Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021
Leitarstöð Krabba-
meinsfélagsins hóf leg-
hálskrabbameinsleit í
júní 1964 með grein-
ingu forstigsbreytinga
við smásjárskoðun
frumustroka frá leg-
hálsi. Í árslok 2020
ákvað heilbrigðis-
ráðherra óvænt að
flytja starfsemina til
heilsugæslunnar,
grunnrannsóknir leitarinnar
(frumuskoðun og HPV-greining) til
Hvidovre í Danmörku og aðlaga
leitarskipulagið að danskri fyrir-
mynd.
Heilbrigðisráðherra rökstuddi
þessar breytingar á þann veg að
gæðaeftirliti hefði verið ábótavant
og að íslensku fagfólki væri, vegna
fámennis þjóðarinnar, ekki treyst-
andi til að halda uppi lágmarks-
gæðum við framkvæmd grunnrann-
sókna leitar. Þessar ákvarðanir
ráðherra eru mjög umdeildar og er
hér rætt hvort árangur leitar í þess-
um tveimur löndum gefi þeim stuðn-
ing.
Forstigsbreytingar
Forstigsbreytingum er skipt í
mismunandi flokka eftir alvarleika.
Vægustu breytingunum er fylgt eft-
ir með endurteknum frumustrokum
en alvarlegri breytingar leiða til
vefjasýnatöku með leghálsspeglun,
og geta niðurstöðurnar leitt til
keiluskurðar þar sem neðsti hluti
leghálsins er fjarlægður. Í einstaka
tilfellum leiðir vefjasýnatakan til
greiningar krabbameins sem í vel
skipulegri leit er oftast á algeru
byrjunarstigi eins og reyndin hefur
verið hér á landi. Tíðni
forstigsbreytinga fell-
ur ört með hækkandi
aldri.
Starfsemi Leitar-
stöðvarinnar hefur ein-
kennst af skýrum
vinnureglum varðandi
boðun, skráningu mæt-
inga, meðferð og eft-
irlit. Allar niðurstöður
voru færðar í sérsniðið
tölvukerfi til að auð-
velda úrvinnslu gagna,
ársskýrslugerð og
fræðileg uppgjör. Starfs- og verk-
lagsreglur voru skýrar. Fram til
2014 voru neðri aldursmörk leitar
lægri og millibil boðana þrengra hér
á landi vegna hækkandi tíðni for-
stigsbreytinga sem hefur verið
tengt aukinni tíðni HPV-smita, að-
allega meðal yngri kvenna.
HPV-greining og
áhættuflokkun
Hááhættustofnar Human papil-
loma-veiru (HPV 16/18/31/33/52/35/
39/45/51/56/58/66/68) valda forstigs-
breytingum og leghálskrabbameini
en lágáhættustofnar HPV 6/11 valda
kynsjúkdómavörtum og auka einnig
tíðni vægra forstigsbreytinga. Á síð-
ari árum hafa komið fram HPV-
greiningarpróf sem samhliða nið-
urstöðu frumustroksins hafa áhrif á
leitarferil konunnar (ávörðun um
leghálsspeglun, eftirlit eða útskrift).
Vegna hárrar tíðni veirusmita hjá
yngri konum velja Danir þá leið að
láta niðurstöðu frumustroksins ráða
hvort HPV-greiningarpróf er fram-
kvæmt hjá konum undir 30 ára
aldri. Þannig beitir Hvidovre ein-
göngu hááhættu HPV-greiningu
undir þrítugt ef frumustrokið er
með vægum forstigsbreytingum en
alvarlegri frumubreytingar fara í
vefjasýnatöku án HPV-greiningar.
Hvidovre beitir aftur á móti HPV-
hááhættuprófi hjá öllum konum 30-
59 ára, óháð niðurstöðu frumu-
stroksins og hjá 60-64 ára konum er
eingöngu notuð HPV-greining til
leiðbeiningar um leitarlok. Danir
hafa þannig með góðum árangri að-
lagað boðunar- og eftirlitskerfið að
niðurstöðu HPV-greininga og
frumugreininga.
