Morgunblaðið - 09.11.2021, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2021
Katar
Deildabikarinn, B-riðill:
Qatar SC – Al-Arabi ................................ 1:4
- Aron Einar Gunnarsson lék ekki með Al-
Arabi sem fór taplaust í gegnum riðilinn og
er komið í átta liða úrslitin.
50$99(/:+0$
1. deild karla
Höttur – Skallagrímur ......................... 92:87
Staðan:
Höttur 7 7 0 716:559 14
Haukar 6 5 1 633:423 10
Sindri 7 5 2 637:578 10
Álftanes 6 4 2 556:484 8
Selfoss 7 4 3 616:627 8
Hrunamenn 7 3 4 585:663 6
Fjölnir 7 2 5 590:666 4
Hamar 7 2 5 543:626 4
Skallagrímur 6 1 5 469:539 2
ÍA 6 0 6 451:631 0
NBA-deildin
Toronto – Brooklyn .......................... 103:116
New York – Cleveland ..................... 109:126
Orlando – Utah ................................. 107:100
Washington – Milwaukee .................. 101:94
Sacramento – Indiana.......................... 91:94
Oklahoma City – San Antonio ............. 99:94
Golden State – Houston................... 120:107
LA Clippers – Charlotte .................. 120:106
Staðan í Austurdeild:
Philadelphia 8/2, Miami 7/2, Brooklyn 7/3,
Washington 7/3, Chicago 6/3, Cleveland
7/4, New York 6/4, Toronto 6/5, Charlotte
5/6, Milwaukee 4/6, Boston 4/6, Atlanta 4/6,
Indiana 4/7, Orlando 3/8, Detroit 1/8.
Staðan í Vesturdeild:
Golden State 8/1, Utah 7/3, Dallas 6/3,
Phoenix 5/3, Memphis 5/4, Denver 5/4, LA
Clippers 5/4, Sacramento 5/5, Portland 5/5,
LA Lakers 5/5, Minnesota 3/5, Oklahoma
City 3/6, San Antonio 3/7, New Orleans 1/9,
Houston 1/9.
57+36!)49,
en í Danmörku. Fimm til sex bestu
liðin í Danmörku eru þrælgóð og í
neðri hlutanum eru einnig lið sem
eru hættuleg. Við höfum til dæmis
tapað fyrir liði úr neðri hlutanum á
tímabilinu og það getur allt gerst í
þessum leikjum. Það er bara mjög
ágætt,“ sagði Aron sem missti af
nokkrum leikjum í haust vegna
meiðsla. „Þetta var bara tognun og
blæðing inn á vöðva í mjöðminni. Ég
var frá í fimm vikur en hef verið góð-
ur eftir það,“ sagði Aron og segir
þetta ekki vera neitt til að hafa
áhyggjur af.
Ævintýri að leika til úrslita
Forráðamenn Álaborgar ætla sér
stóra hluti. Eftir að hafa komist á
toppinn í Danmörku á umliðnum ár-
um virðist nú stefnan vera sett á að
vinna Meistaradeildina. Þegar menn
eins og Aron og Mikkel Hansen eru
fengnir til félagsins þá er það sterk
vísbending um að liðið vilji berjast
um alla bikara sem í boði eru. Han-
sen bætist við hópinn næsta sumar.
Álaborg náði vissum áfanga á síð-
asta keppnistímabili þegar liðið
komst í úrslitaleikinn í Meistara-
deildinni og var það nokkuð óvænt.
„Álaborg fór í úrslit í Meistara-
deildinni á síðasta tímabili og það
var auðvitað ákveðið ævintýri fyrir
félagið. Liðið er ennþá á uppleið en
er klárlega á meðal bestu átta lið-
anna í Evrópu. En það getur verið
stutt á milli liðanna sem eru á þessu
róli. Ég hef verið í liðum sem hafa
verið rótgróin hvað þetta varðar.
Hjá Álaborg er ennþá smá í land í
þeim samanburði en við erum á
þessari vegferð. Við erum að fara
upp á við og það er mjög stutt í að
Álaborg geti talið sig vera eitt af
bestu liðum í Evrópu.“
EM er sterkasta mótið
Aron lék með stórliði Veszprém í
Ungverjalandi frá 2015 til 2017.
