Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 46
Akureyri Guðmundur Finnsson fædd- ist 18. júní 2021 kl. 00.58 á Akureyri. Hann vó 5.100 g og var 56 cm langur. Foreldrar hans eru Hilda Hrönn Guð- mundsdóttir og Finnur Sigurjón Sveinbjarnarson. Nýr borgari 46 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 30 ÁRA Hilda Hrönn Guðmundsdóttir er Garðbæingur en býr á Akureyri. Hún er lækn- ir og er í sérnámi í heimilislækningum hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. „Ég er með mörg áhugamál,“ segir Hilda aðspurð. „Þau helstu eru ljósmyndun og lagasmíðar, en við maðurinn minn höfum verið að semja tónlist saman og syngja. Dúettinn hefur ekki enn fengið nafn en allar hugmyndir eru vel þegn- ar.“ Hilda lærði á píanó í 16 ár og hefur sungið mikið í gegnum tíðina en er nýfarin að semja tónlist. FJÖLSKYLDA Maki Hildu er Finnur Sig- urjón Sveinbjarnarson, f. 1991, kvikmynda- tónskáld og lagahöfundur, starfar hjá Atla Örvarssyni kvikmyndatónskáldi. Sonur Hildu og Finns er Guðmundur, f. 2021. Foreldrar Hildu eru Dóra Kristín Sigurðardóttir, f. 1959, menntaskólakennari í MS, og Guðmundur Örn Gunnarsson, f. 1963, framkvæmdastjóri fyrir flughermarekstur Iceland- air. Þau eru búsett í Garðabæ. Hilda Hrönn Guðmundsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú getur mætt hvaða áskorun sem er ef þú nýtir hæfileika þína til fulls. Gerðu ráð fyrir velgengni en hafðu samt vaðið fyrir neðan þig. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú ferð létt með að ganga í augun á mikilvægu fólki þessa dagana. Njóttu þess en vertu meðvitaður um að lánið getur verið fallvalt. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Fyrir stuttu sþurftir þú á leiðsögn að halda, en nú veitir þú öðrum hana. Nú verður ekki lengur hjá því komist að taka til hendinni í verkefnum sem hafa hlaðist upp. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Hafðu hugfast að þarfir fólks eru mismunandi svo það sem er þér fyrir bestu þarf ekki að eiga við um aðra. Gerðu ráð fyr- ir óvæntum uppákomum í dag. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Láttu ekki aðra hrifsa til sín það sem í raun er þitt. Nú er ákjósanlegur tími til að til að ryðja gömlum ágreiningi úr vegi. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er upplagt að nota dag sem þennan til þess að velta fyrir sér hvernig maður skuli halda áfram. Festu áætlanir þín- ar á blað og fylgdu þeim eftir. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það fer bókstaflega allt í taugarnar á þér í dag svo það reynir verulega á þol- inmæði þeirra, sem í kringum þig eru. Þú þarft að leysa fjárhagslegt vandamál sem upp hefur komið. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Kátínan hefur ráðið ríkjum hjá þér um tíma og engin ástæða til annars en að halda henni við. Láttu mistök þér að kenningu verða og hugsaðu næsta leik vel. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þetta er ekkert verri tími en hver annar til þess að brydda upp á nýjungum. Þú gætir lent í óþægilegri aðstöðu er þú leitast við að aðstoða vin í vanda. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Einbeittu þér að þeim verkefnum sem fyrir liggja áður en þú tekur að þér önn- ur og ný. Gleymdu ekki velgjörðarmönnum þínum þegar betur gengur. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú þarft að taka þátt í sameig- inlegum kostnaði og verður að gæta þess að láta smámunasemina ekki ná tökum á þér. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þegar þú kynnir hugmyndir þínar, færðu kannski ekki viðbrögðin sem þú bjóst við, en það er samt jákvætt spor. byggingarnefnd nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli 1979-1983. Jafn- framt var honum var falið af forsætis- ráðherra að annast undirbúning og fyrirgreiðslu fyrir fjölmiðla vegna leið- togafundarins í Höfða 1986. Helgi hefur verið virkur í ýmsum félagsstörfum, s.s. í Körfuknattleiks- deild KR, KKÍ og Rotary (Rvk. A- bær-London-Kaupmannahöfn og Washington, D.C). Hann var formað- ur stjórnar Barnaheilla 2009-2012, sat í stjórn Þjóðræknisfélags Íslendinga 2007-2012 og hefur verið stjórnarfor- maður Vesturfarasetursins á Hofsósi síðan 2007. Helgi lauk námi sem leið- sögumaður frá Ferðamálaskóla Ís- lands 2010 og starfar nú sem formaður ferðanefndar Félags eldri