Morgunblaðið - 09.11.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021
Við leigjum út krókgáma
FRAMKVÆMDIR?
til lengri eða skemmri tíma
HAFÐU SAMBAND:
sími: 577 5757
www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum!
70 ÁRA Hilmar er Reyðfirðingur, fæddur þar
og uppalinn. Hann er kennari að mennt og
stundaði kennslu á Reyðarfirði í þrjú ár en fór
svo í húsasmíði og lærði fagið hjá Jóhanni Þor-
steinssyni húsasmíðameistara. Þeir stofnuðu síð-
an Trésmiðjuna og störfuðu við húsbyggingar
um nokkurra ára skeið. Á þessum tíma stofnuðu
þeir einnig síldarsöltunarstöðina Verktaka
ásamt bræðrunum Orra og Vigfúsi Friðjóns-
sonum. Stóð sú starfsemi þau ár sem seinna
síldarævintýrið reis sem hæst. Árið 1988 byrjaði
Hilmar aftur í kennslu á Reyðarfirði og kenndi
til 1996. Þá fluttist fjölskyldan á Eskifjörð þar
sem Hilmar var ráðinn skólastjóri Grunnskólans
á Eskifirði. Því starfi gegndi hann til 2017. Hilmar fékk námsleyfi 2007-08
og stundaði þá meistaranám í stjórnun menntastofnana við KHÍ. Meist-
araritgerð hans fjallaði um samstarf skóla og foreldra barna af erlendum
uppruna. „Þetta var mjög aðkallandi verkefni allra skóla í landinu á þess-
um tíma og er enn.“
Hilmar hefur sinnt ýmsum félagsstörfum gegnum tíðina. Hann var m.a.
formaður í Ungmennafélaginu Val. Hann sat tvö kjörtímabil í hreppsnefnd
Reyðarfjarðarhrepps á árunum 1986-1994 og var formaður sóknarnefndar
Eskifjarðarkirkju um árabil.
Áhugamál Hilmars eru fjölbreytt. „Þar má nefna útivist í formi útilega
og gönguferða á sumrin, m.a. með frábærum göngufélögum í „Sjáum til“.
Á veturna eru skíðin tekin fram og skíðað bæði hér heima og erlendis. Við
hjónin byggðum árið 2005 sumarbústað í Úlfsstaðaskógi sem nefnist Lund-
ur og er það orðið okkar annað heimili. Nú í seinni tíð, eftir starfslok í
skólanum, hef ég snúið mér aftur að smíðunum í auknum mæli.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Hilmars er Halldóra Baldursdóttir, f. 1952,
sérkennari og talmeinafræðingur. Börn Halldóru og Hilmars eru 1)
Guðrún Linda kennari, f. 1972. Maki: Sigfús Heiðar Ferdinandsson. Þau
eiga tvö börn og eitt barnabarn; 2) Díana endurskoðandi, f. 1978. Maki:
Atli Kristjánsson. Þau eiga tvö börn; 3) Bjarni Rafn tölvunarfræðingur, f.
1982. Maki: Leah Polcar. Foreldrar Hilmars voru Sigríður Eyjólfsdóttir,
húsmóðir og verkakona, f. 1924, d. 2017 og Sigurjón Ólason verkstjóri, f.
1923, d. 2012. Þau bjuggu allan sinn búskap á Reyðarfirði.
Hilmar Smári Sigurjónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Notaðu daginn til þess að gera lang-
tímaáætlanir fyrir framtíðina. Ef þú þarft
enn að vinna, reyndu þá eftir fremsta megni
að hliðra til fyrir tómstundum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Sjálfsagt er að sýna skoðunum ann-
arra virðingu þótt þær fari ekki saman við
okkar eigið álit. Hlýlegt trúnaðarsamtal við
vin er akkúrat það sem þú þarft á að halda.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er til rétt aðferð til að takast á
við hlutina, og önnur rétt leið og enn önnur.
