Morgunblaðið - 09.11.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 09.11.2021, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021 –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 16. nóvember 2021 SÉRBLAÐ BLAÐ Rannsóknir á lífríki sjávar skipta okkur Ís- lendinga gríðarlega miklu. Við byggjum fyrirkomulag fiskveiða hér við land á vís- indum sem byggjast á öflun gagna, mæl- ingum og rannsóknum sem að lokum leiða til vísindalegrar ráð- gjafar. Þetta fyr- irkomulag hefur gefist okkur að mörgu leyti vel en eðlilega er það til sífelldrar umræðu og endurmats. Það er ekkert leyndarmál að sjó- menn og útgerðarmenn hafa gert margvíslegar athugasemdir við þetta í gegnum tíðina þótt þeir í að- alatriðum sætti sig við fyr- irkomulagið enda byggist fisk- veiðistjórnunarkerfið á því. Við getum kallað þetta sátt sem býr við málefnalega andstöðu. En það er mikilvægt að endur- skoða stöðugt þetta fyrirkomulag. Við hjá Bláa hagkerfinu ehf. réð- umst í að gera úttekt á stofnmati á karfa og grálúðu. Um þessar mund- ir er unnið að því að kynna nið- urstöðu skýrslunnar fyrir hags- munaaðilum. Það er rétt að taka fram að enginn opinber aðili óskaði eftir þessari skýrslu né studdi gerð hennar en unnið var með upplýs- ingar frá Hafrannsóknastofnun. Ástæða er til að þakka starfs- mönnum þar fyrir samstarfið sem skipti miklu. Niðurstöður skýrsl- unnar eru sláandi þótt ekki kæmu þær á óvart, síst vísindamönnum Hafró. Þar fögnuðu þeir þessari skoðun á vinnu sinni og tóku undir ýmislegt af því sem kemur fram í skýrslunni. Ónógar rannsóknir Meginniðurstaða skýrslunnar er að mjög skortir á að við vitum til fullnustu hvert er ástand og horfur þegar kemur að karfa- og grálúð- ustofnunum. Það er einfaldlega af því að rannsóknir eru ekki nægar. Fyrir vikið er úthlutað aflamarki í þessum tegundum eftir ýtrustu var- úðarsjónarmiðum sem getur kostað þjóðarbúið umtalsverða fjármuni. Þetta gerist þrátt fyrir að stofnmat veiðistofna okkar sé unnið eftir bestu vísindalegri þekkingu á hverjum tíma en markast þó ávallt af þeim takmörkuðu fjárveitingum sem varið er til rannsókna. Engum dylst að hér er þörf á átaki til að bæta þekkingu okkar á einstökum fiskistofnum. Til lengri tíma litið hlýtur þó meginmarkmið Íslend- inga vera það að skapa forsendur fyrir fjölstofna reiknilíkani sem spannar vistkerfi hafsins umhverfis landið. Þar eru miklir hagsmunir í húfi. Hugsanlega þarf að huga að bet- ur að stjórnsýslu í okkar rannsókn- arumhverfi. Kerf- islægur vandi felst í því að tenging við af- komu útgerðar og út- hlutun aflamarks er ekki metin. Hið op- inbera metur árangur út frá sjálfbærni og hvernig tekst að minnka óvissu ásamt því að halda rann- sóknum innan fjárlaga. Það liggur heldur ekki fyrir hvort sú eft- irfylgni byggist á reiknaðri hagkvæmni rannsókna á þjóðarhag, en slík tenging er aug- ljóslega fyrir hendi og þarf að vera þekkt. Staða á mörkuðum og hámörkun auðlindarinnar Það er áhugavert að skoða slíkar hugmyndir um hámörkun auðlindar í tengslum við nýhafna loðnuvertíð. Horfur eru á að hún verði sú feng- sælasta í langan tíma en að ýmsu er að hyggja. Loðnan er sér á báti miðað við aðrar fisktegundir. Beint samband á milli magns og verð- mæta er ekki fyrir hendi og erfitt að nota eina loðnuvertíð til að spá um verðmæti þeirrar