Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 51
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Sigursveitin, Ateria, var þá framúrskarandi. Kornungar stúlkur með tónlist sem hljómaði eins og Faith með Cure, síuð í gegnum þjóðlagastemmur Þursa. Kryddað smekklega með unglingasalti. Lögin voru drungaleg, einföld og hæg en héldu athygli all- an tímann. Alveg séríslensk „Hættu að gráta Hringaná“-stemning yfir. Stúlkurnar léku á ýmis hljóðfæri og sýndu metnað, dug og þor, voru skapandi og prófuðu sig óhikað áfram … Maður fann það að þessi sveit á aðeins eftir að vaxa. Efnivið- urinn er þarna (persónulegar glósur frá 2018, með smá breytingum).“ Já, Ateria sýndi og sannaði vorið 2018 að þarna var kominn framtíðarmannskapur. Útgáfa hefur hins vegar látið bíða eftir sér og ég fagna því að geta loks sett eitthvað formlegt niður um hana. Sveitar- konur hafa reyndar stússast í kringum tónlistargyðjuna óslitið, Ása Önnu Ólafsdóttir hefur starf- að sem Asalaus og yngra systkini hennar, Eir, er hluti af Dymbrá- flokknum. Þriðja liðskonan er svo frænkan Fönn Fannarsdóttir. Hluti af verðlaununum fyrir Músíktilraunasigurinn voru tutt- ugu upptökutímar í Sundlauginni en bandið sá að það dugði ekki til og skiptust þær því á að „þrífa hljóðverið svo vikum skipti til þess að vinna sér inn nægan tíma til að hægt væri að taka upp heila plötu,“ eins og segir í frétt á albumm.is. En hvernig er svo platan? Hún hefst á „Intró“, eðlilega, og heyra má í margvíslegum hljóðfærum eins og í fjarska. Strengir, ásláttur, söngur/org. Dulúðin stýrir málum en verkið er knýjandi um leið. „Afleiðingar“ hefst með gítarslætti áður en vel feitar bassalínur og trommur koma inn. Eir syngur og gerir upp tilfinningar gagnvart hræðilegum kennara sem hún um- gekkst á Spáni eitt sinn. Lagið er sjö og hálf mínúta og einkennist af stígandi, það er spenna í því sem stigmagnast með hverri mínútu. Sargandi, öskrandi gítarar (eða eitt- hvað annað) endar lagið. Þetta er hálfgert síðrokk og andinn góður. Flott, glúrin hljóðvinnsla hér á ferð. „Ein“ viðheldur þessari stemningu. Líkt og á Músíktilraunum, það er gert út á gotneskan blæ, ýjað að þjóðlögum og öllu haldið sæmilega drungalegu og strípuðu. Einfaldur, drynjandi bassi enn og aftur í bland við gítarstrokur og varlegan áslátt. Söngurinn er angistarfullur og text- inn eins og og upp úr myrkum hús- lestri á Hornströndum seint á sex- tándu öld. En sjá! Síðustu eina og hálfa mínútuna er skipt um gír, ljós- geislar streyma inn og fallegur sam- söngur leiðir lagið út. Aftur, flott stílisering/útsetning. „Órói“ hefst á hálfgerðum spænskum gítarslætti finnst manni en undirtónninn er sem fyrr, bæði þjóðlegur og myrkur. Og alltaf þessi spenna, þessi knýjandi bragur. Þetta er gamalt lag og var flutt á Músíktilraunum. „Bródolía“ einkennist af fallegu gítarspili og inniheldur heimsósómakvæði sem fólk semur á unglingsárum. Selló styður við þessa lágstemmdu smíð sem gengur vel upp. „Landbrot“ er og lag úr sarpinum og hefur verið til allar götur síðan 2018. Sker sig eilítið frá öðrum lögum hér þar sem hlaðið er í klassískt rokk-riff að hætti Zeppelin. Ekki einu sinni, heldur tvisvar! Titillinn „Vituð ér enn, eða hvað“ gefur svo til kynna „nördismann“ sem Eir hefur gengist kinnroðalaust við. „Saga fyrrverandi verðandi fiðrildis“, endalagið, er lag sem mér þykir vænt um, var lokalag sveitarinnar á Músíktilraunum og hápunkturinn. Lagið fellur engu að síður nokkuð illa við heildarmyndina á plötunni en ég held ég skilji þá ákvörðun að leyfa því að fljóta með. Þegar heildarmyndin er skoðuð hanga fimm fyrstu lögin sterk sam- an tematískt, það er þráður þar og þetta eru sterk lög öll sem eitt. Óvenjuleg á margan hátt og gefa til kynna djörfung og dug. Hæfileikar þessa tríós mega enda vera öllum ljósir núna og megi því farnast vel á vegum tónlistarinnar í framtíðinni, hvernig svo sem það kýs að feta hann. Ljósmynd/Lilja Birgisdóttir » Það er gert út á gotneskan blæ, ýjað að þjóðlögum og öllu haldið sæmilega drungalegu og strípuðu. Einfaldur, drynjandi bassi enn og aftur í bland við gítarstrokur og varlegan áslátt. Horft fram í gráðið Þríeind Þær Ása, Eir og Fönn skipa Ateriu. Platan Andvari (and_vari) er fyrsta breiðskífa Ateriu, sveitar sem sigraði eftirminnilega í Músík- tilraunum árið 2018. MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ S . F. C H R O N I C L E B B C T I M E O U T SÍÐASTA BOND MYNDIN MEÐ DANIEL CRAIG ÞESSA VERÐA ALLIR AÐ SJÁ Í BÍÓ 84% SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI NÝ ÍSLENSK – PÓLSK MYND FRAMLEIDD AF SAGA FILM SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.