Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 Myndlistarmaðurinn Hjörtur Hjart- arson leitaði ekki langt yfir skammt þegar hann valdi fyrirsætur fyrir myndlistarsýningu sína á snyrtistof- unni Unique hár og spa í Síðumúla 39 sem verður opnuð í dag. Hann ákvað einfaldlega að opna tölvuna og fara á Face- book. Þar er enda gríðarlegt úrval ljósmynda af fólki af öllum stærðum og gerðum. „Mér fannst það alveg kjörið. Á snyrtistofuna koma mestmegn- is konur sem eru að snyrta sig og „fegra“. Þó ég hafi á síðustu árum mest verið að vinna óhlutbundin málverk þar sem ég leita innblást- urs í náttúrunni, þá hef ég alltaf haft gaman af því að vinna teikn- ingar af fólki,“ segir Hjörtur. Hann segir að fyrirmyndirnar að málverkunum á snyrtistofunni séu bæði þekktar og óþekktar konur sem eigi það sameiginlegt að hafa lagt sig fram um að birta góða mynd af sér á Facebook. „Allavega geng ég út frá því að þær hafi gert það,“ útskýrir Hjörtur. „Svo skáld- aði ég inn í og færði aðeins í stílinn. Bætti inn lit hér og þar, lagaði hárið smávegis til og naut þess að teikna módelin á mismunandi hátt. Snyrti- fræðingurinn og myndlistarmað- urinn runnu saman í einn mann að segja má. Útkoman er tíu myndir af flottum vel „máluðum“ og vel teikn- uðum portrettum.“ Hjörtur kallar sýninguna Sterkar konur. „Ég vona að mér hafi tekist að birta fyrirmyndirnar sem ákveðnar og sterkar. Mér finnst liggja ákveðinn styrkur í þeirri við- leitni fólks að hafa sig til. Það býr í því mikill frumkraftur þegar fólk býr til sitt eigið portrett, eins og það er að gera þegar það birtir prófílmyndirnar sínar á Facebook,“ segir Hjörtur að lokum en sýningin mun standa út þetta ár. thoroddur@mbl.is Fann fyrirsæturn- ar á Facebook Kona Eitt verka Hjartar á sýningunni. Hjörtur Hjartarson Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands fagnar 50 ára starfsafmæli á þessu ári. Af því tilefni var opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðu síðastliðinn fimmtu- dag um sögu stofnunarinnar og starfsemi hennar. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Ís- lands, ávörpuðu gesti og Helgi Þor- láksson, fyrrv. prófessor í sagn- fræði, flutti erindi. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, opnaði síð- an sýninguna. Á sýningunni er varpað ljósi á starfssögu Sagnfræðistofnunar, rannsóknir og kennslu í sagnfræði um hálfrar aldar skeið. „Fyrir árið 1971 var sett reglu- gerð um stofnun þriggja rannsókn- arstofnana við heimspekideild Há- skóla Íslands sem var liður í því að efla Háskólann sem rannsókn- arskóla. Þetta voru bókmennta- stofnun, stofnun í málvísindum og sagnfræðistofnun. Markmiðið með Sagnfræðistofnun var að efla rann- sóknir og tengja rannsóknarstarf við kennslu,“ skýrir Guðmundur Jóns- son prófessor frá, fyrrverandi for- stöðumaður stofnunarinnar. Eflir og styður við rannsóknir „Aðalhlutverk Sagnfræðistofn- unar hefur lengst af verið að efla og styðja við rannsóknir kennara, standa fyrir rannsóknarverkefnum, sjá um útgáfu sagnfræðiverka, halda ráðstefnur og vera í tengslum við aðra sem hafa áhuga á sögulegum rannsóknum.