Morgunblaðið - 16.10.2021, Side 33

Morgunblaðið - 16.10.2021, Side 33
Katrín Jakobs- dóttir forsætisráð- herra; Bjarni Bene- diktsson fjár- málaráðherra; Sigurður Ingi Jó- hannsson samgöngu- ráðherra: Landssamband eldri borgara leyfir sér að senda ykkur helstu áhersluatriði eldra fólks, sem tekin voru saman af formönnum nokkurra stærstu félaga innan sambandsins, sam- þykkt á formannafundi allra félag- anna 55 og loks á landsfundi sam- takanna í vor. Þessi áhersluatriði hafa verið kynnt öllum stjórn- málaflokkum sem buðu fram til síðustu alþingiskosninga, verka- lýðshreyfingunni, samtökum at- vinnurekenda, samtökum sveitar- félaga og víðar og eru ítrekuð hér sem innlegg í yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður. Við leyfum okkur að fullyrða að þessum hugmyndum okkar hefur alls staðar verið vel tekið og við teljum að þær hafi átt hljómgrunn og orðið hluti af kosningabar- áttunni. Má sér- staklega geta já- kvæðra viðbragða fulltrúa ykkar á kynningarfundum LEB. Enn einu sinni er komið að efndum á loforðum um bætta þjónustu við eldra fólk og bættan hag þess. Eldra fólk hefur lagt fram kröfu um að fá að vinna eins og það vill og að frítekjumark af lífeyris- og atvinnutekjum þess verði hækkað. Eldra fólk vill að starfslok miðist við færni en ekki aldur, að heilsugæslan verði vagga öldrunarþjónustunnar, að til verði millistig í búsetukostum á milli heimilis og hjúkrunarheimilis og að lög um málefni þeirra verði einfölduð til muna. Hjálögð eru ítarleg áherslu- atriði okkar sem kynnt voru í vor og það er von okkar að þau rati í stjórnarsáttmála ykkar. 1. Eldra fólk fái að vinna eins og það vill Almennt frítekjumark verði 100.000 kr. Eftirlaunafólk fái að vinna eins og því sýnist án skerð- inga í almannatryggingakerfinu og njóti afraksturs vinnu sinnar eins og aðrir. Lágmarkslífeyrir verði aldrei lægri en umsamin lágmarks- laun á almennum vinnumarkaði. Ellilífeyrir og frítekjumörk hækki árlega samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands. 2. Starfslok miðist við færni en ekki aldur Það er réttlætismál að eldra fólk fái að miða starfslok sín við áhuga, færni og getu en þurfi ekki að hætta virkri þátttöku í atvinnulíf- inu eingöngu vegna aldurs. Aldurs- tengdar viðmiðanir sem fara í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrár- innar ætti að fella úr allri lagasetn- Opið bréf til formanna stjórnmálaflokka við ríkisstjórnarmyndun Eftir Helga Pétursson »Enn einu sinni er komið að efndum á loforðum um bætta þjónustu við eldra fólk og bættan hag þeirra. Helgi Pétursson Höfundur er formaður Lands- sambands eldri borgara. formadur@leb.is ingu, en leggja þess í stað áherslu á þekkingu, reynslu, hæfni og menntun fólks óháð aldri. 3. Heilsugæslan verði vagga öldrunarþjónustunnar Til að eftirlaunafólk geti lifað mannsæmandi lífi heima hjá sér með reisn þurfa ríki og sveit- arfélög að stórauka samvinnu sína með það að markmiði að heilsu- gæslan verði vagga öldrunarþjón- ustunnar. Öll fjárframlög taki mið af þessu. Heilsugæslan nálgist eldra fólk fyrr á lífsleiðinni með samhæfðri teymisvinnu lækna, hjúkrunarfræðinga og fé- lagsþjónustu sveitarfélaga og haldi því sambandi. Velferðar- tækni ætti að vera mikilvægur þáttur í öryggi og bættri aðstöðu í heimahúsum eldra fólks. Þáttur aðstandenda verði metinn til launa með umönnunarálagi. Stofn- un öldrunargeðdeildar fyrir fólk með sértækar þarfir er forgangs- mál. 4. Millistig milli heimilis og hjúkrunarheimilis Ljóst er að búseta á eigin heim- ili hentar ekki öllum, þótt þeir þurfi ekki dvöl á hjúkrunarheim- ili. Búsetuúrræði fyrir eldra fólk eru hins vegar alltof fábreytt. Það vantar millistig milli búsetu á eig- in heimili og hjúkrunarheimili. Brýnt er að byggja upp þannig búsetuform til hagsbóta fyrir eldra fólk og þá ekki síður fyrir velferðarkerfið, sem er á forræði ríkis og sveitarfélaga. Fjármunum Framkvæmdasjóðs aldraðra verði einungis varið til byggingar stofnana fyrir aldraða og til að mæta kostnaði við nauð- synlegar breytingar og endur- bætur á húsnæði sem notað er til þjónustu við þá eins og kveðið er á um í lögum. 