Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 22
Staða skólafólks á vinnumarkaði á Íslandi og í nokkrumEvrópulöndum Árið 2020, hlutfall skólafólks á aldrinum 15-24 ára 100% 80% 60% 40% 20% 0% Í vinnu Í atvinnuleit Ekki á vinnumarkaðinum Ís la n d H ol la nd Sv is s D an m ör k Þý sk al an d N or eg ur Au st ur rík i Fi nn la nd Ír la nd Sv íþ jó ð M al ta Ei st la nd E S B -m e ð a lt a l Li th áe n Fr ak kl an d Sl óv en ía Le tt la nd Lú xe m bo rg B el gí a Pó lla nd Ký pu r Sp án n Po rt úg al Té kk la nd G rik kl an d B úl ga ría Kr óa tía U ng ve rja la nd Íta lía Sl óv ak ía Rú m en ía Heimild: Eurostat SVIÐSLJÓS Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is U m 60% íslenskra ung- menna vinna með skóla. Hvergi í Evrópu er hærra hlutfall náms- manna í vinnu en á Íslandi. Þetta kemur fram í nýrri könnun Eurostat sem kannaði atvinnuþátttöku evr- ópskra nema á aldrinum 15-24 ára árið 2020. Norðurlöndin eru öll yfir meðal- tali í þátttöku námsmanna á vinnu- markaðnum. Í Danmörku er hlut- fallið 46 prósent, Noregi 40 prósent, Finnlandi 25 prósent og í Svíþjóð eru rúm 20 prósent sem vinna með fram skóla. Holland kemst næst Íslandi í vinnusemi nemenda en um 57 pró- sent ungmenna í Hollandi vinna með skóla. Þau ríki þar sem fæstir vinna með skóla eru Króatía, Ungverja- land, Ítalía, Slóvakía og Rúmenía. Um þrjú prósent ungmenna þessara ríkja vinna með skóla. Meðaltal fyrir atvinnuþátttöku námsmanna í Evrópu á aldrinum 15- 24 ára árið 2020 er rúm 18 prósent en var 21 prósent árið 2019. Hæsta hlutfall nemenda sem voru í atvinnuleit með fram námi var í Svíþjóð 12 prósent, en síðan í Finn- landi 9,5 prósent, Danmörku og Hol- landi 6,3 prósent. Þá sýnir yfirlitið að atvinnulausum evrópskum náms- mönnum fjölgaði um 16 prósent frá 2019. Möguleg skýring þess gæti verið tilkoma heimsfaraldurs. Stúdentar neyðist til að vinna Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur barist fyrir hækkun grunn- framfærslu framfærslulána og segir 72% stúdenta vinna til að geta stundað nám. „Við teljum að það sé ekki stutt nógu vel við stúdenta, Menntasjóður námsmanna er ekki að þjóna til- gangi sínum sem félagslegur jöfn- unarsjóður. Grunnframfærsla fram- færslulána er svo lág að stúdentar neyðast til að vinna þó svo að þeir séu á námslánum sem verður til þess að námslánið skerðist á móti og ger- ir það að verkum að þau þurfa að sækja sér enn meiri vinnu,“ segir Isabel Alejandra Diaz, forseti Stúd- entaráðs, í samtali við Morgun- blaðið. Þá bendir Isabel einnig á að það sé ekkert fjárhagslegt öryggisnet eða handbær stuðningur sem stúd- entar geta treyst á missi þeir vinn- una. Hún bætir við að Stúdentaráð hafi síðastliðið eitt og hálft ár krafist þess að stúdentar öðlist rétt til at- vinnuleysisbóta þar sem þeir greiði atvinnutryggingagjald í atvinnuleys- istryggingasjóð, eins og annað vinn- andi fólk. Aðspurð hvort hægt sé að skýra mikla atvinnuþátttöku stúdenta þannig að íslensk ungmenni séu að fá tækifæri á atvinnumarkaðnum sem ungmenni erlendis fái ekki seg- ir Isabel að krafan eigi ekki að vera sú að stúdentar starfi samhliða námi. Hún bætir við að auðvitað séu stúdentar sem kjósi að vinna en það eigi ekki að vera normið. Ísland slær met í vinnu námsmanna Morgunblaðið/Golli Háskólatorg Íslenskir nemendur vinna mest allra evrópskra nema skv. nýrri könnun. Að mati Stúdentaráðs neyðast nemendur til þess. 22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Herferð borgar- yfirvalda gegn einkabílnum gengur treglega þrátt fyrir að hvergi sé slegið slöku við. Það sýnir í það minnsta ný könn- un Maskínu á ferðavenjum íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær. Þar kemur fram að notkun einkabílsins fer vaxandi, en farþegum strætó fækkandi. 