Morgunblaðið - 09.11.2021, Side 20

Morgunblaðið - 09.11.2021, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021 ✝ Unnur fæddist á Bíldudal 18. ágúst 1940. Hún lést á heimili sínu 13. október 2021. Foreldrar hennar voru Ragnar Jó- hannsson sjómað- ur, f. 22.6. 1911, d. 12.12. 1986, og Gyða Waage Ólafs- dóttir húsmóðir, f. 15.4. 1920, d. 28.11. 2006. Unnur var þriðja elsta af níu systkinum, hin eru Haf- steinn, f. 1936, Eygló, f. 1939, Jóhann Þórarinn, f. 1942, Gylfi Randver, f. 1944, Valgerður Ágústa, f. 1947, Jóhannes Pálmi, f. 1948, d. 2018, Gyða Waage, f. 1950, og Gunnlaugur Gústaf, f. 1955. Hún flutti ung að árum með foreldrum sínum til Grindavíkur og ólst þar upp. Fyrri maður Unnar er Björn Níelsson. Börn þeirra eru: 1) Guð- rún Elín, f. 29.8. 1961, gift Guð- mundi Sigurbjörns- syni. 2) Níels Ragn- ar, f. 31.8. 1962, kvæntur Þórdísi Ólöfu Eysteins- dóttur. 3) Jón Ágúst, f. 6.2. 1964, kvæntur Þórunni Snorradóttur. 4) Steinar Már, f. 26.3. 1972, kvæntur Evu Berglindi Lofts- dóttur. 5) Hrefna Björg Waage, f. 9.8. 1977. Ömmu- og langömmubörn eru tuttugu og fjögur. Eiginmaður Unnar er Ragnar Jóhannesson. Útför Unnar Ragnarsdóttur fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Seztu hérna hjá mér, systir mín góð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát af því, að mamma ætlar að reyna að sofna rökkrinu í. Það er ekki auðvelt að setjast niður og skrifa minningargrein um mömmu. Mamma var ein af þeim konum sem elskuðu heimilið sitt, enda var það alltaf snyrtilegt og fallegt. Heimilið var enginn leikvöllur fyrir okkur börnin þeg- ar ég var að alast upp, en sann- arlega var það fallegt. Mamma sá til þess. Mamma sá líka til þess að það var alltaf nóg til að borða og ísskápurinn innihélt alltaf eitt- hvað spennandi fyrir orkumikinn strák. Það var mín venja að koma hlaupandi inn, opna ísskápinn og athuga hvað væri spennandi í honum. Þessu hætti ég aldrei og síðast þegar ég fór til mömmu opnaði ég ísskápinn til að athuga hvað hún ætti spennandi fyrir strákinn sinn. Það voru ekki alltaf kyrrlát kvöldin hjá mömmu og oft þurfti hún að hafa áhyggjur af böldnum dreng sem kom ekki endilega heim á réttum tíma. Drengurinn þurfti líka að styðja við mömmu þegar hún átti erfitt, hann gerði það sem hann gat. Í gegnum lífið var mamma allt- af glæsilega og duglega konan sem bar sig vel. Líka þegar hún var orðin veik. Hún ætlaði sko að sitja og sauma í nýja stofustóln- um. Hún ætlaði líka að fara til Torravieja með Ragnari sínum og njóta þess að vera í húsinu þeirra. En því miður verður það að bíða. Mamma ætlar að sofna. Mamma er svo þreytt. Og sumir eiga sorgir, sem svefninn getur eytt. Sumir eiga sorgir, og sumir eiga þrá, sem aðeins í draumheimum uppfyllast má. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Mamma ætlar að sofna, systir mín góð. (Davíð Stefánsson) Kæri Ragnar, guð gefi þér styrk á erfiðum stundum. Elsku mamma, takk fyrir allt. Hvíldu í friði. Þinn sonur, Jón Ágúst. Nú þegar mamma er farin í sumarlandið er efst í huga sökn- uður en einnig þakklæti í hennar garð fyrir að vera mamma mín. Allar minningar og samveru- stundir hér heima. Hæst ber þó alla kaffisopana og spjallið niðri á tíunni í gegnum árin. Að koma til ykkar Ragnars í sólina nánast á hverju ári síðastliðin tuttugu ár verður geymt sem gull í hjarta. Þar