Morgunblaðið - 06.10.2021, Blaðsíða 14
14
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2021
„Fel Drottni vegu þína
og treyst honum, hann
mun vel fyrir sjá.“
(Davíðssálmur 37:5)
Miskunnsami og
náðugi Guð!
Ég bið þig að
blessa öll þau sem
finna til vanmáttar af
einhverjum toga. Vilt
þú vitja þeirra með
uppörvunaranda þínum og gefa
þeim styrk til að horfast í augu við
daginn. Blessaðu öll þau sem órétt
þola eða búa við fátækt og mis-
rétti, þau sem eiga ekki fyrir
leigu, mat eða komast illa af. Ég
bið þig fyrir öllum þeim sem
hungrar og þyrstir eftir réttlæti í
þessu lífi. Öllum þeim sem þrá að
fá að vera með og komast af og
þrá að fá að gefa eitthvað af sér.
Kom þú með ljósið þitt, ljós lífsins,
yljaðu þeim og vermdu. Opnaðu
þeim dyr og gef að þau finni leið.
Lát þau finna að þú elskir þau og
þráir að fá að vera þeim stuðn-
ingur, styrkur og stoð, jafnt á erf-
iðu dögunum sem og á öllum hin-
um.
Vertu hjá þeim sem
komin eru á efri ár
Við þökkum þér kærleiksríki
Guð fyrir umhyggju þína og trú-
festi. Fyrir að við fáum að leita
skjóls hjá þér sem uppörvar okkur
og hvetur þegar öll sund virðast
vera lokuð eða að lokast.
Blessaðu einnig þau sem komin
eru á efri ár og finna sig máttfarin
og þreytt en langar líka til að vera
með og gefa af sér. Þakka þér fyr-
ir allt það góða sem eldri borgarar
þessa lands hafa gefið til sam-
félagsins. Bænheyrðu þau og
blessaðu allar bænirnar þeirra fyr-
ir okkur sem yngri erum. Viltu
leysa þau undan kvíða og ótta. Gef
þeim þinn frið í
hjarta. Þann frið sem
enginn og ekkert
megnar frá þeim né
nokkrum að taka.
Leyfðu þeim og okk-
ur öllum að hvíla
óhult í þinni náð og
örugga faðmi sem
ekkert fær okkur
hrifið úr.
Opnaðu augu okkar
fyrir velferð náung-
ans og lát okkur
koma auga á hvar og hvernig við
getum orðið að liði sem ein-
staklingar en einnig sem samfélag
og heild sem er samferða í þessu
lífi og tekur utan um hvert annað
þegar á þarf að halda á öllum
sviðum. Opnaðu einnig augu
stjórnvalda fyrir þeim sem ber-
sýnilega þurfa aukna aðstoð, fjár-
hagslega, félagslega eða vegna
líkamlegs eða andlegs vanmáttar.
Leyfðu okkur að koma auga á
gæsku þína og fá að hvíla í þér
dag og nótt. Blessaðu og vaktu yf-
ir okkur öllum. Ástvinum okkar
og þeim sem upp í hugann koma.
Landinu okkar, þjóðinni allri sem
og heimsbyggðinni í víðri veröld.
Veittu okkur þinn frið í hjarta.
„Skapaðu í okkur hreint hjarta, ó,
Guð, og veittu okkur nýjan, stöð-
ugan anda.“ Í Jesú nafni. Amen.
Með friðar- og kærleikskveðju.
– Lifi lífið!
Bæn dagsins
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
»Ég bið þig að blessa
öll þau sem finna
til vanmáttar af ein-
hverjum toga. Þau
sem órétt þola eða búa
við fátækt og misrétti
eða komast illa af.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Í fréttum og um-
fjöllun fjölmiðla er
mikið fjallað um lofts-
lagsbreytingar og þá
sem næst ævinlega
frá því pólitískt rétt-
hugsaða sjónarmiði,
að orsökin sé aukið
magn koltvísýrings í
andrúmsloftinu og að
þar sé maðurinn
höfuðsökudólgurinn.
Raunin er samt sú, að fjöldi vís-
indamanna er á annarri skoðun;
þeirri, að breytingar á loftslagi
eigi sér allt aðrar skýringar.
Sólblettir
Sólblettir eru dökkir blettir
sem koma á yfirborð sólarinnar.
Hinir stærstu geta verið auðsýni-
legir, en eftir tilkomu sjónauka
fóru menn að fylgjast með þeim
kerfisbundið. Fyrsta sjónaukann
smíðaði þýsk-hollenski gleraugna-
smiðurinn Frans Lippersey árið
1608, en ítalski fjölfræðingurinn
Gallileo Galilei endurbætti tækið
árið eftir og notaði það við
stjörnufræðirannsóknir sínar; þar
á meðal athuganir á sólblettum.
