Morgunblaðið - 11.10.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021
Við
Hækk
um
í gleð
inni
60 ÁRA Jóhanna Oddsdóttir er Ísfirðingur, fædd þar og uppalin, en hefur
búið í Þýskalandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum og fluttist aftur til Ísafjarðar
1987 og hefur búið þar síðan með nokkrum hléum. „Ég var í burtu í tíu ár.“
Jóhanna er skurðhjúkrunarfræðingur á sjúkrahúsinu á Ísafirði. „Ég er
hjúkrunarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og var með þeim fyrstu til
að útskrifast úr fjarkennslu þar og bætti svo við mig sérhæfingu frá Háskóla
Íslands.“
Jóhanna er mikill skíðagarpur og má segja að skíðaganga sé hennar helsta
áhugamál, hún er bæði keppniskona og sinnir félagsstarfi tengdu skíðagöng-
unni og starfaði hátt í 10 ár fyrir Skíðafélag Ísfirðinga, þar af fimm ár sem
formaður. „Fleiri áhugamál mín eru göngur, hlaup og allt milli himins og
jarðar, þar á meðal ferðalög.“
Jóhanna fagnar afmælinu í Suður-Frakklandi ásamt maka og börnum.
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Jóhönnu er Jón Ólafur Sigurðsson, f. 1945, vél-
virki. Börn hennar eru Brynja Huld, f. 1987, og Albert, f. 1997.
Foreldrar Jóhönnu: Oddur Pétursson, f. 1931, d. 2018, ólympíufari og snjó-
flóðaeftirlitsmaður síðustu árin, og Magdalena Margrét Sigurðardótitr, f.
1934, fyrrverandi fjármálastjóri Menntaskólans á Ísafirði.
Jóhanna Oddsdóttir
Mæðgurnar
Jóhanna og
Brynja Huld.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Fólk tekur mikið mark á því sem þú
segir. Ekki missa yfirsýn yfir fjármálin.
Slepptu tökunum á gömlum fortíð-
ardraugum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Einhver getur gefið þér góð ráð varð-
andi fjárhagslega framtíð þína. Ekki láta
hagsmuni annarra ráða, þú verður að hugsa
um þig.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er hætta á misskilningi og
ósætti og því er þetta ekki rétti tíminn til að
ræða alvarlega við fólk í uppnámi. Láttu ekki
hugfallast.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú keyrir málin áfram bak við tjöld-
in. Fylgdu reglum samt sem áður. Þú mátt
ekki gleyma því að gefa sjálfum/sjálfri þér
tíma.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú sérð einhvern í nýju ljósi í dag,
hugsanlega manneskju sem þú berð mikla
virðingu fyrir. Makinn er eitthvað utan við
sig.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Mundu að oft felst fegurðin í smá-
atriðunum. Fréttir af ættingja koma eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Hnýttu saman
lausa þræði.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Vertu ósínk/ur á ráð við þá sem yngri
eru. Ef þú getur unnið og sinnt áhugamál-
unum af krafti líka þá ertu alsæl/l.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú gætir komist að einhverju
óvæntu eða séð eitthvað í algerlega nýju
ljósi í dag. Ekki láta í minni pokann fyrir frek-
um einstaklingi.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Dagurinn hentar vel til fast-
eignaviðskipta. Það er fullseint í rassinn
gripið að byrja að lesa undir próf daginn
áður. Taktu þig á.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Að treysta einhverjum sem mað-
ur þekkir varla er partur af ævintýri dagsins.
Einhver þér nákominn fær reisupassann.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Áföll eru óhjákvæmilegur hluti af
lífinu, en það eru viðbrögðin sem skipta öllu.
Tengslanetið þitt er ein þinna verðmætustu
eigna.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er ástæðulaust fyrir þig að
hengja haus því þú hefur unnið vel. Vertu
ekki tortryggin/n og stíf/ur. Leyfðu hug-
myndafluginu að njóta sín.
2001. „Það var stundum frekar
erfitt starf, af því það var svo erf-
itt að útvega kennara, maður gat
verið allt sumarið að reyna að
finna kennara. Kennaralaunin fóru
líka lækkandi hlutfallslega á þess-
um árum. En ég kynntist mörgu
og 1970, settur lektor í sagnfræði
við HÍ 1972 og 1974-76 og stunda-
kennari við HÍ 1972-74 og 1976-
79. Hann hafði einnig umsjón með
sjónvarpsþáttum frá Alþingi 1973-
76. Hann var skólameistari við
Menntaskólann á Ísafirði 1979-
B
jörn Teitsson fæddist
11. október 1941 á
Brún í Reykdæla-
hreppi, S-Þingeyj-
arsýslu. Hann ólst
upp á Brún og líka í Saltvík við
Skjálfandaflóa en þar bjó fjöl-
skyldan 1943-51.
„Ég er Þingeyingur að uppruna,
og man fyrst eftir mér á bænum
Saltvík, sem er 5 km frá Húsavík.