Ungverjar verða gestgjafar í loka-
keppni EM í janúar ásamt Slóvök-
um. Svo skemmtilega vill til fyrir
okkur Íslendinga að við verðum með
Ungverjum í riðli og stemningin í
Búdapest gæti orðið mjög mikil
enda mikill áhugi á handbolta í Ung-
verjalandi.
„Það er mikið gert úr keppninni.
Ég kannast aðeins við Ungverjann
og hann gerir þetta vel. Ég hlakka
hrikalega mikið til. Riðillinn er
sterkur en EM eru líka alltaf sterk-
ustu mótin.“
Tilhlökkun
Er Aron orðinn gíraður fyrir EM?
„Já ég verð að viðurkenna það
enda langt síðan ég fór á stórmót,“
sagði Aron og brosti en hann gat
ekki verið með á HM í Egyptalandi í
janúar vegna hnémeiðsla.
„Ég er orðinn mjög spenntur og
þessi æfingavika með landsliðinu
kyndir vel undir þessu hjá manni.
Það er orðið stutt í þetta og maður
þarf að hugsa eins vel um sig og
maður getur til að mæta í toppformi
í janúar,“ sagði Aron Pálmarsson í
samtali við Morgunblaðið en lands-
liðið æfði saman alla síðustu viku til
að stilla strengina.
Félagið og
aðstaðan
eru upp á 10
- Aron Pálmars segir gríðarlega
stemningu fyrir handbolta í Álaborg
Morgunblaðið/Unnur Karen
Landsliðsæfing Aron Pálmarsson æfði með landsliðinu í síðustu viku en
það býr sig undir lokakeppni Evrópumótsins í janúarmánuði.
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Aron Pálmarsson, landsliðsmaður
í handknattleik, er á sínu fyrsta
tímabili hjá Álaborg. Aron hefur víð-
tæka reynslu af handboltanum í
Evrópu og hefur getað valið úr stór-
liðum á sínum ferli. Áður lék hann
með Kiel, Veszprém og Barcelona í
atvinnumennskunni. Hann er
ánægður með það sem hann hefur
séð hjá Álaborg hingað til.
„Mér líst mjög vel á mig hjá Ála-
borg. Mér finnst félagið og aðstaðan
vera upp á 10 en það kemur mér
reyndar ekkert á óvart. Þarna er
gríðarleg stemning fyrir handbolta.
Það er stóri munurinn sem maður
finnur. Daninn hefur mikinn áhuga á
þessu og það er eitt af því sem mað-
ur er að sækja í. Fullar hallir af fólki
og umgjörðin á leikdegi er eins og
maður kannaðist við frá Þýskalandi.
Ég hafði saknað þess svolítið,“ sagði
Aron þegar Morgunblaðið spjallaði
við hann á landsliðsæfingu.
Meiðslin ekki alvarleg
Danir tefla ekki einungis fram
firnasterkum landsliðum hjá báðum
kynjum heldur eru dönsku deild-
irnar einnig sterkar.
„Þetta er frábær handbolti. Það
kunna allir handbolta í Danmörku.
Ef maður myndi bera þetta saman
við Þýskaland þá er alltaf talað um
að þar séu menn líkamlega sterkari
Velgengni Arsenal í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu und-
anfarnar vikur fékk góða við-
urkenningu í gær þegar tveir ungir
leikmenn félagsins voru kallaðir í
landsliðshópa þjóða sinna í fyrsta
skipti. Sóknartengiliðurinn Emile
Smith Rowe er kominn í hóp Eng-
lendinga sem eiga fyrir höndum
leiki gegn Albaníu og San Marínó í
undankeppni HM og miðvörðurinn
Gabriel er í fyrsta sinn í hópi Bras-
ilíumanna sem mæta Kólumbíu og
Argentínu í sömu keppni á næstu
dögum.
Arsenal-strákar
í landsliðum
AFP
Efnilegur Emile Smith Rowe hefur
leikið vel með Arsenal.
Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðs-
kona í knattspyrnu og leikmaður
Kristianstad, var tíundi besti leik-
maður sænsku úrvalsdeildarinnar á
nýloknu tímabili samkvæmt mati net-
miðilsins Damallsvenskan. „Þessi
bráðefnilegi Íslendingur átti stórkost-
legt tímabil. Hún er ein af fljótustu
leikmönnum deildarinnar og með
magnaðri boltatækni sinni er hún eld-
snögg að skila boltanum áfram.
