Morgunblaðið - 16.10.2021, Side 24

Morgunblaðið - 16.10.2021, Side 24
Framúrskarandi fyrirtæki 2010-2021 Hlutfall nokkurra atvinnugreina 25% 20% 15% 10% 5% 0% 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð Fjármála- og vátryggingastarfsemi Smásala Ferðaþjónusta Sjávarútvegur Heildsala Heimild: Creditinfo BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Efnahagssviptingar síðustu ára hafa lagst af mismiklum þunga á atvinnu- greinar landsins. Draga má þá álykt- un af upplýsingum sem teknar eru úr gagnagrunni Creiditinfo sem síð- ustu tólf ár hefur haldið lista yfir fyrirtæki sem uppfylla ströng skil- yrði um hagnað, eigið fé og aðra þætti sem skilja framúrskarandi fyrirtæki frá öðr- um. Á meðfylgj- andi grafi má sjá hlutfall nokkurra stórra atvinnu- greina af öllum þeim fyrirtækj- um sem uppfylla skilyrðin á hverj- um tíma. Þar sést að byggingarstarfsemi og mann- virkjagerð sker sig úr en hlutfallið þar á bæ hefur aukist stöðugt frá árinu 2016. Á sömu mynd má svo einnig sjá að ferðaþjónustan hefur gefið mjög eftir frá síðasta ári vegna þess stóreflis höggs sem hún varð fyrir vegna alheimsfaraldurs kórónuveirunnar. 127 fyrirtæki á lista Jón Þórarinn Sigurðsson er sér- fræðingur hjá Creditinfo en hann hefur greint þessa þróun út frá gögnum fyrirtækisins. „Fjöldi fyrirtækja í byggingar- starfsemi og mannvirkjagerð á lista Framúrskarandi fyrirtækja hefur vaxið hratt undanfarin ár. Á listan- um í ár eru 127 fyrirtæki í greininni eða sexfalt fleiri en árið 2013 og tvö- falt fleiri en árið 2017,“ segir Jón Þórarinn. Vísar hann þar í fjölda fyrirtækja á listanum eins og hann lítur út nú, þegar enn eru fimm dag- ar í að listinn verður birtur. Getur fjöldi fyrirtækja á honum breyst að einhverju marki allt fram að þeim tíma, enda enn verið að yfirfara árs- reikninga fyrirtækja sem mögulega uppfylla öll skilyrði Creditinfo en af einhverjum ástæðum hefur þurft að yfirfara. Þegar Morgunblaðið fór í prentun í gær voru 853 fyrirtæki á listanum yfir Framúrskarandi fyrir- tæki 2021. Jón Þórarinn bendir á að heildar- fjöldi Framúrskarandi fyrirtækja hefur verið nánast sá sami frá 2017 þannig að hlutdeild byggingar- og mannvirkjageirans hefur vaxið tölu- vert á þessum tíma. „Miðgildi EBITDA hjá Framúr- skarandi fyrirtækjum í greininni lækkaði um 21% milli 2020 og 2021 og er nú t.a.m. 14% lægra en fyrir 4 árum. Þá lækkaði einnig miðgildi rekstrarhagnaðar um 17% og er nú á sama stað og fyrir 4 árum. Miðgildi rekstrartekna lækkaði um 3% frá síðasta ári en er þó um 27% hærra en fyrir fjórum árum,“ bendir Jón Þór- arinn á. Byggingageirinn í mikilli sókn á síðastliðnum árum Morgunblaðið/Eggert Framkvæmdir Margar stórar og smáar framkvæmdir hafa litið dagsins ljós síðustu ár. Sú stærsta þeirra er þó án efa nýr Landspítali við Hringbraut. - Sífellt fleiri fyrirtæki í greininni fylla Framúrskarandi-lista Creditinfo Skilyrðin » Ársreikningi skilað á réttum tíma lögum samkvæmt » Hefur skilað ársreikningi síðustu 3 ár » Virkt samkvæmt skilgrein- ingu CI » Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir síðustu 3 ár » Framkvæmdastjóri skráður » Rekstrarhagnaður (EBIT) já- kvæður síðustu 3 ár » Ársniðurstaða jákvæð síð- ustu 3 ár » Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár » Eignir að minnsta kosti 100 milljónir síðustu 3 árJón Þórarinn Sigurðsson 24 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 16. október 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.98 Sterlingspund 176.79 Kanadadalur 104.19 Dönsk króna 20.106 Norsk króna 15.276 Sænsk króna 14.941 Svissn. franki 139.98 Japanskt jen 1.1361 SDR 182.09 Evra 149.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.3675 « Þrjátíu og átta fyrirtæki, sjö sveitar- félög og átta opinberir aðilar hlutu fyrr í vikunni viðurkenningu Jafnvægisvog- arinnar, hreyfiaflsverkefnis FKA. Eliza Reid forsetafrú kynnti úrslitin. Þeir aðilar sem viðurkenninguna hlutu hafa náð að jafna hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar, en valið var úr hópi þeirra 152 þátttakenda sem undir- ritað hafa viljayfirlýsingu og tóku þátt í könnun um aðgerðir sem gripið var til. Í tilkynningu kemur fram að á ráð- stefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2020 hafi viðurkenningarhafar verið 45 tals- ins en í ár voru þeir samtals 53. Að hreyfiaflsverkefninu standa, auk FKA, forsætisráðuneytið, Sjóvá, Deloitte, Pipar\TBWA og Ríkisútvarpið. Í tilkynningunni segir að stór hluti þeirra þátttakenda sem skrifuðu undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar haustið 2020 hafi náð góðum árangri á þessu sviði. 53 fá viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar Viðurkenning Eliza Reid forsetafrú til- kynnti úrslitin að þessu sinni. STUTT Heildarvelta innlendra greiðslu- korta nam 84,5 milljörðum króna í septembermánuði og er það 7% veltuaukning miðað við sama mán- uð í fyrra. Skiptist umfangið með svipuðum hætti milli debet- og kreditkorta. Meðalvelta á dag var 2,8 milljarðar. Kemur þetta fram í nýbirtum hagtölum Seðlabanka Ís- lands.Velta innlendra greiðslukorta í verslunum nam 67,7 milljörðum innanlands í september. Í versl- unum erlendis nam veltan 14,5 milljörðum króna og er það aukn- ing um 657 milljónir frá ágústmán- uði en 6,2 milljörðum meira en í september í fyrra. Minni umsvif erlendis frá Þegar litið er til heildarveltu erlendra greiðslukorta á Íslandi í ágústmánuði kemur í ljós að hún nam 19,4 milljörðum króna. Er það 5,8 milljörðum minni velta en í mánuðinum á undan. Hins vegar er veltan allt önnur og meiri en í sama mánuði 2020 og eykst um 17,1 milljarð frá þeim tíma. Eyða meiru erlendis - Velta innlendra greiðslukorta eykst AUÐVELT, FLJÓTLEGT OG ÖFLUGT BYGGINGAKERFI Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is DVERGARNIR R NÝ VEFVERSLUNdvergarnir.is Bestu undirstöðurnar fyrir: SÓLPALLINN SUMARHÚSIÐ GIRÐINGUNA SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND ÞEGAR VERSLAÐ ER Á DVERGARNIR.IS Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.