Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 WWW.ASWEGROW.ISUMHVERFISVÆN ÍSLENSK HÖNNUN Guðni Einarsson gudni@mbl.is Veraldarvinir – Strandverðir Ís- lands söfnuðu rúmlega 91 tonni af rusli og hreinsuðu 742 km strand- lengjunnar fyrstu níu mánuði þessa árs. Í hreinsunarstarfið fóru 25.867 klukkustundir. Kostnaðurinn var 28,7 milljónir króna. Það var heldur meira á hvert kíló og kílómetra en áður. „Við höfum verið að vinna á svæðum þar sem mjög mikið er af litlum plastbitum sem tekur langan tíma að hreinsa. Þessi svæði eru Ár- neshreppur, Bitrufjörður og aðrir staðir í Strandasýslu. Kostnaður við flutning á plastinu bætist síðan við en árin á undan tóku sveitarfélögin þátt í þeim kostnaði,“ segir í saman- tekt frá Veraldarvinum. Milljónir vinnustunda Þórarinn Ívarsson stofnaði Ver- aldarvini fyrir 20 árum. Frá stofnun hafa 19.995 sjálfboðaliðar starfað hér á vegum samtakanna. Þeir hafa lagt rúmlega 2,15 milljónir klukku- stunda til íslenskrar náttúru. Auk fjöruhreinsunar hafa þeir unnið að skógrækt, lagningu göngustíga og að upprætingu lúpínu. Árin 2017 og 2018 komu um 1.800 sjálfboðaliðar hvort ár til Veraldar- vina. Flestir til tveggja vikna dvalar. Í faraldrinum breyttist það og nú dvelja sjálfboðaliðarnir hér frá fjór- um og upp í 26 vikur. Færri sjálf- boðaliðar skila því sem næst jafn mörgum vinnustundum og fleiri gerðu áður. „Sjálfboðaliðarnir greiða þátt- tökugjald og við fjármögnum starfið að miklu leyti með þeim,“ sagði Þór- arinn. Þátttökugjaldið stendur undir uppihaldi og ýmsum öðrum kostn- aði. Sjálfboðaliðarnir hafa komið alls staðar að úr heiminum. Það breytt- ist í heimsfaraldrinum og undanfarið hafa flestir komið frá Þýskalandi og öðrum löndum Mið-Evrópu. Áður komu margir frá Mexíkó og Asíu- löndum. „Við erum á meðal stærri móttökusamtaka og mjög þekkt í þessum sjálfboðaliðaheimi,“ sagði Þórarinn. Vilja endurvinna plastið Þórarinn segir að Veraldarvinir hafi sótt um alls konar styrki til að endurvinna plastið en ekki fengið þótt þau hafi mannskap til að gera það. Ekkert bólar heldur á fjárveit- ingu úr aðgerðaáætlun í plastmál- efnum. En hvað ætla þau að gera við plastið? „Við ætlum að steypa bakka undir græðlinga. Svo tökum við mold og tínum fræ af trjánum og ræktum græðlingana í gömlu Landsímastöð- inni á Brú í Hrútafirði,“ sagði Þór- arinn. Veraldarvinir tóku við húsinu fyrir tveimur árum og þá var það nær ónýtt. Búið er að standsetja, endurnýja allar lagnir, skrapa og mála. Húsið er nú því sem næst tilbúið að innan. Veraldarvinir hafa leitað eftir styrk til að gangsetja aft- ur rafstöð sem er í gömlu Landsím- stöðinni. Stífla er sex kílómetrum innar í firðinum. Laga þarf aðfalls- æðina sem er brotin. Með því að laga rafstöðina verður hægt að rækta grænmeti og græðlinga í sjálfbæru húsi. Auk hússins á Brú eru Verald- arvinir með húsnæði í Reykjavík, á Stöðvarfirði, Raufarhöfn og á Ströndum. Veraldarvinir vinna nú að rekstr- aráætlun áranna 2022-2024. Ætlunin er að vinna þá að fjórum meginverk- efnum. Þau eru hreinsun strand- lengjunnar, endurvinnsla á plasti, skógrækt og fræðsla um heims- markmið Sameinuðu þjóðanna. Hreinsa plastrusl úr fjörum landsins - Veraldarvinir hafa fengið 19.995 sjálfboðaliða víða að úr heiminum til landsins á síðustu 20 árum Ljósmynd/Veraldarvinir Veraldarvinir Sjálfboðaliðar með rusl sem rekið hafði á fjörur. Sjórinn ber ótrúlega mikið af drasli á land. Þar á meðal gömul veiðarfæri, netadræsur og ekki síst alls konar plastrusl. Ljósmynd/Veraldarvinir Flokkun Sjálfboðaliðarnir flokka ruslið sem hirt er úr fjörunum. Hugmyndin er að endurvinna plastið og útbúa gróðurbakka fyrir græðlinga. Síðan verður þeim plantað og ræktaður skógur. Ljósmynd/Veraldarvinir Hrútafjörður Veraldarvinir hafa hreinsað fjörur í flestum landshlutum. Fyrstu níu mánuði ársins var næstmestu safnað á Norðurlandi vestra. Plastsöfnun Veraldarvina úr fjörum Íslands Safnað magn árin 2006-2021, tonn plasts* Magn eftir landshlutum fyrstu níu mánuði 2021 300 200 100 0 Vestfirðir Strandir Norðurland vestra Norðurland eystra Austurland Suðurland Höfuðborgar- svæði '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21 *Fyrstu níu mán. 2021 Heimild: Veraldarvinir 11,9 18,9 4,4 28,6 16,8 9,7 Tonn plasts 0,7 91 Veraldarvinir – Strandverðir Íslands hafa safnað 2.038 tonnum af plastrusli úr fjörum Íslands 2006-2021
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.