Láttu því athugasemdir annarra eins og vind
um eyru þjóta.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Óvissa í sambandi getur vakið ótta
en þarf ekki að gera það. Haltu öllum verk-
efnum aðskildum og raðaðu þeim upp í for-
gangsröð og leystu þau síðan eitt af öðru.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú átt auðvelt með að sökkva þér ofan
í rannsóknir í dag. Veltu vandamálunum fyrir
þér og flýttu þér hægt í leit að lausn þeirra.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er ekkert gefið að aðrir hafi tíma
til þess að sletta úr klaufunum þótt þú hafir
það. Gættu þess vegna orða þinna.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Einhverjar glæringar eru í loftinu svo þú
skalt hafa hægt um þig og segja sem
minnst. Hagaðu þér eins og leiðtogi svo að
aðrir fylgi þér.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Gefðu þér tíma til þess að velta
fyrir þér samböndum þínum og vina þinna.
Óöryggi þitt tekur skyndilega völdin í stutta
stund í kvöld og skýtur þér skelk í bringu.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú ert bæði skrýtnari og
skemmtilegri en flestir álíta þig vera við
fyrstu kynni. Einbeittu þér að styrkleikum
þínum, þú býrð yfir mörgum.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú verður að létta einhverjum
verkefnum af þér ef ekki á illa að fara. Hafðu
þig í frammi í vinnunni í dag þó að þér finnist
það ef til vill dálítið óþægilegt.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er ágætt að staldra við, líta
yfir sviðið og reyna að gera sér grein fyrir því
hvort málin þokast áfram eða ekki. Þú mátt
vel við una, þinn skjöldur er hreinn.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Sambandið fer mögulega í gegnum
erfitt tímabil, sem getur gert það sterkara.
Ekkert er leiðinlegt í lífinu nema þú viljir hafa
það þannig.
okkar viðskiptavinur í 30 ár og ÞG
verk næstum því jafn lengi. Við
höfum verið að elta þá upp um all-
ar koppagrundir, Nesjavelli og víð-
ar. Núna erum við með 500 íbúðir
fyrir ÞG verk á næstu tveimur til
þremur árum. Einnig höfum við
fyrirtækjum, m.a. Trygginga-
miðstöðinni, ÞG verki, Skugga,
Félagsbústöðum, Búseta og Öss-
uri. „Þetta eru stór og öflug fyrir-
tæki sem hafa verið hryggj-
arstykkið hjá okkur.
Tryggingamiðstöðin hefur verið
S
igurður Óli Sumarliðason
fæddist 9. nóvember
1961 á sjúkrahúsinu í
Keflavík en ólst upp í
Sandgerði. „Ég var ekki
í sveit,“ segir Siggi Óli aðspurður,
en hann er kallaður það af sínum
nánustu. „Í Sandgerði var mikið
frjálsræði, við vorum annaðhvort
að veiða niðri á bryggju eða tína
egg uppi í heiði. Svo var lenskan í
Sandgerði að byrja snemma að
vinna fyrir sér. Ég byrjaði tíu ára
að vinna í loðnufrystingu og á þeim
tíma voru allir uppi á dekki sem
vettlingi gátu valdið. Sumarið þeg-
ar ég var 11 ára vann maður í
humrinum og 12 ára var maður
farinn að vinna tíu tíma á dag í
saltfiski. Þar á undan var ég að
selja blöð og bera út póst, seldi t.d.
blað sem hét Suðurnesjatíðindi,
vann sölukeppni þar og Steinþór
hótelstjóri í Keflavík lenti í öðru
sæti.“
Siggi Óli var í grunnskóla í
Sandgerði, Gagnfræðaskóla Kefla-
víkur, stundaði nám við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja og síðan
Iðnskólann í Reykjavík, en hann
flutti til Reykjavíkur 1983. Siggi
Óli lauk sveinsprófi í pípulögnum
1988 og meistaraprófi 1991. Þá
hefur hann sótt fjölda námskeiða
er varða pípulagnir.