Ég varð snemma læs og sem heila
bók las ég einna fyrst Grettis
sögu. Á Húsavík bjuggu margir
sjómenn sem áttu nokkrar kindur
hver og á Saltvíkurárunum tók
faðir minn að sér að halda tals-
verðu af þessum kindum til beitar
yfir veturinn við sjóinn ásamt eig-
in fé. Sjómennirnir borguðu fyrir
sig í sjávarafurðum, peningar voru
ekki notaðir. Maður vandist þá t.d.
signum fiski og ýmsum flatfiski og
þykir síðan fiskur góður. Einn sjó-
maðurinn, Þórður að nafni, tók
eftir lestrarhneigð minni og færði
mér nokkrar bækur sem mér þótti
afar vænt um. Bækurnar á ég enn.
Þegar aftur kom í Reykjadalinn
gekk ég í farskóla í sveitinni í um
fjórar vikur alls, það var öll hin
formlega barnaskólaganga.“ Björn
varð síðan stúdent frá MA 1962.
„Á skólaárunum vann ég í síld-
arverksmiðjunni á Raufarhöfn í
fjögur sumur. Það var ævintýraleg
reynsla.“ Hann lauk síðan meist-
araprófi í íslenskum fræðum frá
HÍ 1970 og hafði áður tekið tvö
stig í bókasafnsfræði frá HÍ 1963-
64. „Ég var svolítið í pólitíkinni á
þessum árum og var því lengur í
háskólanum en ég ætlaði upphaf-
lega. Ég ákvað síðan að háskólinn
skyldi ganga fyrir og pólitíkin yrði
að sitja í 2. sæti eða því 3.“ Árið
1971 var Björn í náms- og starfs-
dvöl í Björgvin og Osló í Noregi,
hann lauk prófi í uppeldis- og
kennslufræði frá HÍ 1981 og prófi
í frönsku fyrir erlenda stúdenta
frá Sorbonne, París, 1991.
Starfsferill
Björn var stundakennari við
MR 1965 og 1967, styrkþegi
Handritastofnunar Íslands 1965
góðu fólki fyrir vestan.“ Björn
var síðan kennari við Mennta-
skólann á Akureyri 2001-06 og við
Verkmenntaskólann á Akureyri
2006-07. „Á Akureyri er gott að
vera og hér vil ég vera.“ Björn
starfaði að ritun sögu Mennta-
skólans á Ísafirði 2007-10 og vann
að gerð samvinnusýningar í
Safnahúsinu á Húsavík 2009-12.
Björn var formaður Mímis, fé-
lags stúdenta í íslenskum fræð-
um, 1963-64, formaður Stúdenta-
ráðs HÍ 1965-66, ritari SUF
1966-70 og varaþingmaður fyrir
Framsóknarflokk í Norðurlands-
kjördæmi eystra 1967-71. Hann
var formaður Sagnfræðingafélags
Íslands 1972-74, Félags íslenskra
fræða 1976-78 og sat í stjórn
Launasjóðs rithöfunda 1979-82.
Hann var formaður menningar-
ráðs Ísafjarðar 1986-90 og 1994-
96, formaður sóknarnefndar Ísa-
fjarðar 1989-2001 og sat í stjórn
Þjóðhátíðarsjóðs 1989-2013.
Ritstörf Björns eru Eignarhald
og ábúð á jörðum í Suður-
Þingeyjarsýslu (1973); Íslands-
sögukaflar 1551-1630 (1976); De-
sertion and Land Colonization in
the Nordic Countries (meðhöf.,
1981); Ágrip af sögu Tónlistar-
skóla Ísafjarðar, í Ársriti Sögu-
félags Ísfirðinga 1998, bls. 7-124;
Saga Menntaskólans á Ísafirði
(2010). Greinar og ritgerðir í
blöðum og ýmsum ritum. Hann
ritstýrði Sögu (tímariti Sögu-
félags) 1972-80 (ásamt öðrum), Ís-
firðingi 1983-88 og Súlum, norð-
lensku tímariti, 2013-21. „Ég mun
hætta að vera ritstjóri Súlna
núna, fyrst ég er orðinn svona
gamall. Þetta hefur verið talsverð
vinna en ég hef haft gaman af
henni. Ég er samt alltaf að
grúska öðru hvoru en hvort það
birtist eitthvað veit enginn.
Eftir að við Anna konan mín
tókum saman árið 1993 fórum við
mikið í ferðalög, bæði innanlands
og til útlanda og við komumst alla
leið til Japans og Ástralíu en það
var mest farið um Evrópulönd.
Ein skemmtilegasta ferðin var
þegar við fórum til Færeyja og
Björn Teitsson, fyrrverandi skólameistari – 80 ára
Ljósmynd/Kristín Aðalsteinsdóttir
Með systkinum og foreldrum Fremri röð: Helga, Teitur Björnsson áttræður,
Elín Aradóttir og Sigríður. Aftari röð: Ingvar, Erlingur, Ari og Björn.
Lenti óvænt í grindhvaladrápi
Hjónin Anna og Björn í garði sínum í Lundarhverfi á Akureyri.
Til hamingju með daginn