Morgunblaðið - 11.10.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 11.10.2021, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI T H E T E L E G R A P H S . F. C H R O N I C L E B B C T I M E O U T 90% F R Á L E I K S T J Ó R A T H E R I T U A L R E B E C C A H A L L N I G H T H O U S E T H E T O D A R K A N D D A N G E R O U S P L A C E S” “A F I L M T H A T A L L O W S T H E M I N D T O G O S I L V E R S C R E E N R I O T 86% O R I G I N A L C I N T H E A U ST I N C H R O N I C L E SÍÐASTA BOND MYNDIN MEÐ DANIEL CRAIG ÞESSA VERÐA ALLIR AÐ SJÁ Í BÍÓ 84% B ókin Olía, fyrsta skáldsaga Svikaskálda, á mjög sterka spretti en kafl- arnir eru svo misjafnir að gæðum að bókin nær ekki, þrátt fyrir aðdáunarverða tilraun, að verða að sterkri heild. Uppbygg- ing bókarinnar er óvenjuleg og frískandi en þar segja sex konur sögu sína út frá eigin sjónar- horni. Engir tveir kaflar eru skrifaðir af sama skáldi. Kaflarnir tengjast hver öðrum innbyrðis en tengslin eru missterk og ekki annað hægt en að spyrja hvort sumir kafl- arnir hafi í raun verið nauðsynlegir sögunni. Bókin fetar þannig ein- hvern undarlegan en áhugaverðan stíg á milli skáldsögu og smásagna- safns. Ólíkindatól Þótt byrjun þessa bókadóms megi teljast nokkuð neikvæð þýðir það ekki að bókin sé léleg, því það er hún sannarlega ekki. Hún er ólík- indatól sem er erfitt að festa fingur á, erfitt að setja í eitthvert ákveðið box og því snúið að dæma hana og greina. Samtímis er spennandi að skoða bókina vegna þess hve frá- sagnaraðferðin er framandi. Svikaskáld, hópurinn sem skrifar bókina, standa undir nafni í þessu verki. Hafi lesandinn búist við skáldsögu er hann svikinn, hafi hann gert ráð fyrir smásagnasafni er hann líka svikinn. Og hann neyð- ist eiginlega til þess að leggja hug- myndir sínar um smásögur og skáldsögur á hilluna og lesa aftur, algjörlega opinn fyrir því sem koma skal. Svikaskáld samanstanda af þeim Þórdísi Helgadóttur, Þóru Hjör- leifsdóttur, Sunnu Dís Másdóttur, Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, Mel- korku Ólafsdóttur og Fríðu Ísberg. Í Olíu takast þær á við tvö stór við- fangsefni sem eru ofarlega á baugi í samtímanum; stöðu kvenna og lofts- lagsmál. Bæði viðfangsefnin eru skoðuð út frá nokkrum sjónarhorn- um og ná Svikaskáldin dýpt í vangaveltum sínum, sérstaklega um loftslagsmál. Unga kynslóðin tjáir sig um málið, hrædd um það sem koma skal, elsta kynslóðin sér ekki tilgang í því að velta sér of mikið upp úr orðnum hlut, t.d.: „Ég er jafn hverfandi og jöklarnir“, og kynslóðin í miðjunni er ekki ein- róma í afstöðu sinni til málefnisins. Á köflum eru textarnir hrífandi og jötunsterkir, eiga auðvelt með að taka lesandann með sér inn í sögu- heiminn. Sumir kaflanna eru þannig að þeir bjóða upp á mun lengri sög- ur, jafnvel heilu skáldsögurnar, og voru það t.d. vonbrigði þegar í ljós kom að ég myndi ekkert fá að heyra meira um Gerði, meistaralega vel smíðaðan karakter sem lítur á heiminn frá þröngu en einstöku sjónarhorni. Þá eru sumir textanna veikari en aðrir og vegna þess miss- ir bókin stundum dampinn. Þrátt fyrir að kaflarnir séu mis- góðir eru þeir allir merkilegir á sinn hátt og fela í sér mjög sterka per- sónusköpun. Flestir kaflanna eru fullir af húmor og er stíll hvers höf- undar fyrir sig einkennandi fyrir viðkomandi. Morgunblaðið/Unnur Karen Svikaskáld Þrátt fyrir að kaflarnir séu misgóðir í Olíu eru þeir allir merkilegir á sinn hátt, segir í rýni. Skáldsaga Olía bbbmn Eftir Svikaskáld. Mál og menning, 2021. 182 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Svikaskáld á lítt troðinni slóð Á kveðinn ljómi er eflaust yfir flestum ef ekki öllum störfum en eftir lestur glæpasögunnar Út að drepa túrista eftir Þórarin Leifsson renna sennilega tvær grímur á les- endur varðandi störf leiðsögu- manna og rútu- bílstjóra. Sagan lýsir fyrst og fremst ferðalagi hóps út- lendinga í „skíta- veðri“ á Íslandi um miðjan mars 2020, skömmu eftir að landinu var nánast lokað vegna kórónuveiru- faraldursins. Dagskrá hvers dags fylgir ásamt kvöldverðarmatseðli en margt fer öðruvísi en ætlað er. Þórarinn er leiðsögumaður. Fram kemur að frásögnin sé byggð á sannsögulegum atburðum, „en for- dómar, kynþáttahatur, fitusmánun, karlremba, kvenfyrirlitning, minni- hlutasmánun, mistök í leiðsögn og ýmiskonar óeðli eru ekki höfundar“. Upplýsingar um farþega að hætti Agöthu Christie benda til að hér sé á ferð krimmi í hennar anda, en þrátt fyrir morð og fleira sem ein- kennir glæpasögur er þetta fyrst og fremst lýsing á ferðalagi og sér í lagi á Kalman Pétri leiðsögumanni og Magnúsi rútubílstjóra. Mennirnir eru í einu orði sagt vonlausir, bjóða ekki af sér góðan þokka, þola ekki vinnuna, ná litlu sem engu sambandi við viðskiptavini sína og eru úti að aka. Undirtónninn er alvarlegur og viðbjóðurinn leynir sér ekki en söguþráðurinn er engu að síður fyndinn og lýsingarnar kalla oft fram óstöðvandi hlátur, þótt sumar séu á gráu svæði eins og til dæmis „djöfulsins Dalvíkingar“. Því kemur ekki á óvart að höfundur sverji þær af sér. Rannsóknarlögreglumaðurinn Baldur Eiðsson, „goðsögn í lifanda lífi“, er sérfræðingurinn í sögunni, hokinn af reynslu. Því kemur spánskt fyrir sjónir að fjölmiðlafólk viti varla af manninum, sem hættir störfum sjö dögum eftir að hann er kynntur til sögunnar. Uppbyggingin er óvenjuleg blanda glæpa og fyndni, en þegar allt kemur til alls er það umhyggja fyrir öðrum sem öllu skiptir í þess- ari óvenjulegu og hressilegu sögu. Morgunblaðið/Kristinn Leiðsögumaður Þórarinn Leifsson, höfundur bókarinnar Út að drepa túrista, sem rýnir segir vera óvenjulega og hressilega glæpasögu. Allt fyrir ástina Glæpasaga Út að drepa túrista bbbbn Eftir Þórarin Leifsson. Mál og menning 2021. Kilja. 288 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.