leið þér vel. Sólin, hitinn, ströndin. Ferðirnar saman niður í bæ eða um sveitir. Ragnar stýrði en þú keyrðir. Og alltaf í stíl. Það varð allt að passa saman. Litir og blingið. Eins var heima hjá ykkur, allt svo fallegt. Það er sem ég heyri hláturinn í þér. Pínu stríðni en góðan húmor fyrir sjálfri þér. Alltaf til staðar í mínum upp- vexti og mikið þakka ég fyrir það að við vorum alltaf góðir vinir. Þótt oft hafi maður reynt á þol- inmæðina. Er mér minnisstætt sem gutta að þegar þú sagðir bæði nöfnin mín, Níels Ragnar, þá var ég kominn á þolinmæðis- brúnina hjá þér. Elsku mamma, far í friði. Þín verður sárt saknað. Þegar það er móðir er lífið yndislegt. Hún er engill á jörðu. Hún er eins og sólargeisli Hún er eins og stjörnurnar á himninum. Vinir, þið þakkið mæður, enda munu þær ekki alltaf vera nálægt. Elska þær og þykja vænt um. Ekki gleyma aldrei! (Dmitry Veremchuk) Elsku Ragnar, mínar innileg- ustu samúðarkveðjur til þín. Veit að mikill er þinn missir. Níels Ragnar Björnsson. Nú farin er frá okkur elsku Unnur. Ef maður hlustar vel, heyrir maður ennþá hláturinn hennar og finnur fyrir hnyttni, góðum húm- or og velvild. Unnur vildi öllum vel, hún var hjartahlý og hafði mjög góða nærveru. Hún var allt- af hrein og bein, sagði það sem lá henni á hjarta og reyndi ekki að setja upp einhverja glansmynd af lífinu. Hún reyndist okkur alltaf vel og alltaf var hægt að spjalla við hana um allt og ekkert. Það var alltaf gott og gaman að vera í nærveru hennar og alltaf var stutt í glensið hjá henni og deildi hún með okkur nokkuð svörtum húmor og oft var hlegið saman og haft gaman. Unnur var hörkudugleg, ósér- hlífin, ákveðin og gekk hreint til verks. Hún og pabbi voru gott teymi og pössuðu þau vel upp á hvort annað. Þau nutu þess að vera saman bæði hér heima og í fallega húsinu þeirra á Spáni. Það er mikill missir að góðri konu sem setti mark sitt á okkur og við munum alltaf hugsa til hennar með hlýju í hjartanu. Minningarnar ylja og hlátur hennar lifir með okkur um ókomna tíð. Far í friði, elsku Unnur okkar, og takk fyrir allt sem þú gafst okkur. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Elsku pabbi, afi og langafi, megi ljós Unnar lýsa þér áfram veginn. Jóhannes Hafsteinn, Sigurbjörg og fjölskyldur. Þeir verða víst ekki fleiri kaffi- bollarnir sem við Unnur munum drekka saman og eiga skemmti- legt spjall yfir, því miður. Unnur, sem var seinni kona Ragnars föð- ur míns, lést eftir harða en snögga baráttu við krabba- meinsvágestinn. Hún tók veikind- unum af miklu æðruleysi og kvartaði aldrei. Lyfjameðferð átti bara að taka nokkrar vikur og síð- an átti að fara beint til Spánar og njóta þar birtu og sólaryls til að safna kröftum aftur eftir með- ferðina. En því miður var ferðinni heitið annað. Pabbi var svo lánsamur að finna Unni sína fyrir 26 árum, stuttu eftir að mamma lést. Það var þeirra gæfa. Þau áttu vel saman og smekkur þeirra og áhugamál svipuð. Árið 2000 varð örlagaríkt hjá þeim þegar pabbi keypti hús í Torrevieja á Spáni, þangað sem þau fluttu í kjölfarið. Þar leið þeim afar vel og eignuð- ust þau marga vini og kunningja. Þarna fóru þau á kaffifund á hverjum morgni, í sund og göng- ur og ferðuðust um landið. Þess á milli var alltaf verið að punta og snyrta í kringum sig og var heim- ilið þeim til mikils sóma. Þarna gat