Morgunblaðið - 04.09.2021, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.09.2021, Blaðsíða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 Berja loftið vængir tveir Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir Vængjasláttur Raven er listamannsnafn tónlistarkonunnar Hrafnhildar Magneu Ingólfsdóttur. við eyrað, kassagítarstrokur og lág- vært píanó. Plötunni er slaufað með „Maybe“, líklega besta laginu hér. Það er eitthvað við flutninginn og fallegt áframstreymið sem hittir mann. Minnir á tónlistarkonur eins og Caroline Spence og skyldar am- eríkana-listakonur. Einfalt og blátt áfram en hrífandi og eftirminnilegt engu að síður. Strípað, eins og Hank gamli vildi hafa það. Eins og fram hefur komið á Hrafnhildur sér nokkra sögu í tón- listinni og hefur sinnt henni á einn eða annan hátt frá barnsaldri. Hún hefur t.d. stundað háskólanám í djasssöng við Conservatorium van Amsterdam um hríð og útskrifaðist úr FÍH vorið 2019. Hún náði meira að segja að koma fram á Airwaves þá um haustið og henni tókst jafn- framt að hlaða í útgáfutónleika í sumar, spilaði í Húsi Máls og menningar með einvalaliði hljóð- færaleikara, þeim Svanhildi Lóu Bergsveinsdóttur (trommur), Snorra Erni Arnarsyni (bassi), Reyni Snæ Magnússyni (rafgítar) og Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni (hljómborð). Vonandi að framhald verði á slíku og frekari lagasmíða- vinnu og útgáfu. Í viðtali við Írisi Hauksdóttur í DV sagði hún m.a. þetta: „Í grunnskóla var ég heppin með kennara sem hvöttu mig til að syngja og ég fékk mörg tækifæri til að koma fram í skólanum. Þar var einnig lítið upptökustúdíó sem við krakkarnir fengum stundum afnot af. Ég vissi alltaf að draumurinn væri að geta starfað alfarið við tón- list. Þegar ég byrjaði síðan að semja mína eigin tónlist fann ég að mig langaði alls ekki að gera neitt annað.“ Eins og ég hef lýst, 229 er hið burðugasta verk og ber efnilegri tónlistarkonu vitni. Og vonandi er þetta rétt að byrja. Málið er alltaf að sitja ekki með hendur í skauti með hausinn fullan af hugmyndum heldur að gera, koma þessu út og það er í lagi þó að þetta sé ekki fullkomið. Vel gert RAVEN og óskandi að fleira kvenfólk fylgi í kjölfarið og „hendi“ í eina plötu eða svo. » Á „Toxic“ slakar hún sér hins vegar aftur niður í einlægan söngvaskáldagír. Rödd- in alveg upp við eyrað, kassagítarstrokur og lágvært píanó. Tónlistarkonan RAVEN gaf í ár út fimm laga plötu sem kallast 229. Alda gefur út og er innihaldið með allra efnilegasta móti. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Það sem ég hjó eftir þegar ég heyrði þessa stuttskífu RAVEN var hversu „tilbú- in“ hún er eins og ég orða það stundum. Það er, hún hljómar meira eins og þriðja eða fjórða út- gáfa höfundar, fremur en að þetta sé frumburður. Að vísu er RAVEN, en mamma hennar þekkir hana sem Hrafnhildi Magneu Ingólfs- dóttur, eldri en tvævetur í brans- anum, hefur t.d. starfað með White Signal og Náttsól, en samt. Þessi plata, 229, er alveg stórgóð, listavel heppnuð. Hún hefst með laginu „Hjartað tók kipp“, tiltölulega hefðbundið söngvaskáldalag, en flutningurinn og söngurinn fer með þetta á næsta stig. Það er öryggi yfir öllu og Hrafnhildur kann greinilega að setja saman lög, hér má heyra í haganleik þess sem hefur heflað sinn stíl til yfir allri framvindu. Það er vel merkjanlegt m.ö.o. að þessi tónlistarmaður er ekki að stíga sín fyrstu skref. Svipaða sögu má segja af „Not the Same“ sem er lágstemmdara þó. Á „Half of Me“ er hins vegar skipt um gír og RAVEN reynir sig við hálfgert leikvangarokk/popp, ekki ósvipað því sem heyra má hjá OMAM eða Valborgu Ólafs. Og því ekki? Þetta er stílbrjótur vissulega en um að gera að máta fleiri hatta á sig. Á „Toxic“ slakar hún sér hins vegar aftur niður í einlægan söngvaskáldagír. Röddin alveg upp Gríska tón- skáldið Mikis Theodorakis er látið, 96 ára að aldri. Theodorakis varð heims- þekktur fyrir tónlist sína við kvikmyndina Grikkjann Zorba þar sem Anthony Quinn steig eftir- minnilega gleðidans í flæðarmálinu með Alan Bates. Líf Theodorakis var hins vegar enginn dans á rósum, eins og segir á vef NRP. Hann var fangelsaður og pyntaður oftar en einu sinni, fyrst á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar þegar hann var í andspyrnuhreyf- ingu gegn hernámsliði Þjóðverja og Ítala og síðar sem andstæðingur herforingjastjórnarinnar í Grikk- landi sem bannaði tónverk hans. Theodorakis samdi tónlist við fleiri kvikmyndir, m.a. Serpico og samdi mikinn fjölda annars konar verka, m.a. fyrir sínfóníuhljómsveitir, kammersveitir, ballett og óperu. Mikis Theodorakis látinn, 96 ára Mikis Theodorakis Sjónvarps- þáttaröðin Ver- búð var valin sú besta á hátíðinni Series Mania í Lille í Frakklandi í fyrradag, að því er fram kemur á vef RÚV. Leik- stjórar hennar eru Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlynur Haraldsson og María Reyndal. Segir í fréttinni að hátíðin sé ein sú virtasta í Evrópu á sviði leikinna sjónvarpsþátta. Vesturport framleiðir þættina í samstarfi við RÚV, sjónvarpsstöðina ARTE og Turbine Studios. Þættirnir eru átta talsins og fjalla með dramatískum hætti um áhrif kvótakerfisins á lítið sjávarþorp. Fyrsti þátturinn verður frumsýndur á RÚV á annan í jólum. Gísli Örn tók við verðlaununum fyrir Vesturport og var dóttir hans, Rakel María, með í för. Verbúðin valin besta þáttaröðin Gísli Örn Garðarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.