Morgunblaðið - 06.10.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2021
Sænska lögreglan hefur gefið út al-
þjóðlega eftirlýsingu til höfuðs Mark
Lorentzon, hálfsextugum manni, sem
grunaður er um að hafa staðið á bak
við kraftmikla sprengingu í fjölbýlis-
húsi nærri miðbæ Gautaborgar á
þriðjudagsmorguninn í síðustu viku
með þeim afleiðingum að flytja þurfti
20 manns á sjúkrahús, þar af fjóra al-
varlega slasaða.
Héraðsdómstóll í Gautaborg hefur
úrskurðað Lorentzon í gæslu-
varðhald in absentia, það er að segja
að honum fjarstöddum, og kveður
Thomas Fuxborg, talsmaður lögregl-
unnar í Gautaborg, nokkrar ábend-
ingar hafa borist lögreglu um aðsetur
Lorentzons.
Húsleit í Ósló
Ein þessara ábendinga barst frá
Ósló í Noregi þar sem vopnuð lög-
regla réðst til inngöngu í glæsivillu á
Bygdøy um helgina vegna gruns um
að hinn eftirlýsti leyndist þar, en
hann er sagður hafa starfað við skipa-
miðlun, sem hann lærði í Noregi um
aldamótin, og við störf sín unnið fyrir
margar stærstu skipaútgerðir heims,
eftir því sem sænskir fjölmiðlar
greina frá.
Norskt símanúmer Lorentzons
tengdi hann við heimilisfangið á
Bygdøy, en fyrrverandi eigandi húss-
ins, sem leitað var í, upplýsti lögreglu
um að hann hefði leigt Lorentzon
hluta hússins fyrir mörgum árum.
Myndir frá öryggismyndavél, sem
sænska lögreglan hefur birt í fjöl-
miðlum, sýna Lorentzon koma inn í
anddyri fjölbýlishússins í Gautaborg
og bera eitthvað sem líkist brúnum
bréfpoka. atlisteinn@mbl.is
Ljósmynd/Sænska lögreglan
Á vettvangi Lorentzon kemur inn í
fjölbýlishúsið með brúnan bréfpoka.
Eftirlýstur vegna
sprengingarinnar
- Talinn fara huldu höfði í Ósló
Nokkrum stúlk-
um hefur nú aft-
ur verið leyft að
stunda nám í
Afganistan, en
talíbanar höfðu
áður bannað
stúlkum að
mennta sig.
Vígahópurinn
náði aftur tökum
á landinu eftir
nýlegt brotthvarf alþjóðaherliðsins
undir forystu Bandaríkjanna.
Einungis stúlkur búsettar í Kún-
dúz-héraði í norðurhluta landsins
mega snúa aftur til náms. Stúlkum
annars staðar í Afganistan er
áfram haldið utan við skólabygg-
ingar.
Birst hafa myndir af stúlkum þar
sem þær sjást ganga inn í skóla-
byggingu. Eru þær svartklæddar
og með hvíta slæðu yfir höfði. Sum-
ar þeirra eru með andlit sitt alveg
hulið. Þá er konum nú einnig bann-
að að taka þátt í atvinnulífinu.
AFGANISTAN
Stúlkur í einu héraði
snúa aftur til náms
Nám Stúlkur á
leið í skóla.
Íran hvetur nú
kjarnorkustofn-
un Sameinuðu
þjóðanna (IAEA)
til að fordæma
skemmdar-
verkaárás á
kjarnastöð 50 km
vestur af Teher-
an, en árásin var
gerð á höfuð-
stöðvar kjarn-
orkumála landsins 23. júní síðastlið-
inn og olli miklu tjóni á húsnæðinu.
Ráðamenn í Teheran segja sveit-
ir Ísraela bera ábyrgð á árásinni
sem þeir kalla hryðjuverk. Sein við-
brögð alþjóðasamfélagsins til að
fordæma verknaðinn eru að sama
skapi harðlega gagnrýnd af þeim.
IAEA bendir á að eftirlits-
mönnum þeirra hafi verið mein-
aður aðgangur að stöðinni til að
meta skemmdir. Þessu neita þó
talsmenn Írana og segja kjarn-
orkustofnunina draga lappirnar.
