Morgunblaðið - 06.10.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.10.2021, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2021 Smáauglýsingar Bílar Nýr 2021 Hyundai Kona EV Premium rafmagnsbíll með 64 kWh rafhlöðu. Raun drægni um 380 km. Flottasta typa með leðri og gler- topplúgu + fullt af öðrum lúxus. Nýtt útlit. 5 litir á staðnum. Til afhendingar strax ! Okkar verð aðeins: 5.790.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. með morgun- !$#"nu Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Stóladans m. Þóreyju kl. 10. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13. Hádegismatur kl. 11.40-12.40. Kaffisala kl. 14.45- 15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Boðinn Harmonikkuspil og söngur kl. 13:30. Handavinnustofa opin frá kl. 12:30-16:00. Sundlaugin er opin frá kl. 13:30-16:00. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10 . Smíðaverkstæði opið frá 09:-12:00 og Albert verður til aðstoðar fyrir gesti og gang- andi.Tálgað með Valdóri frá 09:15. Frjáls spilamennska kl. 12:30-15:45. Opið kaffihús kl. 14:30. Minnum á Haustlistaferð mánudaginn 11. okt- óber, nánari upplýsingar í síma 535-2760. Breiðholtskirkja Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12:00 alla miðviku- daga, súpa og brauð eftir stundina. Eldriborgara starfið "Maður er manns gaman" er kl. 13:15. Allir hjartanlega velkomnir. Bústaðakirkja Hádegistónleikar kl 12:05 á miðvikudag. Jónas Þórir kantor og Kolbeinn Jón Ketilsson tenór verða í hörku stuði og taka vel valin lög. Súpa á eftir, félagsstarf heldur áfram til kl 16:00 Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7:00-8:00. Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Ljóðahópur Soffíu kl. 10:00-12:00. Spaugarar og spellarar kl. 10:30-11:30. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11:30- 12:30. Kaplar og spil kl. 13:30.Tálgun með Valdóri kl. 13-15:30. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabær Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Skák í Jónshúsi kl. 10:30. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00. Stólajóga kl. 11:00 í Kir- kjuhv. Gler kl. 13:00 í Smiðju Kirkjuhv. Vatnsleikf Sjál kl. 15:00 / 15:40 og 16:20. Zumba Gold kl. 16:30. Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa og verkstæði, kl. 10- 11.15 bozzia, kl. 12 - 14.30 postulínsmálun, kl. 13-14.30 félagsvist, kl. 14-15.30 leshópur í handavinnustofu, kl. 16-18 Nafnlausi leikhópurinn. Guðríðarkirkja. Kl. 12:00 helgistund í kirkjunni og söngur. Sviðaveisla verður í safnaðarheimilinu kr. 1500.- Lesin verður saga. Erlingur Snær Guðmundsson kemur með harmonikkuna og spilar fyrir okkur. Hlökkum til að sjá ykkur, sr. Leifur, sr. Pétur, Hrönn og Lovísa. Gullsmára Myndlist kl. 9.00. Boccia kl. 10.00. Postulínsmálun og Kvennabridge kl. 13.00. Pálmar Ragnarsson heldur fyrirlestur um jákvæð samskipti kl. 13.30. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli 9:00-11:00. Ganga með Evu kl 10:00-11:00 allir velkomnir. Útskurður með leiðbeinanda kl. 9:00-12:00. 