Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 54
54 ÚTVARP | SJÓNVARP
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021
Æsispennandi hrollvekja frá 2020. Tólf ókunnugir einstaklingar vakna í skógar-
rjóðri. Þau vita ekki hver þau eru eða hvernig þau komust þangað. Einnig vita þau
ekki að þau voru valin, í sérstökum tilgangi, í Veiðina.
Stöð 2 kl. 11.10 The Hunt
Það var gleðidagur
fyrir mannkyn þegar
bandaríska stórleik-
aranum William Shat-
ner var skotið út í
geim á miðvikudag.
Hann öðlaðist frægð
sem Kirk kapteinn í
sjónvarpsþáttunum
Star Trek, en er senni-
lega þekktari hér á
landi sem Denny
Crane, stjörnulögfræð-
ingurinn ósigrandi, í þáttunum Boston Legal.
Af orðum Shatners er ljóst að Shatner var djúpt
snortinn og sagðist vonast til þess að hann jafnaði
sig aldrei á ferðinni. Um jörðina sagði hann
merkilegast hvað hún virtist viðkvæm.
Ferð Shatners var aðallega almannatengsla-
æfing á vegum Jeff Bezos, konungsins af Amazon
og eiganda geimferðafyrirtækisins Blue Origin,
en samt gaman að þessi frægasti leikgeimfari sé
orðinn þvottekta geimfari. Þegar Star Trek hóf
göngu sína árið 1966, fyrir 55 árum, voru enn þrjú
ár í að maður stigi fyrst fæti á tunglið, en nú stytt-
ist greinilega í geimferðamennsku.
Í ferð Shatners felst einnig staðfesting á því að
lífið elti listina, að listirnar séu ekki einungis
endurspeglun á lífinu. Því menn eins og Bezos og
Elon Musk, frumkvöðlar geimferða þessarar ald-
ar, hefðu tæplega öðlast þennan brennandi áhuga
nema vegna vísindaskáldskapar listamanna eins
og Jules Vernes, Robert A. Heinleins, Isaac Asi-
movs, Douglas Adams, Stanley Kubricks, George
Lucas og Gene Roddenberry, sem átti hugmynd-
ina að Star Trek.
Ljósvakinn Andrés Magnússon
Lífið eltir listina …
út í geim
Hress Shatner við eld-
flaugarskotpall í Texas.
AFP
Á sunnudag: Austan 10-18 með
slyddu eða snjókomu en rigningu
SV-lands síðdegis. Talsvert hægari
vindur og úrkomulítið um landið
NA-vert, hiti 0 til 5 stig.
Á mánudag: Hvöss austanátt og rigning eða slydda. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast syðst.
Á þriðjudag: Norðaustanátt, úrkomulítið suðvestantil, snjókoma á N-landi.
RÚV
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Sögur snjómannsins
07.24 Tulipop
07.27 Poppý kisukló
07.38 Lundaklettur
07.45 Rán – Rún
07.50 Kalli og Lóa
08.01 Millý spyr
08.08 Kátur
08.20 Eðlukrúttin
08.31 Sjóræningjarnir í næsta
húsi
08.42 Hið mikla Bé
09.04 Kata og Mummi
09.15 Lautarferð með köku
09.21 Stundin okkar
09.45 Húllumhæ
10.00 Ævar vísindamaður
10.25 Hvað getum við gert?
10.35 Kappsmál
11.40 Vikan með Gísla Mar-
teini
12.30 List í borg – Beirút
13.20 Taka tvö
14.10 Kiljan
14.50 Lifað með hryggrauf
15.40 Þorvaldur Thoroddsen
jarðfræðingur
16.25 Nýbakaðar mæður
16.55 Þvegill og skrúbbur
17.00 Fiðlusmiðurinn
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Ósagða sagan
18.30 Lars uppvakningur
18.45 Landakort
18.54 Lottó
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Snækóngulóin
20.20 Gæti innihaldið hnetur
22.00 Svo á jörðu
00.10 Séra Brown
Sjónvarp Símans
10.25 Dr. Phil
11.55 Man with a Plan
12.20 The Block
13.30 Leicester – Man. Utd.
BEINT
13.30 Man. City – Burnley
BEINT
17.00 Happy Together
(2018)
17.25 The King of Queens
17.45 Everybody Loves
Raymond
18.10 Zoey’s Extraordinary
Playlist
18.55 The Block
20.00 Það er komin Helgi
21.00 Rocketman
21.00 Ghost Town
23.05 Deepwater Horizon
Stöð 2
Hringbraut
Omega
N4
Rás 1 92,4 . 93,5
08.20 Monsurnar
08.35 Vanda og geimveran
08.45 Neinei
08.50 Ella Bella Bingó
09.00 Leikfélag Esóps
09.10 Tappi mús
09.15 Latibær
09.30 K3
09.40 Mia og ég
10.05 Angelo ræður
10.10 Mörgæsirnar frá Mada-
gaskar
10.35 Denver síðasta risaeðl-
an
10.45 Angry Birds Stella
10.55 Hunter Street
11.15 Friends
11.35 Friends
12.00 Bold and the Beautiful
13.45 Trans börn
14.30 Jamie’s Easy Meals for
Every Day
15.00 10 Years Younger in 10
Days
15.45 Framkoma
16.15 Framkoma
16.50 Gulli byggir
17.40 Wipeout
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.45 Sportpakkinn
18.55 Kviss
19.45 Ireland’s Got Talent
20.35 Back to the Future III
22.30 Ma
00.10 The Hunt
18.30 Sir Arnar Gauti (e)
19.00 Á Meistaravöllum
19.30 Heima er bezt (e)
20.00 Kvennaklefinn (e)
Endurt. allan sólarhr.
