Morgunblaðið - 09.11.2021, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021
Berum ábyrgð á eigin heilsu
www.nlfi.is
Sjálfbærni og umhverfisvernd
Af hverju skiptir þetta máli og hvað er hægt að gera?
Gunnar Dofri Ólafsson
Eyrún Gígja Káradóttir
Gunnar S. Magnússon
Stefán Gíslason
Sævar Helgi Bragason
Málþing Náttúrulækningafélags Íslands - Þriðjudaginn 9. nóvember kl.19:30
Fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands efnir til málþings á
Icelandair hótel Reykjavík Natura, þriðjudaginn 9. nóvember kl. 19:30
• Grænn lífsstíll • Innkaup
• Mataræði - kolefnisspor
• Heimilissorp - flokkun
• Umgengni
• Neysluósiðir
• Nýjasta nýtt í umhverfisvernd
Fundarstjóri: Gunnar S. Magnússon sviðsstjóri sjálfbærni
hjá Ernst & Young
Frummælendur:
Gunnar Dofri Ólafsson sérfr. í samskiptum og samfélagsvirkni hjá Sorpu
Endar þetta ekki bara allt í sömu holunni hvort eð er?
Sævar Helgi Bragason rithöfundur og stjörnufræðingur
Grænn lífsstíll og eigin reynsla af umhverfisvernd
Eyrún Gígja Káradóttir verkefnastjóri fræðslumála hjá Vistorku
Neysluhyggja og meðhöndlun úrgangs
Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur
Matur er ekki bara matur
Allir velkomnir - Enginn aðgangseyrir
Í kvöld
Þórshöfn | Á hrekkjavöku getur allt gerst og í
Grunnskólanum á Þórshöfn voru ýmsar furðuverur
á kreiki. Í smíðastofunni settist að óhugguleg norn
sem klófest hafði nokkur fórnarlömb, bæði skóla-
stjórann og óheppna nemendur. Hápunktur hrekkja-
vökunnar var ball grunnskólanemenda í félagsheim-
ilinu og þar náði óhugnaðurinn hámarki þegar
dimmt var orðið.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardótir
Í nornaklóm á hrekkjavöku
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Við sjáum fyrir okkur að það verði
fundað út þessa viku,“ segir Birgir
Ármannsson, formaður undirbún-
ingskjörbréfa-
nefndar Alþingis,
um stöðuna í
vinnu nefndar-
innar. Hann segir
að nefndin sé
mjög varkár í yf-
irlýsingum um
tímarammann, og
að hann geti ekk-
ert fullyrt hver
staðan verði við
vikulokin.
„Við erum auðvitað að reyna að
færa okkur í átt að niðurstöðu, en
það er alveg ljóst að það eru þó
nokkrar umræður eftir í nefndinni
og ekki víst hvaða tíma það tekur.“
Hann segir að nefndin sé komin
langt í gagnaöflun og sjái fyrir end-
ann á henni, en að enn sé eftir að
ræða hvernig þau gögn sem fram
eru komin verði metin, og einnig
hvernig þau lagalegu atriði verði
metin sem þurfi að hafa í huga þeg-
ar gengið sé frá niðurstöðum nefnd-
arinnar. „Það eru því þessi atriði
sem kalla á mat nefndarinnar, bæði
hvað varðar mat á málavöxtum og
síðan mat á lagalegum atriðum.“
Í gær birtist á heimasíðu nefnd-
arinnar drög að málsatvikalýsingu á
framkvæmd kosninganna í Norð-
vesturkjördæmi. Birgir segir að
auðvitað séu fleiri atriði undir í
starfi nefndarinnar en bara kosn-
ingin í því kjördæmi, en að þar sem
flest kærumálin sneru að því kjör-
dæmi hefði nefndin talið rétt á
þessu stigi að gera opinbera þessa
samantekt á málsatvikalýsingu sem
nefndin sé að vinna.
Gefa kost á athugasemdum
„Ástæðan fyrir því að við birtum
þetta núna, áður en við erum búin
að ganga frá þessu og ganga frá
okkar tillögun, er sú að við erum að
gefa aðilum kost á að koma á fram-
færi athugasemdum ef einhverjar
eru við málsatvikalýsinguna. Við
væntum þá þess að ef einhverjir
vilji koma á framfæri nýjum atvik-
um sem ekki koma fram í þessari
lýsingu, að þá er færi til þess að
gera það núna áður en við lokum
skjalinu.“
Birgir segir að meðal annars hafi
verið óskað eftir athugasemdum frá
þeim aðilum sem sendu inn kæru,
og þeim sem hugsanlega hefðu upp-
lýsingar um málsatvik. Þeir hefðu
þá tækifæri á næstu dögum til þess
að koma fram með ábendingar, telji
þeir ástæðu til. „Þar erum við að
hugsa til þess að ef fólk er með
beinharðar leiðréttingar eða nýjar
upplýsingar sem máli skipta, þá er
núna færi til að koma því á fram-
færi.“
Gagnaöflun
komin langt
- Drög að atvikalýsingu gerð opinber
Birgir
Ármannsson