Morgunblaðið - 06.10.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.10.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2021 Framboð liggja nú fyrir til for- manns Kennarasambands Íslands á næsta kjörtímabili á árunum 2022-2026. Framboðsfrestur rann út í fyrrakvöld og gefa fjögur kost á sér í embætti formanns. Þau eru Anna María Gunnarsdóttir, vara- formaður Kennarasambands Ís- lands, Hanna Björg Vilhjálms- dóttir, kennari í Borgarholtsskóla, Heimir Eyvindsson, dönskukenn- ari og deildarstjóri í Grunnskól- anum í Hveragerði, og Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Selja- skóla. Samkvæmt tilkynningu á vefsíðu KÍ munu félagsmenn KÍ greiða at- kvæði um næsta formann í raf- rænni kosningu 2. til 8. nóvember næstkomandi. Formannsskiptin fara svo fram á áttunda þingi KÍ sem haldið verður í apríl á næsta ári. Kjör næsta varaformanns KÍ stendur einnig fyrir dyrum en frestur til að bjóða sig fram renn- ur út 10. nóvember en kosið verður í desember. Ragnar Þór Pétursson, formað- ur KÍ, greindi frá þeirri ákvörðun sinni í pistli á vefsíðu KÍ 10. sept- ember sl. að hann gæfi ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í KÍ en hann hefur verið formaður sambandsins síðastliðin fjögur ár. Fleiri frambjóðendur sækjast eftir formennskunni nú en í fyrri formannskosningum í KÍ. Þrír voru í framboði til formanns í nóv- ember 2017 þegar Ragnar Þór fór með sigur af hólmi, tveir voru í formannskjöri árið 2013 og tveir árið 2010. omfr@mbl.is Fjögur sækjast eft- ir formennsku í KÍ - Formannaskipti í apríl á næsta ári Anna María Gunnarsdóttir Heimir Eyvindsson Hanna Björg Vilhjálmsdóttir Magnús Þór Jónsson Baldur S. Blöndal baldurb@mbl.is Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra féllst í gær á tillögu Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um að framlengja gildandi sóttvarnatak- markanir innan- lands til 20. októ- ber hið minnsta. Sóttvarna- læknir segist í minnisblaði sínu vilja ganga lengra með því að framlengja þær takmarkanir sem nú eru í gildi um að minnsta kosti mánuð og ráð- herra féllst á framlengingu en mun endurskoða ákvörðunina eftir hálfan mánuð. Þórólfur rekur hvernig farald- urinn þróaðist þegar öllum takmörk- unum var aflétt í júní í minnisblaði sínu til ráðherra: „Um tveimur til þremur vikum eftir að ofangreindar tilslakanir tóku gildi fór smitum inn- anlands af völdum COVID-19 að fjölga og náðu þau hámarki 30. júlí en þá greindust 154 einstaklingar, nánast allir með delta-afbrigði kór- ónuveirunnar. Í kjölfarið á þessari auknu útbreiðslu þá varð fjölgun á innlögnum á sjúkrahús (LSH) og al- varleg veikindi jukust. Í þessari bylgju faraldursins eða frá 1. júlí sl. hafa þannig um 5.200 einstaklingar greinst smitaðir hér á landi, 117 þurft á spítalainnlögn að halda, 20 lagst inn á gjörgæsludeild og þrír látist.“ 31 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, af þeim voru 16 í sóttkví. Þannig er 361 nú í ein- angrun og þeim fækkar um átta frá því í gær. Alls eru 1.969 manns í sóttkví en af þeim eru 1.323 á Norðurlandi eystra. Í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra hvetur emb- ættið til varúðar „og [við] teljum nauðsynlegt að allir hugi að sinni stöðu og vegi og meti hvað hver geti gert til að stoppa þá útbreiðslu sem er í gangi í dag. Ljóst er að sá aldur sem hvað mest virðist smitast í dag eru börn og unglingar á grunnskóla- aldri, þá sér í lagi sá aldur sem ekki er bólusettur.“ Enn fremur er tilmælum beint til þeirra sem sjá um æskulýðs-, íþrótta- og félagsstarf barna og ung- linga að fresta viðburðum, fundum og æfingum fram yfir helgi. 