Eftir breytingar á aldursmörkum
og millibili boðana 2014 hóf Leitar-
stöðin á árinu 2015 HPV-greiningar
á vökvasýnum kvenna með ófull-
nægjandi og vægar forstigsbreyt-
ingar og áformaðar voru enn víð-
tækari HPV-greiningar í anda
dönsku leitarinnar en þau áform
strönduðu af óútskýrðum ástæðum
á óvilja heilbrigðisyfirvalda í garð
Krabbameinsfélagsins sem aftur
kom niður á rekstri Leitarstöðvar-
innar.
HPV-bólusetning
Eftir aldamót komu á markað
HPV-bóluefnin Cervarix (gegn HPV
16/18), Gardasil (gegn HPV 6/11/16/
18) og síðast Gardasil9 (gegn HPV
6/11/16/18/31/33/45/52/58). Frá 2002
hefur Krabbameinsfélagið tekið þátt
í alþjóðlegri rannsókn á virkni og
eftirliti með langtíma ónæmissvörun
bóluefnisins Gardasil (FUTURE 2
og LTFU rannsóknir á 18-23 ára
stúlkum með færri en fimm rekkju-
nauta).
HPV-bólusetning hófst á Norður-
löndunum um 2010 og nota öll lönd-
in Gardasil nema Ísland sem notar
ódýrara bóluefnið Cervarix, sem
ólíkt Gardasil gefur ekki vörn gegn
lágáhættustofnunum 6/11 sem valda
kynsjúkdómavörtum og vægum for-
stigsbreytingum og útskýrir það að
hluta hærri tíðni vægra forstigs-
breytinga hér á landi.
Bólusetning er áhrifamest ef hún
fer fram fyrir kynþroskaaldur og er
oftast miðað við 12 ára aldur. Danir
hafa einnig mælt með bólusetningu
kvenna allt að 27 ára aldri (catch-up
bólusetning) og nú með bólusetn-
ingu drengja. Danir hafa einnig
staðfest að bóluefnið Gardasil hefur
lækkað tíðni kynsjúkdómavarta, for-
stigsbreytinga og leghálskrabba-
meins meðal bólusettra danskra
kvenna.
Niðurstaða
Rannsóknir staðfesta ótvíræðan
árangur leghálskrabbameinsleitar
hér á landi, árangur sem hefur vakið
athygli erlendra fagaðila. Þrátt fyrir
óhagstæðari tíðni forstigsbreytinga
hefur nýgengi og dánartíðni lengst
af verið lægri á Íslandi en í Dan-
mörku (mynd) sem bendir til áhrifa-
ríkara skipulags leitar hér á landi. Á
síðasta áratug hefur notkun HPV-
greininga og framkvæmd HPV-
bólusetningar þó verið öflugri í Dan-
mörku sem aftur má rekja til tregðu
hérlendra heilbrigðisyfirvalda til
endurnýjunar langtímasamninga við
Krabbameinsfélagið og óvilja til að
taka upp öflugra HPV-bóluefni.
Eftir Kristján
Sigurðsson » Þrátt fyrir óhag-
stæðari tíðni for-
stigsbreytinga hefur ný-
gengi og dánartíðni
lengst af verið lægra á
Íslandi en í Danmörku
Kristján Sigurðsson
Höfundur er prófessor emeritus, fv.
yfirlæknir Leitarstöðvar Krabba-
meinsfélagsins frá 1982 til mars
2013.
kiddos@simnet.is
Leghálskrabbameinsleit –
Er danskt skipulag betra?
Leiðréttingar á rang-
færslum Helga Tóm-
assonar sem birtust í
grein hans „Töl-
fræðilegt sjónarhorn á
skýrslur IPCC“ í
Morgunblaðinu 14.
október 2021.
Milliríkjanefnd um
loftslagsbreytingar1,
eða IPCC, er einn
stærsti vísindavett-
vangur heims þar sem þúsundir vís-
indamanna vinna saman til að ritrýna
og taka saman þær fjölmörgu rann-
sóknir sem eru birtar um loftslags-
breytingar á ári hverju. Þessi vett-
vangur er öflugt tól sem hefur
hjálpað til við að komast til botns í
því, með mikilli vissu, hvað veldur
loftslagsbreytingum og hvaða afleið-
ingar þær hafa. Skýrslur IPCC eru
ígrundaðar í vísindum og er yfirgnæf-
andi sátt og samstaða í vísindasam-
félaginu2 hvað varðar niðurstöður
þeirra. Fyrsti kafli sjöttu skýrsl-
unnar3 kom út núna í ágúst og tekur
það skýrt fram að hlýnun Jarðar og
loftslagsbreytingar eru af manna-
völdum. Þessar breytingar eru nú
þegar að valda miklum skaða og
munu valda enn meiri skaða ef ekki
er gripið til metnaðarfyllri aðgerða á
heimsvísu.