næstu. Höfum í huga að síðasta loðnuvertíð skilaði hærra meðalverði fyrir hvert útflutt kíló af loðnuafurðum en áður hefur verið. Margir hafa því áttað sig á að það getur verið hagkvæmara fyrir þjóðarbúið og sjávarútveginn í heild að veiða minna af loðnu en öll þessi 662 þúsund tonn sem Íslendingum hefur verið úthlutað. Af hverju skyldi það vera? Jú, framlegðin yrði meiri og kostnaður minni ef við til dæmis myndum einungis veiða 250 þúsund tonn. Þetta er skýrt dæmi um það að hin líffræðilegu sjón- armið geta ekki ein gilt þegar horft er á afkomu útgerðar. Þá þurfa markaðsaðstæður að fá sitt vægi. Því þyrftu sjónarmið sem byggjast á hámörkun þjóðarhags af auðlind- inni að fylgja ráðgjöf Hafró og hvort tveggja að leggjast fyrir ráð- herra. Það segir sig sjálft að það er engin skynsemi í því að slíta bæði mannskap og tækjum til að ná í afla sem við fáum lítið fyrir á mark- aði þegar við vitum að verð afurða mun fyrirsjáanlega lækka við aukið framboð. Rannsóknir og hámörkun fiskveiðiauð- lindarinnar Eftir Svan Guðmundsson » Það getur verið hag- kvæmara fyrir þjóð- arbúið og sjávarútveg- inn að veiða minna af loðnu en öll þessi 662 þúsund tonn. Svanur Guðmundsson Höfundur er framkvæmdastjóri Bláa hagkerfisins ehf. og sjávarútvegsfræðingur. svanur@arcticeconomy.com Forvarnardagur gegn einelti var 8. nóvember sl. Ég hef sem sálfræðingur skrifað mikið um ein- eltismál og komið að fjölda mála jafnt í skólum, á vinnustöðum og hjá íþróttahreyf- ingum. Öll erum við breysk og áður en ævinni lýk- ur má næstum fullyrða að einhvern tímann á lífsleiðinni sýnum við nei- kvæða hegðun og framkomu. En svo lengi sem lifir má gera sér von um aukinn þroska og innsæi. Það krefst vissulega innsæis að geta horft á sjálfan sig með gagnrýnum hætti og axlað ábyrgð á eigin hegð- un. Orsakir eineltishegðunar eins og annarrar ofbeldishegðunar geta verið flóknar og átt rætur að rekja til samspils persónueinkenna, fé- lagslegs bakgrunns og hvernig ein- staklingurinn upplifir stöðu sína á staðnum. Eineltismál eru til í alls konar myndum og fyrirfinnast þar sem fólk kemur saman. Það sem ein- kennir eineltishegðun er ítrekun, ásetningur til að meiða og lít- illækka; hegðun sem oftast er drifin áfram af öryggisleysi og minnimátt- arkennd gerandans. Kerfisbundin aðför að einni manneskju leiðir til andlegs skaða hennar og nið- urbrots. Yfirmaðurinn Í þessum erfiðu málum er ábyrgð stjórnanda mikil því hann hefur það í hendi sér hvort einelti fær þrifist á vinnustað eða hvort tekið verði á málum. Ekki er öllum gefið að vera góður stjórnandi eða yfirmaður. Því miður eru dæmi um yfirmenn á alls kyns vinnustöðum sem skortir flest það sem telst prýða góðan yf- irmann. Góður yfirmaður gerir vissulega miklar en sanngjarnar kröfur til starfsmanna sinna. Sé yfirmaðurinn góður leiðtogi langar starfsfólk alla jafna til að leggja sig fram, sjálfs sín vegna og vinnustaðarins. Metn- aður yfirmannsins ætti að smitast auðveldlega yfir til starfsmannanna, líði þeim vel í vinnunni. Farsæll yfirmaður lætur sig nær- umhverfið varða. Hann heldur starfsfólkinu upplýstu um nauðsyn- leg vinnutengd atriði og gefur skýr skilaboð um samskiptareglur. Stjórnunarstíll hans er gegnsær og fyrirsjáan- legur. Hann er næmur á líðan fólks og hug- myndaríkur þegar kemur að lausn- um, þ.m.t. lausnum