Morgunblaðið - 11.10.2021, Page 8

Morgunblaðið - 11.10.2021, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021 Páll Vilhjálmsson, blaðamaður og kennari, bendir á að það hafi ekki þótt „stór tíðindi á síðasta kjör- tímabili þegar tveir þingmenn Vinstri-grænna, Andrés og Rósa B., skiptu um lið og fóru til Pírata annars vegar og hins vegar Samfylkingar. Vinstriflokkarnir eru sama tóbakið pakkað í ólíkar um- búðir. - - - Aftur þykja það stórpólitísk tíð- indi þegar Birgir þingmaður Mið- flokks gengur Sjálfstæðisflokknum á hönd. Margir mæta til leiks að túlka og setja í samhengi þær pólitísku flekahreyfingar. Ekki síst eru margir yfirlýstir vinstri- menn ósparir á yfirlýsingar.“ - - - Þetta er rétt athugað hjá Páli. Það féllu færri orð og ekki eins stór þegar þeir tveir þingmenn VG sem hann nefnir hrukku úr skaftinu en nú þegar Birgir Þórarinsson flytur sig um set. - - - Það olli raunar ekki miklu póli- tísku umróti þegar þessir tveir þingmenn kusu að sitja í nefndum í skjóli ríkisstjórnarinnar en styðja hana ekki. - - - Þeir voru í raun farnir úr VG en sátu þó þingflokksfundi flokks- ins. Það þótti af einhverjum ástæð- um sjálfsagt og þeir sem gagnrýna nýjustu vistaskiptin hvað harkaleg- ast hafi ekki séð mikið að því. - - - Gilda önnur lögmál um þá sem færa sig um set á vinstri væng en á hægri væng? Eru vistaskipti vinstra megin lýðræðisleg en hinum megin ekki? Andrés Ingi Jónsson Pólitískir vængir og vistaskipti STAKSTEINAR Birgir Þórarinsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Á laugardagskvöld lauk 50 ára af- mælishátíð Stuðmanna með tvenn- um glæsilegum tónleikum í Eld- borgarsal Hörpu. Óhætt er að segja að afmælishátíðin hafi staðið tölu- vert lengur yfir en lagt var upp með í upphafi en hún hófst fyrir um 19 mánuðum í febrúar 2020. Síð- ustu tvennir tónleikarnir áttu upp- haflega að fara fram í apríl sama ár en sökum faraldursins þurfti að fresta þeim í þrígang. Tómasar Magnúsar Tómassonar, bassaleikara Stuðmanna til margra ára, var minnst í orðum og tónum en Tómas féll frá árið 2018. Bítillinn heitni, John Lennon, hefði átt 81 árs afmæli á laugardag og var því sérstök syrpa honum til heiðurs. Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson slógu botninn í tón- leikaröðina með lokaorðunum frægu: „Og eftir því sem árin fær- ast yfir: Takk fyrir.“ ari@mbl.is „Og eftir því sem árin færast yfir: Takk fyrir“ Ljósmynd/Pétur Fjeldsted Nýjasta kvikmyndin um James Bond var frumsýnd hér á landi á föstudagskvöld. Myndin ber nafnið „No Time to Die“ og er sú tutt- ugasta og fimmta í röðinni af njósn- aranum með einkennisnúmerið fræga. „Þetta er bara Bond-dagurinn í dag eins og þeir segja,“ sagði Alfreð Elías Ásberg Árnason, fram- kvæmdastjóri Samfilm sem rekur Sambíóin, þegar Morgunblaðið náði tali af honum á frumsýningardaginn sjálfan. Alfreð sagði aðsóknina hafa verið góða og miðasalan dreifst jafnt yfir helgina en myndin er sýnd í öll- um kvikmyndahúsum Sambíóanna. Mesta aðsóknin var í lúxussalinn og ljóst að margir vildu gera vel við sig. Opnar bíómarkaðinn Upphaflega átti að frumsýna myndina fyrir um 18 mánuðum en var frestað vegna kórónuveiru- faraldursins. Það má því ætla að fjöl- margir aðdáendur Bonds hafi verið vel spenntir. „Ég myndi segja að hún væri að opna bíómarkaðinn aftur. Aðdá- endur Bonds eru svo breiður aldurs- hópur, nú er blásið í lúðra til þess að opna markaðinn,“ sagði Alfreð spurður hvort um sé að ræða fyrsta stóra bíóviðburðinn eftir ástandið sem skapaðist hjá kvikmyndahúsum vegna faraldursins. No Time to Die er fimmta og jafn- framt síðasta mynd leikarans Dani- els Craigs á hvíta tjaldinu í hlutverki Bonds. Því má segja að um sé að ræða nokkurs konar kaflaskil í kvik- myndaseríunni en Craig stimplaði sig inn sem njósnarinn árið 2006 í myndinni Casino Royale. ari@mbl.is Blásið í lúðra kvik- myndahúsanna - Nýjasta James Bond-myndin frum- sýnd eftir langa bið Morgunblaðið/Unnur Karen Röðin Sjá mátti aðdáendur Bonds í Sambíóunum Egilshöll á föstudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.