Meðalhitastig Jarðar
hækkar hratt
Helgi Tómasson sagði í grein sinni
14. október: „A.m.k. eru breyting-
arnar mjög hægar (miðað við okkar
líftíma) og verðskuldar alls ekki gild-
ishlaðnar upphrópanir eins og ham-
farahlýnun eða loftslagsvá.“
Þetta er rangt. Breytingarnar eru
að eiga sér stað mjög hratt á jarð-
fræðilegum tímaskala4. Hægt er að
velta fyrir sér fram og
til baka nákvæmlega
hvernig eigi að setja
upp vísindalegar upp-
lýsingar út frá tölfræði-
legu sjónarhorni, en það
breytir því ekki að or-
sakasamhengið er til
staðar. Aukinn út-
blástur koltvísýrings og
annarra gróðurhúsa-
lofttegunda af manna-
völdum er að valda
hlýnun í andrúmslofti
Jarðar, og það hratt.
Þetta er í raun frekar einfalt ferli:5
1. Sólin varpar stuttbylgjugeislum
á Jörðina.
2. Yfirborð Jarðar varpar hluta
þessara geisla frá en jarðskorpan
gleypir í sig hluta þeirra og verður
þessi orka að varma.
3. Jarðskorpan útgeislar þessum
varma síðan aftur í form i langbylgja
(eða innrauðri geislun).
4. Gróðurhúsalofttegundir eru
þannig í eðli sínu að þær fanga
varma; sá varmi sem þær fanga kem-
ur að miklu leyti frá þessari innrauðu
útgeislun jarðskorpunnar.
5. Gróðurhúsalofttegundirnar
koma þannig í veg fyrir það allur
varminn berist aftur út í geim. Aukn-
ing á þessum lofttegundum veldur
uppsöfnun á hita í andrúmsloftinu,
sem veldur hnattrænni hlýnun, sem
veldur breytingum á loftslagi Jarðar.
Bruni jarðefnaeldsneytis veldur
losun á koltvíoxíð sem veldur hlýnun í
andrúmsloftinu; þótt koltvíoxíð sé
efni sem finnist vissulega í andrúms-
loftinu náttúrulega er það magnið
sem skiptir máli. Magnið sem finnst
nú í andrúmsloftinu, m.a. vegna
bruna jarðefnaeldsneytis er ekki
náttúrulegt, heldur er það að miklu
leyti af mannavöldum. Þessar gróð-
urhúsalofttegundir hafa safnast upp
vegna þess að við höfum raskað nátt-
úrulegum ferlum sem sjá til þess að
kolefnishringrásin haldist í jafnvægi.
Bruni jarðefnaeldsneytis er ekki hluti
af þessum hringrásum og þessu jafn-
vægi.
Hamfarahlýnun ber
ekki að taka fagnandi
Helgi sagði einnig í grein sinni: „Ef
hlýnun er raunveruleg ættu Íslend-
ingar að taka því fagnandi, auka upp-
græðslu og skapa ný tækifæri í land-
búnaði.“
Þetta er hættulegt og rangt við-
horf. Loftslagsbreytingar eru hnatt-
rænt vandamál og þarf að líta á þær
sem slíkar þegar talað er um áhrif
þeirra. Breytingarnar valda auknum
öfgum í veðurfari og tíðari hamförum
vegna ofsaveðurs.6 Birtingarmynd
loftslagsbreytinga er breytileg milli
svæða á Jörðinni en hefur hvað mest
áhrif á samfélög sem búa nú þegar við
viðkvæmar aðstæður. Ástandið sem
er að skapast á heimsvísu er mjög al-
varlegt og hefur þegar banvæn áhrif
á hundruð þúsunda fólks7 sem þarf að
takast á við stærri og tíðari flóð, aur-
skriður, fellibyli, hitabylgjur, vatns-
skort, o.s.frv. Ísland er líka farið að
finna fyrir áhrifum loftslagsbreytinga
t.d. í formi tíðari aurskriða.