borgara í sendiherra í London 1989 til 1995. Helgi var skipaður ráðuneytisstjóri 1995 og tók síðan við starfi sendiherra í Kaupmannahöfn 1999 er hann tók við sendiherrastarfi í Washington, D.C. í ársbyrjun 2002 og gegndi stöð- unni til 2006. Að því loknu vann Helgi sérstök störf í ráðuneytinu og sem prótókollstjóri þar til hann lét af störfum í árslok 2008. Þann vetur gegndi hann öðru sinni forstöðu á námskeiði fyrir nýliða í utanríkis- þjónustunni. Helgi gegndi einnig fjölmörgum trúnaðarstörfum á vegum utanríkis- þjónustunnar og má þar nefna m.a. formennsku í samningum um síld og loðnu, úthafsveiðiráðstefnu SÞ, Smugudeilunni, varnarmálanefnd og H elgi Ágústsson fæddist í Reykjavík 16. októ- ber 1941. Hann ólst upp á Laugavegi 61 þar sem fósturfor- eldrar hans bjuggu þar til þau fluttu árið 1954 á Öldugötu 50 í Reykjavík. Fósturforeldrar Helga voru Odd- fríður Steinunn Jóhannsdóttir, f. 6.6. 1896, d. 6.8. 1976, og Guðmundur R. Oddsson, forstjóri Alþýðubrauðgerð- arinnar f. 17.1. 1896, d. 1.2. 1984. Foreldrar Helga voru Ágúst Her- bert Pétursson bakarameistari, f. 14.9. 1916, d. 1.3. 1996, og Helga Jó- hannesdóttir, f. 20.10. 1915, d. 16.10. 1941, en hún dó af barnsförum við fæðingu Helga. Þau bjuggu sín búskaparár í Reykjavík. Helgi var nemandi í Austurbæjar- skólanum og síðar í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar þar sem hann útskrif- aðist sem gagnfræðingur 1958. Helgi lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 1963 og laganámi frá Há- skóla Íslands vorið 1970. Helgi kynntist eiginkonu sinni, Hervöru Jónasdóttur, Hebu, þann 14.4. 1962, sem alla þeirra hjúskap- artíð var haldinn hátíðlegur. Þau gengu í hjónaband 7.12. 1963. Að loknu námi hóf Helgi störf í utanrík- isþjónustunni þar sem hann gegndi margvíslegum störfum uns hann lét af embætti í árslok 2008. „Leið okkar hjóna lá til Bretlands á haustdögum 1973 þegar fiskveiði- deilan við Breta stóð sem hæst vegna 50 sjómílna útfærslu fiskveiðilögsög- unnar. Ég var þar einnig málsvari sendiráðsins í 200 mílna deilunni og starfaði um nokkurra mánaða skeið sem norskur sendifulltrúi meðan stóð á stjórnmálaslitum Íslands og Bret- lands, en ég afhenti Bretunum orð- sendinguna um stjórnmálaslitin.“ Helgi fluttist til Íslands um vorið 1977 og tók aftur við forstöðu upplýsinga- og menningarmáladeildar utanríkis- ráðuneytisins uns hann frá ársbyrjun 1979 tók við starfi yfirmanns varn- armáladeildar ráðuneytisins. Þau hjónin fluttust síðan í ágúst 1983 til starfa við sendiráð Íslands í Wash- ington, D.C. Helgi var skrifstofustjóri utanríkis- ráðuneytisins árin 1987-1989 og síðan Kópavogi, FEBK. „Ég er að fara á þriðjudaginn kemur á Selfoss og í Fló- ann með rúmlega 50 manns, en þetta er bara tómstundastarf hjá mér.“ „Til að halda góðri líkamlegri heilsu hef ég að undirlagi dótturdóttur minn- ar, Katrínar Tönju Davíðsdóttur, lagt stund á crossfit-íþróttina sl. fimm ár en auk þess keppi ég að því að veiða stærri lax en ég veiddi árið 1973 sem mældist 108 cm langur, 55 cm þykkur og vó 30,2 pund.“ Helgi segist ekki ýkja þegar hann fullyrðir að hann hafi misst stærri lax í kastinu á undan. Helgi er áhugasamur um jazz og klassíska tónlist og hefur undanfarin ár verið félagi í Söngvinum, kór eldri borgara í Kópavogi. Helgi les mikið og hefur þýtt bók dótturdóttur sinnar Katrínar Tönju Davíðsdóttur, „Dótt- ir“, úr ensku og ljóðaþýðing hans á „Sofðu unga ástin mín“, hefur komið út á þremur geisladiskum. „Ég hef gaman af því að þýða ljóð úr ensku, tefli við tölvuna og mannleg samskipti eru mér mikilvæg. Helgi var sæmdur stórriddara- krossi Fálkaorðunnar árið 1990. Auk þess að hafa hlotið erlendar heiðurs- orður var hann sæmdur 25 ára gulln- ælu KR með lárviðarsveig og gull- merki Körfuknattleikssambands Íslands 1991. Fjölskylda Eiginkona Helga var Heba Jónas- dóttir, f. 18.9. 1943, d. 15.4. 2016. Hún Helgi Ágústsson, sendiherra og ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins – 80 ára Fjölskyldan Helgi ásamt börnum, mökum þeirra og barnabörnum 2016. Hugaræfingar við ljóðaþýðingar Hjónin Heba og Helgi, og Leggjabrjótur að baki. Spjallað um körfubolta Helgi t.h. og Greg Popo- vich, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna í körfubolta. Til hamingju með daginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.