Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 04.09.2021, Qupperneq 48
vinnuföt fást einnig í HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík S. 414 3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Sérmerkjum fyrir fyrirtæki mikið úrval Peningasmiðja fyrir alla fjöl- skylduna fer fram á morgun, sunnu- dag, kl. 13 í Hönn- unarsafni Íslands og leiða hana Rán Flygenring teikn- ari og Stefán Pálsson sagn- fræðingur. Vanga- veltur um gjald- miðil landnámsmanna og peningaseðla samtímans eru efni smiðjunnar sem er liður í verkefninu Við langeldinn/ Við eldhúsborðið sem styrkt er af Barnamenningar- sjóði. Að loknum vangaveltum og spjalli á sýningunni verða peningaseðlar framtíðarinnar hannaðir í Smiðj- unni sem er fræðslurými Hönnunarsafnsins. Smiðjan er ókeypis en minnt er á persónulegar sóttvarnir og að skráning persónuupplýsinga á staðnum er nauðsynleg. Rán og Stefán leiða peningasmiðju í Hönnunarsafni Íslands LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 247. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Norður- Makedóníu í J-riðli undankeppni HM 2022 á Laugar- dalsvelli á morgun. Ísland er með bakið upp við vegg eftir 0:2-tap gegn Rúmeníu á Laugardalsvelli á fimmtu- daginn síðasta í undankeppni en íslenska liðið er með 3 stig í fimmta og næstneðsta sæti J-riðils. Þrátt fyrir að vera með 7 stig í þriðja sæti riðilsins hefur Norður- Makedónía ekki riðið feitum hesti frá undanförnum leikjum sínum en liðið er án sigurs í síðustu fjórum leikjum, hefur tapað þremur og gert eitt jafntefli. »41 Erfitt verkefni fram undan gegn vel spilandi Norður-Makedónum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Á eftir sumri kemur haust og þá byrjar hefðbundið skólastarf á ný. Það er þó ekki eins í Melaskóla í Reykjavík og undanfarin 52 ár, því Ingibjörg Hjaltalín Jónsdóttir, íþróttakennari í skólanum frá því hún var tvítug, ákvað að hætta að vinna og einbeita sér að sér og sínu í staðinn. „Ég skil eiginlega ekki hvernig skólinn getur byrjað án mín! Hvað mig varðar er það mjög und- arleg tilfinning að þurfa ekki að mæta í skólann, en góð, því ég hef svo mikið að gera, til dæmis við að bæta forgjöfina í golfinu og ekki veitir af, en illa hefur gengið að ná henni niður.“ Íþróttir hafa alla tíð verið ríkur þáttur í lífi Ingibjargar. Hún hefur lengi hlaupið reglulega, golfið á sinn stað og stund á sumrin og skíðin á veturna. „Ég hef alltaf haft áhuga fyrir hreyfingu. Ninna Breiðfjörð, íþróttakennari minni í Verzló, hvatti mig til þess að sækja um inngöngu í Íþróttakennaraskólann að Laugar- vatni á sínum tíma. Ég gerði það, komst inn, en eftir útskrift fékk ég ekki vinnu sem kennari og réð mig á skrifstofuna hjá Ellingsen vestur á Granda 1. september 1969. Eftir 10 mínútur í vinnunni hringdi Stefán Kristjánsson, íþróttafulltrúi í menntamálaráðuneytinu, í mig og bauð mér hálfa stöðu við Melaskóla. Ég tók því á stundinni og gekk strax út úr Ellingsen.“ Íþróttasalurinn leynir á sér Þegar Seljaskóli tók til starfa haustið 1979 hugsaði Ingibjörg sér til hreyfings. „Ég átti og á heima í Seljahverfinu og velti því fyrir mér að vera nær heimilinu og börnunum en mér leið svo vel í Melaskólanum og þegar á reyndi tímdi ég ekki að fara, ákvað bara að halda áfram að keyra í vinnuna og gerði það alla tíð.“ Íþróttasalur Melaskóla er lítill og barn síns tíma, en Ingibjörg er ánægð með hann. „Hann heldur vel utan um litlu krakkana og þægilegt er að kenna yngstu börnunum í hon- um en undanfarin ár hafa eldri ár- gangarnir verið í íþróttum í íþrótta- húsi Hagaskóla auk þess sem nemendur hafa verið í útitímum vor og haust.“ Þegar Ingibjörg byrjaði að kenna kölluðust íþróttatímar leikfimi. Helstu æfingatæki voru svonefndur kubbur, hestur, dýnur, kaðlar og rimlar. „Nú er kennslan miklu fjöl- breyttari, fleiri íþróttagreinar, reynt er að koma til móts við alla. En því er ekki að leyna að þegar aðstand- endur krakkanna koma fyrst í salinn súpa sumir þeirra hveljur og hafa orð á því hvað hann sé lítill.“ Líkamsrækt Ingibjargar felst fyrst og fremst í hlaupum. Hún hef- ur hlaupið mörg hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu, tekið einu sinni þátt í Laugavegshlaupinu og keppt í maraþoni sem kennd eru við New York, Boston, Chicago og Berl- ín, var með í Boston þegar sprengju- árásin var stutt frá marklínunni 2013 með þeim afleiðingum að þrír létust og hátt á þriðja hundrað særð- ust. „Ég á eftir London og Tókýó til að hafa farið í þessi sex stóru. Mér finnst æðislegt að hlaupa í góðum fé- lagsskap en svo hefur verið gott að skipta úr sumargírnum í vetrar- gírinn og fara á skíði, þegar tækifæri hefur gefist. Nú er allt í einu meiri tími og þá get ég í fyrsta sinn lengt golftímabilið, en til stendur að fara í golf á Spáni í október. Svo get ég farið að hjóla meira en aðalatriðið er að ég hef nægan tíma til þess að leika mér.“ Gerir það sem hún vill - Ingibjörg Hjaltalín Jónsdóttir var íþróttakennari í Mela- skóla í 52 ár - Vinnur nú við að bæta forgjöfina í golfi Á Ítalíu Ingibjörg Hjaltalín Jónsdóttir fer á skíði þegar tækifæri gefst. Í Boston Ingibjörg í maraþoninu, þegar árásin var gerð 2013.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.