“ Ýmiss konar sam- starfi hefur verið haldið uppi bæði innan lands og utan. „Í fyrstu var þetta mjög fámenn en góðmenn stofnun, við vorum fimm kennarar, en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og nú eru þetta orðið tólf manns sem sinna hinum og þessum rannsóknum. Umsvifin eru orðin meiri sem og fjölbreytnin í rannsóknunum. Sagnfræðistofnun hefur eflst mjög. Rannsóknarvirkni hennar er mjög mikil og hún stendur styrkum fótum í alþjóðasamstarfi,“ segir Guðmundur. Á sýningunni eru fjölmargar ljós- myndir úr Skjalasafni Sagnfræði- stofnunar, Myndasafni Háskóla Ís- lands og fleiri söfnum. Einnig eru á sýningunni myndskeið úr safni RÚV og Skjalasafni Háskóla Íslands og hljóðupptökur úr safni Miðstöðvar munnlegrar sögu. „Við segjum frá stofnuninni og kennurunum, hvaða rannsóknir hún hefur helst stundað og hvaða rann- sóknir eru núna í gangi. Við erum að reyna að bregða upp mynd af þess- ari stofnun á hálfri öld og það er af nógu að taka.“ Sýningin stendur opin til loka nóv- ember. Morgunblaðið/Unnur Karen Sýningaropnun Jón Atli Benediktsson, Helgi Þorleifsson og Lilja Alfreðsdóttir hlýða á Guðmund Jónsson. Fagna fimmtíu árum - Sýning um hálfrar aldar sögu Sagnfræðistofnunar Há- skóla Íslands og starfsemi hennar opnuð í Þjóðarbókhlöðu HÁDEGISMATUR alla daga ársins Bakkamatur fyrir fyrirtæki og mötuneyti Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum, sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt, einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum. Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is SKÚTAN Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is Úkraínski fiðluleikarinn Igor Oistrakh er dáinn, níræður að aldri. Oistrakh fæddist í Odessa og var faðir hans þekktur fiðluleikari, David Oistrakh. Igor lærði fyrst á fiðlu hjá föður sínum og hélt síð- ar í tónlistarskóla í Moskvu. Hann vann alþjóðlegu fiðlukeppnina í Búdapest árið 1949 og einnig fiðlukeppni Henryk Wieniawski í Póllandi árið 1952. Oistrakh var ekki aðeins eftirsóttur og virt- ur fiðluleikari heldur einnig kennari og kenndi í Tsjækofskíj konservatoríinu í Moskvu og síðar við konunglega konservatoríið í Brussel. Hann hlaut fjölda verðlauna og lék inn á plötur með eigin- konu sinni, píanistanum Nataliu Zertsalova. Hjón- in léku á Listahátíð í Reykjavík árið 1994. Fiðluleikarinn Igor Oistrakh allur Igor Oistrakh Sænska hljómsveitin ABBA er snúin aftur, um 40 árum eftir að hún lagði upp laupana, og tilkynnti á blaðamannafundi í fyrradag að tíu laga plata væri væntanleg í nóvember sem myndi heita ABBA Voyage. Tvö lög af þeirri plötu hafa þegar verið gefin út og nefn- ast „I Still Have Faith in You“ og „Don’t Shut Me Down“. Var fundi ABBA streymt á netinu og mikill fjöldi fjölmiðlamanna sem fylgdist með sem og aðdáenda hljómsveit- arinnar. ABBA, sem fyrr skipuð þeim Benny Andersson, Agnethu Fält- skog, Anni-Frid Lyngstad og Björn Ulvaeus, mun einnig bjóða upp á tónleikaupplifun svokallaða í London. Verður stafrænum út- gáfum af fereykinu varpað til hlið- ar við tíu manna hljómsveit, ef marka má frétt The Guardian, á tónleikastað í Olympic-garðinum sem mun heita ABBA Arena. Geta 3.000 gestir sótt hverja tónleika og verða þeir fyrstu haldnir í maí á næsta ári. AFP Spennandi Fjöldi fólks fylgdist með útsendingu af blaðamannafundi ABBA í fyrradag. Hér má sjá áhorfendur í Grona Lund í Stokkhólmi. ABBA tilkynnir um plötu og tónleikaupplifun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.