Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 38

Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 38
I ngileif Arngrímsdóttir fædd- ist 4. september 1946 í húsi móðurafa og ömmu sinnar á Skólavörðustíg 15 í Reykja- vík og er elst fjögurra systra. Faðir Ingileifar byggði í Blönduhlíð 29 og þar ólst Ingileif fyrst upp. Þeg- ar hún var tíu ára flutti fjölskyldan í Laugarneshverfið. „Það var auðvitað verið að byggja upp hverfið og þegar verið var að byggja 8 hæða blokkina þarna fannst systrum mínum mjög spennandi að hanga þar í stillöns- unum, sérstaklega þeirri yngstu,“ segir hún hlæjandi. „Síðan var þetta bara sveit fyrir utan nýbyggingarnar. Sigurður, pabbi Þuríðar söngkonu, var enn þá með býli í Laugarnesinu.“ Eftir landspróf fór hún að vinna í fjölskyldufyrirtækinu Vörðunni, sem þá var á Laugavegi 60, beint á móti Kjörgarði, en fluttist síðan á Grett- isgötu 2, þar sem búðin var árum saman. „Pabbi var verkstjóri í Hörpu í mörg ár og svo keypti hann Vörð- una. Fyrst var hún vefnaðarvörubúð en svo fór hann að flytja inn Silver Cross-barnavagna og fleiri tengdar vörur. Við vorum allar systurnar að vinna í fyrirtækinu.“ Ingileif kynntist eiginmanni sínum, Sigmari Ægi, á dansleik í bænum. Hann var sjómaður og þau giftu sig nokkrum árum síðar. Búskapinn hófu þau í herbergi hjá foreldrum hennar, en fluttu síðan á Grettisgötuna þegar faðir hennar keypti húsið árið 1969. Þá flutti öll fjölskyldan í þetta stóra hús sem varð mikið fjölskylduhús og stutt fyrir Ingileifi að fara í vinnuna í verslunina sem var á neðstu hæðinni. „Ég var kannski ekki hefðbundin sjó- mannskona á þessu tímabili því ég hafði svo mikinn stuðning af fjöl- skyldunni. Ég eignaðist fyrsta barn- ið, Arngrím, árið 1965, en svo missti ég dreng tveimur árum síðar sem varð bara fimm daga gamall.“ Fjöl- skyldan fluttist út á Seltjarnarnes 1974 og nokkrum árum síðar fæddust dæturnar Marta og Sunna. „Við flutt- um inn í nýbyggða blokk í Tjarn- arbólinu og það var verið að byggja allt þarna upp í kring.“ Eins og títt er um sjómannskonur rak Ingileif fjölskylduna eins og fyrirtæki og sá um alla hluti í landi. Það er ekki einfalt að vita af eigin- manninum úti á ballahafi við alls kon- ar aðstæður og vona og biðja að allt gangi vel. „Við áttum heima úti á Nesi þegar slysið varð í Vöðlavík 10. janúar 1994. Þennan dag var ég að keyra í vinnuna og það stökk kol- svartur köttur fyrir bílinn hjá mér rétt við Vegamót og ég hugsaði með mér að nú hefði eitthvað gerst. Svo var hringt í mig stuttu seinna um daginn og sagt að Goðinn væri í háska og það væri verið að reyna að bjarga áhöfninni. Það var ekkert hægt að fara í land eða gera neitt þarna fyrir austan. Þeir komu frá varnarliðinu í Keflavík með þyrlur og það voru þeir sem björguðu mönn- unum. Einn maður lést en öðrum var bjargað. Það er eiginlega ekkert hægt að lýsa því hvernig manni líður við svona fréttir og svo léttinn þegar ég vissi að Sigmar væri hólpinn.“ Ingileif segir að lengi á eftir hafi Sigmar átt erfitt eftir slysið. „Á þess- um tíma var lítil áfallahjálp. Það er svakaleg lífsreynsla að lenda í svona slysi og maður getur ekkert ímyndað sér hvernig það er nema hafa reynt það sjálfur.“ Þótt Sigmar hafi af og til unnið í landi var sjómennskan samt hans aðalstarf og það leið ekki langur tími þar til hann fór aftur á sjó. „Mað- ur er alltaf hræddur eftir svona áfall að það geti gerst aftur. En svo er bara að drífa sig áfram.“ Og lífið hélt áfram. Ingileif og Sigmar fóru mikið í veiði á sínum yngri árum. „Við fórum Ingileif Arngrímsdóttir verslunarkona og sjómannskona – 75 ára Morgunblaðið/Ernir Verslunarstörfin Ingleif vann í fjölskyldufyrirtækinu Vörðunni á horni Grettisgötu og Klapparstígs alla tíð. Lífið heldur alltaf áfram Hjónin Sigmar og Ingileif á góðri stundu á Spáni. Heimkoman Það var grátið af létti þegar fjölskyldan tók á móti Sigmari eftir björgunina á Goðanum árið 1994. 