Morgunblaðið - 06.10.2021, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2021
Elías Elíasson verkfræðingur
bendir á að minni losun kol-
efna út í andrúmsloftið var ein
stærsta skrautfjöður Borgarlínu
og byggist á að nota hreinorku-
vagna í Borgarlínu og er þannig í
reynd lánsfjöður frá strætó sem
Borgarlína á að
leysa af, en stefna
Strætó bs. er að
nýta hreinorku-
vagna í framtíðinni:
- - -
Það að skreyta
þungu Borgar-
línuna þessari fjöður er að auki
fölsun, því hún mun valda miklum
töfum á annarri bílaumferð og
þær tafir valda mikilli aukningu á
loftmengun. Þessi mengandi áhrif
þungu Borgarlínunnar sjást best
ef litið er á þversnið Suðurlands-
brautar eins og það er teiknað í
frumdragaskýrslu 1. lotu Borgar-
línu frá jan. 2021.
- - -
Þar sést að sérakreinar Borgar-
línu eru settar í miðju vegar
og ein akrein fyrir aðra bílaum-
ferð verður sín hvorum megin.
Með þessu verða teknar tvær ak-
reinar af almennri bílaumferð og
hægt á hraða að auki, því há-
markshraði verður settur 30 km/á
klst., sem liggur neðan hins græna
hraðasviðs (40 til 80 km/á klst.)
þar sem bílar nútímans nota
minnst eldsneyti á ekinn km.
Flutningsgeta Suðurlandsbrautar
er þannig minnkuð verulega og
mun umferðin þá tefjast og leita
að hluta á götur til hliðar þannig
að leiðin lengist og verður seinfar-
in.
- - -
Þannig mun öll almenn bílaum-
ferð um Suðurlandsbraut og
þar í kring tefjast og mengandi út-
blástur bílanna aukast verulega.
Að auki mun vinstri beygja verða
bönnuð víða, sem lengir leið
margra sem þar fara um og eykur
enn útblástur mengandi loftteg-
unda.“
Elías Elíasson
Blekking afhjúpuð
STAKSTEINAR
ÁR
1921-2021
Í Y
KKA
R ÞJÓNUSTU
10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Umferðin á hringveginum jókst mikið í septem-
bermánuði samanborið við sama mánuð í fyrra og
jókst hún alls um 17,6 prósent. Fram kemur í um-
fjöllun og tölum Vegagerðarinnar um umferðina
yfir 16 lykilteljara á hringveginum að hún hafi
þrátt fyrir aukinguna ekki slegið met ef litið er á
umferðina í þessum sama mánuði á árunum 2018
og 2019. Í seinasta mánuði var meðalumferð á dag
rúmlega 93 þúsund bílar sem er eftir sem áður
þriðja mesta umferð yfir teljarana á hringveginum
í septembermánuði sem mælst hefur.
Umferðin á síðasta ári dróst mikið saman miðað
við árið á undan vegna sóttvarnaaðgerða, sam-
dráttar og fækkunar ferðamanna. Aukningin í ár
er því veruleg og var met slegið í aukningu um-
ferðar á milli einstakra talningarstaða. Mest jókst
umferð um Austurland eða um 83,3%. Talning við
Hvalsnes í Lóni á Austurlandi sýndi tæplega 256%
aukningu á milli septembermánaða í ár og í fyrra.
Næstur kom teljari á Mýrdalssandi sem sýndi
rúmlega 212% aukningu frá september í fyrra.
Minnst jókst umferð eða um tæp þrjú prósent við
Úlfarsfell á milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar.
Stóraukin umferð á hringveginum
- Mest jókst umferð um
Austurland eða um 83,3%
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Á hringveginum Mest jókst umferð um Austur-
land en minnst á eða við höfuðborgarsvæðið.
Guðni Már Hennings-
son útvarpsmaður lést
á heimili sínu á Tene-
rife á Spáni sl. mánu-
dag, 69 ára að aldri.
Guðni fæddist í
Reykjavík 9. júní árið
1952, sonur Hennings
J. Elísbergssonar og
Gretu Sólveigar Han-
sen (d. 1995).
Guðni Már starfaði í
tæpan aldarfjórðung
hjá Ríkisútvarpinu við
þáttagerð, hóf þar störf
árið 1994. Stjórnaði
hann þættinum Popp-
landi um nokkurt skeið og síðar
Næturvaktinni, sem naut mikilla
vinsælda og voru hlustendur dug-
legir að hringja þar inn á síð-
kvöldum. Ólafur Páll Gunnarsson,
sem stjórnar Popplandi í dag,
minntist Guðna Más í þætti sínum í
gær og greindi frá andláti hans.
Guðni Már flutti til Tenerife árið
2018.
Hann kom víða við í listinni, var í
tónlist, gaf út nokkrar ljóðabækur
og hélt nokkrar málverkasýningar.
Á menningarvefnum Glatkistunni
kemur fram að Guðni Már hafi leikið
í nokkrum hljómsveitum, m.a. á
slagverk með hljómsveitunum Rasp
og Tass.
Ásamt Birgi Henningssyni gaf
Guðni Már út plötuna
Líf árið 2009, til
styrktar Samhjálp.
Hafði platan að geyma
lög Birgis við ljóð
Guðna Más. Birgir sá
um sönginn en hljóm-
sveitin The Viking
giant show, með Heið-
ar Örn Kristjánsson í
broddi fylkingar, ann-
aðist spilamennskuna,
að því er fram kemur á
Glatkistunni. Platan
var gefin út í minningu
mæðra þeirra Guðna
Más og Birgis og seld-
ist í á fimmta þúsund eintökum.
Guðni Már og Birgir störfuðu
áfram saman og árið 2012 gaf
hljómsveit þeirra, Tass, út plötuna
Almúgamenn. Kom hún út í tilefni
sextugsafmælis Guðna Más. Þriðja
plata þeirra félaga kom síðan út
2017, er nefndist Manstu þá vinda.
Innihélt hún 15 lög í flutningi ým-
issa tónlistarmanna, auk þeirra
sjálfra. Meðal listamanna á plötunni
voru Rúnar Þór Pétursson, Hvann-
dalsbræður, Klettar og Ágúst Böðv-
arsson. Var platan gefin út í minn-
ingu Óskars Óskarssonar.
Eftirlifandi dætur Guðna Más eru
Katrín Ísafold, 27 ára, og Steina
Elena, 9 ára. Katrín á soninn Krist-
ófer Leví, 9 ára.
Andlát
Guðni Már Henningsson