Morgunblaðið - 09.11.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta haust er búið að vera erfiðara
en mörg önnur. Það er einfaldlega
ekki hægt að þenja kerfið meira út,“
segir Sigrún Hulda Jónsdóttir, með-
stjórnandi í stjórn Félags stjórn-
enda leikskóla og leikskólastjóri í
Kópavogi.
Um helgina var birt á netmiðlum
nafnlaust bréf frá leikskólakennara í
Hafnarfirði þar sem hann bað börn
og foreldra afsök-
unar á því að geta
ekki sinnt starfi
sínu nægilega
vel. Í umræddu
bréfi er rakið að
starfsfólk sé að
sligast undan
álagi vegna
manneklu sem
komi til vegna
veikinda starfs-
fólks, vinnu-
tímastyttingar og fjarveru kennara
við umönnun og kennslu sem ekki sé
bætt með afleysingafólki. Of mörg
börn séu á hvern starfsmann og of
lítið rými fyrir börn og starfsmenn.
„Því miður held ég að þetta sé
raunin í flestöllum leikskólum lands-
ins eins og staðan er í dag,“ segir
Sigrún sem hefur rætt við kollega
sína í nokkrum sveitarfélögum. „Það
er knappt gefið í starfsmannahaldi
og hefur lengi verið. Róðurinn er þó
þyngri núna því sveitarfélög hafa
biðlað til stjórnenda að draga saman
seglin og fara ekki umfram í ráðn-
ingum og öðru. Til viðbótar kemur
vinnutímastytting. Það segir sig
sjálft að þegar starfsmaður fer út og
enginn kemur í staðinn þá eykst
álagið á þá sem eftir eru. Stakk-
urinn var þröngur fyrir og nú er
hann sprunginn.“
Þá eru ótalin ýmis atriði tengd
kórónuveirunni sem hafa gert
mönnun erfiðari en áður. Starfsfólk
hefur þurft að fara í sóttkví eins og
aðrir. Meira er um veikindi en áður
var enda vill fólk síður mæta slappt
til vinnu og smita aðra í kringum sig
að sögn Sigrúnar. „Svo er eitt enn
sem hefur komið okkur verulega á
óvart. Þótt það sé 7-8% atvinnuleysi
þá skilar það sér ekki í umsóknum á
leikskóla. Þó svo að við ætluðum að
fara þá leið að ráða umfram í stöður
þá er mannskapurinn einfaldlega
ekki til staðar. Þetta er því hálfgerð
pattstaða,“ segir Sigrún.
Leikskólastjórinn segir að það
svíði að hlusta á sveitarstjórnar-
menn lofa því að fleiri börn verði
tekin inn og kerfið þanið enn meira
út. Hún telur að skilgreina þurfi
vandann betur. „Sveitarstjórnar-
menn vilja brúa bilið frá fæðingar-
orlofi, sem er göfugt markmið. En á
meðan fagmenntun í leikskólum er
ekki meiri og aðbúnaður ekki betri
en raun ber vitni – rými barna í leik-
skólum hér er minna en í nágranna-
löndunum og börn dvelja lengur í
skólunum hér en annars staðar –
erum við kannski ekki að skapa þær
aðstæður sem okkur er uppálagt að
veita börnunum.“
Hún rifjar upp að fréttir hafi ný-
verið birst af kulnun hjá
grunnskólakennurum. „Ég held að
ástandið sé ekki skárra hjá
leikskólakennurum.“
Hún segir að eins árs gömul börn
séu gjarnan í leikskóla í 8-9 tíma á
dag. „Ímyndaðu þér bara að vera í
63 fermetra rými með 18-20 öðrum
börnum og þremur fullorðnum í all-
an þann tíma. Álagið á slíkum stað
er geigvænlegt. Fólk fær nóg eftir
2-3 tíma í barnaafmælum við þessar
aðstæður.“
Sigrún segir aðspurð að hún
myndi vilja bæta kerfið með því að
lengja fæðingarorlof til 18 mánaða
og bjóða foreldrum sem það vilji að
þiggja heimgreiðslur sem nema nið-
urgreiðslu sveitarfélagsins til
þriggja ára aldurs. Þær greiðslur
nema gjarnan um 250 þúsund krón-
um. „Þótt þetta séu ekki háar upp-
hæðir fyrir foreldra hefðu þeir þetta
val og það myndi létta á kerfinu.“
Þá kveðst hún vilja að tímafjöldi
dag hvern verði takmarkaður og
rými stækkuð. Auk þess væri rétt að
hennar mati að leikskólar væru lok-
aðir í vetrarfríum, milli jóla og nýárs
og um páska.
