Morgunblaðið - 06.10.2021, Side 15

Morgunblaðið - 06.10.2021, Side 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2021 ✝ Gísli Jón Elías- son fæddist 20. febrúar 1956 á Siglufirði. Hann lést á heimili sínu 28. september 2021. Foreldrar hans voru Elías Bjarni Ísfjörð, f. 30.8. 1927, d. 12.9. 1988 og Aðalheiður Sólveig Þorsteins- dóttir, f. 26.3. 1925, d. 13.1. 2000. Alsystkini Gísla eru: Kristján Sigurður, f. 7.8. 1950, kvæntur Lilju Eiðsdóttur. Þau eiga þrjú börn. Þorsteinn, f. 23.8. 1951. Rafn, f. 29.7.1953, kvæntur Unu Þóreyju Sigurðardóttur. Þau eiga þrjú börn. Dagmar, f. 11.6. 1957. Hún á fjögur börn. Heiðar, f. 17.4.1959, kvæntur Önnu Júlíusdóttur. Þau eiga þrjú börn. Sólrún, f. 9.5. 1960, d. 20.5. 2019. Hún var gift Ómari Geirs- syni og eiga þau þrjú börn. Sigurbjörg, f. 19.12. 1961, d. 12.7. 2008. Hún var gift Friðfinni Haukssyni og eiga þau fjögur börn. Hálfsystkini Gísla eru: Árni, f. 20.9. 1945. Hann á sex börn. Jóna, f. 1.7. 1947. Hún var gift Halldóri S. Sig- urðssyni. Hann lést árið 2013. Þau eiga þrjú börn. Sverrir Eyland, f. 8.2. 1963, kvæntur Sigurrós Sveinsdóttur. Þau eiga fimm börn. Gísli ólst upp á Hverfisgötu 12 á Siglufirði í stórum systk- inahóp. Hann var geðgóður og glaðlyndur alla tíð og lifði ein- földu lífi. Hann var ókvæntur og barnlaus en átti góða vinkonu, Önnu Kristinsdóttur. Hann stundaði verkamannavinnu og fór á sjó þegar tækifæri gafst. Útför Gísla Jóns fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 6. október 2021, klukkan 11. Í dag kveð ég elskulegan bróður minn, Gísla Jón Elíasson, eða Gilla eins og hann var oftast kallaður. Hann fór eins hljóðlega og hann kom í þennan heim. Ég verð að viðurkenna að ég var ekkert ánægð að fá einn bróður í viðbót, en amma sagði mér að að óska mömmu frekar til hamingju með að eignast heilbrigt barn og þau áttu eftir að verða fleiri. Við Gísli áttum svo eftir að verða bestu vinir. En hver laðaðist ekki að Gísla, þessum ljúflingi. Gísli giftist ekki og eignaðist ekki börn, en systkinabörnin hændust að honum og áttu hann að vini. Hann var ljúft barn og ljúfur fullorðinn. Einu sinni á æskuárunum átti ég að fara með bræður mína þrjá, Þorstein, Rafn og Gísla í bíó af því að Kristján bróðir átti frí í það skiptið og Kristján sagði af því tilefni: „Það verður ekkert mál að fara með Gísla, hann sofnar bara ef honum finnst þetta leiðinlegt,“ það var ekki neinn æsingur þar. Gísli var rólegur en skemmtileg- ur og laumaði út úr sér brönd- urum, elskaði góðan mat og sér- staklega grillveislur enda var hann góður kokkur sjálfur. Hann var svo heppinn að eignast góða vinkonu hin seinni ár, hana Önnu, og þau flökkuðu saman og fóru í nokkur sumur í bústað að Illuga- stöðum í Fljótunum og héldu grillveislu ásamt bræðrum Gísla og mágkonum og skemmtu sér vel. Það er með sorg í hjarta og góðar minningar að ég kveð þennan ljúfa bróður og þakka fyrir góðar stundir sem voru tvisvar á liðnu sumri. Börnin mín eru líka með sorg í hjarta og minnast þín sem góðs vinar. Jóna systir í Grindavík. Gísli Jón Elíasson ✝ Ísleifur Hall- dórsson lækn- ir fæddist í Reykjavík 26. september 1932. Hann lést á Hrafn- istu Ísafold 23. september 2021. Foreldrar Ís- leifs voru Magnea Ósk Tómasdóttir, f. 22.6. 1907, d. 9.9. 1995, og Hall- dór Ísleifsson, f. 7.7. 1904, d. 19.3. 