Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 Kátur Kötturinn Paddi var stuði í bænum þegar ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á hann á dögunum. Hann var klæddur eftir veðri, í lopapeysu og með lopahúfu á höfði. Paddi virti fyrir sér mannlífið í faðmi eiganda síns. Kristinn Magnússon Mikill einhugur ríkti um kosningaáherslur okkar í velferð- armálum á flokksráðs- fundi Sjálfstæð- isflokksins 29. ágúst sl. Áskoranir og tækifæri eru þar fjölmörg og málaflokkurinn er ótví- rætt einn sá mikilvæg- ast og afdrifaríkasti fyrir lífsgæði almenn- ings í landinu. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að taka forystu á þessu sviði enda marg- víslegt umbótastarf fram undan bæði innan heilbrigðisráðuneytisins og velferðarráðuneytisins. Í þessari samantekt er það helsta sem kom fram í ályktun okkar í velferð- arnefndinni, með nánari skýringum frá mér, sem formaður velferð- arnefndar flokksins. Þetta endur- speglast að mestu í stjórnmála- ályktun og kosningaáherslum flokksráðsfundarins. Mótum nýja velferðar- og heilbrigðisstefnu Nauðsynlegt er að móta nýja vel- ferðar- og heilbrigðisstefnu, m.a. hvað varðar samstarf opinberra að- ila við þá fjölmörgu sem sinna einka- rekinni velferðarþjónustu. Efla þarf sérstaklega forvarnir og endurhæf- ingu og virkja einnig einkaframtakið til að fást við það gríðarlega stóra verkefni sem bíður okkar á næstu árum og áratugum vegna öldrunar þjóðarinnar. Forvarnir og endur- hæfing, auk nýtingar nýrrar tækni þar á meðal fjarskipta og upplýsingatækni, getur lækkað heilbrigðis- kostnað, en ekki síst aukið lífsgæði og lengt líf landsmanna. Sjúklingar um land allt þurfa góðar sam- göngur, en jafnframt tækifæri til að nýta stafrænar lausnir. Meira jafnræði þarf að ríkja á milli lands- byggðar og höfuðborgarsvæðisins. Geðheilbrigðismál í sérstakan forgang Leggja ber mun meiri áherslu á forvarnir í geðheilbrigðismálum og snemmtæka íhlutun hvað varðar börn og unglinga. Um helmingur þeirra sem fara á örorku fyrir 35 ára aldur eru með geðsjúkdóm sem meginskýringu. Efla þarf göngu- deildarþjónustu og auðvelda heilsu- gæslunni að sinna betur þessum þætti heilbrigðismála. Nauðsynlegt er að bæta úr hús- næðismálum geðdeildar Landspít- ala. Húsnæðið þarf að vera hent- ugra, nútímalegra, meira aðlaðandi og í takt við nútímasjónarmið í geð- heilbrigðislækningum. SÁÁ hefur lyft grettistaki á sviði áfengissýki og annarra fíkniefna, og ekki er síður þörf á að takast á við geðsjúkdóma og húsnæðismál því tengt. Bætum hag eldri borgara Innleiða þarf nýtt fyrirkomulag ellilífeyris almannatrygginga og skapa jákvæða hvata til vinnu og sveigjanlegra starfsloka. Tekin verði upp sérstök lífeyrisuppbót til þeirra sem hafa áunnið sér takmörkuð líf- eyrisréttindi. Frítekjumark atvinnu- tekna verði hækkað strax í 200.000 krónur á mánuði. Fjölga þarf þjónustuíbúðum og hjúkrunarrýmum, en um leið auka valkosti eldra fólks að búa sem lengst á eigin heimili eða dvelja á hjúkrunarheimili. Heimaþjónusta við aldraða er kerfisdrifin og tekur ekki nægilega vel á þörfum hvers og eins. Án virkrar aðstoðar aðstand- enda eru aldraðir oft í miklum erf- iðleikum. Lagfæra