Morgunblaðið - 04.09.2021, Síða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021
Íbúðir sem upp-
fylla skilyrði um
hlutdeildarlán
Berjateigur 17-23, 250 Garði
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Nýjar fullbúnar og vandaðar 3ja herbergja íbúðir í
raðhúsi á einni hæð, með sólpalli, sem snýr í vestur.
ATH. Næsta umsóknartímabil
hlutdeildarlána HMS er
frá 1. til 15 sept.
Berjateigur 17 82,9 m2 Seld
Berjateigur 19 81,9 m2 36.900.000.-
Berjateigur 21 81,9 m2 36.900.000.-
Berjateigur 23 82,9 m2 37.900.000.-
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Afhending í nóvember 2021
E
ins og komið hefur fram í
fyrri pistlum greinarhöf-
undar komst Rauf
Mamedov frá Aserbaíd-
sjan einn í efsta sæti Reykjavíkur-
mótsins/EM einstaklinga eftir fimm
umferðir af ellefu. Hann hélt foryst-
unni með sannfærandi sigri í 6. um-
ferð en hefur síðan gert tvö stutt
jafntefli. Kannski vinnur hann mót-
ið, hver veit, en það verður þó að
teljast ólíklegt; að semja jafntefli
eftir nokkra leiki og ganga svo frá
borði hefur aldrei verið talið líklegt
til árangurs í opnum mótum. Jafn-
framt vaknar sú spurning af hverju
svo stutt jafntefli eru leyfð en flest
stórmót nú til dags girða fyrir þann
möguleika með svonefndri 30 leikja
reglu eða annarri sem kennd er við
höfuðborg Búlgaríu, Sofíu. En hvað
um það, eftir 8. umferð fimmtudags-
ins höfðu tveir keppendur komist
upp við hlið Aserans en staða efstu
manna var þá þessi: 1. – 3. Dem-
chenko (Rússlandi), Rauf Mamedov
(Aserbaídsjan) og Keymer (Þýska-
landi ) 6½ v. 4. – 9. Gabusjan
(Armeníu), Kacper (Póllandi), Sar-
ana (Rússlandi), Romanov (Rúss-
landi), Mustafa (Tyrklandi) og Nid-
jat Mamedov (Aserbaídsjan) 6 v.
Um nokkurt skeið hefur verið
beðið eftir frábærri frammistöðu
Þjóðverjans unga, Vincent Keymer,
sem komst í fréttirnar snemma árs
2018 er hann vann opna Grenke-
mótið í Þýskalandi með því að hljóta
8 vinninga af 9 mögulegum og varð
fyrir ofan 49 stórmeistara. Keymer
sem er aðeins 16 ára gamall skaust í
toppsætið á Hotel Natura með því
að leggja David Navara að velli í 60
leikjum með svörtu eftir miklar
flækjur.
Bestu íslensku skákmennirnir
virðast ekki eiga mikla möguleika á
því að blanda sér í baráttuna um
efstu sætin. Þeir hafa verið að
skiptast á einhvers konar forystu-
sæti í „innbyrðis keppni“ allt mótið.
Um tíma var Hjörvar Steinn Grét-
arsson efstur en svo tók Hannes
Hlífar við. Eftir umferðina á
fimmtudaginn komst Helgi Áss
Grétarsson hins vegar fram úr með
góðum sigri og hefur nú 5 vinninga
af átta mögulegum. Sigur hans yfir
Marin Bosiocic frá Króatíu var
glæsilegur; eftir snúna byrjun ríkti
ákveðið jafnvægi á skákborðinu og
sennilega var Bosiosic að tefla til
vinnings en möguleikarnir lágu
samt einhvern veginn allir Helga
megin. Í lokin náði Helgi að snara
andstæðing sinn í mátnet:
Reykjavíkurskákmótið/
Evrópumót einstaklinga, 8. um-
ferð:
Sjá stöðumynd 1.
Marin Bosiocic – Helgi Áss Grét-
arsson
Hvítur er peði yfir en Helgi getur
jafnað þann mun með því að leika
45. … Hxf5. En hann sá færi á því
að tefla til vinnings …
45. … Bd4!
Beinir skeytum sínum að b6-
peðinu en meira býr undir.
46. Hh7 Ha2+! 47. Kh3 Kxf5!
Og nú gengur ekki 48. Hxg7
vegna 48. … Bg1! sem hótar máti og
vinnur strax.
48. Bc7 g5!
Hótar enn máti með 49. … g4+
og 50. … Hxh2 mát.
49. g4+ Ke4 50. He7+?
Eina von um björgun var að leika
50. Hd7.
50. … Kf3 51. He8
Ekki dugar 51. Hf7 vegna 51. ...
Ha8 og vinnur.
51. … f5! 52. gxf5
Eða 52. Hf8 f4! sem hótar enn 53.
… Bg1 o.s.frv.
52. … Bf6! 53. Hg8 Ha8!
Óþægilegur hnykkur, 54. Hxa8 er
svarað með 54. … g4 mát.
54. Bxe5 g4+!
og hvítur gafst upp. Mátið blasir
við eftir 55. Hxg4 Hh8+.
Mestu stigahækkun eins og stað-
an var eftir átta umferðir hafði Arn-
ar Milutin Heiðarsson náð og stóð
hækkunin í 74 elo-stigum.
Beðið eftir
Vincent Keymer
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Heimasíða REK/EM
Efstur Vincent Keymer komst í efsta sætið á fimmtudagskvöldið.
