heima
og fletta í símanum. Ég hef nánast
ekkert fundið til í hnjánum síðan ég
byrjaði gönguna á Esjuna og allir
ættu að huga að þessu, gefa símanum
reglulega frí og fara út að ganga í
staðinn.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bergþór Ólafsson, íþróttakennari í
Selásskóla í Reykjavík, gekk tíu
sinnum upp að Steini Esjunnar sl.
sunnudag. „Ég finn ekkert fyrir
þessu, var að frá klukkan sjö um
morguninn til klukkan tíu um kvöldið
með matarhléum,“ segir hann. Berg-
þór byrjaði að ganga á Esjuna í apríl
í fyrra og fór 65 sinnum upp að Steini
það árið en hefur farið leiðina upp og
niður 116 sinnum í ár, síðast í fyrra-
dag. „Ég fór einu sinni upp á topp í
sumar en fékk ekkert aukalega út úr
því.“
Almenningshlaup hafa lengi verið
ríkur partur í lífi Bergþórs og hann
hefur gengið á fjöll þegar hann hefur
verið á ferð um landið. Esjugangan
kom þó ekki til af góðu. Á yngri árum
spilaði hann fótbolta með Fylki og
hafði aldrei kennt sér meins í fótum,
þar til hann gat varla staðið upp eftir
að hafa verið að leggja parket á gólf
fyrir um fjórum árum.
Æfa fyrir hjartaaðgerð
„Eftir að hafa verið að drepast úr
verkjum í um tvö ár kom í ljós að ég
var búinn að eyðileggja á mér hnén,“
segir Bergþór. „Ég greindist með
snemmbúin slit, er með fullorðinn
skrokk, eins og ég kalla það, þurfti að
fara í aðgerð á báðum hnjám, þá fyrri
í fyrra og þá seinni í febrúar í ár, og
byrjaði að ganga á Esjuna sem lið í
endurhæfingunni.“ Hann bætir við
að hann sé auk þess með hjartagalla
og þegar fólk spyrji fyrir hvað hann
sé að æfa standi ekki á svarinu: „Ég
er að æfa mig fyrir hjartaaðgerð.“
Áður en átakið hófst í fyrra setti
Bergþór sér það markmið að fara 50
sinnum upp að Steini það sem eftir
lifði árs og þar af fimm sinnum einn
daginn. „Ég var búinn að ná mark-
miðinu áður en árið var búið og fór 15
sinnum til viðbótar fyrir áramót.“
Líðandi ár var tekið með trompi
frá fyrsta degi en Bergþór varð að
gera sex vikna hlé á göngunni vegna
aðgerðarinnar í febrúar. „Veðrið hef-
ur haft lítið sem engin áhrif, eigin-
lega aldrei snjór eða aðrar hindranir,
Fór 10 sinnum á 15
tímum upp að Steini
- Bergþór Ólafsson hefur gengið 116 sinnum á Esjuna í ár
Ljósmynd/Katrín Heiða Jónsdóttir
Áfangi Bergþór Ólafsson var með gítarinn í 100. ferðinni upp að Steini og
tók að sjálfsögðu lagið Esjan eftir Bríeti áður en hann fór til baka.