Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 39
í tjaldferðalög og vorum að veiða og einu sinni vorum við í Atlavík í heila viku og fórum alltaf á Mývatn að veiða. Við vorum komin með svo mik- inn afla að við fórum bara til Akur- eyrar og seldum silunginn.“ Þegar hún hætti að vinna fluttu þau út í Hrísey. „Sigmar keypti trillu og við vorum þar í fjögur ár. Ég hafði aldrei búið úti á landi og þetta var mikil upplifun. Náttúran svo falleg og fuglalífið alveg einstakt og mikið um skemmtilegar gönguleiðir. Núna bú- um við á Selfossi og kunnum mjög vel við okkur.“ Fjölskylda Eiginmaður Ingileifar er Sigmar Ægir Björgvinsson, sjómaður, f. 14.6. 1948. Foreldrar hans eru Björgvin Magnússon, vélstjóri í Reykjavík, f. 5.9. 1925, d. 21.6. 2015, og Ásdís Böðvarsdóttir frá Vestmannaeyjum, f. 28.3. 1928, d. 8.10. 2002. Börn Ingi- leifar og Sigmars eru: 1) Arngrímur, tölvunarfræðingur, f. 17.8. 1965. Dóttir hans er Sóley, f. 14.7. 1997. 2) Drengur, f. 22.7. 1967, d. 23.7. 1967. 3) Marta, f. 27.7. 1982, í sambúð með Davíð Óskar Ólafssyni, f. 16.12. 1982. Þau eiga Baltasar Tinna, f. 10.11. 2009, og Emmu Rós, f. 10.10. 2016. 4) Sunna, f. 4.7. 1988. Hún er í sambúð með Peter Zilahi og þau eiga soninn Storm Zilahi, f. 17.11. 2018. Áður átti Sunna Hörpu Dís, f. 19.3.2010. Systur Ingileifar eru Jóhanna, f. 6.11. 1948; Sigríður, f. 30.8. 1950, og Gíslunn, f. 13.11. 1951. Foreldrar Ingileifar eru hjónin Arngrímur Ingimundarson, f. 23.11. 1912, d. 16.4. 2009, og Bergþóra Jó- elsdóttir, f. 29.3. 1913, d. 25.3. 1995, verslunareigendur í Reykjavík. Ingileif Arngrímsdóttir Gréta María Sveinbjarnardóttir húsfr. á Ingunnarstöðum í Kjós. Þórarinn Kristján Ámundason bóndi á Ingunnarstöðum í Kjós. Sigríður Kristjánsdóttir húsfreyja í Reykjavík Jóel Sumarliði Þorleifsson trésmíðameistari í Reykjavík Bergþóra Jóelsdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðbjörg Jónsdóttir frá Auðsholti, Skálholtssókn, Árn. Þorleifur Eyjólfsson b. í Efstadal, Miðdalssókn, Árn. Ástríður Sigurðardóttir húsfreyja á Gili í Fljótum, Skag. Arngrímur Sveinsson bóndi á Gili í Fljótum, Skag. Jóhanna Arngrímsdóttir húsfr. á Höfn í Fljótum, Skag. Ingimundur Sigurðsson bóndi á Höfn og Illugastöðum í Fljótum, Skag. Sigurbjörg Magnúsdóttir húsfreyja í Hvammkoti á Höfðaströnd, síðar á Arnarstöðum í Sléttuhlíð, Skag. Sigurður Sigurðsson bóndi í Hvammkoti á Höfðaströnd, Skag. Úr frændgarði Ingileifar Arngrímsdóttur Arngrímur Ingimundarson verkstjóri og síðar verslunareigandi í Reykjavík DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 „SAMLOKA MEÐ EGGJASALATI OG LIFANDI TÓNLIST, 2500 KRÓNUR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að vera of ástfangin til að segja góða nótt. ÉG MUN ALDREI GLEYMA HÆFILEIKAKEPPNINNI Í GAGGÓ LIÐIÐ BILAÐIST OG BRAUT HARMON- IKUNA MÍNA MANNKYNIÐ Á ENN VON ÞAÐ ERU SUMIR HLUTIR SEM ÉG KEMST EKKI YFIR! ÞÚ HEFUR ALDREI FYRR VERIÐ Á ÞEIRRI SKOÐUN! ÉG VEIT! EN ÞAÐ VAR ÁÐUR EN HELGA BYGGÐI ÞESSA HILLU! KAKAN ER FYRIR AFMÆLIÐ HENNAR MÖMMU! „OG ÁÐUR EN ÞAU VISSU AF VAR BIÐRÖÐIN INN TIL SÁLFRÆÐINGANNA ORÐIN ÓGNARLÖNG.“ Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Gráhærður er þessi gumi. Gnæfir við loftið hann Tumi. Æðstur er sá meðal Ása. Oft mun um hafdjúpin rása. Eysteinn Pétursson svarar: „Hér er hár. Vona að enginn hneykslist, þótt síðasta línan sé svolítið í anda séra Hallgríms sáluga um stuðla- setningu“: Hár er gráhærður gumi. Grannur og hár er hann Tumi. Æðstur er Hár meðal Ása. Um djúpin hárinn mun rása. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Hár er sá gráhærði gumi. Gríðar hár vera mun Tumi. Hár nefnist höfðingi Ása. Hár mun um sædjúpin rása. Þá er limra: Hallbera gamla á Heiði tók hraustlega í lurginn á Eiði og hárreytti þann hárprúða mann, sem reitti hana til reiði. Þá er ný gáta eftir Guðmund: Dropar lofti duttu úr, uns dundi á með helliskúr. Hrökk ég upp af svefni súr og samdi gátu í moll og dúr: Léttur blær sér lyftir hér. Löðrungur er veittur þér. Heyskapur þá hafinn er. Hraður nú í brjósti mér. Helgi R. Einarsson skrifaði mér: „Ég var að koma heim frá bænum Garða við Garðavatn með göngu- hóp sem við hjónin erum í. Skrapp áðan í sund og þessar urðu til á braut 3 í Lágafellslaug: Ferðalok Glæsilegur Garðabær gleður þessa og hina, þar ég lyfti glasi í gær og gladdist meðal vina. Með sorg í hjarta heim því fló, holdið aumt og brunnið, en verst af öllu þykir þó að það er af mér runnið.“ Hinrik Bjarnason sendi mér þessa stöku: Ósigrar og atvik ljót ekki breyta hinu: Á stundum dáða; við storm og grjót ég stend með landsliðinu. Um Hegranes í Skagafirði var kveðið: Hegranes er herleg sveit, hlaðin með græna skóga. sjá má þar í svörtum reit sauðaþjófa nóga. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hárið hefur sinn skugga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.