Segir álagið
„geigvænlegt“
- Leikskólastjóri segir breytinga þörf
Morgunblaðið/Eggert
Leikskóli Starfsfólk leikskóla er
sagt vera að sligast undan álagi.
Sigrún Hulda
Jónsdóttir
Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavík
Global Forum – Women Leaders,
hefst í dag í Hörpu, en þetta er í fjórða
sinn sem heimsþingið er haldið. Yf-
irskrift þingsins að þessu sinni er ,,Po-
wer together for progress“ og er Vig-
dís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti
Íslands, sérstakur verndari Heims-
þingsins líkt og fyrri ár. Um 600 kven-
leiðtogar úr stjórnmálum, viðskiptum,
fjölmiðlum, vísindum og víðar frá um
90 löndum taka þátt, þar af um 200 í
Hörpu og 400 með rafrænum hætti
hvaðanæva úr heiminum.
Heimsþing kvenleiðtoga
haldið í fjórða sinn
Morgunblaðið/Unnur Karen
Ráðstefna Undirbúningur ráðstefnunnar var í fullum gangi í gærkvöldi.
Stefnt er að því að senda út 10.000
SMS-boð á föstudag vegna örvunar-
bólusetningar sem fer fram á mánu-
dag, 15. nóvember. Svo verða jafn
mörg boð send á mánudag vegna
þeirra sem boðaðir eru á þriðjudag
og svo koll af kolli, að sögn Ragn-
heiðar Óskar Erlendsdóttur, fram-
kvæmdastjóra hjúkrunar hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
bólusett með Pfizer-bóluefni í aðalsal
Laugardalshallar á mánudögum,
þriðjudögum og miðvikudögum frá
15. nóvember til 8. desember.
Margir hafa þegar fengið örvunar-
bólusetningu. Það eru 70 ára og
eldri, heimilisfólk hjúkrunarheimila
og heilbrigðisstarfsmenn í framlínu.
Þeir sem verða boðaðir nú eru að-
allega 60 ára og eldri og fólk með
undirliggjandi sjúkdóma sem var
bólusett á vormánuðum. Miðað er
við að liðnir séu minnst sex mánuðir
frá því fólk fékk aðra sprautuna.
„Við biðlum til fólks að mæta í
bólusetninguna og vonum að það
drífi sig til okkar,“ sagði Ragnheiður
Ósk. Líða þurfa tvær vikur frá því
fólk fékk inflúensubólusetningu þar
tl það má fá örvunarsprautu gegn
Covid. „Ef fólk fær boð og er nýbúið
að fá inflúensubólusetningu þá getur
það komið þegar þessar tvær vikur
eru liðnar. Það þarf ekki að fá nýtt
boð heldur notar bara sama boðið.“
Fólk er minnt á að mæta í stutt-
ermabol í bólusetninguna.
Undanfarna mánuði hafa 500 –
1.000 manns mætt í bólusetningu
gegn Covid-19 á hverjum virkum
degi á Suðurlandsbraut 34. Þeir sem
þegar hafa fengið örvunarbólusetn-
ingu skipta orðið þúsundum.
Í fyrradag greindust 117 með kór-
ónuveiruna innanlands. Þar af voru
66 í sóttkví. Af þeim sem greindust
voru 45 óbólusettir. Fimm smit
greindust á landamærunum. Á
sjúkrahúsi voru 18 og þar af fimm á
gjörgæslu. Í einangrun voru 1.157 í
gær og 2.410 í sóttkví. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Bólusetning Stöðugur straumur fólks hefur verið í örvunarbólusetningu á Suðurlandsbraut 34 undanfarið.
Senda út boð í þriðju
sprautu fyrir helgina
- Átak vegna örvunarbólusetninga hefst á mánudaginn
175
150
125
100
75
50
25
0
júlí ágúst september okt. nóv.
Staðfest smit
7 daga meðaltal
H
ei
m
ild
:c
ov
id
.is
kl
.1
3
.0
0
íg
æ
r2.410 einstaklingar
eru í sóttkví
Fjöldi innanlands-
smita frá 12. júlí
239 eru í
skimunarsóttkví1.157 eru með virkt smit
og í einangrun
18 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar affimmá gjörgæslu
303 ný innanlandssmit
greindust sl. helgi
(fös. 5. til sun. 7. nóvember)
Brynjar Níelsson
varaþingmaður
er gestur á opnum
hádegisfundi á morgun,
miðvikudaginn
10. nóvember, kl. 12:00
í Valhöll.
Allir velkomnir!
Fundur!
Samtaka eldri sjálfstæðismanna