En hvort sem við fyndum fyrir
breytingum eða ekki, og þrátt fyrir
að þær séu kannski vægari til að
byrja með hér á Íslandi ber okkur að
taka ástandið alvarlega. Við búum í
hnattrænu samfélagi og okkur ber
skylda, sem rík þjóð í forréttinda-
stöðu, til að takast á við loftslags-
breytingar á mun metnaðarfyllri hátt
en við erum að gera núna til að koma í
veg fyrir verstu afleiðingar þeirra í
öðrum samfélögum á Jörðinni. Annað
væri siðferðislega rangt.
Gerum okkur grein fyrir þeirri for-
réttindastöðu sem við erum í og öxl-
um ábyrgð á því að draga hratt úr los-
un til að verja samfélög sem eru að
verða fyrir verstu afleiðingum lofts-
lagsbreytinga vegna lifnaðarhátta
okkar í vestrænu samfélögunum síð-
ustu 200 árin. Tökum loftslagsbreyt-
ingum af mannavöldum af alvöru og
leggjum meiri metnað í aðgerðir
strax.
Heimildir:
1 About the IPCC. Intergovernmental Panel
on Climate Change. 2021.
https://www.ipcc.ch/about/
2 Scientific Consensus: Earth’s Climate is
Warming. NASA Earth Science Comm-
unications Team. 2021. Stytt slóð:
https://tinyurl.com/amm3bk3x
3 AR6 Climate Change 2021: The Physical
Science Basis. Intergovernmental Panel on
Climate Change. 2021. Stytt slóð:
https://tinyurl.com/3jxvv6zv
4 Climate Change: How do we know? NASA
Earth Science Communications Team.
2021.
https://climate.nasa.gov/evidence/
5 Greenhouse Effect. Encyclopedia Brit-
annica. 2020. Stytt slóð:
https://tinyurl.com/yntrvt23
6 Climate Change Leads to More Extreme
Weather, but Early Warnings Save Lives.
United Nations Framework Convention on
Climate Change. 2021. Stytt slóð:
https://tinyurl.com/4syavs2n
7 Priority Risks: Climate Change. World
Health Organization. Stytt slóð:
https://tinyurl.com/2adhc4f5/
Mannúðlegt sjónarhorn á skýrslur IPCC
Eftir Finn Ricart
Andrason » Loftslagsbreytingar
af mannavöldum ber
að taka alvarlega þar
sem breytingarnar eru
að eiga sér stað hratt og
hafa þegar skaðleg áhrif
á fjölda fólks.
Finnur Ricart Andrason
Höfundur er loftslagsfullrúi Ungra
umhverfissinna og Ungmennafulltrúi
Íslands til SÞ á sviði loftslagsmála.
loftslagsfulltrui@umhverfissinnar.is
Þvert á móti. Þeir hafa tekið upp
skýra stefnu í innflytjendamálum,
undir forystu krata, sem getur orðið
öðrum fyrirmynd, og nýlega hafa þeir
viðrað tillögur til breytinga á eftir-
launaaldri.
Vesturlönd eru löngu komin í öng-
stræti í þeim málum og það er fáum
greiði í að hætta að vinna á vissum
degi, óháð getu og vilja. Margir kvíða
verklokum og vita þá ekki hvað þeir
eiga að gera. Það hlaupa ekki allir á
fjöll. Hnén þola það ekki og fjöllin
varla heldur.
Svo eru þjóðirnar að eldast eins og
sagt er og þeim fækkar sem halda at-
vinnulífinu gangandi. Þetta vita allir
en hægt gengur að snúa hjólinu við.
Líklega þarf peninga til að starta
þessu, eins og alltaf, en hugsanlega
gæti það bætt bæði heilsu og hag ef
fólk mætti vinna 2-5 árum lengur.
Svo er það sérkapítuli að sum stór-
fyrirtæki senda fólk heim löngu fyrir
venjulegan eftirlaunaaldur. Það er
mikil sóun á reyndum mannskap og
dæmi eru um léttroskna skrif-
stofumenn sem þá heldur gerast
handlangarar í múrverki en hanga
heima fullfrískir.
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-
1100 frá kl. 10-12.
Efri ár Danir eru farnir að huga að
breytingum á eftirlaunaaldri.
Þeir liggja
ekki í því,
Danirnir