Morgunblaðið - 16.10.2021, Síða 1
Á meðanég get
Ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar,
Kristbjörg Kjeld, hefur staðið á
leiksviði og leikið í kvikmyndum í
hartnær sjötíu ár og er hvergi nærri
hætt þrátt fyrir að vera á níræðis-
aldri. Kristbjörg vill enn verða betri
leikkona og segist aldrei verða
fullnuma í faginu. Hún leikur
um þessar mundir í Borgarleik-
húsinu og er nýbúin í tökum á
nýrri íslenskri kvikmynd. 12
17. OKTÓBER 2021SUNNUDAGUR
Netapótek LyfjaversFrí heimsending
Til stjarn-anna
Á nýja veitingastaðn-um Brút er fiskur íhávegum hafður. 18
Bríet
mun fyllaEldborgtvisvar
á föstu-daginn oglofar miklusjónar-
spili. 2
Ísland kemur þegar viðsögu í rannsóknum fyrirgeimferðir. EldhuginnDaniel Leeb frá Brooklynsegir tímabært að Íslandmóti geimferðastefnu. 8
Fagur fiskur í sjó
Bríet í
Hörpu
L A U G A R D A G U R 1 6. O K T Ó B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 243. tölublað . 109. árgangur .
ENYAQ iV
RAFMAGNAÐUR
412 til 534 km drægni (WLTP)
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is/skodasalur
FÆST EINNIG
FJÓRHJÓLADRIFINN
Verð frá 5.790.000 kr.
MIKILVÆGAR VÍSANIR
Í NÁTTÚRUNA
Í MYNDVERKUM
ÓHLÝÐNAR
KONUR FÓRU
Í SÍÐBUXUR
HAFDÍS ERLA 12CARL SÝNIR Í ÁSMUNDARSAFNI 50
_ Daniel Leeb,
einn stofnenda
Geimvísindastofn-
unar Íslands,
segir fulltrúa
Geimvísinda-
stofnunar Banda-
ríkjanna, NASA,
hafa áhuga á að
þjálfa geimfara í
komandi tunglferðum á Íslandi.
Málið varðar Artemis-áætlun
NASA en henni er ætlað að koma
geimförum til tunglsins og nota
reynsluna í mannaðan leiðangur til
Mars. Meðal annars æfði Jasmin
Moghbeli, einn geimfaranna í Arte-
mis-áætluninni, hér á landi í ágúst,
en hún gæti orðið fyrsta konan sem
stígur fæti á annan himinhnött.
Leeb segir í viðtali við Sunnudags-
moggann að bandarísk stjórnvöld
hafi ríkan vilja til að fá Íslendinga í
náið samstarf á þessu sviði.
Bandaríkin vilja æfa
fyrir tunglferðir hér
Daníel Leeb
_ Traust íslenskra neytenda til
eftirlitsaðila í neytendamálum er á
pari við það sem gerist annars
staðar í Evrópu, að því er fram
kemur í árlegri könnun fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins. Þetta kemur fram í grein
Breka Karlssonar, formanns Neyt-
endasamtakanna, og Auðar Ölfu
Ólafsdóttur, verkefnastjóra Verð-
lagseftirlits ASÍ, í Morgunblaðinu
í dag.
Traust til Neytendasamtakanna
árið 2020 var það mesta í Evrópu.
80% neytenda bera traust til Neyt-
endasamtakanna og hefur traustið
vaxið um 14 prósentustig frá
árinu 2018. Að meðaltali bera 66%
svarenda í Evrópu traust til neyt-
endasamtaka.
„Fullyrðingin um að íslenskir
neytendur séu lélegir, stenst eng-
an veginn,“ segja þau Breki og
Auður í grein sinni. »27
Íslenskir neytendur
síður en svo lélegir
Kópavogskirkja tók sig vel út í bleikum lit í gærkvöldi. Kirkj-
an var böðuð í bleikum ljóma í tilefni bleika dagsins í gær. Á
bleika deginum eru landsmenn hvattir til að bera Bleiku
slaufuna, klæðast bleiku og lýsa upp skammdegið til stuðn-
ings konum sem greinst hafa með krabbamein.
Deginum var fagnað um land allt og mátti sjá bleikklædd
leikskólabörn á leikvöllum landsins sem og bleikar kökur í
fjölmörgum kaffistofum vinnustaða. Bleika slaufan er árlegt
átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað konum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kópavogskirkja böðuð í bleikum ljóma
Ekki kemur til greina að Íslendingar
þurfi að sætta sig við að álag á heil-
brigðiskerfið, af ýmsum ástæðum, sé
notað sem réttlæting fyrir viðvarandi
skerðingu á réttindum og athafna-
frelsi. Þetta er mat Þórdísar Kolbrún-
ar R. Gylfadóttur, ráðherrra ferða-
mála, atvinnu- og nýsköpunarmála,
sem telur tímabært að stíga skrefið til
fulls og aflétta sóttvarnatakmörkun-
um hér á landi. Þórdís fjallar um af-
léttingar í grein í Sunnudagsmoggan-
um í dag. „Stjórnvöld þurftu í
einhverjum skilningi að fá frelsi fólks
að láni. Það kom hins vegar aldrei
annað til greina en að skila því aftur
til réttmætra handhafa, fólksins
sjálfs,“ segir Þórdís Kolbrún.
Fundað var um ástandið á bráða-
móttöku Landspítalans í gær en mik-
ið álag hefur verið þar að undanförnu.
Bæði settur forstjóri Landspítala,
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, og Sig-
ríður Gunnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri hjúkrunar, sögðu í kjölfar
fundahalda að spítalinn ætti að vera í
stakk búinn að takast á við tilslökun á
sóttvarnaaðgerðum þrátt fyrir álag.
„Covid-sjúklingar fara ekki mikið í
gegnum bráðamóttökuna svo að það
mun ekki hafa áhrif þar,“ sagði Sig-
ríður.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir sagði í gær að allar forsendur væru
til að halda áfram í tilslökunum. Hann
fundaði einnig með stjórnendum
Landspítalans í gær. Núverandi sótt-
varnatakmarkanir renna út á mið-
vikudaginn í næstu viku. »2
Vill „stíga skrefið“
- Þórdís Kolbrún telur tímabært að aflétta sóttvarnatak-
mörkunum hér á landi - Álag á Landspítala ekki fyrirstaða
Vilja breytingar
» Helga Rósa Másdóttir, deild-
arstjóri bráðamóttökunnar,
sagði eftir fund með yfirstjórn
spítalans í gær að starfs-
mönnum fyndist þeir ekki geta
tryggt öryggi sjúklinga.
» Bæta þarf umhverfi og að-
stæður á deildinni.