1984. Systkini Ísleifs voru Birgir Sigurðsson, f. 11.1. 1927, d. 22.4. 2016, og Guðrún Esther Halldórsdóttir, f. 27.10. 1933, d. 5.2. 2016. Ísleifur giftist eftirlifandi eiginkonu sinni, Kolbrúnu Þorfinnsdóttur, f. 1.8. 1934, hinn 21.8. 1955. Foreldrar hennar voru Kristín Kristjáns- dóttir, f. 20.10. 1909, d. 2.9. 1979, og Þorfinnur Guðmunds- hans er Oktavía Jónasdóttir, f. 18.9. 1962. Synir hans eru Trausti Már Valgeirsson, f. 3.10. 1983, Halldór Heimir, f. 16.2. 1992, Ísleifur, f. 2.11. 1994, og Kristján Ottó, f. 14.12. 1998. Barnabarnabörn Ísleifs og Kolbrúnar eru 10 talsins. Ísleifur ólst upp í Reykjavík en dvaldi á sumrin hjá föður- foreldrum sínum og föður- systur í Stykkishólmi og undi hag sínum vel þar. Hann lauk stúdentsprófi frá Verzlunar- skóla Íslands 1952, embættis- prófi í læknisfræði frá Há- skóla Íslands 1961 og fékk útgefið almennt lækningaleyfi árið 1963. Hann var héraðs- læknir á Hólmavík árin 1962- 1965 en heilsugæslulæknir og síðar héraðslæknir á Hvols- velli eftir það. Hann var auk þess héraðslæknir Suðurlands frá 1978. Þá gegndi hann fjöl- mörgum félags- og trúnaðar- störfum og var m.a. í stjórn Læknafélags Suðurlands og Læknafélags Íslands. Útför Ísleifs hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. son, f. 7.6. 1904, d. 26.1. 1984. Hófu þau búskap í Reykjavík en bjuggu síðar á Hólmavík, Hvols- velli og í Garða- bæ. Börn Ísleifs og Kolbrúnar eru: 1) Kristín, f. 25.11. 1952. Dóttir henn- ar er Lára Jón- asdóttir, f. 3.2. 1981. 2) Kolbrún Linda, f. 20.2. 1956. Börn hennar eru Eva Dís Pálmadóttir, f. 30.11. 1978, og Róbert Pálmason, f. 6.8. 1981. 3) Þorfinnur, f. 25.5. 1960. Kona hans er Sigríður Þorkelsdóttir, f. 9.4. 1964. Dóttir hans er Kolbrún, f. 28.12. 1989. 4) Halldór Heimir, f. 3.10. 1962. Kona hans er Kristbjörg Magnúsdóttir, f. 1.5. 1955. 5) Gunnar Haf- steinn, f. 27.8. 1963. Kona Vertu kært kvaddur elsku Ís- leifur minn. Takk fyrir ljúfa ævi okkar saman. Þú ert farinn, eftir sit ég ein aftur skilur leiti milli vega. Í mínu hjarta minning fersk og hrein mildar söknuð, léttir þungan trega. Við gengum snemma út á lífsins leið lögðum saman krafta okkar tveggja. Þó stundum virtist gatan ekki greið gæfan fylgdi ætíð starfi beggja. Þegar lífs míns orka förlast fer flyst á milli heima andans kraftur. Handan fljótsins bústað býrðu mér og bíður mín, þá kem ég til þín aftur. (Hákon Aðalsteinsson) Hittumst í sumarlandinu. Þín Kolbrún. Ég sé hann fyrir mér um- faðma mig með einstakri hlýju í augum og bros á vör. Þannig tók hann mér. Alltaf. Ég fann væntumþykju hans og það breyttist aldrei – hún var gagn- kvæm. Ísleifur Halldórsson – eini maðurinn sem ég hef kallað tengdapabba á minni ævi – er látinn, örfáum dögum fyrir 89 ára afmælisdaginn. Ég kveð hann með þakklæti. Hann var mér, ásamt ástkærri tengda- móður minni, Kolbrúnu Þor- finnsdóttur, mikil stoð í því hlut- verki að koma dóttur minni til manns. Kolbrún mín var auga- steinninn hans og á milli þeirra ríkti einstaklega fallegt sam- band sem mun fylgja henni alla ævi. Þeir sem þekktu Ísleif Hall- dórsson hefðu kannski ekki látið sér detta í hug að þar færi mað- ur sem léti sjá sig með marga tíkarspena í hárinu, málaðan í framan með stríðsmálningu eða skellihlæjandi í dansi en þegar Kolbrún Þorfinnsdóttir, sonar- dóttir hans, var annars vegar var þetta sjálfsagt mál. Ég