88,2% fóru á einkabíl sem bílstjórar í sumar til og frá vinnu, en hlutfallið var 82,9% í fyrrasumar. Þá tóku færri strætó til og frá vinnu í sum- ar, 21,1%, en í fyrrasumar, 22,5%. Fleiri sögðust hjóla, en tóku strætó. Þessi niðurstaða segir mikla sögu. Nú stendur til að verja tugum milljarða í borg- arlínu í þeirri trú að hún muni gerbylta ferðavenjum í borginni. Ef gert er ráð fyrir hefðbundinni framúrkeyrslu opinberra verkefna má búast við að kostnaðurinn verð hátt á annað hundrað milljarða. Borgarlínan er viðbragð við því að ekkert hefur geng- ið að fá almenning til að taka strætó í meira mæli en hing- að til þrátt fyrir að í hann hafi verið lagt mikið fé sem ella hefði mátt verja í sam- göngubætur. Umbætur í samgöngum þurfa ekki alltaf að kosta tugi milljarða. Margoft hefur veri bent á að greiða mætti fyrir umferð með því að sam- stilla umferðarljós með nýj- ustu tækni í þeim efnum. Með því að stilla ljósin út frá umferð og stýra þeim þannig að bílstjórar séu ekki alltaf að stoppa og taka af stað mætti bæta ástandið veru- lega. Vissulega myndi það ekki leysa allan vanda, en það gæti haft mikið að segja á verstu álagstímunum. Um leið myndi sparast eldsneyti og draga úr menguninni, sem fylgir því að bílar standa í lausagangi og eru sífellt að stoppa og taka af stað. Þessi auðvelda aðgerð vefst hins vegar fyrir borgaryfir- völdum þrátt fyrir að hún sé ódýr, sérstaklega miðað við ávinninginn, og kosti ekki mikið rask og ný umferðar- mannvirki. Ein afleiðing þess að sam- göngubætur hafa verið van- ræktar er sú að stöðugt tek- ur lengri tíma að komast í og úr vinnu. Það er til lítils að stytta vinnutíma ef styttingin er étin upp í umferðar- teppum. Könnun Mask- ínu sýnir hver þróunin er í ferðavenjum til og frá vinnu. Í könnuninni var einnig spurt hvaða ferða- máta fólk vildi helst nota. Aðeins 12% sögðu strætó. Ljóst er að miklar breyt- ingar eru að verða í sam- göngum á næstunni. Rafvæð- ing bílaflotans gengur hraðar fyrir sig hér en víðast hvar annars staðar. Eitthvað hefur hægst á þróun sjálf- akandi bifreiða, en þær hafa þó ekki verið gefnar upp á bátinn. Þá á eftir að koma í ljós hvort færast muni í vöxt að fólk vinni heima hjá sér, að minnsta kosti hluta úr viku. Vinsældir Strætó fara hins vegar ekki vaxandi. Forsendan fyrir því að ráðast í borgarlínuna hlýtur að vera einhver vissa fyrir því að fólk muni vilja ferðast með henni. Sú vissa er engan veginn fyrir hendi. Það er furðulegt háttalag hjá sveit- arfélagi, sem er í alvarlegum peningakröggum, að ætla að verja svimandi upphæðum í verkefni, sem fullkomin óvissa ríkir um að muni ganga upp. Þetta er ekki lítil hugguleg tilraun, sem hægt er að yppta öxlum yfir ef hún gengur ekki upp og segja prófum eitthvað annað. Þetta er rándýr skuldbinding um glórulausa eyðslu á skattfé. Að baki býr sú ranghug- mynd, sem er undarlega út- breidd, að vasar skattborg- aranna séu ótæmandi. Svo er ekki. Það hvernig hugmyndir um að reyna ódýrari leiðir