Morgunblaðið - 16.10.2021, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 43
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Tvö embætti héraðsdómara
laus til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laus til umsóknar tvö embætti héraðsdómara. Annars vegar embætti dómara með fyrsta
starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur sem skipað verður í frá 3. janúar 2022. Hins vegar embætti dómara með
fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Suðurlands sem skipað verður í frá 28. febrúar 2022.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020 er
áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu
af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum
störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun,
7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl.,
8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/núverandi
samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega
upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 970/2020 og 11) aðrar upplýsingar sem
varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf héraðsdómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlega fluttum
málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem
umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi
hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær
tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda
til starfa sem héraðsdómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 1. nóvember nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og
bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á
netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
15. október 2021.
Póstdreifing er dreifingarfyrirtæki
sem dreifir dagblöðum, tímaritum,
fjölpósti og ýmsu öðru
dreifingarefni.
Fyrirtækið keppir að því að vera í
forystu á sviði dreifingar með því
að bjóða víðtæka og áreiðanlega
þjónustu á góðu verði.
Umsóknir óskast fylltar út á www.postdreifing.is. Viðkomandi þarf að
geta hafið störf fljótlega. Sendu póst á bladberi@postdreifing.is fyrir
nánari upplýsingar.
Frábærar aukatekjur fyrir duglegt og ábyrgt fólk.
BLAÐBERAR ÓSKAST
Póstdreifing óskar eftir að ráða blaðbera á höfuðborgarsvæðinu.
Dreifing fimm daga vikunnar, þriðjudaga til laugardaga fyrir
klukkan 7 á morgnana.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
intellecta.is