Unnur setið í sólinni og dund- aði sér við útsaum og liggja eftir hana ótal falleg verk. Fyrstu árin dvöldu þau á Spáni 10 mánuði á ári en komu heim yfir tvo heitustu mánuðina og þann tíma nýttu þau til þess að ferðast með hjólhýsið um allt Ísland og er varla til sá skiki á landinu sem þau heimsóttu ekki. Það var áber- andi hversu samhent þau voru og sjaldnast var meira en fetið á milli þeirra. Vegna þessarar fjarveru kynntumst við Unni ekki af al- vöru fyrr en þau fóru að dvelja heima yfir köldustu vetrarmán- uðina og það voru ánægjuleg kynni. Unnur hafði skoðanir á hlutunum og sagði sína meiningu, hún tók sjálfa sig aldrei hátíðlega, gerði óspart grín að sjálfri sér og sá oftar en ekki spaugilegu hlið- arnar á hlutunum. Unnur var afar litríkur persónuleiki og fötin hennar báru sannarlega vott um það. Í hennar fataskáp voru allir regnbogans litir og hún hafði mikla ánægju af því að klæða sig upp og skreyta sig með fallegum skartgripum. Hún var glæsileg kona í alla staði. Unnur var einstaklega mikill dýravinur og löðuðust dýrin að henni, bæði stór og smá enda var hún alltaf til í að fóðra þau. Barn- góð var hún líka og passaði alltaf upp á að eiga eitthvert góðgæti til að gefa barnabörnunum mínum þegar þau komu í heimsókn. Við hjónin eigum 11 barna- börn og fyrir þau öll saumaði Unnur út dásamlega fallegar myndir með nafni, fæðingardegi, þyngd og lengd. Nú er tólfta barnabarnið væntanlegt og fyrstu viðbrögð foreldranna voru söknuður yfir fráfalli Unnar og að nú yrði engin mynd frá henni sem myndi prýða herbergi litla barnsins. En Unnur og pabbi voru búin að útbúa fallegt sauma- horn í stofunni þeirra, þar sem Unnur ætlaði sér að hefjast handa við saumaskapinn strax og kraftar leyfðu. Ég vil þakka Unni fyrir öll fal- legu blómin sem hún gaf mér og allar góðu stundirnar sem við átt- um og ekki síst fyrir að hafa hugs- að svona vel um pabba alla tíð. Hans missir er mestur. Fjölskyldu Unnar sendum við kærar samúðarkveðjur. Ásthildur, Jón Rúnar og fjölskyldur. Efsta degi Unnar Ragnars- dóttur er náð. Hún var ástkær eiginkona karls föður míns, Ragnars Jóhannessonar, fv. skip- stjóra og slökkviliðsstjóra. Unnur kom inn í líf mitt og fjöl- skyldu minnar fyrir um 25 árum, nokkru eftir andlát móður minn- ar, Mjallar Sigurðardóttur, sem lést í ársbyrjun 1995 úr krabba- meini, 57 ára. Eftir að hafa ákveðið að lifa sínu lífi lifandi kynntist pabbi Unni Ragnarsdóttur og í kjölfarið hófst nýr kafli. Fyrir utan það að endurvekja vonir pabba um áframhald ánægjulegs lífshlaups var hún tilbúin að ganga inn í það tómarúm sem eðlilega skapaðist eftir fráfall mömmu. Pabbi og Unnur áttu einstök 25 ár saman. Þau bjuggu að jafnaði ýmist á Ís- landi, yfir sumarmánuðina, og á Spáni yfir vetrarmánuðina. Pabbi hafði alltaf átt sér þann draum er hann hætti að vinna, að búa í heitu löndunum. Og Unnur var til í það. Það var einstaklega sterkt samband milli þeirra. Saman gerðu þau yfirleitt alla hluti, sama í hvoru landinu þau voru. Ef þau voru á Íslandi var ferðast með hjólhýsið um allar koppagrundir. Viðkvæðið var „við eltum bara sólina“ og svo voru þau farin. Á Spáni ferðuðust þau víða. Bæði í skipulögðum hópferðum nú eða bara ein á báti. Þau voru ágætir dansarar og ef stemning var fyrir slíku voru þau oftar en ekki fyrst út á gólfið. Já þau lifðu lífinu svo