Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 18
SVIÐSLJÓS
Atli Vigfússon
Laxamýri
Miklar framkvæmdir hafa verið á
Grænavatni í Mývatnssveit í sumar
en skúrbyggingin sunnan á gamla
bænum hefur verið endurbyggð að
mestu og er þeirri vinnu að ljúka
þetta árið. Hilmar Páll Jóhannesson
og Inga Lóa Guðjónsdóttir hafa haft
hönd á smíðavinnunni og segir Hilm-
ar Páll að það hafi verið mjög gaman
að fást við þetta.
Inga Lóa tekur undir það og þetta
sé mjög fjölbreytt og gefandi verk-
efni. Þau Hilmar Páll og Inga Lóa
hafa bæði mikla reynslu í ýmsum
verkefnum og segja að þetta sé með
því skemmtilegra sem þau hafi tekist
á við. Vinnan hefur gengið vel og í
húsið er einungis notaður íslenskur
viður, þ.e. lerki, bæði í máttarviði og
glugga. Fleiri hafa komið að þessari
framkvæmd og hefur Helgi Sigurðs-
son frá Fornverkaskólanum séð um
torf og grjót en auk þess hefur Sig-
urður Ólafur Friðbjörnsson, ættaður
úr Garði í Mývatnssveit, unnið að
verkefninu því það var talið gott að
hafa einn heimamann með í för.
Átak í viðhaldi bæjarins
Í fyrrasumar var ákveðið, af hálfu
Minjastofnunar, að fara í átak í að
halda við gamla bænum þar sem lítið
hafði gerst á undanförnum árum.
Var það gert með styrk frá Húsafrið-
unarsjóði. Bærinn var áður undir
umsjá Þjóminjasafnsins en er nú á
hendi landeigenda Grænavatns og er
mikill áhugi fyrir því að bjarga bæn-
um, byggja hann upp og bæta. Í ár
var framkvæmt fyrir 6 millj. króna
og á næsta ári er áætlað að fara í
norðurgafl hússins og þar þarf bæði
að endurnýja burðarviði, laga grjót-
hleðslu og skipta um glugga og
fleira.
Grænavatnsbærinn var byggður
árið 1913 sem framhús við gamla
torfbæinn sem þar stóð. Hann var
talinn eitt stærsta og glæsilegasta
framhús sem reist hafði verið á þess-
um tíma og kom í stað framhúsa
gamla bæjarins sem var áfram nýtt-
ur með að hluta. Húsið var upp-
haflega tvískipt, byggt fyrir tvær
fjölskyldur. Tveir smiðir voru fengn-
ir til að smíða það eftir teikningum
og smíðaði sinn smiðurinn hvorn
helming hússins. Frambærinn er
hæð og portbyggt ris með tveimur
kvistum og undir húsinu eru tveir að-
skildir kjallarar. Grænavatnsbærinn
ber keim af sveitserstíl sem er list-
stíll sem kom fram á 19.öld í timbur-
húsum og einkenndist meðal annars
af skrauti. Margir hafa alið aldur
sinn í þessum gömlu byggingum á
Grænavatni er þar var um tíma fjór-
býlt og bjuggu allar fjórar fjölskyld-
urnar í gamla torfbænum og fram-
húsinu til ársins 1952 en þá var hafin
bygging nýrra íbúðarhúsa á jörðinni.
Nýir tímar og nýtt hlutverk
Hluti af fólkinu flutti í nýju húsin
en nokkrir voru áfram í gamla bæn-
um allt fram til ársins 1969 en þá fór
hann í eyði til búskapar en notaður
sem geymsla hin síðari ár. Það er
ljóst að það er mikið verk fyrir hönd-
um að gera allan Grænavatnsbæinn
upp til þess að hægt sé að ætla hon-
um eitthvað nýtt hlutverk. Aðal-
atriðið er að nú er verkið hafið og á
næsta ári verður áframhald á fram-
kvæmdunum.
Hugmyndir hafa komið fram um
nýtt hlutverk þessa glæsilega sveita-
bæjar sem myndi e.t.v. tengjast
ferðamönnum og ferðaþjónustu en
það á eftir að móta þær tillögur bet-
ur og meta það hvað sé best. Eitt er
víst að allir eru ánægðir með það að
verið sé að bjarga bænum og Hilmar
Páll og Inga Lóa, smiðirnir sem ver-
ið hafa í sumar, eru full tilhlökkunar
að koma aftur á næsta ári til þess að
taka til hendinni. Það munu þau gera
með mikilli ánægju.
Grænavatnsbærinn endurbyggður
- Íslenskur viður
notaður í máttar-
viði og glugga
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Endurreisn Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir að störfum við endurbygginguna á Grænavatni, sem hófst af krafti í sumar.
Hlaða Hér verður verk að vinna við gamla hlöðu sem er þakin melgresi.
Grænavatn er landnámsjörð. Bær-
inn stendur við samnefnt vatn og
þar er mjög víðsýnt. Þetta er önnur
landstærsta jörðin í Mývatnssveit
og þar hefur jafnan verið margbýlt
eins og á mörgum jörðum í sveit-
inni.
Bæjarhúsin standa á austur-
bakka Grænavatns og á jörðin víð-
lent afréttarland til suðurs og aust-
urs. Innan landamerkjanna er
mikið hraunflæmi sem heitir
Grænavatnsbruni og nær hann allt
til Bláfjalls. Á Grænavatni eru mikl-
ar búsetuminjar m.a. gömul útihús
sem enn standa og vel sést móta
fyrir húsaskipan þar sem gamli
torfbærinn stóð.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Grænavatn Ásýnd bæjarins verður allt önnur og betri eftir verkið.
Víðsýnt frá Græna-
vatni og víðlent
- Búsetuminjar á landnámsjörð
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Nýskráður 01/2021, ekinn 7 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid, 69 km
drægni), sjálfskiptur. Night pack (Næturpakki) - AMG line innan
og utan - Edition pakki innan og utan - Leðurklætt mælaborð
og hurðaspjöld. Raðnúmer 253247
M.BENZ A 250E AMG LINE EDITION AUDI A3 40 TFSIE NEW
Nýskráður 11/2020, ekinn aðeins, 4 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in
hybrid), sjálfskiptur. Stafrænt mælaborð, leiðsögukerfi, S-line, 18“ álfelgur,
S-line sportsæti og stýri, NMI Navigation plus MMI touch. Raðnúmer 253126
0
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja bílinn þinn
Kíktu við, hringd
eða sendu okkur
skilaboð!
Hlökkum til!
Indriði Jónsson
og Árni Sveinsson
u
SKODA SUPERB IV SPORTLINE COMBI
Nýskráður 01/2020, ekinn 13 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid),
sjálfskiptur - Canton hljóðkerfið - Stóri skjárinn - Bakkmyndavél
- Glerþak. Þessi er hreinlega með öllu! Raðnúmer 253010
0