Morgunblaðið - 16.10.2021, Side 26

Morgunblaðið - 16.10.2021, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Líftími frétta er kyndugt fyrirbæri. Stundum komast mál í hámæli og svo virðist sem við blasi glundroði og ringulreið. Síðan hverfur málið af ratsjá frétta- miðlanna eins og dögg fyrir sólu. Stundum er ástæðan sú að næsta mál ýtti því til hliðar, en að öðru leyti er allt óbreytt. Einnig kann að vera að málið ógurlega hafi kannski ekki ver- ið jafnmerkilegt og látið var. Ekki er langt síðan komst í hámæli að Bretar væru að verða bensínlausir og myndu ekki geta haldið jól. Bretar gátu vitaskuld sjálfum sér um kennt því þeir gengu úr Evrópusam- bandinu og nú væru engir vöru- bílstjórar til að koma bensíni á bensínstöðvar og jólagjöfum í búðir í tæka tíð og engir slátr- arar til að lóga svínum, sem því myndi þurfa að farga í tugþús- undavís. Við þessar fréttir hlakkaði í þeim, sem sagt höfðu að Brexit myndi leiða til hruns í Bret- landi, en hafa mátt horfa upp á að breskur efnahagur hefur síð- ur en svo goldið fyrir útgöng- una úr ESB. Reyndar hefur hann verið nokkuð þróttmikill og hremmingar Breta þær sömu og önnur lönd hafa verið að glíma við, jafnvel þótt þau séu í Evrópusambandinu. Þýskaland er gott dæmi. Í þýskum fjölmiðlum má nú lesa fréttir um að veru- legur skortur sé á vinnuafli. Það vanti bakara, vörubíl- stjóra og menn til að skrúfa saman vindmyllur. „Það fer að verða fátt um fólk til að halda landinu gangandi,“ sagði í frétt í Der Spiegel nýverið. „Manneklan gæti kæft efnahagslífið.“ Þjóð- verjar eiga erfitt með að manna leikskóla, tæpur helmingur arkitektastofa hefur þurft að draga saman seglin vegna þess að það vantar mannskap og regnhlífarsamtök stéttarfélaga iðnaðarmanna í Þýskalandi hafa áhyggjur af því að ekki verði hægt að koma áætlunum um framkvæmdir og viðhald í verk vegna skorts á iðnaðar- mönnum. Þá hafa flutninga- fyrirtæki í Þýskalandi lýst yfir því að þau eigi í vandræðum með að finna bílstjóra til að aka langar vegalengdir, segir í Der Spiegel, og er því bætt við að það sé fyllilega sambærilegt við Bretland, sem haft sé að háði og spotti. Bretar lýstu yfir því í gær að slakað yrði á reglum um er- lenda vörubílstjóra til að greiða fyrir flutningum. En mergurinn málsins er þó sá að flöskuháls- ana er víða að finna og megin- ástæðan er ef til vill frekar að- gerðir til að hemja kórónu- veiruna, en hvort menn fara inn eða út úr Evrópusambandinu eða eru þar um kyrrt. Vörubílstjóraskortur lætur víðar á sér kræla en í Bretlandi} Samhengi hlutanna Reykjavíkur- borg hefur nýlokið atkvæða- greiðslu þar sem fólk gat látið vita hverju það vildi að komið yrði í verk í sínu hverfi. Þetta kallar borgin íbúalýðræðis- verkefni og yfirskrift þess er Hverfið mitt. Að þessu sinni tóku 16,4% borgarbúa 15 ára og eldri þátt í verkefninu og slá borgaryfirvöld sér á brjóst yfir því að það hafi verið met- þátttaka. Það er góðra gjalda vert að gefa borgarbúum kost á að hafa áhrif á umhverfi sitt og láta vita á hvað þeir vilja láta leggja áherslu á tímum þegar valdið virðist fjarlægjast kjós- endur og valdhafarnir leggja frekar á flótta þegar á bjátar en að taka á málum af rögg- semi. Seint verður sagt að í kosningunni hafi stóru málin verið sett á dagskrá. Kosningin mun þó verða til þess að ýmsar þarfar endur- bætur verða gerðar. Margt af því, sem talið er upp í niðurstöðum kosninganna, er þó þess eðlis að hefði mátt ætla að þyrfti ekki að bera undir borgarbúa. Eru endurbætur á körfuboltavelli við Laugarnes- skóla eða leikvelli í Hljóm- skálagarði ekki hluti af sjálf- sögðu viðhaldi af hálfu borgar- innar? Þurfa borgaryfirvöld, sem leggja áherslu á að ýta undir hjólreiðar, að bera það undir borgarbúa hvort fjölga eigi hjólastæðum í miðborg- inni? Er ekki einfaldlega hlut- verk borgarinnar að bæta úr lýsingu þar sem henni er ábótavant? Verður næst borið undir borgarbúa hvort borgin eigi að sinna sorphirðu og snjóruðningi? Það er fullhástemmt að skreyta sjálfsagða þjónustu við borgarbúa með orðinu „íbúalýðræðisverkefni“, án þess að neitt sé dregið úr þarf- semi þeirra verkefna, sem í kosningunni komust á blað. Verður næst borið undir borgarbúa hvort borgin eigi að sinna sorphirðu og snjóruðningi?