14.30 Jesús Kristur er svarið
15.00 Ísrael í dag
16.00 Global Answers
16.30 Joel Osteen
17.00 Omega
20.00 Föstudagsþátturinn
með Villa
21.00 Að vestan – Vestfirðir
Þáttur 7
21.30 Kvöldkaffi
22.00 Að norðan (e)
22.30 Matur í maga – Þ. 3
23.00 Mín leið – Sólveig K.
Pálsdóttir
23.30 Uppskrift að góðum
degi – Austurland Þ. 2
24.00 Að austan (e)
06.55 Morgunbæn og orð
dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Vinill vikunnar.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Ég á lítinn skrítinn
skugga.
09.00 Fréttir.
09.03 Á reki með KK.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Kventónskáld í karla-
veldi.
11.00 Fréttir.
11.02 Vikulokin.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Heimskviður.
13.25 Kynstrin öll.
14.05 Veröldin hans Walts.
15.00 Flakk.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Orð um bækur.
17.00 Afganistan í öðru ljósi.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Í ljósi sögunnar.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Sveifludansar.
20.50 Hraði.
21.15 Bók vikunnar.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Litla flugan.
23.00 Vikulokin.
24.00 Fréttir.
16. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:23 18:05
ÍSAFJÖRÐUR 8:34 18:03
SIGLUFJÖRÐUR 8:17 17:46
DJÚPIVOGUR 7:54 17:33
Veðrið kl. 12 í dag
Vestan 5-13 m/s, víða smáskúrir og hiti 2 til 7 stig. Él norðantil í kvöld og gengur í norð-
austan 10-15 NV-lands, kólnandi. Austan og norðaustan 8-15 á morgun, en hægari á NA-
og A-landi. Skúrir eða slydduél, 1 til 5 stig, en dálítil él og hiti um frostmark N- og A-lands.
9 til 12 Helgarútgáfan Einar Bárð-
arson og Anna Magga vekja þjóðina
á laugardagsmorgnum ásamt
Yngva Eysteins. Skemmtilegur
dægurmálaþáttur sem kemur þér
réttum megin inn í helgina.
12 til 16 Yngvi Eysteins Yngvi
með bestu tónlistina og létt spjall á
laugardegi.
16 til 19 Ásgeir Páll Algjört
skronster er partíþáttur þjóð-
arinnar. Skronstermixið á slaginu 18
þar sem hitað er upp fyrir kvöldið.
20 til 00 Þórscafé með Þór Bær-
ing Á Þórskaffi spilum við gömul og
góð danslög í bland við það vinsæl-
asta í dag – hver var þinn uppá-
haldsskemmtistaður? Var það
Skuggabarinn, Spotlight, Berlín,
Nelly’s eða Klaustrið?
Jón Jónson gaf út glænýja plötu,
Lengi lifum við, í gær en þetta er
fyrsta plata tónlistarmannsins síð-
an 2014. Hann opnaði sig af því til-
efni í 20 ógeðslega mikilvægum
spurningum í Síðdegisþættinum í
gær þar sem ýmislegt kom í ljós en
meðal annars sýndi Jón nokkuð
undarlegan leyndan hæfileika.
Jón Jónsson viðurkenndi að út-
gáfutónleikar væru ekki væntan-
legir á næstunni enda sagðist
hann skulda svo marga tónleika
vegna Covid.
Hægt er að sjá Jón Jónsson í
viðtalinu á K100.is þar sem hann
sýnir hæfileikann undarlega.
Jón Jónsson hefur
leyndan hæfileika
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 6 skýjað Lúxemborg 12 skýjað Algarve 22 heiðskírt
Stykkishólmur 6 léttskýjað Brussel 13 skýjað Madríd 23 heiðskírt
Akureyri 3 rigning Dublin 11 skýjað Barcelona 22 léttskýjað
Egilsstaðir 3 skýjað Glasgow 9 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað
Keflavíkurflugv. 5 skýjað London 13 alskýjað Róm 17 heiðskírt
Nuuk 1 þoka París 16 léttskýjað Aþena 18 rigning
Þórshöfn 7 alskýjað Amsterdam 12 léttskýjað Winnipeg 6 alskýjað
Ósló 8 skýjað Hamborg 11 léttskýjað Montreal 17 þoka
Kaupmannahöfn 10 rigning Berlín 10 léttskýjað New York 24 heiðskírt
Stokkhólmur 5 léttskýjað Vín 13 heiðskírt Chicago 16 skýjað
Helsinki 8 skýjað Moskva 6 léttskýjað Orlando 28 skýjað
DYk
U
VS.
ENSKI BOLTINN
Í BEINNI Á MBL.IS
Í DAG, LAUGARDAG
KL. 14:00