38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 Vinsamlegast pantið tíma hjá ráðgjafa í síma 580 3900 Fastus ehf. | Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I fastus.is fastus.is Agility Föhr 4 FUHR Super 8 Mini Comfort RAFSKUTLUR 30 ÁRA Ásgeir fæddist í Keflavík og býr þar enn. „Ég rek Bílaleiguna Geysi í Keflavík. Þetta er fjölskyldufyrirtæki og ég hef starfað þarna alla tíð frá því ég var 13 ára og var að þrífa bíla. Ég hef ýmsa fjöruna sopið í þessum geira. Það er búið að vera brjálað að gera í sumar, en svo för- um við inn í einhvern skrýtinn vetur núna. Það eru alltaf svolitlar sveiflur í þessum bransa.“ Ásgeir hefur mikinn áhuga á bílum en þar stoppar ekki boltinn. „Ég er rosalega mikill dellumaður. Hef gaman að útivist, mótorsporti, vélsleðum og stangveiði, svo eitthvað sé nefnt. Ég hef bara gaman að því að njóta lífsins.“ Yfirleitt er tugþúsunda afmælishátíð til heiðurs Ásgeiri á afmælisdaginn, en verður eitthvað færra núna. „Það er venjan að það sé ljósanótt á afmælinu mínu en núna verður þetta aðeins minna, nema maður fari að skjóta upp flugeldum.“ FJÖLSKYLDA Eiginkona Ásgeirs er Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, f. 30.6. 1989, og þau eiga börnin Vilhjálm Ísar, f. 2018, og Dagbjörtu Kötlu, f. 2020. Ásgeir Elvar Garðarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú ert svo heillandi og sannfærandi þessa dagana að þú getur selt næstum hverjum sem er hvað sem er. Gömul leynd- armál munu komast á hreint. 20. apríl - 20. maí + Naut Það er óþarfi að byrgja allt inni þegar þú átt aðgang að góðum sálufélaga. Ekki ana að neinu í sambandi við fasteignakaup, lestu smáa letrið vel. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú gerir bara illt verra með því að stinga hausnum í sandinn og láta sem þú sjáir ekki það sem gera þarf á heimilinu. Ekki láta aðra notfæra sér góðsemi þína. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Einhver kemur þér skemmtilega á óvart svo taktu þátt í gamninu. Gaumgæfðu alla valkosti sem bjóðast. Veldu aðeins það besta fyrir þig. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú veist nákvæmlega hvernig þú vilt hafa hlutina. Fyrirgefning er það besta í stöðunni varðandi vissan aðila. Þannig frels- ar þú þig. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þér finnst þú vera beitt/ur óréttlæti og vilt helst leggjast undir sæng og vor- kenna þér. Ef þú skoðar hlutina betur þá sérðu að þú getur borið höfuðið hátt. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það er orðið tímabært að þú ýtir úr vör verkefni sem þig hefur lengi dreymt um. Fólk mun að öllum líkindum sýna skilning og samstarfsvilja þegar þú útskýrir mál þitt. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Láttu það ekki slá þig út af lag- inu þótt þér finnist aðrir afskiptalausir um þína hagi. Allir hafa nóg með sitt og sína. Þú færð óvænt símtal í dag. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Gættu þín á tilhneigingunni til þess að sanka að þér fallegum, og algerlega óþörfum hlutum. Þú ert fallin/n á tíma í vissu máli. Taktu þér tak. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú getur ekki breytt heiminum en þú getur breytt þér sem svo skilar sér út í veröldina og hún verður betri. Reyndu að sinna áhugamálunum betur. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þetta er góður dagur til að njóta samvista við vini þína og ættingja. Fólki finnst þú heillandi og flink/ur á þínu sviði. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Njóttu þess að vera með þínu fólki í dag. Forðastu samræður um alvarleg efni, það er einhver pirringur í loftinu núna. Til hamingju með daginn Reykjavík Stefán Kári Helgason fædd- ist 17. maí 2021 kl. 10.51. Hann vó 4.192 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Helgi Steinar Gunnlaugsson og Ragnhildur Gísladóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.