Þessar athuganir hafa staðið
óslitið frá þessum tíma, þó að í
séu eyður vegna t.d. óhagstæðra
veðurskilyrða.
Í upphafi gerðu menn sér ekki
grein fyrir því, hvaða áhrif sól-
blettir höfðu á veðurfar á jörð-
inni. Sýnilegt var þó, að þeir voru
mismargir og á stundum sem
næst engir. Þýski stjörnufræðing-
urinn Samuel Schwabe komst að
því 1843 eftir að hafa fylgst með
sólblettum í 17 ár, að þeir komu í
lotum. Frekari rannsóknir stað-
festu þetta og nú vita vísinda-
menn af m.a. þessum: Gleissberg-
lotur, 70-100 ár, Suess- eða Vries-
lotur, 210 ár og Hallstatt-lotur,
2.300 ár.
Geimgeislar
Geimgeislar eru afar orkumikl-
ar róteindir (proton), sem eiga að
jafnaði uppruna utan sólkerfisins
og verða líklega til þegar blossa-
stjörnur (supernova) springa og
senda frá sér sveim nifteinda
(neutrons). Eigindir þessara
einda urðu mönnum ljósar stig af
stigi með t.d. til-
raunum Skotans
C.T.R. Wilsons, sem
sýndu fram á það, að
þær mynduðu rákir í
vatnsgufumettuðu
rými, og tilraunum
og kenningum Dan-
anna Henriks Sven-
marks og Eigils Fri-
is-Christensens, sem
komust að þeirri
niðurstöðu, að þegar
þessar eindir koma
inn í lofthjúp jarðar
rekast þær á aðrar og mynda
m.a. geislavirkt kolefni (radioc-
arbon, 14C) við árekstur við köfn-
unarefnisatóm og beryllium 10
(10Be) við árekstur við súrefnis-
atóm. Því meira sem berst inn í
lofthjúpinn af geimgeislum, því
meira myndast af þessum efnum.
Helmingunartími geislavirkni
14C er 5.730 ár, en 10Be, líka
geislavirkt, 1,39 milljónir ára.
10Be gengur í samband við raka í
lofthjúpnum og myndar stig af
stigi dropa, sem verða að skýjum,
regni og snjókomu. Snjórinn
hleðst upp á köldum svæðum
jarðarinnar og myndar jökla á
t.d. suðurskautinu og Grænlandi.
Þeir hlaðast upp í lögum. Þegar
borað er í þá og teknir úr þeim
kjarnar, er unnt að lesa aldur
hvers lags af öðru með því að
mæla hjöðnun geislavirkni þess
10Be, sem fallið hefur í snjónum
sem myndaði jökulinn. Úr bor-
kjörnunum lesa menn fleira, því
að í lögunum eru líka t.d. loftból-
ur, sem upplýsa um atriði svo
sem magn koltvísýrings (CO2) og
einnig ýmsar agnir, sem fallið
hafa á jökulinn, svo sem ösku frá
eldgosum og fleiru. Með þetta í
höndum hafa vísindamenn rakið
veðurfar og loftslag á jörðinni
langt aftur í tímann, en dýpsta
holan sem boruð hefur verið í
suðuskautsísinn (Vostok-holan,
1998) náði niður á yfir 3.623 m
dýpi og gaf upplýsingar um mörg
hundruð þúsundir ára.
Segulsvið sólar
Segulsvið sólarinnar hefur
gjörtæk áhrif á veðurfar á jörð-
inni. Það er mjög breytilegt og er
öflugast, þegar sólblettir eru
margir, en hjaðnar þegar þeir
eru fáir eða sem næst engir. Þeg-
ar segulsviðið er öflugt, ver það
lofthjúpinn fyrir geimgeislum, svo
að þá kemst minna af þeim inn í
hjúpinn og minna verður til af
14C og 10Be. Þetta hefur þau
áhrif, að skýjamyndun verður
minni og því meiri inngeislun á
yfirborð jarðarinnar, vegna þess
að útgeislun minnkar, þegar
skýjahulan er lítil. Þegar aftur á
móti sólblettum fækkar veikist
segulsvið sólarinnar. Meira magn
geimgeisla kemst þá inn í loft-
hjúpinn. Magn 14C og 10Be
eykst, ský verða fleiri, útgeislun
verður meiri, minni ylur berst
niður til jarðar og veður kólnar.
