Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021
Berja loftið vængir tveir
Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Vængjasláttur Raven er listamannsnafn tónlistarkonunnar Hrafnhildar Magneu Ingólfsdóttur.
við eyrað, kassagítarstrokur og lág-
vært píanó. Plötunni er slaufað með
„Maybe“, líklega besta laginu hér.
Það er eitthvað við flutninginn og
fallegt áframstreymið sem hittir
mann. Minnir á tónlistarkonur eins
og Caroline Spence og skyldar am-
eríkana-listakonur. Einfalt og blátt
áfram en hrífandi og eftirminnilegt
engu að síður. Strípað, eins og
Hank gamli vildi hafa það.
Eins og fram hefur komið á
Hrafnhildur sér nokkra sögu í tón-
listinni og hefur sinnt henni á einn
eða annan hátt frá barnsaldri. Hún
hefur t.d. stundað háskólanám í
djasssöng við Conservatorium van
Amsterdam um hríð og útskrifaðist
úr FÍH vorið 2019. Hún náði meira
að segja að koma fram á Airwaves
þá um haustið og henni tókst jafn-
framt að hlaða í útgáfutónleika í
sumar, spilaði í Húsi Máls og
menningar með einvalaliði hljóð-
færaleikara, þeim Svanhildi Lóu
Bergsveinsdóttur (trommur),
Snorra Erni Arnarsyni (bassi),
Reyni Snæ Magnússyni (rafgítar)
og Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni
(hljómborð). Vonandi að framhald
verði á slíku og frekari lagasmíða-
vinnu og útgáfu. Í viðtali við Írisi
Hauksdóttur í DV sagði hún m.a.
þetta: „Í grunnskóla var ég heppin
með kennara sem hvöttu mig til að
syngja og ég fékk mörg tækifæri til
að koma fram í skólanum. Þar var
einnig lítið upptökustúdíó sem við
krakkarnir fengum stundum afnot
af. Ég vissi alltaf að draumurinn
væri að geta starfað alfarið við tón-
list. Þegar ég byrjaði síðan að
semja mína eigin tónlist fann ég að
mig langaði alls ekki að gera neitt
annað.“
Eins og ég hef lýst, 229 er hið
burðugasta verk og ber efnilegri
tónlistarkonu vitni. Og vonandi er
þetta rétt að byrja. Málið er alltaf
að sitja ekki með hendur í skauti
með hausinn fullan af hugmyndum
heldur að gera, koma þessu út og
það er í lagi þó að þetta sé ekki
fullkomið. Vel gert RAVEN og
óskandi að fleira kvenfólk fylgi í
kjölfarið og „hendi“ í eina plötu eða
svo.
»
Á „Toxic“ slakar
hún sér hins vegar
aftur niður í einlægan
söngvaskáldagír. Rödd-
in alveg upp við eyrað,
kassagítarstrokur og
lágvært píanó.
Tónlistarkonan
RAVEN gaf í ár út
fimm laga plötu sem
kallast 229. Alda gefur
út og er innihaldið með
allra efnilegasta móti.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það sem ég hjó eftir þegar ég
heyrði þessa stuttskífu
RAVEN var hversu „tilbú-
in“ hún er eins og ég orða það
stundum. Það er, hún hljómar
meira eins og þriðja eða fjórða út-
gáfa höfundar, fremur en að þetta
sé frumburður. Að vísu er RAVEN,
en mamma hennar þekkir hana
sem Hrafnhildi Magneu Ingólfs-
dóttur, eldri en tvævetur í brans-
anum, hefur t.d. starfað með White
Signal og Náttsól, en samt. Þessi
plata, 229, er alveg stórgóð, listavel
heppnuð. Hún
hefst með laginu
„Hjartað tók
kipp“, tiltölulega
hefðbundið
söngvaskáldalag,
en flutningurinn
og söngurinn fer
með þetta á næsta stig. Það er
öryggi yfir öllu og Hrafnhildur
kann greinilega að setja saman lög,
hér má heyra í haganleik þess sem
hefur heflað sinn stíl til yfir allri
framvindu. Það er vel merkjanlegt
m.ö.o. að þessi tónlistarmaður er
ekki að stíga sín fyrstu skref.
Svipaða sögu má segja af „Not the
Same“ sem er lágstemmdara þó. Á
„Half of Me“ er hins vegar skipt
um gír og RAVEN reynir sig við
hálfgert leikvangarokk/popp, ekki
ósvipað því sem heyra má hjá
OMAM eða Valborgu Ólafs. Og því
ekki? Þetta er stílbrjótur vissulega
en um að gera að máta fleiri hatta
á sig. Á „Toxic“ slakar hún sér hins
vegar aftur niður í einlægan
söngvaskáldagír. Röddin alveg upp
Gríska tón-
skáldið Mikis
Theodorakis er
látið, 96 ára að
aldri.
Theodorakis
varð heims-
þekktur fyrir
tónlist sína við
kvikmyndina
Grikkjann Zorba
þar sem Anthony Quinn steig eftir-
minnilega gleðidans í flæðarmálinu
með Alan Bates.
Líf Theodorakis var hins vegar
enginn dans á rósum, eins og segir á
vef NRP. Hann var fangelsaður og
pyntaður oftar en einu sinni, fyrst á
tímum seinni heimsstyrjaldarinnar
þegar hann var í andspyrnuhreyf-
ingu gegn hernámsliði Þjóðverja og
Ítala og síðar sem andstæðingur
herforingjastjórnarinnar í Grikk-
landi sem bannaði tónverk hans.
Theodorakis samdi tónlist við fleiri
kvikmyndir, m.a. Serpico og samdi
mikinn fjölda annars konar verka,
m.a. fyrir sínfóníuhljómsveitir,
kammersveitir, ballett og óperu.
Mikis Theodorakis
látinn, 96 ára
Mikis Theodorakis
Sjónvarps-
þáttaröðin Ver-
búð var valin sú
besta á hátíðinni
Series Mania í
Lille í Frakklandi
í fyrradag, að því
er fram kemur á
vef RÚV. Leik-
stjórar hennar
eru Gísli Örn
Garðarsson,
Björn Hlynur Haraldsson og María
Reyndal. Segir í fréttinni að hátíðin
sé ein sú virtasta í Evrópu á sviði
leikinna sjónvarpsþátta. Vesturport
framleiðir þættina í samstarfi við
RÚV, sjónvarpsstöðina ARTE og
Turbine Studios. Þættirnir eru átta
talsins og fjalla með dramatískum
hætti um áhrif kvótakerfisins á lítið
sjávarþorp. Fyrsti þátturinn verður
frumsýndur á RÚV á annan í jólum.
Gísli Örn tók við verðlaununum
fyrir Vesturport og var dóttir hans,
Rakel María, með í för.
Verbúðin valin
besta þáttaröðin
Gísli Örn
Garðarsson