ágreiningsmála. Góður yfirmaður veit að öll vanda- mál leysast ekki af sjálfu sér. Hann hefur þess vegna tiltæka við- bragðsáætlun og skapar lausnar- farveg fyrir vandamál sem upp kunna að koma. Góður yfirmaður hvetur starfsfólkið til að gera skað- valda óvirka, séu þeir á staðnum, og upplýsa um neikvæða hegðun, verði hennar vart. Hann ber heilsu og hag allra á staðnum fyrir brjósti. Yfirmaður sem hefur þessa þætti í heiðri er líklegur til að vera í heil- brigðu og jákvæðu sambandi við starfsfólkið. Starfsmennirnir Þeir yfirmenn og stjórnendur sem ekki falla undir ofangreinda lýsingu eru þó ekki allir gerendur eineltis. Dæmi eru einnig um að starfsfólk, einn eða fleiri, leggi fæð á yfirmann sinn, leggi hann í einelti og linni ekki látum fyrr en búið er að bola yfirmanninum burt. Það þarf ekki nema einn aðila á vinnustað til að eitra andrúmsloftið. Algengustu birtingarmyndir einelt- is eru rógburður, t.d. slúður, illt umtal og sögusagnir sem beitt er til að grafa undan mannorði þolanda, rangar ásakanir um frammistöðu í starfi, stöðug og óréttlát gagnrýni, særandi ummæli og nafnaköll. Einnig beinar munnlegar eða lík- amlegar hótanir, aukið vinnuálag, niðrandi skírskotun til aldurs, kyns eða litarháttar, persónulegar móðg- anir, háð, árásargirni, stöðugar breytingar á vinnuaðferðum eða vinnutíma, skemmdarverk, tafir í vinnu, útilokun frá veislum, fundum eða ferðum og jafnvel kynferðisleg áreitni. Nái neikvæð menning að festa sig í sessi (vondur mórall) verður vinnustaðurinn smám saman eitr- aður. Mannaskipti eru þá oft tíð. Nýir starfsmenn, bjartsýnir og ferskir, sýkjast af eiturmenningu og hverfa jafnvel fljótt á braut. Góður jarðvegur fyrir einelti Einelti í sinni víðustu mynd þrífst vel undir stjórn yfirmanns sem er vanvirkur, veikgeðja og atkvæðalít- ill í samskiptamálum. Hinn vanvirki yfirmaður getur vel látið sér annt um starfsfólkið og viljað að hlutir séu í lagi en hann ræður einfaldlega ekki við að taka á samskiptamálum sem upp koma. Stundum skortir hann einfaldlega kjark til að takast á við mál af þessu tagi og verður óöruggur og vandræðalegur. Þá er aðgerðaleysið stundum réttlætt með því að segja að verið sé að gera úlfalda úr mýflugu. Viðkomandi yf- irmanni kann jafnvel að finnast starfsmaðurinn sem segir frá einelti vera með tómt vesen og óþarfa drama. Þá er eins og yfirmaðurinn sé að styðja „gerandann“ og veita honum leyfi til að halda meintri háttsemi sinni áfram. Þannig getur það gerst að yfirmaðurinn sé óbeinn þátttakandi jafnvel í einelti þar sem hann hunsar vandann og tekur þátt í að þagga hann niður. Yfirmaður sem er lítill mann- þekkjari og veikgeðja lætur oft undan þrýstingi og verður þá jafn- vel eins konar leppur einhver ann- ars. Við erfiðar og flóknar aðstæður finnst honum auðveldara að leyfa öðrum að taka stjórnina. Hvernig sem á málið er litið er óhætt að segja að stjórnandinn hafi líðan starfsmanna í hendi sér. Ábyrgð hans er mikil. Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur » Viðkomandi yfirmanni kann jafnvel að finnast starfsmaðurinn sem segir frá einelti vera með tómt vesen og óþarfa drama. Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er sálfræðingur og borgarfulltrúi Flokks fólksins. Jarðvegur fyrir einelti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.