Þetta síðasta þarf ekki vísinda-
menn til þess að segja okkur. Við
vitum hvað gerist, þegar dregur
fyrir sólu eða alskýjað er. Það
verður svalara. Það er þó ekkert
að því að fá skýringu á því, sem
við finnum á eigin skinni. Hún
ætti að fá okkur til þess að velta
fyrir okkur náttúrulegum ástæð-
um breytinga loftslags og þá öðr-
um en magni CO2 í andrúmsloft-
inu eða áhrifum gerða mannsins.
Umhugsunarefni – ekki satt?
Væri ekki ráð að hugsa út fyrir
pólitískt rétthugsaða umræðu-
rammann um loftslagsmál, sem
haldið er að okkur? Er líklegt, að
lofttegundin CO2, sem er ekki
nema um tæp 0,04% af lofthjúpn-
um og er næringarefni öllum
gróðri á jörðinni jafnt á láði sem í
legi – ein höfuðundirstaða alls lífs
á þessum hnetti – sé stórhættuleg
tilveru allrar lifandi náttúru?
Gervihnattamyndir af jörðinni
sýna að hún hefur grænkað –
væntanlega vegna lítils háttar
aukningar CO2 í loftinu. Það ýtir
undir þroska platna.
Þetta vita ylræktarbændur.
Þeir auka magn CO2 í gróður-
húsum sínum til þess að flýta
vexti nytjaplantnanna sem þeir
rækta. Það verkar vel.
Geimgeislar og loftslag
Eftir Hauk
Ágústsson » Væri ekki ráð að
hugsa út fyrir
pólitískt rétthugsaða
rammann?
Haukur Ágústsson
Höfundur er fv. kennari.
Margir lesendur
velta eflaust vöngum
og botna ekkert í
fyrirsögn þessa
greinarstúfs. Hún er
nýtt löglegt íslenskt
mannsnafn. Sam-
kvæmt frétt í mbl.is
14.9. hefur manna-
nafnanefnd samþykkt
23 ný nöfn á manna-
nafnaskrá. Þar af eru
sjö karlmannsnöfn og má sjá tvö
þeirra hér að ofan. Þegar svein-
barn, sem nú væri skírt einu af
nýju nöfnunum, Sasi, fullorðnast
og fær sér konu og þau eignast
dreng, sem þau skíra Blake, sem
er eitt þeirra nýju, verður til
mannsnafnið í fyrirsögninni.
Nýju kvennöfnin, 11 að tölu, eru
mörg furðuleg og illskiljanleg
fyrir gamlingja eins og mig. Meðal
þeirra eru heitin Manley, Gjóska,
Jasmin, Lilith, Vopna og Degen.
En svo kemur rúsínan í pylsuend-
anum, sem eru fjögur kynhlutlaus
nöfn; Villiljós, Sverð, Alpha og
Snæ. Ég er ekki nógu vel að mér í
þessum kynmálum og því vaknar
spurning: Geta foreldrar strax séð
á nýfæddu barni hvort það er kyn-
hlutlaust? Ég hefi alltaf haldið að
það kæmi í ljós seinna.
Áður fyrr var þetta
allt einfaldara. Meiri-
hluti ungbarna var
skírður einu af þeim
nöfnum sem notuð
höfðu verið af ís-
lenskri þjóð í ár-
hundruð. Í mörgum
fjölskyldum voru
sömu nöfnin notuð
kynslóð eftir kynslóð.
Í mínu tilfelli vorum
við sjö krakkarnir.
Þrjú fengu nöfn frá
öfum og ömmum eins
og tíðkaðist. Einn fékk nafn sem
frænku okkar hafði birst í draumi.
Svo dó ein ung systir pabba, og þá
fékk systir mín nafn hennar. Þeg-
ar kom að mér, en ég var fimmta
barnið í röðinni, var ekkert nafn
tiltækt. Mér er sagt að eitt sinn
hafi pabbi leitað að nafni í síma-
skránni fram á nótt. Ég var því
nafnlaus í tæp fjögur ár, en þá var
farið með mig og yngri systur í
skírnarheimsókn til séra Bjarna
niður í Lækjargötu. Og hann
spurði mig með sinni landskunnu,
hrjúfu rödd: „Og hvað átt þú nú
að heita, drengur minn?“
Mér ferst kannski ekki að vera
að gagnrýna nýjar nafngiftir. Þótt
þessi mál hafi verið hefðbundnari í
gamla daga bar við að foreldrar
skelltu á börn sín ýmsum óvenju-
legum nöfnum. Og sumir krakkar
þjáðust með skrítin nöfn. Mér
dettur í hug Sveinn, móðurafi
minn, sem var mikill aðdáandi
rússnesku byltingarinnar, og því
skírði hann son sinn Karl Marx.