til að bæta almennings- samgöngur en borgarlínuna hafa verið slegnar út af borð- inu ber virðingarleysi meiri- hlutans fyrir skattpeningum enn frekara vitni. Það er undarlegt að meiri- hlutinn í borginni skuli ekki vera í takti við borgarbúa. Niðurstaða könnunar Mask- ínu sýnir að bilið á milli borg- arbúa og meirihlutans breikkar enn. Það er kominn tími til að hlusta í stað þess að halda áfram að berjast gegn einkabílnum. Það er augljóst að borgarbúar líta á hann sem fyrsta kost til að komast leiðar sinnar. Það er til lítils að stytta vinnutíma ef styttingin er étin upp í umferðarteppum} Á rangri leið H eilbrigðisstefna til ársins 2030 var samin á kjörtímabilinu og samþykkt á Alþingi í júní 2019. Í fyrsta kafla stefnunnar, For- ysta til árangurs, er m.a. fjallað um stjórnun og samhæfingu innan heilbrigð- iskerfisins og mikilvægi þess að löggjöf í mála- flokknum sé skýr. Þess vegna hef ég beitt mér fyrir því á kjörtímabilinu að endurskoða heilbrigðislöggjöfina, til dæmis með því að gera hana skýrari varðandi hlutverk heilbrigð- isstofnana þannig að þar komi skýrt fram hvert sé hlutverk, ábyrgð og valdsvið stjórn- enda þessara stofnana. Breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu voru samþykktar á Al- þingi vorið 2020 og í kjölfarið var skrifuð reglugerð sem kveður nánar á um hlutverk Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Í heilbrigðisstefnu er gert ráð fyrir því að forstjórar heilbrigðisstofnana landsins séu umdæmisstjórar í sínu heilbrigðisumdæmi og séu því í raun ábyrgir fyrir upp- byggingu og skipulagi heilbrigðisþjónustunnar innan síns umdæmis. Til að gera stjórnendum kleift að axla þessa ábyrgð þurfa þeir aukið svigrúm, þar sem ábyrgð, jafnt fjárhagsleg og fagleg, fylgir valdsviði. Árangurs- stjórnun og aukin valddreifing gerir kröfur til þess að ákveðin gildi séu höfð í heiðri. Svo það markmið næðist lagði ég fram þingsályktun á Alþingi um siðferðileg gildi og forgangsröðun innan heilbrigðiskerfisins, sem var samþykkt á þinginu sumarið 2020. Heilbrigðisstofnanir landsins eru níu tals- ins, að meðtöldum Landspítala og Sjúkra- húsinu á Akureyri. Ég hef lagt áherslu á skýra stefnu í málaflokknum og títt samráð milli stofnana á kjörtímabilinu. Það hefur einnig verið mér mikið kappsmál að auka samfelluna í heilbrigðisþjónustunni. Þess vegna hef ég, í samræmi við heilbrigðis- stefnu, haldið samráðsfundi með öllum for- stjórum heilbrigðisstofnananna nokkrum sinnum á ári, þar sem lögð eru á ráðin um málefni sem eru mikilvæg fyrir veitendur heilbrigðisþjónustu og ræddar lausnir á sameiginlegum vandamálum. Þetta hefur skilað þeim árangri að forstjórarnir hittast nú óformlega utan þessara funda og leggja á ráðin þegar þess er þörf. Það skiptir miklu máli fyrir gæði og samfellu heilbrigðisþjón- ustunnar um land allt. Heilbrigðisstefnan, breytingar á löggjöf í samræmi við hana, skýr verkaskipting og aukið samráð við stjórnendur heilbrigðisstofnana eru verkefni sem hafa öll sama markmið; að bæta og efla heilbrigðisþjón- ustuna fyrir alla landsmenn. Við höfum stigið stór skref í átt að betri og skilvirkari þjónustu fyrir öll, og ég er stolt af þeim árangri sem náðst hefur á kjörtímabilinu. Þessari vinnu þarf að halda áfram, því verkefnin eru óþrjótandi. Svandís Svavarsdóttir Pistill Stefnan er skýr Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.