verður rekstr- argrundvöll hjúkrunarheimila svo rekstraraðilar gefist ekki upp og af- hendi ríkinu lyklana. Endurskoðum tryggingakerfi fólks með skerta starfsorku. Almannatryggingakerfi öryrkja er allt of flókið eftir margs konar bútasaum undanfarna áratugi. Tryggja þarf fjárhagslegt sjálfstæði öryrkja og stuðlað sé að því að ör- yrkjar sem hafa starfsgetu geti hafi ávinning af því að afla sér tekna án verulegra skerðinga. Öryrkjum verði auðvelduð þátttaka á almenn- um vinnumarkaði eftir því sem starfsgeta leyfir og tryggja lág- markstekjur til lífsviðurværis án þess að draga úr hvata til sjálfs- bjargar. Nýtum einkaframtakið Nýta þarf einkaframtakið mun betur á sviði heilbrigðisþjónustu og fjárfestinga á því sviði. Ein- staklingaframtak hefur alla tíð verið leiðandi drifkraftur nýsköpunar og framfara. Sjúklingar og heilbrigð- isstarfsfólk þurfa að eiga fleiri en einn valkost þegar kemur að sjúkra- hússtarfsemi og almennri heilbrigð- isþjónustu. Langir biðlistar og tvö- falt heilbrigðiskerfi er þjóðarskömm í velferðarsamfélagi þar sem allir eiga að njóta góðrar þjónustu án til- lits til efnahags eða þjóðfélagsstöðu. Ný stefna í sjúkrahúsþjónustu. Móta þarf heildstæða stefnu í sjúkrahúsþjónustu landsmanna. Landspítali þarf sem þjóðarsjúkra- hús að sinna vel sínu skilgreinda hlutverki á sviði bráðalækninga, flóknustu aðgerða, rannsókna og háskólakennslu. Til að Landspítali geti sinnt þessu forystuhlutverki þarf að gera honum kleift að draga úr annarri starfsemi sem aðrir geta sannarlega einnig komið að. Inn- leiða ber framleiðslumælikerfi svo- kallað DRG-kerfi (e. Diagnosis Related Groups) til að auka gegnsæi og mæla megi framleiðni eða skilvirkni spítalakerfisins. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir skil- virkni kerfisins að geta greint kostnað ákveðinna verka og geta framkvæmt samanburð milli stofn- ana. Meiri nýsköpun í velferðar- og heilbrigðisþjónustu Nýsköpun á öllum sviðum vel- ferðar- og heilbrigðisþjónustu mun stuðla að aukinni hagkvæmni og gæðum í rekstri. Mikil tregða hefur verið hjá sumum opinberum stofn- unum að gera samstarfs og þróun- arsamninga við lítil frumkvöðlafyr- irtæki með stafrænar lausnir og margvíslegar tæknilausnir. Við menntun heilbrigðisstarfs- fólks, vísindarannsóknir og fjárfest- ingu er þörf á fjölbreyttu rekstr- arformi og fleiri atvinnutækifærum, m.a. til að auka áhuga ungs fólks. Með margvíslegu samstarfi við op- inberar stofnanir, einkum Landspít- ala, er hægt að styðja betur við og virkja ótrúlegan drifkraft ein- staklinga og lítilla einkafyrirtækja. Heilbrigðis- og líftæknilausnir eru mikilvægt vaxtatækifæri til atvinnu- sköpunar og útflutnings hér á landi. Nú þegar eru fjölmörg dæmi um fyrirtæki sem hafa náð gífurlegum vexti og árangri á örfáum árum með grænum, hugvitsdrifnum þekking- ariðnaði. Sjálfstæðisflokkurinn boðar nýjar áherslur og nýja tíma í velferðar- og heilbrigðismálum. Það sem kallað hefur verið vandamál á þessu sviði er miklu fremur tækifæri. Líklega eru hvergi meiri tækifæri til úrbóta og framfara en í velferðar- og heil- brigðismálum. Komum því í verk! Eftir Þorkel Sigurlaugsson » Sjálfstæðisflokk- urinn