Morgunblaðið - 04.09.2021, Page 26

Morgunblaðið - 04.09.2021, Page 26
26 UMÆÐAN Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Organist- inn okkar Kriztina Kalló Szklenár er í 9 mán- aða leyfi. Við bjóðum Hrafnkel Karlsson vel- kominn til starfa með okkur í Árbæjarkirkju. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 13. Gætið að nýjum messutíma sem hafður verður til næsta vors. Séra Aldís Rut Gísladóttir prest- ur í Laugardalsprestakalli prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Áskirkju syngja, orgelleikari er Bjartur Logi Guðnason. Heitt á könnunni eftir guðsþjónustuna. Sunnudaga- skólinn hefst síðar í mánuðinum og verður auglýstur þegar þar að kemur. Hann verður kl. 13 á sama tíma og almenna guðsþjón- ustan. BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11, upphaf barnastarfsins á haustmisseri. Lærisveinar hans leiða söng- inn. Ástvaldur er organisti, Sigrún Ósk, Vil- borg Ólöf og sr. Hans Guðberg leiða stund- ina. BORGARNESKIRKJA | Við hlökkum til að bjóða ykkur velkomin í fyrstu guðsþjónustu haustins kl. 11. Séra Þorbjörn Hlynur Árna- son þjónar fyrir fyrir altari. Steinunn Árnadótt- ir leikur á orgel og leiðir sálmasöng, ásamt kirkjukór Borgarneskirkju. BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Gleði og söngur, saga um Jesú og bænir. Steinunn Þorbergsdóttir og Steinunn Leifsdóttir kynna vetrarstarfið. Sr. Magnús Björn Björnsson kynnir Alfa námskeiðið og starf Alþjóðlega safnaðarins. Organisti er Örn Magnússon. Kaffi og meðlæti eftir guðsþjónustu. Alþjóðlegi söfnuðurinn: Guðsþjónusta á ensku kl. 14. ICB: Worship & Prayer service 14. Toshiki Toma and Ása Layfey Sæmnuds- dóttir, pastors for immigrants and refugees. BÚSTAÐAKIRKJA | Síðasta kvöldmessa sumarsins kl. 20. Sr. María G. Ágústsdóttir hefur umsjón með stundinni ásamt messu- hópi. Þórður Sigurðarson og félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju sjá um fjölbreytta tónlist. Eldriborgarastarfið hefst 8. sept. kl. 12.30-16. Karlakaffi 10. sept. kl. 10. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr Gunnar Sigurjónsson. Organisti er Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Léttar veitingar að messu lokinni. Paramessa í Hjallakirkju kl. 17. Sr. Bolli Pét- ur Bollason og sr. Sunna Dóra Möller. Matt- hías V. Baldursson leikur á píanó og Friðrik Karlsson á gítar. Lofjörðarhópur Hjallakirkju leiðir söng. Veitingar að lokinni messu DÓMKIRKJAN | Guðþjónusta klukkan 11. Prestur er Elínborg Sturludóttir, Kári Þormar er organisti og Dómkórinn syngur. EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagur: Kvöld- guðsþjónusta kl. 20. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir leiðir stundina ásamt Berglindi Hönnudóttur fræðslufulltrúa og Torvald Gjerde organista. Kynningarfundur með væntanlegum fermingarbörnum á Héraði og foreldrum þeirra eftir messu. Sunnudaga- skólinn hefst 12. september kl. 10.30. Þor- geir Arason, sóknarprestur. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Meðhjálp- ari er Helga Björg Gunnarsdóttir. Kaffisopi eftir stundina. FRIÐRIKSKAPELLA | Játningarbundin ev- angelísk-lútersk kristni heldur guðsþjónustu 5. september kl. 11. Sakarías Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Innsetningarat- höfn sunnudag kl. 14. Þá verður dr. Sigurvin Lárus Jónsson settur prestur við Fríkirkjuna í Reykjavík. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson forstöðumaður leiðir innsetningu og dr. Sigurvin Lárus Jóns- son flytur prédikun sem ber yfirskriftina Frjálslynd og framsækin Fríkirkja. Að lokinni guðsþjónustu verður kaffi í safn- aðarheimilinu, þar sem dr. Sigurvin segir ferðasögu af námi sínu og kennslu við þrjá erlenda háskóla. GARÐAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Svein- björn R. Einarsson þjónar fyrir altari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jó- hanns Baldvinssonar. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Magnús Erlingsson og sr. Sigurður Grétar Halldórsson þjóna. Kór Grafarvogs- kirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifs- son. Fermingarbörn í Foldaskóla og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðnir velkomnir. Sunnudagaskólinn hefst á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón með honum hefur Ásta Jóhanna Harðardóttir. GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng | Guðsþjónustan kl. 13. Sr. Arna Ýrr Sigurð- ardóttir þjónar. Sr. Magnús Erlingsson pré- dikar. Vox Populi leiðir söng. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. María Guðrúnar Ágústsdóttir þjónar ásamt messuhópi, Kristjáni Hrannari Páls- syni organista og Kirkjukór Grensáskirkju. Kyrrðarstund á þriðjudag kl. 12 og núvitund- arstund á fimmtudag kl. 18.15-18.45, einnig á netinu. 12-spora starfið er með opinn fund á fimmtudag kl. 19.15-21.15. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fyrsta fjölskylduguðsþjónusta vetrarins kl. 11. Sr. Pétur Ragnhildarson æskulýðsprestur leiðir stundina ásamt Ásbjörgu og Gyðu barnakórs- stjórum. Eftir stundina grillum við pylsur og fáum djús hjá Lovísu kirkjuverði! HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Sunnudagaskólinn hefst. Lalli töframaður sýnir listir sínar. Ferm- ingarbörn hvött til að koma. Prestur er Jón- ína Ólafsdóttir. Organisti er Guðmundur Sig- urðsson. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Prestar: Sigurður Árni Þórðarson og Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Messuhópur aðstoð- ar. Organisti: Steinar Logi Helgason. Kvartett syngur. Umsjón barnarstarfs: Kristný Rós Gústafsdóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir. Eft- ir messu verður aðalfundur Hallgrímssóknar. HÁTEIGSKIRKJA | Ferming kl. 10.30. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Prestar eru Helga Soffía Konráðsdóttir og Eiríkur Jóhannsson. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta kl. 17. Hjónin sr. Bolli Pétur Bollason og sr. Sunna Dóra Möller leiða stundina sem nefn- ist paramessa. Matthías V. Baldursson stjórnar tónlistinni og leikur á píanó, Friðrik Karlsson á gítar og hinn nýstofnaði Lofgjörð- arhópur Hjallakirkju sér um sönginn. Eftir stundina verður boðið upp á mat í safn- aðarsalnum gegn vægu gjaldi. HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Ninna Sif Svavarsdóttir, Kirkju- kór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna syng- ur, organisti er Miklós Dalmay. Fermingar- börn og foreldrar boðin sérstaklega velkomin! KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 í Borgum, safnaðarheimili Kópavogskirkju. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkj- unnar. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11 og sunnudagaskóli í safnaðarheimili kirkjunnar. Aldís Rut Gísladóttir prestur þjónar, Magnús Ragnarsson er organisti og félagar úr kór Langholtskirkju syngja. Kaffisopi eftir messu í safnaðarheimilinu. LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Elísabet Þórðardóttir organisti og Kór Laugarneskirkju annast tónlistarflutning. Sr. Jón Ragnarsson þjónar fyrir altari og prédik- ar. Kaffi og samvera í safnaðarheimilinu á eftir. Sunnudagaskólinn hefur göngu sína. Stundin byrjar á sameiginlegri stund í kirkj- unni en síðan fara börnin til sinnar samveru í safnaðarheimilinu. Eftir sunnudagaskólann er boðið upp á kirkjudjús og kex. NESKIRKJA | Guðsþjónusta og upphaf sunnudagaskólans. Eftir sameiginlegt upp- haf færir sunnudagaskólinn sig yfir í safn- aðarheimilið þar sem við tekur söngur, leikur og sögur. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Hilda María Sigurðardóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Kristrún Guðmundsdóttir auk Ara Agnarssonar sem leikur undir. Í guðsþjónustunni syngja félagar úr kór Nes- kirkju og leiða söng undir stjórn Láru Bryn- dísar Eggertsdóttur. Prestur er Steinunn A. Björnsdóttir. Hressing eftir helgihald. SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11, söngur og gleði, Biblíusaga og brúðuleikrit. Ávaxtahressing og mynd til að lita í lokin. Guðsþjónusta kl. 13, ath. breyttan messu- tíma, Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar, Kór Seljakirkju syngur og Tómas Guðni Eggerts- son leikur á orgelið. Messukaffi í lokin. SELTJARNARNESKIRKJA | Uppskeruguð- sþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og samfélag eftir at- höfn í safnaðarheimilinu. Grænmetismark- aður verður haldinn eftir guðsþjónustuna til styrktar innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkj- unnar. VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónus- takl 11. Upphaf sunnudagaskólans. Matt- hildur Bjarnadóttir og fræðarar sunnudaga- skólans stýra guðsþjónustunni. Barnakórar syngja undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sunnu- dagaskóli kl. 10. Fjölbreytt og fræðandi stund í umsjá Benedikts Sigurðssonar. Börn- in fá fjársjóðskistu að gjöf og safna í hana myndum, fá eina mynd í hverjum sunnudaga- skóla sem verður alla sunnudaga í vetur kl. 10. Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonSaurbæjarkirkja á Rauðasandi. Guðmundur Thor- steinsson (Muggur) listmálari fæddist á Bíldudal 5. sept- ember 1891 og er sem betur fer dáður af öllum sem komnir eru til vits og ára. Björn Th. Björnsson listfræðingur, sem kunni sögu Muggs manna best, kallaði hann gulleplið frá Bíldudal. Ég und- irritaður er svo sann- arlega sammála Birni, því víst var hann það. Hann er að mínum dómi listrænt stolt okkar, sem hér erum fædd og uppal- in, og öllum sem láta sig svona mál varða. Öllum sem ekki ganga með lokuð augu fyrir því sem göfgar hug og hönd. Muggur var okkar fyrsti kvikmyndaleik- ari er hann lék Orm- ar Örlygsson í kvik- myndinni Sögu Borgarættarinnar 1919. Hann fékkst við alla hluti sem til myndlistar horfðu, og var gamanvísna- söngvari, gamanleik- ari og allt sem nöfn- um tjáir að nefna. Muggur var hug- ljúfur listamaður. Hann var eins og hvítur fugl fljúgandi, en snemma merktur feigð sinni, þannig að hann flaug ævinlega með vængbroddinn í bárum dauðans, það gerði léttlyndi hans svo stórkostlegt og angurværð hans svo þunga og svo sanna. Mér hefur verið tjáð að myndlist- arsýning verði um Mugg á Lista- safni Íslands. Hér á Bíldudal var reistur minnisvarði honum til heiðurs 5. september 1981, á 90 ára afmælinu. Þrír menn stóðu fyrir því; Magnús K. Björnsson oddviti, Guðmundur Hermannsson sveitarstjóri og Jón Kr. Ólafsson söngvari. Lágmynd af Mugg gerði Guðmundur Elí- asson og blágrýt- isdrangur sem ber uppi lágmyndina er frá S. Helgasyni stein- smiðju. Að endingu þetta: Ég vona að legsteinn Muggs í Suðurgötu- kirkjugarði, sem gerð- ur var af Elof Christi- an Risbye og hann sendi frá Kaupmanna- höfn til Íslands með skipi, verði tekinn ærlega í gegn, okkur öllum til sóma. Kominn er tími til, því nú mun ég undirrit- aður fara að hætta þessu viðhaldi sem ég hef sinnt um 40 ára skeið á hinu glæsilega listaverki Ris- byes. 130 ára minning Guðmundar Thor- steinssonar, Muggs Eftir Jón Kr. Ólafsson Jón Kr. Ólafsson »Ég vona að legsteinn Muggs í Suðurgötukirkjugarði, sem gerður var af Elof Christian Risbye verði tekinn ærlega í gegn, okkur öllum til sóma. Höfundur er söngvari, Bíldudal. Legsteinn Muggs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.