} Kosið um sjálfsagða hluti? H ér á landi hafa ýmis embætti verið sett á laggirnar í því skyni að standa vörð um hagsmuni ákveðinna hópa í samfélaginu. Sem dæmi má nefna Umboðsmann barna sem hefur það hlutverk að vernda börnin gegn því að brotið sé á réttindum þeirra. Réttinda- gæslumenn fatlaðs fólks gæta þess að ekki sé brotið gegn réttindum fatlaðra og veita þeim aðstoð við að fylgja eftir réttindum sínum. Á vegum Umboðsmanns Alþingis er starfrækt svokallað OPCAT-eftirlit sem hefur það hlutverk að fylgjast með því, hvort yfirvöld virða réttindi frelsissvipts fólks, svo sem í fangelsum og á geðheil- brigðisstofnunum. Það er löngu tímabært að tryggja eldra fólki sambæri- lega réttindavörslu. Aldraðir hafa lent utan garðs hjá stjórnvöldum sem taka ekki tillit til þeirra sem skyldi. Ekki er nóg með að lífsgæði aldraðra og sjálfstæði sé heft með því að skilja þá eftir varnarlausa gagnvart þeirri öru stafrænu þróun sem við þekkjum orðið vel. Sama hvað við hin höfum um hana að segja sem getum og höfum til- einkað okkur tæknina, þá treysta þúsundir aldraðra sér ekki til þess. Eldra fólk þarf oftar að eiga í samskiptum við hið opinbera en áður. Það sem þótti sjálfsagt og vafð- ist ekki fyrir í daglegu lífi getur með hækkandi aldri orð- ið að yfirþyrmandi hindrun sem veldur óöryggi, vanlíðan og kvíða. Sambandsleysi Ég bý við þau ómetanlegu forréttindi að eiga báða foreldra á lífi. Þar af leiðandi hef ég fengið að kynnast því hvernig breytingarnar á sam- félaginu, sem okkur hinum yngri þykja svo sjálf- sagðar, hafa verið þeim fjötur um fót. Öll sam- skipti við lífeyrissjóði, Tryggingastofnun, læknisþjónustu, og að skila skattframtalinu er óyfirstíganlegur þröskuldur sem þarf aðstoð við. Allt það sem kallar á .is eins og skilaboðin sem segja: farðu inn á heilsuvera.is eða farðu inn á tr.is, svo eitthvað sé nefnt, er gjörsamlega að taka þau úr sambandi. Sjálfstæði þeirra er möl- brotið í boði stjórnvalda sem hafa gleymt því í öllum flýtinum við að innleiða nýja tækni, að enn eru á lífi þúsundir Íslendinga sem einfaldlega treysta sér ekki til að vera með í þessari framþróun. Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt fram á Alþingi til- lögur um stofnun embættis hagsmunafulltrúa aldraðra. Loks sl. vor samþykkti þingið tillögu sem felur stjórn- völdum að semja frumvarp í samráði við helstu hags- munasamtök eldra fólks og skila drögum um málið fyrir 1. apríl 2022. Von mín er sú að komandi ríkisstjórn sýni öldruðum þá vinsemd og virðingu að færa þeim hags- munafulltrúann sem þau hafa beðið eftir allt of lengi. Léttum öldruðum lífið, það er það minnsta sem við getum gert. Inga Sæland Pistill Eldra fólk á sama rétt Höfundur er formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is L yfjastofnun hafði fengið 221 tilkynningu 13. októ- ber vegna gruns um al- varlega aukaverkun eftir bólusetningu gegn Covid-19. Búið er að bólusetja yfir 281.000 manns. Því hafði verið tilkynnt um aukaverk- anir hjá um 0,08% bólusettra. Alvarleg aukaverkun er skil- greind sem aukaverkun eða óæski- leg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkra- húsvistar eða lengingar á sjúkra- húsvist, veldur fötlun eða fæðing- argalla hjá mönnum. Með fósturmiska er átt við öll frávik frá eðlilegum vexti fósturs á meðgöngu, að sögn Lyfjastofnunar. Hún vísar í niðurstöður nýlegrar rannsóknar þriggja sérfræðinga á tilkynntum tilfellum í kjölfar bólu- setningar og vörðuðu m.a. áhrif á fóstur. Þar kom m.a. fram að nefnd- in telur tengsl á milli bólusetningar og tilkynninga um fósturlát hér á landi ólíkleg. Þessar tilkynningar flokkast samt sem áður sem alvar- legar tilkynningar. Samanburður á tölum um til- kynntar alvarlegar aukaverkanir til Lyfjastofnunar í júní í sumar og nú bendir til þess að tilkynningum hafi