var sjaldnast þátttakandi í þessum athöfnum – þær voru eitthvað sem þau áttu saman án mín og ég hef bara fengið að sjá á myndum. Ég segi frá þessu hér því það segir svo margt um hlutverkið sem Ísleifur Hall- dórsson átti í lífi dóttur minnar. Fyrir hana var hann til í allt. Elsku Ísleifur, það var ánægjulegt að sjá þig eldast. Hugsa oft til þess að ég myndi vilja eldast eins og þú gerðir. Sáttur við lífið og lagðir allt í að elska þitt nánasta fólk og leyfa því að finna það. Við sáumst ekki oft síðustu árin þín og ég get ekki hreykt mér af því að hafa verið dugleg að heimsækja þig en í hvert skipti fékk ég að vita hversu vænt þér þótti um mig. Fyrir það er ég óendanlega þakklát. Það er gott að elska, eins og Bubbi segir, og það er ekki síður gott að vera elskaður. Með þessum fátæklegu orð- um vil ég þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Fyrir að vera ávallt til staðar og taka því fagnandi að fá að passa augasteininn þinn í hvert skipti sem á þurfti að halda. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (Vald. Briem) Elsku Kolbrún eldri, Kristín, Linda, Þorfinnur, Halldór, Gunnar, Kolbrún mín, tengda- börn, afabörn og langafabörn – innilegar samúðarkveðjur. Signý Sigurðardóttir. Elsku afi, þú kenndir mér svo margt - eða ég lærði svo mikið af þér öllu heldur. Þú virtist aldrei hafa það að markmiði að kenna mér ákveðna hluti eða leggja mér lífsreglurnar. Tíminn með þér var þess eðlis að það var eins og við værum jafningar – vinir – að eyða tíma saman eins og hverjir aðrir vinir. Hvort sem ég var 6 ára eða 26 ára. Þú lést mig jú oft vita hvað það var sem skipti þig máli í lífinu, kannski var það þín leið til að kenna mér. Hvíslaðir því að mér þegar maður átti síst von á: „Veistu Kolbrún, mér þykir svo vænt um hana ömmu þína.“ Nú á seinni árum sagðir þú oft eitt- hvað á borð við: „Veistu Kol- brún, ég er sáttur; sáttur við líf- ið og allt sem ég á, við Kolbrúnu mína eldri og Kolbrúnu mína yngri og allt fólkið mitt, það er ekki erfitt að verða gamall þeg- ar manni líður eins og mér. Svo er ég líka svo frískur, aldrei verkjað neins staðar.“ Fólkið þitt og heilsan, það var það sem skipti þig máli. Þú sagðir mér líka að það mikilvægasta fyrir heilsuna til langs tíma sé að vera mátulega latur, þótt enginn myndi nokkurn tímann lýsa þér þannig. Ég held þú hafir átt við mikilvægi þess að gefa sér tíma til að slaka á og vera til. Það voru aldrei mikil læti í kringum þig en þú leyfðir manni að kynn- ast þér á þinn einstaka hátt: „Veistu Kolbrún, þegar maður hefur hlustað á Queen þá þarf maður ekki að hlusta á neitt annað.“ Ég hafði aldrei leitt hugann að því fyrr en ég var orðin fullorðin að þú hafir þurft að hætta að vinna tiltölulega ungur – þú varst í mínum huga bara afi sem virtist eiga allan tíma í heiminum fyrir mig. Hvort sem það var til að dansa og syngja hands, knees and bo- omps a daisy, leyfa mér að prófa nýjar greiðslur í hárið á þér eða taka saman smá lúr í sófanum. Þegar ég eltist og dönsunum og hárgreiðslubeiðnunum fækkaði spurðir þú mig alltaf „líður þér ekki vel, Kolbrún mín?“ „Jú, afi minn,“ var svarið yfirleitt. „Gott,“ sagðir þú, „það er það eina sem ég þarf að vita.