Morgunblaðið - 09.11.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 09.11.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021 FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS Kórónuveirusmit í heiminum náðu í gær 250 milljónum frá upphafi far- aldursins, þótt meðalfjöldi smita hafi síðustu þrjá mánuði dregist saman um 36 prósent. Hið bráðsmitandi Delta-afbrigði er afgerandi í þessari tölfræði, enda greinast nú að jafnaði um 50 milljónir nýrra smita í heim- inum hvert 90 daga tímabil. Til samanburðar má líta til þess að fyrstu 50 milljónir kórónuveirusmita í faraldrinum greindust á tæpu ári. Þrátt fyrir að smitum fjölgi nú í 55 af 240 löndum, og Austur-Evrópubúar hafi upplifað skyndilega fjölgun til- fella síðustu daga, eru farald- ursfræðingar og fleiri sérfræðingar í heilbrigðismálum bjartsýnir og telja fjölda landa nú hafa komist gegnum skæðustu orrahríðina, þökk sé bólu- setningum og eðlilegri berskjöldun gagnvart veirunni. Ástæða sé þó til að gæta fyllstu varúðar nú þegar kólnar í veðri auk þess sem hátíð ljóss og friðar er á næsta leiti með tilheyrandi samkomum. „Við teljum að frá því nú og til árs- loka 2022 komi sá tími að við náum stjórn á veirunni [...] og getum dreg- ið verulega úr alvarlegum veikindum og dauða,“ sagði Maria van Kerk- hove, faraldursfræðingur hjá Al- þjóðaheilbrigðismálastofnuninni, við Reuters-fréttastofuna í síðustu viku. Töluvert hefur syrt í álinn hjá Rússum, Úkraínumönnum og Grikkjum, en í ranni þessara þjóða er nýgengi smita með því mesta frá upphafi þessa dagana, enda hlutfall bólusettra í austurhluta Evrópu það lægsta í álfunni. Íhuga Rússar að herða sóttvarnareglur sínar auk þess sem þar hefur komið til tals að framlengja vikulangt frí vinnandi fólks, sem Pútín forseti fyrirskipaði og nú er að ljúka. atlisteinn@mbl.is AFP Biðröð Fólk bíður eftir sprautu í Radeberg í Þýskalandi í gær. Smit í heiminum ná 250 milljónum - Staðan ískyggileg í Austur-Evrópu Rekstraraðilar almennings- samgangna um gervallan Noreg lepja nú dauðann úr skel þar sem farþegarnir skila sér ekki nema að litlu leyti eftir að hjarta samfélags- ins tók að slá á ný í kjölfar lokana. Nýr lífsstíll vinnandi fólks er skrif- stofa heima í stofu og þótt umferð einkabíla um norskar götur sé nú nánast komin í sama horf og fyrir veiru eiga almenningssamgöngur langt í land og biðja stjórnendur þeirra ríkisstjórnina um milljarð norskra króna, ellegar leggist akst- ur utan Óslóar af á sunnudögum og eftir klukkan 20 aðra daga. Jon-Ivar Nygård samgönguráðherra segir hins vegar þvert nei, fylkin hafi fengið 900 milljónir í styrki og nú verði þau bara að bjarga sér sjálf. NOREGUR Samgöngur Norð- manna í ógöngum Sporvagn í Ósló. Svo virðist sem Kínverjar hafi dundað sér við að smíða eftirlík- ingar í nær fullri stærð af banda- rískum hern- aðarsjóförum í eyðimörk í Xinji- ang-héraðinu í Norðvestur-Kína. Á gervihnatt- armyndum, sem bandaríska geim- tæknifyrirtækið Maxar hefur tekið, má sjá stóreflis flugmóðurskip á járnbrautarteinum og aðrar myndir leiddu í ljós tvo tundurspilla. Að sögn fréttasíðunnar USNI News, sem fjallar einkum um það sem hæst ber hjá bandaríska sjó- hernum, má gera því skóna að skipa- líkönin risavöxnu séu æfingaskot- mörk, en Kínverjar hafa árum saman unnið að þróun á og til- raunum með flugskeyti sem gerð eru til að granda sjóförum, með áherslu á bandarísk herskip. KÍNA Tröllaukin skipa- líkön í eyðimörkinni Flugmóðurskip í miðri eyðimörk. Því var lýst yfir í Níkaragva í gær að Daniel Ortega hefði verið endurkjör- inn forseti landsins í kosningunum sem þar fóru fram á sunnudaginn. Var hann sagður hafa hlotið um 75% atkvæða. Hann verður forseti næstu fimm ár, fjórða kjörtímabilið í röð. Kjörsókn var sögð um 65%. Eiginkona Ortega, Rosario Mur- illo, var endurkjörin varaforseti. Or- tega segir að í reynd séu forsetar landsins tveir því eiginkonan hafi jafnmikil völd og hann. Fáir taka þó mark á þessum fregn- um því Ortega er í reynd einræðis- herra og hefur látið handtaka fjöl- marga pólitíska andstæðinga sína. Meðal þeirra eru nokkrir stjórnmála- menn sem taldir eru hafa átt mögu- leika á sigri ef kosningarnar hefðu farið fram eftir lýðræðislegum leik- reglum. Mannréttindasamtökum var meinað að fylgjast með kosningun- um. Meðal þeirra sem fordæmt hafa vinnubrögð stjórnvalda í Níkaragva eru Joe Biden Bandaríkjaforseti og leiðtogar Evrópusambandsins. Forsetahjónin eru bæði á áttræðis- aldri. Ortega, sem verður 76 ára í vik- unni, var leiðtogi Níkaragva á árun- um 1979 til 1990. Komst hann upphaflega til valda í byltingu skæru- liðahreyfingar Sandinista (FSLN) þegar einræðisstjórn Anastastio So- moza var steypt af stóli. Somoza hafði um árabil notið stuðnings Banda- ríkjamanna. Sandinistar nutu stuðn- ings stjórnvalda á Kúbu og Sovétríkj- anna þegar þau voru enn við lýði. Efnahagsleg upplausn í landinu leiddi til þess að hann tapaði í kosningum 1990 og fór frá völdum þar til hann sneri aftur árið 2007 og náði þá kjöri. Ortega tryggir sér völdin - Sandinistaleiðtoginn lýstur sigurvegari forsetakosninganna í Níkaragva - Fjöldi andstæðinga í varðhaldi - Bandaríkin og ESB fordæma vinnubrögðin AFP Fagna Liðsmenn Sandinista (FSLN) fóru sigri hrósandi um götur Managva, höfuðborgar Níkaragva, eftir að fyrstu tölur í kosningum voru birtar. New York-maraþonið var haldið í fimmtugasta sinn um helgina með miklu tilstandi og um 39 þúsund þátttakendum. Keppnin var ekki haldin í fyrra vegna Covid- faraldursins og þátttakan í ár, sem var mun minni en áður, sýnir að mikill fjöldi hlaupara er enn ekki reiðubúinn að taka áhættuna af því vera innan um fjölmenni þar sem enginn ber andlitsgrímu. Þegar maraþonið var haldið 2019 voru þátttakendur rúmlega 50 þúsund. Verðlaun voru að venju vegleg. Sigurvegararnir í fyrsta sæti, Al- bert Korir frá Kenía í karlaflokki og samlandi hans Peres Jepchir- chir í kvennaflokki, fengu rúmar 13 milljónir króna hvor í sinn hlut. Um 30 þúsund manns tóku þátt í New York-maraþoninu um helgina Hlauparar frá Kenía sigursælir AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.