500 kr. skiptið. Hraunsel Billjard kl. 9-16. Stóla-jóga kl. 10. Línudans kl. 11. Bingó kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16. Hvassaleiti56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleik- fimi kl. 9:45. Framhaldssaga kl. 10:30. Opin vinnustofa - handavinna 13:00-16:00. Bridge kl. 13:00. Styttri ganga kl. 13:30. Hádegismatur kl. 11:30-12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Glerlistanámskeið hefst kl. 9 í Borgum, útvarpsleikfimi kl. 9:45 í Borgum. Gönguhópar Korpúlfa kl. 10 frá Borgum og inni í Egils- höll, þrír styrkleikahópar. Stjórnar og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10 í Borgum. Gaman saman í Borgum kl. 13 og sýnd kvikmyndin Mamma Gógó kl. 13:00 i Borgum, þar sem Kristbjörg Kjeld er í aðalhlutverki. Qigong með Þóru Halldórsdóttir kl. 16:30 í Borgum allir velkomnir. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er postulínsmálun í handavinnu- stofu 2. hæðar milli kl. 9-12. Bókband er í smiðju 1. hæðar milli kl. 9- 12:30 og aftur milli 13-16:30. Þá verður píla í setustofu 2. hæðar milli kl. 10:30-11:00. Myndlist verður í handavinnustofu 2. hæðar milli kl. 13-16. Að endingu er dans með Vitatorgsbandinu milli kl. 14-15. Hlökkum til að sjá ykkur á Lindargötu 59. Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut kl. 9. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl 10. Billjard SElinu kl. 10.Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.Timburmenn Valhúsask. 13. Gler á neðri hæð félagsh. kl. 13. Handavinna á Skólabr. 13. Á morgun hefjast Menningardagar og að sjálfsögðu eru við þar með. Sýndir verða munir af námskeiðum féagsstarfsins í húsnæði Bókasafnsins á Eiðistorgi. Fylgist með dgskránni. Vantar þig fagmann? FINNA.is ✝ Kristín Jó- hannsdóttir fæddist í Hafn- arfirði 19. nóv- ember 1928. Hún andaðist á Hrafn- istu í Hafnarfirði 23. september 2021. Móðir hennar var Ragnheiður Þórðardóttir, f. 13. júní 1892, d. 15. júlí 1964, og faðir hennar Jó- hann Gíslason, f. 26. júní 1874, d. 26. september 1952. Systkini Kristínar; Þórður Jóhannsson, f. 28.7. 1925, d. 6.12. 2000, samfeðra systkini Jóna Guðlaug Jóhannsdóttir, f. 8.12. 1901, d. 22.11. 1986, Pet- rea Jóhannsdóttir, f. 22.5. 1903, d. 14.9. 1996, og Gísli Jóhanns- son, f. 18.8. 1906, d. 13.7. 1996, og sammæðra bróðir Hermann Sigurðsson, f. 19.10. 1918, d. 15.4. 1991. 15. október 1949 giftist Kristín Jóni Rafni Guðmunds- syni framkvæmdastjóra, f. 19. apríl 1928, d. 7. apríl 2013. For- eldar hans voru Guðrún Jóns- dóttir, f. 22.2. 1900, d. 1.9. 1967, og Guðmundur Þorsteinsson, f. 22.2. 1893, d. 2.3. 1948. Börn þeirra eru: Ragnarsdóttur, f. 1984. Þau eiga tvö börn. Kristín ólst upp í Hafnarfirði og gekk í Lækjarskóla. Vet- urinn 1948 til 1949 fór hún á Húsmæðraskólann að Stað- arfelli í Dölum. Þau Jón hófu búskap sinn í Meðalholti 13 í Reykjavík. Fluttu svo á Lang- holtsveg 187, en 1958 í Goð- heima 5, sem þau höfðu byggt ásamt Óskari bróður Jóns. Síð- ar fluttu þau á Þinghólsbraut í Kópavogi, Asparlund í Garða- bæ og að lokum á Hraunbrún í Hafnarfirði. Síðasta heimili þeirra til 18 ára var að Hraun- vangi 3 í Hafnarfirði. Á sínum yngri árum starfaði Kristín hjá Kexverksmiðjunni Esju. Síðan tók húsmóður- starfið við. Árið 1963 hóf Krist- ín stöf hjá SÍS og tveimur árum síðar hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar (SKÝRR). Upp úr 1970 stofnaði Kristín ásamt öðrum Götunar- stofuna sf. sem starfaði í nokk- ur ár. Eftir það og það sem eft- ir var starfsævinnar starfaði hún á Skattstofunni í Hafn- arfirði. Kristín var mikil hann- yrðakona. Hún hafði alla tíð mikinn áhuga á að spila á spil og naut þess félagsskapar sem því fylgdi. Hún var fær mat- reiðslukona og bæði óhrædd og ófeimin við nýjungar á því sviði. Útför Kristínar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 6. október 2021, klukkan 13. 