ÍRAN
Vilja vekja
alþjóðleg viðbrögð
Deila Fulltrúi
Írans hjá IAEA.
Facebook setur fjárhagslegan ávinn-
ing ofar almannaheill. Þessi öflugi
samfélagsmiðill lætur falsfréttir, hat-
ursorðræðu og margs konar upplýs-
ingaóreiðu viðgangast ef það hentar
fjárhagslegum hagsmunum fyrir-
tækisins. Fögur fyrirheit um allt ann-
að standast ekki.
Þetta fullyrðir Frances Haugen,
fyrrverandi vörustjóri Facebook, en
uppljóstranir hennar um starfshætti
samfélagsmiðlarisans í greinaflokki í
dagblaðinu Wall Street Journal og í
viðtali við sjónvarpsþáttinn 60 Min-
utes á CBS hafa vakið mikla athygli
og umræður í Bandaríkjunum og
Evrópu undanfarna daga.
Haugen heldur því fram að megin-
markmið eigenda og stjórnenda
Facebook sé að græða peninga og allt
annað, þar á meðal staðreyndir og al-
mannaheill, víki þegar þetta rekst á.
Hún segist hafa persónulega reynslu
af þessu í störfum sínum fyrir fyrir-
tækið. Svonefnd „Facebook-skjöl“
sem Wall Street Journal hefur birt
eru frá henni komin. Snemma á þessu
ári tók Haugen afrit af gögnum hjá
Facebook sem snúast um rannsóknir
sem fyrirtækið lét sjálft gera á hat-
ursorðræðu, upplýsingaóreiðu og
fleiri atriðum á vef sínum og kom
þeim til fjölmiðla. Með þessu steig
hún fram sem uppljóstrari og nýtur
af þeirri ástæðu lagalegrar verndar.
Hún átti að koma fyrir eina af nefnd-
um öldungadeildar Bandaríkjaþings í
gærkvöldi og skýra mál sitt þar frek-
ar.
Gögn Facebook sem Haugen hefur
komið á framfæri leiða í ljós að efni
sem vekur heitar tilfinningar, reiði og
uppnám höfðar mjög sterkt til not-
enda miðilsins. Þeir eru líklegri til að
smella á það en annað efni og dreifa
því þannig áfram. Gróðinn í kringum
auglýsingar sem tengjast slíkum
færslum er langtum meiri en af öðr-
um auglýsingum. Haugen segir að
kerfisleg forskrift (algóritmi) sem
stýrir því hvernig efni birtist á Fa-
cebook eigi stóran þátt í því að vekja
athygli notenda á færslum og auglýs-
ingum sem höfða til tilfinninga og
skoðana.
Forsvarsmenn Facebook hafa
hafnað ásökunum Haugen og fullyrða
að forskriftarkerfið geri meira gagn
en ógagn. Í gær hélt einn af tals-
mönnum fyrirtækisins því fram að
stafræn gögn í skjölunum sem Hau-
gen lak til fjölmiðla hefðu komist í
hendur hakkara sem notað hefði þau
til árásar á tölvukerfi fyrirtækisins
með þeim afleiðingum að miðillinn lá
niðri í marga klukkutíma í fyrradag.
Gróðinn ofar almannaheill
- Fyrrverandi vörustjóri Facebook segir falsfréttir, upplýsingaóreiðu og haturs-
orðræðu viðgangast þegar það hentar fjárhagslegum hagsmunum fyrirtækisins
Skjáskot/CBS
Facebook Frances Haugen skýrir
mál sitt í 60 Minutes á CBS.
Hann virtist heldur slakur, maðurinn sem fylgd-
ist með keppendum í eyðimerkurmaraþoninu
Marathon des Sables. Er það af mörgum talið
erfiðasta maraþon í heimi, stendur yfir í sjö daga
og er hlaupaleiðin 223,8 kílómetrar í miskunnar-
lausri Sahara-eyðimörkinni.
Fylgst með
sandmaraþoninu
AFP
Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
LKINUGEFÐU
DAGAMUN