“ Ég elska þig afi minn. Þín, Kolbrún yngri. Fallinn er frá ástkær afi minn, Ísleifur Halldórsson, og er mér ljúft að rita nokkur orð til að minnast hans. Þeir sem þekkja til afa vita að hann var einstakt ljúfmenni og prúðmennskan uppmáluð. Hann var góður hlustandi, skipti aldr- ei skapi, dæmdi engan og sá ávallt það góða í öllum. Þá var hann alltaf stuðningsríkur og fyrstur til að rétta hjálparhönd. Við slíkan mann er erfitt að láta sér ekki lynda og raunin sú að afi átti einstakt samband við alla sína afkomendur, þ. á m. við elsta barnabarnið. Allt frá því ég var smástelpa var ég ákaflega hænd að afa og ömmu. Framan af voru þau heimsótt reglulega á Stórólfs- hvol, og síðar meir bæði á heilsugæsluna á Hvolsvelli og Móaflötina, þar sem þau áttu annað heimili. Þaðan á ég góðar minningar úr barnæskunni, hvort sem er við leik og störf með ömmu og afa, frændsystk- inunum eða eldri frændunum. Engu skipti þó að smástelpan breyttist í ungling, menntskæl- ing og að lokum háskólanema. Heimsóknir urðu þá bara á eigin forsendum en sjaldnast leið sú vika að afi og amma væru ekki heimsótt eftir skóla, lært þar, borðaður kvöldmatur, spjallað og jafnvel horft á fréttirnar eða þátt. Afi var óþreytandi við að sækja og skutla, ræða málefni líðandi stundar, lesa yfir ís- lenskuritgerðir, enskuverkefni, skýrslur eða jafnvel láta taka við sig viðtal. Bý ég ennþá að ýmsu sem ég lærði af afa sem ávallt var frábær námsmaður, afar ritfær og afburða ensk- umaður. Það þarf því varla að taka fram að ég hef ætíð verið ákaflega stolt af afa mínum og er það enn. Þessum glæsilega lækni með alla sína kosti. Í gegnum árin hef ég reglulega hitt fólk sem á minningar um hann úr starfi og hafa þær verið kærar og aukið á stoltið. Afi hefur svo ávallt verið stuðningsríkur og jákvæður um allt sem lífið hefur boðið mér upp á. Hvort sem það hafa verið ákvarðanir um nám, að taka á móti afa-tengdasyninum sem hann átti svo gott samband við eða langafabörnunum sem hann sá ekki sólina fyrir. Við þau gat hann leikið og spjallað endalaust og nefna má að hann náði einn daginn 67 spila ólsen-ólsen- maraþoni við eitt þeirra. Við slíkar minningar munu þau allt- af geta staldrað. Fráfall afa skilur eftir sig tómarúm hjá okkur fjölskyld- unni, en um leið fjölda af minn- ingum sem hægt verður að ylja sér við. Ég er ákaflega þakklát fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman fram til þess að ég kvaddi hann í síðasta sinn. Það verður skrítið að keyra fram hjá Hrafnistu Ísafold og geta ekki skotist inn. Og sjá hann þar taka á móti sínu fólki með geislandi brosi, enda breyttist væntumþykjan ekkert þótt heilsunni hrakaði. Mestur er samt missir ömmu, en samband þeirra var einstakt fram á síðasta dag og einkennd- ist af takmarkalausri virðingu, ást og hlýju. Þannig heimsótti amma afa flesta daga, dvaldi hjá honum og annaðist hann af svo mikilli alúð að eftir var tekið. Enda þurfti ekki annað en að minnast á „Kolbrúnu þína ein- ustu“ við afa svo hann ljómaði af gleði. Við sem eftir sitjum mun- um styðja ömmu af heilum hug og um leið halda minningu afa á lofti um ókomna tíð. Eva Dís Pálmadóttir. Mannvinurinn, stórvinur minn Ísleifur Halldórsson, er látinn. Ísleifur var læknir að mennt, starfi, hugsjón og ástríðu – stærstan hluta ævinnar sem héraðslæknir. Þeir sem til þekkja vita að héraðslæknisstarfið veitir sjaldnast lausan tíma, og stund- ir með fjölskyldu eru gjarnan fáar, en Ísleifur nýtti þær eins vel og nokkur kostur