1. Guðrún, f. 1950, búsett í Hafnarfirði, ekkja Ludwigs H. Gunn- arssonar, f. 10.9. 1945, d. 14.5. 2019. Börn þeirra eru a) Guðmundur Geir, f. 1966, b) Þóra Kristín, f. 1982, gift Davíð Þór Marteinssyni, f. 1979. Þau eiga þrjú börn. 2. Rannveig, f. 1954, gift Þórði Óskarssyni, f. 1955, bú- sett í Kópavogi. Dætur þeirra eru: a) Ragnheiður Ósk Jens- dóttir, f. 1982. Hún á tvö börn. b) Arna Vala, f. 1986, í sambúð með Hauki Viðari Alfreðssyni, f. 1980. Þau eiga þrjá syni. c) Tinna Kristín, f. 1987, í sam- búð með Ævari Erni Sveins- syni, f. 1987. Þau eiga eina dóttur. 3. Ragnar Jóhann, f. 1956, kvæntur Önnu Maríu Þórðar- dóttur, f. 1956, búsett í Kópa- vogi. Synir þeirra eru a) Þórð- ur Rafn, f. 1976. Hann á þrjú börn. b) Jón Rafn, f. 1978, kvæntur Ellen Maríu Svein- björnsdóttur, f. 1975. Þau eiga fjögur börn. c) Atli Þór, f. 1983, kvæntur Ragnheiði Í dag kveð ég tengdamóður mína eftir 47 ára kynni og vináttu. Sautján ára stelpukjána, með ómótaðar skoðanir á flestum svið- um, var tekið sem jafningja. Frá fyrstu tíð tók hún mér af mikilli velvild og umhyggju sem entist alla tíð. Það var alltaf auðvelt að leita til hennar, fá hjá henni góð ráð um nánast hvað sem er. Hún var snillingur þegar allt handverk átti í hlut, matseldin og bakstur- inn lá fyrir henni eins og opin bók, óhrædd að reyna eitthvað nýtt og leyfa öðrum að njóta þess. Tengdapabbi minn varaði Ragnar við því í stríðni sinni að ég væri dreki eins og mamma hans, en við vorum báðar í sporðdreka- merkinu. Það átti víst að merkja að ég gæti verið með skap og erfið í sambúð. Það getur vel verið að það eigi við um mig, en tengda- móðir mín var það ekki. Hún gat verið föst fyrir en aldrei erfið á nokkurn hátt. Á kveðjustund sem þessari vaknar ógrynni minninga um góðar og gefandi samverustund- ir. Um öll ferðalögin sem við fór- um saman bæði hér heima og er- lendis, sumarferðirnar, jólin og áramótin norður á Akureyri, spilakvöldin sem teygðu sig inn í nóttina eins og enginn væri morg- undagurinn. Frímúrarasamkom- urnar, afmælin og svona mætti lengi telja. Við fórum m.a. öll saman í ógleymanlega þriggja vikna ferð um Suðvestur-Eng- land, með alla strákana okkar og foreldra mína, sem hefði mín vegna mátt gjarnan vera lengri. Fórum margar ferðir vítt og breitt um Norðurland og Austur- land, bæði á þekktar og minni þekktar slóðir og þess vegna mjög afskekktar og alltaf var léttlundin með í för. Ef á þurfti að halda voru þau Jón og Stína alltaf boðin og búin að hjálpa og taka undir með okkur. Undanfarin ár og ekki hvað síst á meðan Covid-faraldurinn stóð sem hæst höfðum við nánast daglega samband, hringdum hvor í aðra og við Ragnar heimsóttum hana iðulega eftir að við fluttum suður. Hún leitaði frétta og fylgd- ist vel með því sem var að gerast, hvort sem það var af fjölskyld- unni eða öðru. Við spjölluðum alltaf eins og góðar vinkonur, sem við og vorum. Á síðari árum naut hún þess að búa í nágrenni við Hrafnistu í Hafnarfirði og geta sótt í það fé- lags- og