5. Ein lög í stað margra laga- bálka Um málefni sem varða eldra fólk sérstaklega gilda of margir og of sundurleitir lagabálkar, þar á meðal almannatryggingalögin. Einfalda þarf lagaumhverfið og gera það skilvirkara meðal annars með því að skilja að lög um eldra fólk og öryrkja. Tryggja þarf að- komu eldra fólks að þeirri endur- skoðun. UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 ganga. Kór Hólaneskirkju syngur. Organisti er Hugrún Sif Hallgrímsdóttir. Bryndís Valbjarnardótt- ir sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. HVERAGERÐISKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 12.30. Umsjón hafa Unnur Birna og sr. Ninna Sif. Kvöldmessa kl. 20. Kirkjukórinn syngur ljúfa tóna, hefðbundna messuformið brotið upp. Prestur er Ninna Sif. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma með lofgjörð, fyrirbænum og barnastarfi kl 13. Edda Swan prédikar. Kaffi að samverustund lok- inni. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Séra Fritz Már Jörgensson þjónar fyrir altari. Arnór Vilbergsson og kór Keflavíkurkirkju færa okkur söng og fallega tónlist. Orgeltónleikar í Keflavík- urkirkju sunnudag kl. 17. Kirkjuselið í Spöng | Selmessa sunnudag kl. 13. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Hákon Leifsson. KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar. Kirkjukór Hvera- gerðis- og Kotstrandarsókna syngur, organisti er Miklós Dalmay. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 í safnaðarheimilinu Borgum. Sr. Sjöfn Jóhannes- dóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar í Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Má- téová. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðar- AKUREYRARKIRKJA | Sunnudagaskóli í Safn- aðarheimilinu kl. 11. Umsjón Sonja Kro og Hólm- fríður Hermannsdóttir. Bleik messa kl. 20. Bernharð Arnarson og Hólmar Erlu Svansson flytja hugvekju. Anna Skagfjörð, Elvý G. Hreinsdóttir og Eyþór Ingi Jónsson sjá um tónlistina. Prestur er Stefanía G. Steinsdóttir. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Barn borið til skírnar. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Hrafnkels Karlssonar og sr. Petrína Mjöll Jó- hannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnu- dagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnarsdóttur og Thelmu Rós- ar Arnarsdóttur. Kaffi og spjall á eftir stundinni. ÁSKIRKJA | Barnastarf og lesmessa kl. 13. Jó- hanna María Eyjólfsdóttir djákni annast samveru- stund sunnudagaskólans. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffisopi í Ási að guðsþjónustu lokinni. ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 17. Barnakór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Dav- íðs Sigurgeirssonar. Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg mun fjalla um Miskunnsama Samverjann. Með honum þjónar sr. Sigurður Már Hannesson skóla- prestur. Heitur matur á eftir guðsþjónustu. BESSASTAÐAKIRKJA | Kirkjudagurinn. Guðs- þjónusta kl. 14. Álftaneskórinn og Garðálfarnir syngja undir stjórn Ástvaldar organista. Fiðluleik- arar Kristín Björg og Ástrós Þóra. Ræðumaður: Frú Eliza Reid. Sr. Hans Guðberg, Vilborg Ólöf djáknanemi og Margrét djákni þjóna ásamt konum úr kvenfélagi Álftaness. Kvenfélag Álftaness sér um kirkjukaffi að athöfn lokinni í Brekkuskógum. Tekið á móti frjálsum framlögum sem renna til Líknarsjóðs Álftaness. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni hafa Sigrún Ósk, Pétur og Þórarinn. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar. Kór Breiðholtskirkju syngur organisti er Örn Magnússon. Sunnudaga- skóli á sama tíma í umsjón Steinunnar Þorbergs- dóttur djákna. Alþjóðlegi söfnuðurinn í Breiðholts- kirkju. Messa kl. 14. Prestar sr. Toshiki Toma og sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. BÚSTAÐAKIRKJA | Bleikur október í Bústaða- kirkju. Guðsþjónusta sunnudag kl. 13. „Úti er allt- af að snjóa“. Jón Múli Árnason 100 ára. Einsöngv- arar úr Kammerkór Bústaðakirkju ásamt Jónasi Þóri flytja lög Jóns Múla. Séra Eva Björk Valdimars- dóttir þjónar fyrir altari. Barnamessa kl. 11. Sóley Adda, Jónas Þórir og séra Eva Björk leiða stund- ina. DIGRANESKIRKJA | Guðsþjónusta með altaris- göngu sunnudag kl. 11. Sr. Helga Kolbeinsdóttir. Samkór Reykjavíkur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur Sunnudagaskóli er samtímis í kapell- unni á neðri hæð Digraneskirkju í umsjá leiðtoga. Öll börn hjartanlega velkomin! Kaffi og kleinur í kapellu kirkjunnar á neðri hæð að messu og sunnudagsakóla loknum. Hjallakirkja kl. 17. Sr. Karen Lind Ólafsdóttir. Gospelkórinn Vox Gospel. Stjórnandi er Matthías V. Baldursson. Matur og samvera að messu lok- inn.i DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Sveinn Val- geirsson, Kári Þormar og Dómkórinn. Æðruleys- ismessa klukkan 20, prestarnir Fritz, Díana og Sveinn þjóna. EGILSSTAÐAKIRKJA | Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 10.30. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir leiðir stundina ásamt leiðtogum sunnudagaskólans. Barnakór Egils- staðakirkju syngur, stjórnandi Torvald Gjerde. Hressing og litamynd í lokin. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Kaffi- sopi eftir stundina. Meðhjálpari Helga Björg Gunn- arsdóttir. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðsþjón- usta sunnudag kl. 14. Séra Hjörtur Magni, safnaðarprestur, leiðir stund- ina. Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Álf- heiðar Björgvinsdóttur. Sönghópurinn við Tjörnina og hljómsveitin Mantra leiða sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni. Fermingarfjölskyldur sér- staklega boðnar til guðsþjónustu. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Kór Grafar- vogskirkju leiðir söng. Orgainsti er Hákon Leifs- son. Sunnudagaskóli er á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir og Val- björn Snær Lilliendahl. Siglfirðingamessa verður kl. 14. Guðsþjónustan er á vegum Siglfirðingafélagsins. Prestar og djákn- ar tengdir Siglufirði þjóna. Alma Möller landlæknir flytur hugleiðingu. Hlöðver Sigurðsson syngur ein- söng. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti er Antonía Hevesi og kirkjukór Grensáskirkju leiðir sönginn. Sr. Þorvaldur Víðisson þjónar ásamt messuþjónum. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjón- usta og sunnudagaskóli kl. 11. Pálínuboð Ingunn- arskóla Sr. Leifur Ragnar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Hrannar Helgadóttur organista. Hvetj- um fermingarbörn og foreldra þeirra að koma í messuna. Fermingarbörn úr Ingunnarskóla bjóða upp á veit- ingar eftir messuna. Sunnudagaskóli í safnar- heimili í umsjá sr. Péturs Ragnhildarsonar og Ástu Guðmundsdóttur. Kirkjuvörður er Lovisa Guð- mundsdóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Bleik messa kl. 11. Ræðukona bleikrar messu verður Hildur Hilm- arsdóttir stofnandi Krafts. Sr. Jónína Ólafsdóttir sóknarprestur þjónar, Kristín Jóhannesdóttir leik- ur á orgel, félagar úr Barbörukórnum syngja, Árný Steindórsdóttir og Emilía Borgþórsdóttir lesa ritn- ingarvers. Bleikar makkarónur með kaffinu á eftir messu. Nánar: www.hafnarfjardarkirkja.is HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Eiríkur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messu- þjónar aðstoða. Forsöngvarar syngja og leiða safnaðarsöng. Nemandi úr söngskólanum syngur einsöng. Organisti er Steinar Logi Helgason. Barnastarf í umsjón Ragnheiðar Bjarnadóttur og Rósu Hrannar Árnadóttur. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kordíu, kór Háteigskirkju syngja. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Ingibjörn Natan Guðmunds- son leikur for- og eftirspil. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnudag er guðs- þjónusta kl. 17. Sr. Karen leiðir stundina ásamt VOX GOSPEL undir stjórn Matthíasar V. Baldurs- sonar. Heitur matur í safnaðarsal eftir stundina gegn vægu gjaldi. HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Sunnudaga- skóli kl. 11. Sunnudagaskólinn er gæðastund. Við syngjum, heyrum biblíusögu og Mýsla og Rebbi koma í heimsókn. Guðsþjónusta kl. 17. Fermingarbörn foreldrar ættingjar og vinir eru hvött til að koma. Altaris- heimilinu í umsjón Laufeyjar Brár Jónsdóttur og Hjördísar Perlu Rafnsdóttir. LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Sara Gríms leiðir stundina og Krúttakór syngur undir stjórn Bjargar Þórsdóttur og Móeiðar Krist- jánsdóttur. Léttur hádegisverður í boði eftir messu. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju leiðir lof- gjörð undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guð- mundur Karl Brynjarsson þjónar. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Óli og Bára leiða stundina og Tómas Guðni spilar á pí- anóið. Það verður söngur, saga, líf og fjör - og væntanlega lítur Rebbi við. Guðsþjónusta kl. 13, Kirkjudagur Rangæinga. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar og þjónar fyr- ir altari. Karólína Rut Lárusdóttir sópran syngur einsöng. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng og organisti er Tómas Guðni Eggertsson. Rangæing- afélagið býður upp á kaffi í safnaðarsalnum að at- höfn lokinni. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Að ávarpa Guð í bæn. Sr. Bryndís Malla Elí- dóttir talar. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Birkir Tjörvi Pálsson nem- andi í Söngskólanum í Reykjavík syngur einsöng. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. Sólveig Ragna, sr. Bára og Messíana sjá um sunnudagaskólann. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safnaðarheimilinu. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Prestsþjónustuna annast sr. Axel Á Njarðvík. Org- anisti er Jón Bjarnason. VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 10 í Urrðaholtsskóla. Guðsþjónusta og sunnudaga- skóli kl. 11 í Vídalínskirkju. Sr. Sveinbjörn R. Einarsson predikar og þjónar fyrir altari. Fé- lagar í kór Vídalínskirkju syngja og Jóhann Bald- vinsson er organisti. Messukaffi. Gospelgleði í Vídalínskirkju kl. 20. Gospelkór Jóns Vídalíns syngur og Davíð Sigurgeirsson kórstjóri leikur undir á gítar og Ingvar Alfreðsson á píanó. Matt- hildur Bjarnadóttir æskulýðsprestur hugleiðir og leiðir stundina. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Bleik messa sunnudag kl. 17. Sr. Stefán Már Gunnlaugsson héraðsprestur þjónar fyrir altari og Brynja Björk Gunnarsdóttir, formaður stuðningsfélagsins Brjóstaheill samhjálp kvenna, flytur hugleiðingu. Konur úr Kirkjukórnum syngja undir stjórn Sveins Arnars organista. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Næstkomandi sunnu- dag (17. okt.) verður Taizemessa í Ytri-Njarðvík- urkirkju kl. 20. Sr. Brynja Vigdís þjónar fyrir altari og félagar úr kirkjukórnum leiða söng undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Norðurland vestra Breiðabólstaðarkirkja. Messur á morgun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.