sannarlega lifandi. Unnur var einstaklega smekk- vís og heimili þeirra bar þess skýr merki. Röð og regla á öllum hlut- um, allt hreint og fínt og þau voru samtaka í því. Þá var það einstakt hvað dýr löðuðust að henni. Dýrin sáu eitthvað í henni sem gerði hana aðlaðandi í augum málleys- ingjanna. Um þetta get ég vitnað og gildir einu hvort það voru hundarnir mínir nú eða kisur, dúfur, endur, svanir, alltaf komu dýrin til hennar þegar hún birtist. Oftar en ekki lumaði hún á góð- gæti. Þá gat Unnur verið einstak- lega fyndin ef sá gállinn var á henni. Eru mér minnisstæð mörg atvik þar sem ýmist börn eða full- orðnir eða hvor tveggja veltust um af hlátri. Er þar skemmst að minnast stunda í sumarbústað fjölskyldu minnar. Svo hafði hún einnig einstakt umburðarlyndi gagnvart fólki sem fór ótroðnar slóðir í lífinu. Hún var lúmskt pólitísk og fannst heldur naumt skammtað í lífeyri til handa eldri borgurum sem þrælað höfðu alla sína tíð og uppskáru ekki eins og þeir höfðu sáð til. Unnur kenndi sér óljósra veik- inda fyrir um ári. Til heimilis- læknisins fór hún margoft, þreyta, sundl, máttleysi og alltaf var sama svarið. Gigtin. Svo var tekin blóðprufa og hún hvött til að drekka mikið af vatni og ganga meira. Þau voru svo á Spáni þeg- ar þeim leist ekki orðið á blikuna og farið var til læknis. Þá var hún loks rannsökuð af alvöru. Gigt og þreyta höfðu ekkert með líðan hennar að gera heldur krabba- mein. Spænsku læknarnir voru varfærnir í orðavali og ráðlögðu þeim að fara heim til Íslands ella hefja meðferð á Spáni. Þau ákváðu að fara heim, enda áttu þau flugmiða viku seinna. Eftir endanlega greiningu lést hún á heimili sínu í Hafnarfirði 13. októ- ber, mánuði eftir að krabba- meinsmeðferð hófst. Nú er pabbi kominn í sömu stöðu og fyrir 25 árum en nú er hann 91 árs. Að missa eiginkonu sína úr krabbameini er eitthvað sem maður fær ekki skilið og enn síður tvisvar. Kannski hefði mátt ráða við meinið ef það hefði upp- götvast á byrjunarstigi. Elsku pabbi. Missir þinn er mikill. Megi algóður Guð hjálpa þér að fóta þig í nýjum lífsins kafla. Far þú í friði, Unnur okkar, takk fyrir alla sam- veruna. Góða ferð. Sigurður Þ. Ragnarsson og fjölskylda. Unnur Ragnarsdóttir Minn kæri og besti vinur Hall- grímur þurfti að lúta í lægra haldi fyrir hinum illvíga MND-lömunarsjúk- dómi. Kynni okkar Halla hófust fyrst fyrir alvöru þegar ég réð hann sem skipstjóra á Stakfell frá Þórshöfn árið 1993. Þessi góðu kynni héldust alveg til dauðadags, sama hvort hann var við veiðar á Íslandsmiðum, í Smugunni,á Flæmska hattinum eða við strendur Marakkó og Máritaníu, svo ég tali ekki um inn í Torfufelli í Eyjafjarðarsveit þar sem hann undi hag sínum best. Það voru ófá skiptin sem Halli var í mat hjá Sólveigu konu minni þegar hann var í landi á Þórshöfn, þar sem áhugi hans á elda- mennsku var lítill þá, en síðar varð hann afbragðskokkur og alltaf gaman að heimsækja hann og Irenu í sveitina. Hann var meira og minna fastagestur á mínu heimili í gegnum árin. Hann var börnum mínum afar góður og sagði þeim margoft að gera eitt- hvað sjálfstætt og skapa sér sitt eigið starfsumhverfi, ekki láta aðra ráðskast með sig, því hann var hugsjónamaður. Halli var frumkvöðull á tvenn- an hátt. Í fyrsta lagi þegar hann tók þátt í Smuguveiðunum 1993 og gaf sig ekki fyrir yfirgangi norsku strandgæslunnar, en