tómstundarstarf sem þar er í boði, hannyrðir og ekki síður í spilamennskuna og tilheyrandi félagsskap. Undir lokin náði hún að flytja á Hrafnistu, full tilhlökk- unar og naut þess að vera komin þangað eftir erfiða og langa sjúkrahúslegu. En því miður varð dvöl hennar þar allt of stutt. Ég kveð hlýja og vingjarnlega tengdamóður og vinkonu með söknuði, í þeirri einlægu trú að hún hvíli í friði. Blessuð sé minn- ing ömmu Stínu. Anna María. Tengdamóðir mín, Kristín Jó- hannsdóttir, er fallin frá tæplega 93 ára gömul. Við leiðarlokin er bundinn endi á 36 ára kynni sem einkenndust af hlýhug og gagn- kvæmri virðingu. Kristín var fædd og uppalin í Hafnarfirði; hún var stolt af upp- runa sínum og þegar hún minnt- ist uppvaxtaráranna þar ljómuðu augu hennar. Kristín kynntist Jóni sínum mjög ung og þau fóru snemma að búa og eiga börn. Áð- ur fór hún í húsmæðraskóla og nýtti sér það sem hún lærði þar á næstu árum; varð listakokkur og saumaði og prjónaði föt á börnin sín þrjú. Þau hjónin ferðuðust mikið og líf þeirra hjóna, ef litið er til baka, hefur á margan hátt ver- ið ævintýri líkast. Þegar börnin voru komin á legg fór Kristín út á vinnumark- aðinn. Hún rak um skeið fyrir- tæki ásamt samstarfskonum, vann síðan til sjötugs á Skattstofu Reykjanesumdæmis í Hafnar- firði og eftir eiginleg starfslok var hún kölluð til starfa á annatímum. Hún var heilsuhraust og keyrði bíl þar til hún var komin hátt á ní- ræðisaldur. Kristín var félagslynd kona. Hún naut þess að vera innan um fólk og eftir að hún lét af störfum tók hún þátt í félagsstarfi aldr- aðra, fyrst með Jóni manni sín- um, en ein eftir að hann féll frá 2013 eftir nokkurra ára baráttu við minnissjúkdóm. Í veikindun- um var hún kletturinn í lífi hans, allt til hinstu stundar, og sinnti honum á heimili þeirra eins lengi og það var unnt. Fráfall lífsföru- nautar eftir 67 ára farsælar sam- vistir er mikið áfall. Sorgina bar hún ekki á torg en ekki er ósenni- legt, í ljósi eðlis veikindanna, að í raun hafi hún verið búin að syrgja lengi áður en Jón féll frá. Kristín lét ekki deigan síga og sinnti hugðarefnum sínum áfram af krafti. Þar á meðal var að spila bridds en spilamennska skipaði alltaf stóran sess, ekki síst þegar fjölskyldan kom saman, hvort sem það var í heimsóknum til þeirra hjóna í Hafnarfjörðinn eða þegar farið var í sumarbústaða- ferðir. Þá voru spilin alltaf tekin fram og gjarnan spiluð kanasta af miklum áhuga. Kristín var mikil hannyrða- kona; hún saumaði út veggmynd- ir, áklæði á stóla og fleira. Einnig heklaði hún dúka og prjónaði vettlinga, sokka, húfur, trefla og fleira sem barnabörnin nutu í rík- um mæli. Hún sótti einnig ýmis námskeið, t.d. í glermyndagerð og gerði þar gripi sem bera vitni um vandvirkni og næmt auga fyr- ir litum og formi. Handavinnu sinnti hún svo lengi sem hún gat. Undir það síðasta var sjónin það döpur að hún dugði nánast ekki til að sinna þessu mikilvæga áhuga- máli. Þrátt fyrir háan aldur var Kristín alltaf vel með á nótunum og fylgdist áhugasöm með öllum sínum afkomendum, naut heim- sókna þeirra og þá var alltaf vel passað upp á að nægar veitingar væru á borðum. Mæt kona er nú horfin á braut. Að baki eru rúmlega níu áratugir farsæls og gifturíks lífs. Ef önnur tilvera er handan þessarar er öruggt að Jón hefur tekið á móti Stínu sinni og