þarf að taka forystu í velferðar- og heilbrigðismálum. Lík- lega eru hvergi meiri tækifæri til úrbóta og framfara en á því sviði. Þorkell Sigurlaugsson Höfundur er formaður velferðar- nefndar Sjálfstæðisflokksins. Land tækifæranna í velferðarmálum Bændur hafa náð undraverðum árangri síðustu áratugi. Þeir framleiða verðmætari vöru, af meiri gæðum, með minni notkun varnarefna og sýkla- lyfja, með minna um- hverfisfótspori. Fram- leiðnivöxtur í landbúnaði hefur verið viðvarandi vegna sí- felldra tækniframfara. Grunnurinn sem þessi þróun hefur hvílt á er einkaframtakið, bænd- ur eru atvinnurek- endur sem eiga sínar jarðir og rækta jarðir sínar. Þeir huga að hagsmunum framtíð- arinnar og sjálfs síns. Eignarrétturinn er hornsteinn verð- mætasköpunar Grundvöllurinn að velgengni Ís- lendinga á 20. öldinni var í gegnum eignarréttinn. Við kröfðumst eign- arréttar að miðunum í kringum landið í kjölfar þess að þjóðin fékk sjálfstæði. Í krafti þess eignarréttar gátum við stýrt veiðum á sjálfbæran hátt og aukið verðmætasköpun. En sambærileg þróun varð einnig í landbúnaði, bara mun fyrr. Í upp- hafi 20. aldar var innan við þriðj- ungur bænda sjálfseignarbændur. Mikill meirihluti voru leiguliðar. Í kjölfar kirkjujarðasamninga við þjóðkirkjuna voru svo jarðir kirkj- unnar seldar til bænda. Þannig hófst uppgangurinn í íslenskum landbúnaði. Síðustu ár hefur svo þessi þróun gengið nokkuð til baka – illu heilli. Eignarréttur er takmarkaður smátt og smátt með auknum kröfum frá hinu opinbera um alla mögulega hluti. Tilkynna þarf til sveitarfé- lagsins ef það á svo mikið sem byggja hænsnakofa. Sumir vilja að bændum verði fyrirskipað að fylla ofan í skurði sem eru á jörðum þeirra á eigin kostnað. Þetta er óheillaþróun og hennar má sjá stað í opinber- um tölum, en fjármunir sem hið opinbera setur í eftirlit með landbún- aði hefur margfaldast á síðustu þrjátíu árum á meðan stuðningur við landbúnað hefur farið minnkandi. Styðjum frekar nýsköpun og hugvit frekar en sívax- andi eftirlitsiðnað. Skýrari og einfald- ari reglur Réttara væri að hið opinbera beitti sér frekar fyrir einföldun á meginreglum um ráð- stöfun lands í stað þess að byggja upp síflókn- ari eftirlitskerfi. Með innleiðingu tæknilausna á sviði rekjanleika mætti auka aðhald markaðarins með starfsháttum þannig að neytendur geti sent skýrari skilaboð um hvað þeir telja æskilega búskaparhætti. Íslenskur landbúnaður hefur alla tíð aðlagast markaðsaðstæðum á hverj- um tíma, þó að vitanlega séu ekki teknar handbremsubeygjur í þeirri grein. Á tímum þar sem örar breyt- ingar eru á neysluháttum, loftslagi og viðskiptum þarf að hvetja bænd- ur til að fjárfesta í nýsköpun og til að þeim sé það kleift þarf að draga úr sem kostur er þeirri byrði sem papp- írsflóð eftirlitsaðila og fylgjandi kostnaður felur í sér. Þannig getum við virkjað hið frjálsa framtak bænda í þágu auk- innar verðmætasköpunar úti um land allt. Frjáls bóndi er bústólpi Eftir Vigdísi Häsler Vigdís Häsler »Eignarréttur er takmark- aður smátt og smátt með auknum kröfum frá hinu opin- bera um alla mögulega hluti. Höfundur er framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.