Morgunblaðið - 04.09.2021, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 35
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Umsóknarfrestur er til 18. september 2021. Sótt er um starfið á landsnet.is.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar
veitir Ólafur Kári Júlíusson, mannauðssérfræðingur, mannaudur@landsnet.is.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Framkvæmd innkaupaferla og samskipti við birgja
• Innkaup á vörum og þjónustu
• Umsjón með gæðaferlum innkaupa
• Innkaupagreiningar, tölfræði og mælingar
• Þróun birgjamats
• Gerð samninga, samningsstjórnun og kostnaðareftirlit
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi; framhaldsmenntun er kostur
• Marktæk þekking og reynsla af innkaupum, útboðum
og samningsgerð
• Þekking á opinberum innkaupum; þekking á veituinnkaupum
er kostur
• Þekking á samningsskilmálum, s.s. FIDIC og NLM, er kostur
• Þekking á innkaupa- og útboðskerfum er kostur
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Þjónustulund
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
RAFMÖGNUÐ
STÖRF
Sérfræðingur í innkaupum
Landsnet býður upp á fyrsta flokks aðbúnað
og góðan starfsanda á eftirsóttum vinnustað
þar sem nýsköpun og tækifæri til framgangs
í starfi eru höfð að leiðarljósi.
Við leitum að fjölhæfu og
framúrskarandi samstarfsfólki
á vinnustaðinn okkar.
Um er að ræða áhugavert og krefjandi starf
fyrir útsjónarsama einstaklinga í kviku umhverfi.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Rekstur og viðhald á rafbúnaði í tengivirkjum
(há- og lágspennubúnaði)
• Þátttaka í framkvæmdaverkefnum við endurnýjun
og nýbyggingar flutningsvirkja
• Undirbúningur og frágangur verkefna á starfsstöð
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun í rafvirkjun eða rafveituvirkjun
• Reynsla af vinnu við háspennu æskileg
• Sterk öryggisvitund
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Metnaður og rík ábyrgðarkennd
Rafvirki /rafveituvirki
Um er að ræða fjölbreytt starf við að tryggja örugga
afhendingu raforku á Íslandi. Starfsvettvangur er um allt
land og starfsstöðvarnar eru á Akureyri og Reykjavík.
ISAL í Straumsvík er fjölbreyttur vinnustaður
sem byggir framtíð sína á framúrskarandi
starfsfólki. Við framleiðum hágæða ál með
heilbrigðis-, jafnréttis- og öryggismál í fyrirrúmi
í sátt við umhverfi og samfélag.
Umsækjandi þarf að fara í heilsufarsskoðun
ef af ráðningu verður.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna star!nu.
Rio Tinto á Íslandi hf. óskar eftir því að ráða metnaðarfullan einstakling í starf sérfræðings í
öryggisteymi fyrirtækisins.
Við leitum að öflugum einstaklingi í starf sérfræðings öryggismála og eldvarna.
Fyrirtækið leggur sig fram um að tryggja öryggi starfsmanna sinna, auka þekkingu þeirra á
öryggismálum og skapa þannig skaðlausan vinnustað.
Starfssvið:
• Forvarnir í öryggismálum og stuðningur við allar deildir fyrirtækisins.
• Þjálfun og fræðsla fyrir starfsmenn ásamt þróun fræðsluefnis.
• Umsjón með áhættugreiningum.
• Innleiðing á nýjum aðferðum til að bæta öryggismenningu.
• Umsjón með atvikaskráningu, greining orsaka og eftirfylgni úrbóta.
• Úrvinnsla gagna og skýrslugerð.
• Umsjón með neyðarvarnarstjórn.
• Þátttaka í innri og ytri úttektum.
• Samskipti innan fyrirtækisins og við ytri aðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi.
• Færni í mannlegum samskiptum.
• Þekking á öryggisstjórnun og straumlínustjórnun kostur.
• Faglegur metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni.
• Góð íslensku-og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð tölvukunnátta.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 6. september nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Umsjón með star!nu hafa "uður
Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is)
og Hildur Jóna Ragnarsdóttir
(hildur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Sérfræðingur
á sviði öryggismála