Morgunblaðið - 06.10.2021, Page 21

Morgunblaðið - 06.10.2021, Page 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2021 „SVO VIRÐIST SEM ÖRYGGISFYRIRTÆKIÐ HAFI UPPFÆRT AÐGANGSSTÝRINGARKEFIÐ ÁN ÞESS AÐ BERA ÞAÐ UNDIR VARÐHUNDINN.“ „HVAÐ VILT ÞÚ Á BORGARANN ÞINN?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að nördast saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HAFIÐ ÞIÐ TEKIÐ EFTIR… ÞVÍ AÐ VARÐHUNDUR SEM ER Á VAKT VIRÐIST EKKI GERA NEITT? FÉLAGAR, ÁÐUR EN HALDIÐ ER TIL ORUSTU, SKULUM VIÐ MUNA ÞAÐ AÐ VIÐ ERUM Í RAUN EIN STÓR FJÖLSKYLDA! ÞÝÐIR ÞETTA ÞAÐ AÐ VIÐ EIGUM AÐ SLÁST HVER VIÐ ANNAN? bara þannig, en svo nýt ég þess að vera með fólkinu mínu og finnst ómetanlegt að hitta góða vini.“ Fjölskylda Eiginmaður Ólafar er Sigurþór Heimisson, f. 1.11. 1962, leikari, leið- sögumaður og þjónustustjóri tölvu- og vefþjónustu hjá Listaháskóla Ís- lands. „Við búum á ættaróðali mínu á Görðum við Ægisíðu. Við horfum út á Skerjafjörðinn en erum líka í næsta nágrenni við miðborgina.“ Foreldrar Sigurþórs voru hjónin Sigríður Helgadóttir, f. 31.10. 1933, d. 4.6. 2003, handavinnukennari, og Heimir Þór Gíslason, f. 15.3. 1931, d. 3.9. 2010, kennari og skólastjóri á Austurlandi, síðast á Höfn í Horna- firði. Börn Ólafar og Sigurþórs: 1) Ósk, andvana fædd 22.10. 1988; 2) Sigríður Regína, f. 30.8. 1989, kvikmyndafræð- ingur og kvikmyndavarðveislufræð- ingur í doktorsnámi, búsett í Reykja- vík, sambýlismaður: Davíð Alexander Corno, kvikmyndagerðarmaður; 3) Ólafur Gísli, f. 15.12. 1999, nemi, búsettur í Reykjavík. Hálfsystkini Ólafar, samfeðra, eru Erla Sigurðardóttir, f. 25.6. 1935, auglýsingateiknari í New York; Ósk- ar Gísli Sigurðsson, f. 23.12. 1939, stórkaupmaður í Hafnarfirði, og Ágústa Guðmunda Sigurðardóttir, f. 23.12. 1939, d. 18.9. 2017, hárgreiðslu- meistari í Kópavogi. Hálfbróðir Ólaf- ar, sammæðra, er Ólafur Rúnar Jóns- son, f. 31.8. 1947, stórkaupmaður í Reykjavík. Foreldrar Ólafar voru Sigríður Sigurðardóttir, f. 2.8. 1922, d. 6.1. 2005, stundaði verslunarrekstur og afgreiðslustörf um árabil og sá um mötuneyti Hafrannsóknastofnunar- innar, og Sigurður Erlendsson, f. 9.8. 1909, d. 1.6. 1990, sjómaður í Reykja- vík. Ólöf Kristín Sigurðardóttir Guðrún Jónsdóttir húskona í Reykjavík Guðmundur Erlendsson útvegsmaður í Hrísey Erlendur Guðmundsson skipstjóri í Reykjavík Þorbjörg Gísladóttir húsfreyja á Bárugötu 17 Sigurður Erlendsson sjómaður í Reykjavík Rannveig Jónsdóttir húsfreyja í Gíslholti Gísli Stefánsson sjómaður í Gíslholti í Reykjavík Ásta Sigurðardóttir húsfreyja í Skildinganesi Jón Einarsson útvegsbóndi í Skildinga- nesi við Skerjafjörð Sigurður Jónsson skipstjóri og útvegsbóndi í Görðum við Skerjafjörð Guðrún Pétursdóttir húsfreyja í Görðum Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja í Hrólfskála Pétur Guðmundsson bóndi í Hrólfskála á Seltjarnarnesi Ætt Ólafar Kristínar Sigurðardóttur Sigríður Sigurðardóttir stundaði verslunarrekstur og fleira í Reykjavík Ámánudag skrifaði Guðmundur Stefánsson á Boðnarmjöð, að á vegum eldri borgara á Selfossi starfaði „Leshópur fornsagna“. Viðfangsefnið núna er Njála: Við lesum af nákvæmni Njálu hér nokkur á fornmáli þjálu. Þó framan af lúti hún langmest að Hrúti liggjandi Gunnhildi gálu. Ólafur Stefánsson segir, að sumir fái þetta úr fjallgöngum eða jafnvel Maraþoni, en hjá sér sé þetta svona: Þótt mér sjaldan sólin skíni, séu á mörkum vetrarhey, þá losnar ögn af Endorfíni, er ég skrifa pistilgrey. Kristján H. Theódórsson yrkir: Ofan steypist stanslaust regn, streymir niður Kinnarhlíðar. Allt þá vætt er vel í gegn, veltur brúnt um lendur fríðar. Friðrik Steingrímsson bregst við nýjum tíðindum að utan: Víða’um heim á braski ber bakvið stjórnar tjöldin, til sín hefur Tony Blair togað stimpilgjöldin. Gunnar J. Straumland yrkir við fallega blómamynd og kallar „Lauf“: Laufblaðið hefur um langvegi farið, létt fyrir golunni, hugljóma sá. Frjósemisæskan með forspá um svarið fyllir nú ævinnar draumbornu þrá. Hið fegursta laufblað sem flögrar með vindum, fyrrum það hjúpaði blaðgrænutraf, með hlýlegum, skrúðugum, haustlita- myndum hyllir þá vegferð sem lífið oss gaf. Á sunnudag skrifaði Helgi Ing- ólfsson við mynd af Kristrúnu Frostadóttur, en undir henni stóð: „Kristrún rýfur þögnina og svarar fyrir kvikumálið. – „Ég datt í lukkupottinn varðandi fjárfesting- arákvörðun.““ Nú má loksins eyð́á það orðum, því inn á þing hún er dottin. Líkt og Steinríkur frækni forðum féll hún í lukkupottinn. Ég fortakslaust skrúðlausa tungu mér tem því talnaglögg valkyrjan naska auðgaðist tífalt á athæfi sem á íslensku heitir „að braska“. Jón Gissurarson svaraði: Eilíft hér virðist nú auranna bál engan það lætur í friði. Að tala hið skýra og skrúðlausa mál er skylda á Boðnarins miði. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Leshópur fornsagna og lukkupotturinn Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.