var þegar ekki var hringt og þurfti að skreppa í vitjun sem gat verið mislöng – kalla á sjúkrabíl, fara með lyf, sinna starfinu af heil- indum en komast til fjölskyldu sinnar hið fyrsta. Sjúklingarnir sem mættir voru á staðinn hve- nær sem var fengu líka aðhlynn- ingu hjá eiginkonunni Kolbrúnu Þorfinnsdóttur; konunni sem taldi ekki eftir sér að baka loft- kökur til þess að senda vina- börnum milli landa. Allir voru jafnir á Stórólfshvoli. Ísleifur var einstaklega far- sæll í sínu mikla starfi. Hann hafði óblandinn áhuga á fé- lagsanda og félagsmálum yfir- leitt og sat m.a. um tíma í stjórn Læknafélags Íslands og taldi ekki eftir sér að skreppa reglu- lega á fundi nánast í hvaða veðri sem var, þótt um fjallveg væri að fara. Auk stjórnarstarfa voru ýmis félagsmál sem óhjákvæmi- lega fylgdu héraðslæknisstarf- inu. Það var ómetanlegt fyrir ung læknishjón að geta leitað í reynslubanka og fá þær mót- tökur sem læknishjónin á Stór- ólfshvoli veittu og ég naut alla tíð síðan. Bréfin og jólakortin brugðust heldur aldrei og veittu hlýju og kærleika þegar höf og lönd skildu. Mér er til efs að ég hafi hitt samhentari hjón í lífi og starfi en Kolbrúnu og Ísleif. Börnin og barnabörnin eru lánsöm að hafa átt föður og afa fram í háa elli sem og við öll sem söknum hans nú en við höfum jú Kolbrúnu og það er ekki lítið. Sú umönnun sem eiginkonan og fjölskyldan öll sýndi þegar að lokum leið er ekki eitthvað sem allir njóta. Ísleifur var myndarlegur maður og geislaði af honum hlýju og visku sem ég naut í rík- um mæli. Alltaf þótti mér nota- legast þegar við kvöddumst og hann sagði: Komdu fljótt aftur, það er svo gaman! Vertu sæll kæri vinur og takk fyrir allt sem þú kenndir mér. Kolbrúnu minni og fjölskyld- unni allri sendi ég samúðar- kveðjur. Sigríður Stefánsdóttir. Ísleifur Halldórsson Í dag kveð ég mína bestu vinkonu. Kynni okkar Sísí- ar hófust þegar eig- inmenn okkar spiluðu saman fót- bolta í Fram. Með okkur þróaðist dýrmætur vinskapur til margra ára þar sem margt var brallað saman. Þau Sísí og Grétar komu oft við í Urðarbakkanum og eftir að Grétar féll frá hélt Sísí mín sínu striki. Hún ferðaðist mikið er- lendis og sinnti sínum áhugamál- um. Sísí naut þess að spila og Sigríður Þóra Ingadóttir ✝ Sigríður Þóra Ingadóttir fæddist 23. október 1942. Hún lést 14. september 2021. Útför Sigríðar fór fram 22. sept- ember 2021. dansa og það var alltaf gleði í kring- um hana. Sísí var dugleg við að heimsækja mig og síðan hann Gauja minn þegar hann var kominn á Skógarbæ, þær heimsóknir er ég sérstaklega þakklát fyrir. Ég ylja mér við minningarnar um þær yndislegu stundir sem við áttum saman og Sísí mun alltaf vera í hjarta mínu. Ég veit að Grétar tekur vel á móti henni því samrýndari hjón var vart að finna. Elsku Sísí mín, takk fyrir allt. Ég votta fjölskyldu hennar mína innilegustu samúð. Sigríður Sigurðardóttir og fjölskylda. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HJÖRDÍS ÓLAFSDÓTTIR leikskólakennari, Ekrusmára 21, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 2. október. Útför fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 8. október klukkan 11. Karl Sigurðsson Heiðbjört Gylfadóttir Gunnar Sigurðsson Kristín Halla Hafsteinsdóttir Anna Sigurðardóttir Elías Víðisson ömmubörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.