líka þegar hann átti stutt ófarið eftir i Smuguna í sinni fyrstu veiðiferð, þá dreif hann áhöfnina út á dekk og lét þá létta bobbingalengjuna, bæta ótal stórum kúlum á höfð- uðlínuna og vængi trollsins, enda mokfiskaði vinurinn, þegar flest önnur skip sátu föst í drullubotn- inum. Í öðru lagi þegar hann með sinni þrjósku og mikilli eftirfylgni Hallgrímur Hallgrímsson ✝ Hallgrímur Hallgrímsson fæddist 15. apríl 1955. Hann lést 13. október 2021. Útförin hefur farið fram í kyrr- þey. fékk það í gegn að fá lyfið Triumeg sem gefið er HIV-sjúk- lingum, en rannsókn hafði sýnt í Ástralíu að þetta lyf gæfi góða raun fyrir MND-sjúklinga. Þarna vildi hann sanna og sína lækna- vísindunum að þetta lyf hefði góð áhrif, enda byrjaði hann inntöku á því í vorið 2020 og tók það til dauðadags. En miðað við lífshorfur sem læknar höfðu gefið honum, þá tel ég að þetta lyf hafi lengt hans líf. Halli var mikill náttúruunnandi og naut hundurinn Kubbur góðs af því í gegnum tíðina í sveitinni, þar sem þeir fóru í langar göngu- ferðir upp í fjall eða út á Vatns- enda eða upp í Villingardal. Hann stofnaði gönguhóp og alltaf var farið í að skoða fegurð landsins á mismunandi stöðum. Í fyrstu göngunni sagði hann við mig: Magnús þú verður síðastur, því við ætlum að „njóta“. Hann var góður badmintonspilari, en varð að hætta þeirri iðkun haustið 2016 vegna einkenna sjúkdómsins. Hallgrímur var traustur vinur sem hægt var trúa fyrir ýmsum málefnum. Þegar maður spurði hann hvernig hefur þú það, kom ævinlega svarið „ Ég sko ekkert að fara að drepast“ og síðan spurði hann ævinlega um mína konu og börn, enda bar hann mikla um- hyggju fyrir þeim. Þessi sjúkdómur tók mikinn toll af honum, en aldrei lét hann á því bera gagnvart mér. Það er ekki annað hægt en að dáðst af hans yfirvegun og æðruleysi, að liggja svona ósjálfbjarga og vera öðrum háður um alla þjónustu eft- ir að hann kom á Droplaugarstaði í byrjun árs 2019. Allt starfsfólk MND-deildar Droplaugarstaða á hrós skilið fyrir frábæra umönn- un. Fyrir það getur maður seint fullþakkað þessu fólki. Minning Hallgríms Hallgríms- sonar mun áfram lifa í hjarta mér. Magnús Hilmar Helgason. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð vegna andláts okkar elskulega JÓNS DALMANNS ÞORSTEINSSONAR rafmagnsverkfræðings, Goðalandi 15. dóra hafsteinsdóttir Þorsteinn V. Jónsson Elín Ragnhildur Jónsdóttir Ólafur Samúelsson Jón Kjartan Jónsson Álfheiður Svana Kristjánsd. Sigurður J. Grétarsson Bergþóra S. Þorbjarnardóttir Jakobína Marta Grétarsd. Benny Lindgren Halldóra Grétarsdóttir Haraldur Grétarsson Harpa Ágústsdóttir Ástkær systir okkar, mágkona, uppeldismóðir, frænka og amma, ENGILRÁÐ BIRNA ÓLAFSDÓTTIR, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, lést á Hraunbúðum 3. nóvember. Hún verður jarðsungin frá Landakirkju fimmtudaginn 11. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Hraunbúða. Sigríður Ólafsdóttir Ásta Ólafsdóttir Sveinn Sigurðsson Eygló Ólafsdóttir Bergmann Júlíusson Anna Ólafsdóttir Guðjón Jónsson Ólafur R. Ólafsson Bjarney Emilsdóttir Sigurður Smári Benónýsson Sigríður Lára Andrésdóttir Berglind Jóhannsdóttir Arnór Pétursson Ragnar Þór Jóhannsson Bjartey Kjartansdóttir Valmundur Valmundsson Björg Sigrún Baldvinsdóttir og öll ömmubörnin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.