fjölgað fyrir öll bóluefnin, þótt hlut- föllin séu mjög lág. Lyfjastofnun segir ómögulegt að segja til um hvað valdi því að tilkynningum fjölgi eða fækki. Margt geti haft áhrif á það. Dæmi séu um að tilkynningar berist mörgum vikum og jafnvel mánuðum eftir að tilfelli komu upp. Orsakasamband óstaðfest Stofnunin segir mikilvægt að hafa í huga að um sé að ræða til- kynningar vegna gruns um auka- verkanir því orsakasamband við lyf- ið hafi ekki verið staðfest. Það sé í höndum sérfræðinga lyfjastofnana að skera úr um hvort svo sé. „Þeir meta þá til samanburðar aðra þætti, s.s. erfðir, undirliggjandi sjúkdóma eða samhliða notkun annarra lyfja, sem gætu skýrt kvillann sem um ræðir auk þess að skoða algengi í þýðinu til samanburðar. Ef orsaka- samband kvilla við lyf hefur verið staðfest eftir ítarlega skoðun lyfja- yfirvalda, eru lyfjatextar uppfærðir með upplýsingum um þekkta auka- verkun og getur það leitt til breyt- inga á notkun lyfsins.“ Hrefna Guðmundsdóttir yf- irlæknir Lyfjastofnunar, Jana Rós Reynisdóttir deildarstjóri sam- skiptadeildar og Guðrún Stef- ánsdóttur teymisstjóri lyfjagáttar sögðu í aðsendri grein í Morg- unblaðinu 4. október að þrátt fyrir að tilkynnt sé um aukaverkun jafn- gildir það ekki því að orsaka- samhengi við bólusetningu hafi ver- ið staðfest. Stakar tilkynningar um aukaverkanir segi lítið um möguleg orsakatengsl við tiltekið lyf, enda margt sem hafi áhrif á hvort til- kynnt er eða ekki. Vísbendingar eru t.d. um að konur séu líklegri að til- kynna grun um aukaverkun en karl- ar. Þetta er m.a. ástæðan fyrir því að ekki er hægt að reikna út tíðni aukaverkana með því að rýna í fjölda tilkynninga. Hvatt til að tilkynna um grun Lyfjastofnun kveðst hafa hvatt alla, jafnt heilbrigðisstarfsfólk, ein- staklinga og aðstandendur til að til- kynna grun um aukaverkun eftir bólusetningu gegn Covid-19 til stofnunarinnar. „Mikilvægt er að hafa hugfast að fjöldi tilkynninga vegna gruns um aukaverkun segir ekki til um tíðni raunverulegra aukaverkana eftir bólusetningu eða öryggi bóluefna. Slíkar tilkynningar eru notaðar til að fylgjast með ör- yggi lyfja eftir að notkun þeirra hefst og er það gert m.a. með því að meta hvort líkur séu á því að or- sakasamband sé milli lyfjanotkunar og þess tilviks sem tilkynnt er. Þannig er ekki víst að tilkynning- arnar endurspegli raunverulegar aukaverkanir af bóluefnunum,“ seg- ir Lyfjastofnun. Frá byrjun ársins og fram í september barst 31 tilkynning um andlát í kjölfar bólusetninga gegn Covid-19. Lyfjastofnun bendir á að flestar tilkynningarnar, eða alls átta, hafi borist í janúar 2021 þegar elsti og hrumasti hópurinn var bólu- settur. Embætti landlæknis gerði sérstaka rannsókn í kjölfar fimm fyrstu alvarlegu tilkynninganna vegna gruns um aukaverkun. Nið- urstaða tveggja sérfræðinga í öldr- unarlækningum var að í fjórum til- vikanna hafi ekki verið eða ólíklega um orsakatengsl að ræða, þ.e. aðrar skýringar voru á andláti. Í einu til- viki var ekki hægt að útiloka tengsl með vissu þótt líklega hefði andlátið verið af völdum undirliggjandi ástands. Grunur er ekki stað- festing á aukaverkun 0,07% 0,16% 0,12% 0,03% Tilkynningar vegna gruns um aukaverkanir Grunur um alvarlegar aukaverkanir sem% af bólusettum við Covid-19 0,20% 0,15% 0,10% 0,05% 0% Pfizer Moderna AstraZeneca JanssenHeimild: Lyfjastofnun/Covid.is Fjöldi bólusettra einstaklinga 147.392 20.253 59.773 53.937 Tilkynningar til Lyfjastofnunar vegna gruns um aukaverkanir Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Alvarlegar tilkynningar 102 0,07% 32 0,16% 73 0,12% 14 0,03% Andlát 24 0,02% 1 0,00% 6 0,01% 1 0,00% Þar af 75 ára og eldri 18 0,01% Þar af 65-74 ára 5 0,00% 1 0,00% 3 0,01% 1 0,00% Þar af 60-64 ára 1 0,00% 3 0,01% Sjúkrahússvist 54 0,04% 25 0,12% 54 0,09% 10 0,02% Þar af í lífshættu 9 0,01% 2 0,01% 19 0,03% 2 0,00% Klínískt mikilvægar 16 0,01% 2 0,01% 12 0,02% 2 0,00% Fósturmiski 4 0,00% 3 0,01% 1 0,00% 1 0,00% Tegund bóluefnis

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.