Morgunblaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Varðskipið Freyja lagðist að Faxagarði í Reykjavíkur um fjögurleytið í gær, en þetta er í fyrsta sinn sem hið nýja varðskip kemur til Næstu daga verður tölvukerfi sett upp í Freyju sem og annar búnaður sem tilheyrir störfum gæslunnar, auk þess sem björg- unarbúnaður verður fluttur af Tý yfir í Freyju. Gert er ráð fyrir að Freyja haldi í sína fyrstu eftirlitsferð um Íslandsmið hinn 22. nóvember. höfuðborgarinnar. Hitti Freyja þar fyrir varð- skipið Þór og voru varðskipin tvö tignarleg, þar sem þau lágu við bryggju. Freyja kom til hafnar í Reykjavík í fyrsta sinn Freyja hitti Þór í fyrstu Reykjavíkurferðinni Morgunblaðið/Árni Sæberg Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Forstöðumaður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins telur ekki að umræða sé í fyrirtækjum á almenn- um vinnumarkaði hér á landi að gera bólusetningu starfsfólks gegn kórónuveirunni að skyldu. Hann bendir á að til séu vægari úrræði til að auka öryggi á vinnustöðum, til dæmis skimanir, og bendir á að boðið sé upp á hraðpróf sem gefi góða vís- bendingu um það hvort fólk er smitað eða ekki. Skylda í Bandaríkjunum Bandaríkjastjórn stefnir að því að skylda alla starfsmenn hjá alríkis- stjórninni til að láta bólusetja sig. Þessi skylda mun einnig ná til allra heilbrigðisstofnana sem vinna fyrir opinbert sjúkratryggingakerfi lands- ins. Joe Biden forseti tilkynnti þetta á dögunum og hafa orðið harðar um- ræður um málið. Þá mun atvinnu- málaráðuneyti Bandaríkjanna gefa út reglur sem skylda alla vinnustaði þar sem fleiri en hundrað starfa til að tryggja bólusetningu starfsmanna sinna eða sjá til þess að þeir séu skim- aðir vikulega vegna Covid-19. Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnu- lífsins, bendir á að staðan á Íslandi sé önnur er í Bandaríkjanum þar sem mun fleiri íbúar þar séu neikvæðir gagnvart bólusetningum en hér. „Það er engin umræða hjá okkur um að gera bólusetningar starfs- manna að skyldu, ekki frekar en í flestum þeim löndum sem við berum okkur saman við,“ segir Ragnar og bendir á að til séu vægari úrræði til að draga úr hættu á að smit berist um vinnustaði og lami starfsemina því boðið sé upp á hraðpróf sem teljist nokkuð örugg vísbending um það hvort fólk sé smitað eða ekki. „Með tilkomu hraðprófanna geta fyrirtæki þar sem starfsfólkið vinnur í miklu návígi eða þjónar viðkvæmum hópum sett upp reglubundnar skimanir til að draga úr möguleikum á að smit sé í hópnum.“ Skylda til skimunar sé minna inngrip í einkalíf starfsfólks en skylda til bólusetningar. Tekur Ragnar fram að hann hafi ekki heyrt af að fyrirtæki væru að setja upp miklar áætlanir um reglu- bundnar skimanir með hraðprófum. Það eigi kannski frekar við í opinbera geiranum, til dæmis hjá stærri heil- brigðisstofnunum, þar sem starfs- fólkið er í samskiptum við fólk úr við- kvæmum hópum. Skyldubólusetning ekki rædd Morgunblaðið/Unnur Karen Suðurlandsbraut Fyrirtæki geta nýtt sér reglubundnar skimanir með hraðprófum til þess að lágmarka hættu á smiti á vinnustaðnum. - Forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA bendir á að til séu vægari úrræði en að skylda starfsfólk til bólusetningar - Reglubundin hraðpróf eru annar möguleiki Guðný Bjarnadóttir læknir greinir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag frá því að Kristinn E. Andrésson, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri Tímarits Máls og menningar, hafi misnotað hana kynferðislega í tví- gang þegar hún var einungis níu ára gömul. Segir hún svo frá að sér hafi verið boðið heim til Kristins og Þóru Vig- fúsdóttur, eiginkonu hans, til þess að lesa Sálminn um blómið, en Kristinn og Þóra voru vinahjón foreldra Guð- nýjar, og bókin ekki til á heimili henn- ar. Greinir Guðný frá því að þegar hún var búin að koma sér fyrir í sófa í stof- unni hjá þeim hafi Þóra farið fram, en Kristinn þá byrj- að að þukla á henni. Þegar Guðný komst und- an sagðist hún þurfa að fara heim, og keyrði Kristinn hana þangað. Á leiðinni spurði hann Guð- nýju hvort hún vildi koma með sér upp í Heiðmörk, en Guðný neitaði og Kristinn hafi því keyrt hana heim. Guðný segir einnig að nokkrum mánuðum síðar hafi Kristinn misnot- að hana með svipuðum hætti á hennar eigin heimili, en þar var hann mættur óvænt til þess að gefa foreldrum Guð- nýjar bók. Þá hafi Kristinn einnig ítrekað reynt að fá hana aftur í heim- sókn, en hún neitað. Segir Guðný í greininni að hún hafi þagað yfir þessu og skammast sín í áratugi. Hún hafi sagt maka sínum frá þessu, en ekki foreldrum sínum, og ákveðið að þau fengju að deyja án þess að vita. „Sjálf vona ég að mér takist nú að skila skömminni frá mér, nú loksins þegar ég kem mér að því að skrifa um þessa lífsreynslu, sem ég hefði svo sannarlega viljað vera án þegar ég var níu ára gömul, nú sextíu árum síð- ar,“ segir Guðný í niðurlagi greinar sinnar. »15 Segir Kristin E. hafa mis- notað hana kynferðislega - Vill skila skömminni sextíu árum eftir meint brot Kristins Kristinn E. Andrésson Alvarlegt umferðarslys varð á Moldhaugnahálsi rétt fyrir kl. 13:00 í gær, þegar tvær bifreiðar skullu saman. Voru ökumenn beggja bif- reiða fluttir á sjúkrahúsið á Ak- ureyri ásamt farþega í annarri bif- reiðinni. Engar frekari upplýsingar var að fá um líðan fólksins í gær- kvöldi. Þurfti að loka hringveginum vegna slyssins og var hann opnaður um hálffimmleytið í gær. Alvarlegt umferð- arslys á hringvegi Kjörstjórn Kennarasambands Ís- lands ákvað í gær að bæta við sólar- hring í formannskjöri sambandsins. Lýkur því atkvæðagreiðslunni kl. 14 í dag. Var ákvörðunin tekin vegna bilunar á innri vef félagsins, sem gerði það að verkum að fé- lagsmenn komust illa inn í kosn- ingakerfið. Sagði á heimasíðu sambandsins að kosningakerfið væri komið í lag en að gera mætti ráð fyrir að kerfið myndi vera hægt áfram. Ætti fólk því að reyna aftur síðar, ef gengi illa að greiða atkvæði. Kjörsókn var 48,45% á hádegi í gær. Frestur til að kjósa í KÍ framlengdur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.