Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 1

Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 1
L A U G A R D A G U R 4. S E P T E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 207. tölublað . 109. árgangur . Stonesari inn að beini Listrænirhöklar Sævar Þorkell Jensson í Keflavík er einn mesti ástríðusafnari landsins þegar kemur að dægurtónlist, hvort sem hún er erlend eða innlend. Hann er líka óvenju úr- ræðagóður þegar kemur að því að nálgast lista- mennina og fá þá til að árita úrklippubækurnar sem hann hefur safnað í meira en hálfa öld. 12 5. SEPTEMBER 2021SUNNUDAGUR Suðræn stemning Netapótek LyfjaversFrí heimsendingum land allt!* KirkjulistaverkSigrúnar Jóns-dóttur eru nútil sýnis í Sel-tjarnarneskirkjuen hundraðár eru fráfæðingu hennar. 20 Bíða eftirbarni sínu Hjón frá Afganistan, Zeba Sultani og Khairullah Yosufi, flúðu frá Afganistan fyrir rúmri viku. Tveggja mánaða sonur þeirra varð eftir og bíða þau nú milli vonar og óttaeftir barninu. 8 Selva er nýr veitingastaður á Laugavegi sem býður upp á mat og drykk frá Suður- Ameríku. 18 SIGURINN Á SAUÐÁRKRÓKI MIKILVÆGUR HÁLFRAR ALDAR AFMÆLI SAGNFRÆÐISTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS 45NATASHA ANASI 40 Zeba Sultani og Khairullah Yosufi eru ung hjón frá Afganistan sem flúðu til Íslands í síðustu viku. Þau urðu að skilja drenginn sinn eftir að- eins tveggja mánaða gamlan en hann missti meðvitund í mannþrönginni við flugvöllinn í Kabúl þegar fjöl- skyldan reyndi að komast úr landi. Þau voru á lista íslenskra stjórn- valda yfir þá afganska flóttamenn sem fá hér hæli, en Zeba hafði verið hér í Jafnréttisskóla HÍ. Það gekk ekki þrautalaust að komast inn á flugvöllinn. Khairullah hélt á barninu og reyndi að komast að hliðinu þar sem þeim yrði hleypt í gegn. Troðningurinn var svo mikill að allt í einu tók Khairullah eftir því að barnið hafði misst meðvitund. „Hann hreyfðist ekki og var orð- inn kaldur og opnaði hvorki augun né munninn. Ég hélt hann væri dá- inn. Ég setti hann niður og byrjaði að hnoða brjóstkassann og þá tók hann að anda á ný.“ Þau vinna nú að því að fá barnið heim til Íslands og segja að ef þau hefðu orðið eftir, hefðu þau verið drepin af talibönum. „Við tókum þessa ákvörðun fyrir hans framtíð. Hann myndi ekki eiga neina framtíð í Afganistan,“ segir Zeba í Sunnudagsblaði Morgun- blaðsins um helgina. Barnið hætti að anda - Ung hjón frá Afganistan eru nú óhult á Íslandi - Bíða eftir tveggja mánaða syni sínum - Neyddust til að skilja hann eftir vegna öngþveitis á flugvellinum Morgunblaðið/Ásdís Khairullah og Zeba bíða nú eftir að fá son sinn Arsalan til Íslands. _ Gestakomum á völdum stöðum í þjóðgörðunum fjölgaði í sumar miðað við síð- asta ár. Í Ás- byrgi nálgaðist gestafjöldinn það sem var 2019, en víðast annars staðar er nokkuð í land að tölum þess árs verði náð. Í fyrra fóru 320 þúsund ferða- menn um Almannagjá, en útlit er fyrir fjölgun í ár. Árin 2018 og 2019 fóru um 1,3 milljónir ferða- manna um Almannagjá hvort ár. Einar Á.E. Sæmundsen, þjóðgarðs- vörður á Þingvöllum, segist velta því fyrir sér hvort sá fjöldi sé eftirsóknarverður á stað eins og Þingvöllum. »16 Er fjöldinn eftir- sóknarverður? Gestir í Ásbyrgi. „Reykjavíkurborg hefur slegist við okkur í tvö og hálft ár. Þetta er vald- níðsla á hæsta stigi. Það er gjá á milli framkvæmdadeildar og skipulags- yfirvalda í borginni. Þegar búið er að gera skipulag og kynna kemur fram- kvæmdadeildin og gerir það sem henni dettur í hug,“ sagði Hilmar Páll Jóhannesson hjá Loftkast- alanum. Fyrirtækið hefur átt í deilum við Reykjavíkurborg vegna hæðarkóta á lóð sem það á í Gufunesi. Deiliskipu- lag gerir ráð fyrir sléttri lóð en borg- in ákvað að stalla hana. Það er þvert gegn hagsmunum og vilja Loftkast- alans. Þeir vilja hafa gólf húsa sinna í sem jafnastri hæð til að auðvelda færslu leikmynda og fleira. »2 Morgunblaðið/Árni Sæberg Gufunes Þar er meðal annars að rísa kvikmyndaþorp. Borgin í slag við Loftkastala - Lóð í Gufunesi Þó að parís sé almennt talinn barnaleikur þá nýt- ur fólk á öllum aldri þess að hoppa í parís á Laugaveginum í miðborg Reykjavíkur. Enda þótt veðrið í höfuðborginni hafi verið nokkuð óspennandi síðustu daga hefur mið- borgin verið lífleg. Veðurstofa Íslands spáir rigningu sunnan- og vestantil í dag en áfram er útlit fyrir að bjart verði með köflum norðaustan- og austanlands. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ekki einungis barnaleikur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.