fögnuður þeirra svo sannarlega verið innilegur. Ég þakka tengdamóður minni samfylgdina, börnum hennar og öðrum aðstandendum votta ég samúð mína. Megi minningin um væna konu lifa. Þórður Óskarsson. Nú er komið að kveðjustund, elsku amma. Það er erfitt að setjast niður og skrifa þessi orð, en svo fer hug- urinn á flug og minningarnar hellast yfir okkur. Þær eru marg- ar og þær eru góðar. Það er eins og að verða aftur barn að rifja þetta allt saman upp. Að koma til ykkar afa í heimsókn var alltaf gott. Þið tókuð svo vel á móti okk- ur og það var alltaf nóg að gera heima hjá ykkur. Skemmtilegast fannst okkur að fá að leika með slæðurnar þínar og klæða okkur upp í alls konar hlutverk, við köll- uðum það „slæðuleikinn“. Þær voru ófáar sumarbústaða- ferðirnar sem við fórum með þér og afa og alltaf fannst okkur skemmtilegast að fá að fara með ykkur í bíl, því þá var farið í alls konar leiki. Svo þegar í sumarbú- staðinn var komið, þá var að sjálf- sögðu farið að spila og alltaf varð kanasta fyrir valinu. Flókið spil sem við systurnar lærðum barn- ungar af þér og afa. Þú varst svo myndarleg í eld- húsinu, kræsingarnar sem þú töfraðir fram! Þú gerðir bestu brúnuðu kartöflurnar og bestu pönnukökurnar. Maður fór sko aldrei svangur heim frá þér, amma. Þú varst sterk kona, jákvæð, klár og með svo gott viðhorf til lífsins, eitthvað sem við systur höfðum dáðst að síðustu ár. Nú ertu komin í faðm afa, sem var stóra ástin í lífi þínu, og hann hef- ur eflaust beðið þín með eftir- væntingu. Takk fyrir að vera amma okk- ar og gefa okkur allar þessar góðu minningar, sem munu lifa áfram í okkur og barnabarna- börnunum. Ragnheiður Ósk, Arna Vala og Tinna Kristín. „Mínir vinir fara fjöld“ kvað Bólu-Hjálmar við lát vinar síns, svo fer okkur við lát Kristínar Jó- hannsdóttur langtímavinkonu okkar, þótt nú hafi um alllangan tíma verið nokkur vík milli vina, því öll eldumst við með árunum, en þá koma upp minningar um langa vináttu sameiginleg ferða- lög, spilakvöld og aðra samveru með þeim Stínu og Jóni bæði heima hér og á ferðalögum, þeim þó mest erlendis. Jón og Einar störfuðu um langa hríð báðir á vegum sam- vinnuhreyfingarinnar og þar úr spratt góð vinátta fjölskyldnanna og gagnvegir um langa hríð uns breytt umhverfi beggja dró hvorn tveggja nokkuð á ólíkar brautir og ótímabær dauði Jóns hafði sín áhrif. Öll kynni okkar af Kristínu og hennar fjölskyldu svo sem bróður hennar Hermanni gerðu öll þessi samskipti ánægjuleg og eftir- minnileg og ekki þá síst fyrir hlut Kristínar Jóhannsdóttur (Stínu), traustrar skaphafnar hennar og glaðlyndis. Hún var farsæl húsmóðir og uppalandi gjörvilegra barna sinna, gestrisin heim að sækja, uppörvandi og glaðsinna ferða- félagi, hvort sem var í hinum venjulega skilningi eða á hinni al- mennu ferð um lífsins vegi. Þau Jón bjuggu á a.m.k. tveim stöðum í Reykjavík, þá um stund í Garðabæ en að lokum í Hafnar- firði, sem var fæðingar- og upp- eldisbær Stínu og henni alla tíð mjög kær. Við andlát Kristínar Jóhanns- dóttur þökkum við Jóhanna langa vináttu, góð samskipti og vináttu og óskum henni góðrar heim- komu í nýrri framtíð þeirra Jóns um leið og við vottum börnum hennar og fjölskyldum þeirra samúð okkar. Jóhanna og Einar Birnir. Kristín Jóhannsdóttir Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.