Siggi Óli stundaði ýmis almenn
störf í Sandgerði, var við fisk-
verkun, smíðar og rafvirkjun, lærði
pípulagnir hjá Heimi Morthens
1981 og hjá Ólafi S. Guðmundssyni
1982-89 og hefur verið sjálfstætt
starfandi við pípulagnir frá 1989 og
breytti rekstrarfyrirkomulaginu og
nafninu í S.Ó.S. lagnir ehf. árið
1997 og hefur starfrækt það fyrir-
tæki síðan. „Ég hef verið kallaður
neyðarkallinn af því að fangamark
mitt er S.Ó.S. og svo er ég fæddur
9/11,“ en 911 er bandaríska
neyðarnúmerið. Hjá S.Ó.S. lögnum
starfa núna 34, sem eru meistarar,
sveinar eða lærlingar. „Ég er
reyndar líka með lærlinga núna, er
búinn að unga út rúmlega 30 lær-
lingum gegnum tíðina, held það
hafi ekki margir ungað út fleirum.“
S.Ó.S. lagnir sinna aðallega
sinnt einstaklingum í viðhaldi og
breytingum og öðru tilfallandi en
leggjum ekki mikla áherslu á það.
Árið 2004 keypti ég fokhelt hús
sem er í dag Lindargata 60 og er
að hluta til eitt elsta hús Reykja-
víkur sem hét áður Aðalstræti 14,
en ég breytti því í fimm íbúðir.“
Siggi Óli æfði og keppti í knatt-
spyrnu með Reyni í Sandgerði í 5.,
4. og 3. flokki og æfði með hand-
knattleiksdeild Reynis Sandgerðis
á árunum 1979-88. Þá iðkaði hann
handbolta með Gróttu 1990-91 og
síðan með Fjölni og varð Íslands-
meistari með Fjölni utandeilda
árið 2000. Hann sat í stjórn hand-
knattleiksdeildar Reynis og Fjöln-
is, var einn af stofnendum beggja
deilda og hefur líka dæmt fyrir
þau félög í handbolta. Siggi Óli
starfaði með Leikfélagi Sand-
gerðis, sat í Æskulýðsráði Sand-
gerðis og í stjórn Taflfélags Sand-
gerðis. Hann var í stjórn Sveina-
félags pípulagningamanna, síðan í
stjórn Félags pípulagninga-
meistara og í stjórn Meistara-
sambands byggingamanna. Hann
var í fjáröflun Golfklúbbs Bakka-
kots í nokkur ár. Siggi Óli er í
Oddfellowreglunni, í stúku nr. 11
sem heitir Þorgeir og hefur setið í
stjórnum hennar.
Helsta áhugamál Sigga Óla er
golf. „Strákarnir í vinnunni gáfu
mér golfsett þegar ég varð fertug-
ur af því ég átti ekki orð yfir að
þeir skyldu taka sér frí á laugar-
dögum til að fara á golfmót.“ Þetta
viðhorf Sigga Óla hefur aðeins
breyst núna. Hann er kominn með
tíu í forgjöf og er í landsliði Ís-
lands 55 ára og eldri með forgjöf.
„Ég fór út með landsliðinu til
Wales 2019 að keppa í Celtic
Manor og ef það gengur eftir för-
um til Parísar að spila í ágúst
næstkomandi. Ég reyni síðan að
fara á hverjum degi í sund eða í
ræktina. Ég hef alltaf þurft að
hreyfa mig mikið.“
Fjölskylda
Eiginkona Sigga Óla er Jóna
Magnea Magnúsdóttir, f. 10.6.
1960, starfsmaður hjá Bliki bistró í
Sigurður Óli Sumarliðason pípulagningameistari – 60 ára
Golflandslið Keppendur Íslands á Celtic Manor í Wales árið 2019.
Kallaður neyðarkallinn
Fjölskyldan Frá vinstri: Siggi Óli, Jóna og Aron Atli.
Til hamingju með daginn