196 710 92 1.415 Fjöldi í einangrun og sóttkví eftir landshlutum Vestfirðir Norðurland vestra Austurland Vesturland Suðurnes Suðurland Höfuð- borgarsvæði Norðurland eystra 1 1 5 8 5 9 8 12 13 12 27 56 Heimild: covid.is Gildandi sóttvarna- ráðstafanir hafa verið framlengdar til 20. október Fjöldi í einangrun Fjöldi í sóttkví Gildandi takmark- anir framlengdar - Flestir í sóttkví á Norðurlandi eystra Þórólfur Guðnason Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Þorsteinn Ásgrímsson „Margt spilar saman og verður til þess að ég tek þá persónulegu ákvörðun, alveg sjálfur, að nú sé góð- ur tími til að stíga til hliðar og af- henda keflið öðrum,“ segir Páll Matt- híasson sem lætur af störfum sem forstjóri Landspítalans á næstu dög- um. Tilkynnt var í gær að Páll hefði óskað eftir starfslokum og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra orðið við ósk hans. Páll sagði í gær að hann teldi þetta góðan tímapunkt til að einhver annar tæki við starfinu sem hann hefur gegnt í átta ár. „Einhvern tíma verður maður að segja að það sé komið nóg. Spítalinn hefur náð ótrúlegum árangri og í raun umbylst á þessum átta árum. En það eru auðvitað verkefni og áskoranir fram undan tengdar upp- byggingu á Hringbraut og áskoranir tengdar rekstri, mönnun og fjár- mögnun. Síðan eru breytingar þar sem farsæll ráðherra sem hefur verið velviljaður spítalanum er að láta af embætti,“ sagði Páll. Forstjórinn fráfarandi segir að sú ákvörðun að hætta á þessum tíma hafi ekki orsakast af neinum utanað- komandi þáttum eða gagnrýni á stjórnun spítalans, sem reglulega hefur komið upp. Nýlega sendi stjórn Félags bráðalækna til að mynda opið bréf til heilbrigðisráðherra þar Land- spítalinn var sagður stjórnlaus og að þar væri engin virk álagsstjórn. „Ég fagna því ef starfsfólk spítalans lætur í sér heyra, en auðvitað vil ég að fólk noti gögn og sýni stillingu. Það er besta leiðin til að koma skilaboðum á framfæri. En það hefur alls ekki truflað mig og á alls ekki þátt í þess- ari ákvörðun. Þetta er bara jákvæð ákvörðun af minni hálfu.“ Páll lætur af störfum strax á mánu- daginn en þá tekur Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítalans, tíma- bundið við stöðu forstjóra. Páll verð- ur henni innan handar næstu mánuði, en hann segir mikilvægt í svona annasömu starfi að forstjóraskiptin gerist mjög hratt. „Þetta er eins og að vera í bíl á 100 kílómetra hraða, það þarf einhver annar að grípa stýr- ið strax.“ Samkvæmt svari frá heilbrigðis- ráðuneytinu við fyrirspurn mbl.is í gær fól erindi Páls um að láta af emb- ætti forstjóra Landspítala í sér ósk um tilflutning í starfi í stöðu sérfræð- ings á Landspítalanum. Með sam- þykki ráðherra um flutninginn mun Páll, ef launakjör sérfræðings eru lægri en núverandi launakjör, njóta þeirra kjara og hann hefur haft sem forstjóri út skipunartíma sinn, en hann á um tvö og hálft ár eftir af fimm ára skipunartíma. Í svarinu er tekið fram að auk þess að verða nýj- um forstjóra innan handar muni Páll jafnframt sinna tilteknum verkefnum á vegum ráðuneytisins í tengslum við spítalann. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra segir að nú fari ákveðið ferli í gang þar sem ráðherraskipuð nefnd mun fara yfir umsóknarferli og texta í auglýsingu. „Við gefum okkur næstu daga í að fara yfir það.“ Spurð út í helstu áherslur og verk- efni fyrir komandi forstjóra segir Svandís að nú sé í gangi vinna við stefnumótun heilbrigðiskerfisins í heild til ársins 2040 og þar komi Landspítalinn að málum, en verk- stjórn með málinu er í höndum McKinsey. Segir Svandís að þar verði meðal annars hlutverk Landspítalans skoðað til framtíðar með hliðsjón af breyttum áherslum. Segir hún fyrir- séð að stefnumótunin muni meðal annars draga dám af tæknibreyting- um sem gera megi ráð fyrir. Hún segir að helsta áskorun heil- brigðiskerfisins í heild sé aftur á móti breytt aldurssamsetning þjóðarinnar með hækkandi aldri. Það þýði einnig að passa þurfi upp á mönnun í kerf- inu. „Þetta er það sem við blasir og er við að eiga fyrir nýjan forstjóra,“ seg- ir Svandís. Segir að miklar áskor- anir bíði eftirmanns síns - Páll Matthíasson lætur af starfi forstjóra Landspítalans Morgunblaðið/Unnur Karen Tímamót Nýr forstjóri verður skipaður á Landspítalanum eftir áramót en Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir tekur tímabundið við starfinu í næstu viku. Páll Matthíasson Svandís Svavarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.