Stöðumynd 1.
Ólafur Stephensen,
fyrir hönd hillupláss-
hafa í ÁTVR, hefur
ítrekað í viðtali í Morg-
unblaðinu fyrirmæli til
dómsmálaráðuneytisins
um að ráðuneytið dæmi
í meintum „skattalaga-
brotum“ sem og brot er
varða „löggæslu“ í
framhaldi af fyrri fyr-
irmælum sama efnis
sem beint var til fjármálaráðuneyt-
isins.
Ekki er alveg ljóst af hverju fjár-
málaráðuneytið áframsendi fyrir-
mælin nema vegna formsatriða þar
sem umrædd lög heyra undir dóms-
málaráðuneytið. Flestir vita að á Ís-
landi er sk. þrískipting ríkisvaldsins í
gildi þar sem dómsvald er einmitt
sjálfstætt og blessunarlega ekki undir
valdboði ráðherra.
Ólafur nefnir að uppi sé „furðuleg
staða“ og að hann eigi rétt á að fá
„skýr svör um afstöðu stjórnvalda“.
Það sem er auðvitað furðulegast við
þá stöðu sem nú er uppi á 21. öld er að
á Íslandi skuli vera til staðar einok-
unarverslun sem þar að auki er rekin
af hinu opinbera sem einnig rekur
Samkeppniseftirlit sem ætlað er að
fyrirbyggja slíkan rekstur. Markmið
ríkiseinokunarverslunar er að neyða
neytendur með hálstaki til viðskipta
en á vef www.sante.is fara allir sjálfvilj-
ugir sem vilja gera betri kaup. Það er
ekki bara furðulegt að einokun skuli
vera til staðar heldur stórfurðulegt að
einstaklingur í forsvari fyrir sjálfstætt
starfandi atvinnulíf skuli berjast fyrir
slíku ofbeldi gegn atvinnufrelsi.
Einstök ráðuneyti
geta auðvitað gefið út
álit í málum sem þessum
en þau geta reyndar líka
ákveðið að gera það ekki
og skal því spáð hér.
Fjármálaráðherra hefur
reyndar sagt í viðtali við
Morgunblaðið að „ég á
erfitt með að sjá að net-
verslun með áfengi
stangist á við lögin“.
Skýrari verða nú álitin
varla. Á hinn bóginn er
rétt að ÁTVR hefur einmitt kært
Sante.is, m.a. fyrir að innheimta virð-
isaukaskatt án þess að hafa til þess
virðisaukaskattsnúmer. Þeirri kæru
var beint réttilega til þess aðila sem
úthlutaði Santewines. SAS-númerinu
140848 og mun því einmitt vera rétt-
ur aðili til að „taka af allan vafa“ í
samræmi við fyrirmæli Ólafs sem þó
gæti reyndar gert slíkt sjálfur með
einu símtali. Um önnur vafaatriði,
eins og hvort samningurinn um Evr-
ópska efnahagssvæðið sé í gildi gæti
félagsskapur Ólafs þá bara höfðað
sérstakt dómsmál, nema ef Ólafur
tæki einföldu svari frá ráðherra um
að svo sé. Hið eiginlega álitamál er þó
auðvitað hvaða hagsmunum Félag at-
vinnurekenda berst fyrir.
Vafamál og
undarlegheit
Eftir Arnar
Sigurðsson
»Hið eiginlega álita-
mál er þó auðvitað
hvaða hagsmunum Fé-
lag atvinnurekenda
berst fyrir?
Arnar Sigurðsson
Höfundur er víninnflytjandi.
arnar@santewines.net
Sigurbjörg Þorláksdóttir
fæddist á Undirfelli í Vatnsdal í
Húnavatnssýslu 5. september
1870. Hún var dóttir hjónanna
Þorláks Þorlákssonar bónda og
Margrétar Jónsdóttur og var
systir Jóns Þorlákssonar, verk-
fræðings og formanns Íhalds-
flokksins. Sigurbjörg fór í Flens-
borgarskóla til að verða kennari
og sótti framhaldsnám erlendis
og starfaði við Barnaskóla
Reykjavíkur alla tíð.
Sigurbjörg var mikil félags-
málakona og talsmaður kven-
réttinda og var virk í bæði Kven-
réttindafélaginu og Lestrarfélagi
kvenna, sem studdi meiri mennt-
un kvenna og framgang menn-
ingar. Þegar hún gekk til liðs við
Hvíta bandið árið 1912 var hún
kosin varaformaður og gegndi
þeirri stöðu alla sína tíð. Hún
varð til þess að barnadeild var
stofnuð innan Hvíta bandsins og
gerði tillögur um barnaleikvelli í
bænum og að sett væru á stofn
dagheimili fyrir börn, sem hún
gerði sjálf um nokkurra ára
skeið. Einnig var hún mikill
hvatamaður að stofnun hjúkr-
unarheimilis fyrir landsbyggð-
arfólk og að Hvíta bandið reisti
sitt eigið sjúkrahús.
Hún var á lista Íhaldsflokksins
1927 en náði ekki kjöri en ári
seinna varð hún ásamt Mörtu
Einarsdóttur fyrsti ritstjóri
kvennablaðsins Brautarinnar.
Sigurbjörg lést 26. desember
1931 eftir erfið veikindi.
Merkir Íslendingar
Sigurbjörg
Þorláksdóttir
Móttaka aðsendra greina
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig
eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið.
Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100
frá kl. 8-18.