Morgunblaðið - 06.10.2021, Qupperneq 28
Hljómsveit bassaleikarans Ingibjargar Turchi kemur fram
á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í Flóa í Hörpu í kvöld,
miðvikudagskvöld, kl. 20. Ásamt Ingibjörgu koma fram
Tumi Árnason, sem leikur á saxófón og klarínett, Hróð-
mar Sigurðsson á gítar, Magnús Jóhann Ragnarsson á
píanó og Magnús Trygvason Eliassen sem leikur á
trommur. Ingibjörg hefur komið víða við í tónlistarlífinu,
til dæmis leikið með Stuðmönnum og Bubba Morthens,
en einnig samið verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Fyrsta plata hennar, Meliae, hlaut Kraumsverðlaunin.
Hljómsveit Ingibjargar Turchi leikur
í Jazzklúbbnum Múlanum í kvöld
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Þetta er fyrsta ullarvikan á Íslandi,
það best við vitum,“ segir Margrét
Jónsdóttir, ein þeirra kvenna sem
standa að ullarviku sem fór af stað sl.
sunnudag. „Við erum að fagna þrjá-
tíu ára afmæli Þingborgar með því að
halda þessa hátíð, en verslunin,
handverkstæðið og ullarvinnslan
Þingborg í Flóa var opnuð haustið
1991,“ segir Margrét sem er margt
til lista lagt, því auk þess að reka
verslunina Þingborg er hún kúa-
bóndi, sauðfjárbóndi, prjónakona,
spunakona, sveitarstjórnarmaður,
smiður, flísari, pípari og prjónahönn-
uður.
„Í Þingborg er unnið með ull alla
daga því við Þingborgarkonur viljum
halda við hefðum í ullarvinnslu og
ekki síður skapa nýjar. Við erum
með þá sérstöðu að við látum sér-
vinna fyrir okkur Þingborgarlopa, en
í þeim lopa er sérvalin lambaull og
Þingborgarlopi er allur í náttúru-
legum litum.“ Fyrirmyndina að
ullarviku sækja þær m.a. til Hjalt-
landseyja þar sem haldin er ullarvika
árlega. „Þangað fórum við Þingborg-
arhópurinn árið 2017 og héldum þar
námskeið auk þess að sækja nám-
skeið. Ullarvikur eru haldnar víða
um heim og okkur fannst það vanta
hér á landi svo við gengum í verkið.“
Ullarvikan fór af stað sl. sunnudag
með fjárlitasýningu Fjárræktar-
félagsins Litar á bænum Árbæjar-
hjáleigu. „Óhemju fjölbreyttir litir
finnast hjá íslensku sauðkindinni og
nú er verið að gefa því gaum að halda
í þessa liti með ræktun. Á tímabili
vildu allir rækta hvítt fé því það gaf
meira af sér og þá voru sumir litir
næstum útdauðir, en nú er horft
meira til litanna.“
Fjölbreyttir viðburðir eru alla ull-
arvikuna; opin hús, námskeið og
fleira. „Allt fer þetta fram á Suður-
landi, teygir sig frá Hespuhúsinu í
Ölfusi og austur í Álftaver. Þetta eru
ólíkustu fyrirtæki sem tengjast ull og
ullarvinnslu og margir áhugasamir
eru líka að gera ýmislegt heima hjá
sér með ullina, víða eru litlar hand-
verksstofur. Ullaráhugi og ullar-
vinnsla, litun og fleira, hefur aukist
mjög undanfarið. Að lita ullina er
orðið gríðarlega vinsælt, bæði jurta-
litun og að nota kemíska liti. Guðrún
í Hespuhúsinu verður með námskeið
í dag um töfra bláa litarins indígó, en
mér finnst dásamlegt að sjá þann lit
verða til. Sútarinn á Hárlaugsstöðum
verður líka með opna vinnustofu í
dag og hægt verður að læra lokka-
spuna beint úr reyfi hjá Maju Siska á
Skinnhúfu í Holtum. Lokkaspuni fer
þannig fram að leggja þarf lokkana
úr reyfinu til þannig að þeir snúi allir
í sömu átt. Síðan er bandið spunnið
þannig að lokkarnir í toginu njóta sín
og standa út úr bandinu. Þetta er
mjög grófur spuni og áferðin sérstök
á því sem prjónað er úr slíku bandi.
Marianne Guckelsberger ætlar að
kenna vattarsaum á Þingborg í dag,
en hann var mikið notaður á víkinga-
öld. Þetta er gömul aðferð til að búa
til flíkur og var notað áður en prjón
og hekl kom til sögunnar.“ Á laugar-
daginn verður markaðsdagur á Þing-
borg og þangað mætir handverksfólk
úr ýmsum áttum með sínar vörur til
að selja. „Við verðum þar með spuna-
samkeppni, Ull í fat, en þá spinna
þátttakendur á staðnum band og
prjóna úr því þverslaufu. Sá sem er
fyrstur að klára vinnur keppnina, en
auðvitað þarf slaufan að vera sæmi-
lega gerð.“ Nánar um viðburði og
tíma á ullarvikan.is og á Facebook:
Ullarvika á Suðurlandi.
Mikill áhugi á ullinni
- Heldur betur líf
og fjör á ullarviku
á Suðurlandi
Flottir Fjárlitasýning var í Árbæjarhjáleigu sl. sunnudag þar sem þessir
glæstu hrútar fengu verðlaun fyrir lit: golsóttur, mórauður og grár.
Gaman Þingborgarkonur og Spunasystur fóru á ullarhátíðina New York
State Sheep and Wool Festival 2019. Margrét t.h. og Halldóra Óskarsdóttir.
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 279. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Breiðablik mætir einu af bestu félagsliðum heims á
Kópavogsvelli í kvöld en þá tekur liðið á móti Frakklands-
meisturum París Saint Germain í fyrstu umferð riðla-
keppni Meistaradeildarinnar. Þetta er jafnframt fyrsti
leikur íslensks liðs í riðlakeppni sem er ný af nálinni í
kvennaflokki en með þessum liðum í riðli eru Real Ma-
drid frá Spáni og Zhytlobud Kharkiv frá Úkraínu. »23
Meistaradeildarslagur í Kópavogi
ÍÞRÓTTIR MENNING