Kalla tókst að fá Marxnafnið
þurrkað út úr kirkjubókinni þegar
hann fermdist. Mamma var skírð
Mikkelína María. Mikkelínunafnið,
eftir því sem mér skilst, var nokk-
uð þekkt á Vestfjörðum, en
mamma var frá Bolungarvík. Sagt
var að franskur sjómaður, Mikkael
að nafni, hefði endur fyrir löngu
orðið að hafa vetursetu í plássinu.
Þegar hann komst til síns heima
um vorið skildi hann eftir þungaða
heimasætu í Bolungarvík.
Þegar barnið fæddist skírði
stúlkan dótturina Mikkelínu eftir
barnsföðurnum, sem aldrei kom til
baka eins og hann hafði lofað. Þótt
nafnið á frönsku, Micheline, sé
gott og gilt í Frakklandi fannst
mörgum íslenska útgáfan sér-
kennileg. Þegar ég var í barna-
skóla og það spurðist að móðir
mín héti Mikkelína var mér strítt
með því. Það var híað á mig og
einhver spurði hvort mamma mín
væri eitthvað skyld Mikka mús.
Krakkar geta verið grimmir og ég
tók þetta nærri mér, en sagði
mömmu aldrei af því.
Ísland, sem hefir sérstöðu á svo
mörgum sviðum, er eitt fárra
landa í heiminum þar sem börn
taka nafn foreldris, langoftast föð-
ur, sem eftirnafn og bæta við
dóttir eða sonur. Í flestum vest-
rænum löndum gilda ættarnöfn og
allir í einni fjölskyldu, ættlið eftir
ættlið, bera sama eftirnafnið. En
því miður á okkar regla í vök að
verjast. Endur fyrir löngu voru
tekin upp nokkur ættarnöfn á Ís-
landi, mörg að dönskum sið. Af og
til hafa yfirvöldin reynt að sporna
við nýjum ættarnöfnum en árang-
urinn hefir ekki verið mikill.
Það er skiljanlegt að sumir vilji
halda í ættarnöfnin, sér í lagi ef
einhver ættinginn hefir getið sér
gott orð og kannski landsfrægð.
Þá er flott að allir viti að hann
eða hún sé frændi eða frænka.
Svo má ekki gleyma snobbinu,
sem svo oft kúrir rétt undir yfir-
borðinu.
Á mínu æskuheimili hafði full-
orðna fólkið vín um hönd ein-
göngu á gamlárskvöldinu. Þá
komu ættingjar saman og gerðu
sér glaðan dag. Systkini pabba og
makar voru þar og varð oft úr
mikið húllumhæ. Með aðstoð
Bakkusar kom ættarstoltið í ljós
og gortað var yfir Gröndölum,
sem höfðu orðið þjóðkunnir. Óli
rakari, sem giftur var föðursystur
minni, hafði lítið lagt til málanna,
en laumaði svo út úr sér: „Ég er
nú bara Jónsson.“
Eftir því sem ég verð eldri tel
ég að það væri mjög gott fyrir ís-
lenska þjóð ef við gætum lagt nið-
ur ættarnöfnin í eitt skipti fyrir
öll. Þá myndi ég heita Þórir Sig-
urðsson Guðmundsson og Mikk-
elínu Maríuson. Pabbi hét Sig-
urður Guðmundur og svo myndi
ég líka kenna mig við mömmu. En
fyrst það er ekki búið að útiloka
ættarnöfnin verð ég að minnast á
frægasta Gröndalinn, Benedikt
Sveinbjarnarson af Heljarslóð-
arorustufrægð. Nokkrum dögum
áður en hann dó, 1907, kom Þor-
valdur Thoroddsen í heimsókn.
Benedikt var veikur, en sat samt
uppi í hægindastól. „Hvernig líður
þér í dag Gröndal minn?“ spurði
gesturinn. „Ég get ekki gengið og
ekki andað,“ sagði Gröndal, „en
annars líður mér vel.“
Blake Sasisson
Eftir Þóri S.
Gröndal »Eftir því sem ég
verð eldri tel ég að
það væri mjög gott
fyrir íslenskt þjóðfélag
ef við gætum lagt
niður ættarnöfnin
í eitt skipti fyrir öll.
Þórir S. Gröndal
Höfundur er fyrrverandi fisksali
og ræðismaður í Ameríku.
floice9@aol.com
Atvinna