Sveindís býr líka yfir ótrúlega
löngum innköstum sem er magnað
sóknarvopn,“ segir í umsögn Damall-
svenskan um Keflvíkinginn.
Tíunda best í
sænsku deildinni
Morgunblaðið/Unnur Karen
Kristianstad Sveindís Jane Jóns-
dóttir átti gott tímabil í Svíþjóð._ Katrín Ómarsdóttir, fyrrverandi
landsliðskona í knattspyrnu og at-
vinnumaður um árabil, er komin í
þjálfarateymi Hauka í Hafnarfirði.
Katrín var spilandi aðstoðarþjálfari
með KR á síðasta tímabili og hjálpaði
liðinu að vinna sér úrvalsdeildarsæti á
ný eftir árs fjarveru en Katrín hefur
leikið með KR síðan hún kom heim úr
atvinnumennsku þar sem hún varð
m.a. enskur meistari með Liverpool.
Katrín verður við hlið Guðrúnar Jónu
Kristjánsdóttur sem verður áfram
þjálfari Haukaliðsins sem spilar í 1.
deildinni og endaði í fimmta sæti á ný-
liðnu tímabili.
_ Spænski knattspyrnumaðurinn
Gonzalo Zamorano hefur samið við
Selfyssinga um að leika með þeim
næstu tvö árin en Selfoss hafnaði í
áttunda sæti 1. deildar á nýliðnu tíma-
bili. Hann kemur þangað eftir eitt
tímabil með ÍBV í 1.deildinni en lék áð-
ur með Víkingi í Ólafsvík í tvö ár, með
ÍA í eitt ár og með Hugin á Seyðisfirði í
eitt ár. Zamorano skoraði 40 mörk í 1.
og 2. deild með ÍBV, Víkingi og Hugin
en náði ekki að skora í 20 leikjum
Skagamanna í úrvalsdeildinni.
_ Milos Milojevic, fyrrverandi þjálfari
karlaliða Víkings R. og Breiðabliks í
knattspyrnu, er orðaður við þjálf-
arastöðuna hjá Rosenborg í Noregi en
Åge Hareide hættir þar störfum eftir
tímabilið. Milos tók við sænska úrvals-
deildarliðinu Hammarby í júní á þessu
ári og samdi til hálfs fjórða árs en lið-
inu hefur gengið vel undir hans stjórn
og er í fimmta sæti deildarinnar þegar
þremur umferðum er ólokið. Milos
dvaldi í tólf ár á Íslandi, sem leikmaður
og síðan þjálfari, en þjálfaði síðan
Mjällby í Svíþjóð og var aðstoðarþjálf-
ari Rauðu stjörnunnar í Serbíu.
Eitt
ogannað
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Fyrir fram ætti Breiðablik að eiga fyrir höndum
jafnan og tvísýnan leik í dag þegar Kópavogsliðið
mætir OSC Metalist Kharkiv í úkraínsku borginni
Kharkiv í Meistaradeild kvenna í fótbolta.
Liðin tvö fóru mjög svipað af stað í riðlakeppn-
inni í haust. OSC Metalist tapaði 0:1 heima gegn
Real Madrid og 0:5 fyrir París SG í Frakklandi á
meðan Blikar töpuðu 0:2 heima fyrir París SG og
0:5 fyrir Real Madrid á Spáni.
Þetta er því að öllu óbreyttu fyrra uppgjör lið-
anna um hvort þeirra nær þriðja sætinu í riðlinum
en þau mætast aftur á Kópavogsvelli í næstu viku.
Heima í Úkraínu ber mótherji Breiðabliks
nafnið Zhytlobud-1 Kharkiv, en það er nafn bygg-
ingafyrirtækis sem stendur á bak við það og
UEFA viðurkennir ekki slík heiti á félögum.
Sama fyrirtæki rekur líka lið Zhytlobud-2 Khar-
kiv, en þetta eru einmitt erkifjendur og langbestu
lið Úkraínu sem hafa unnið meistaratitilinn til
skiptis undanfarin ellefu ár. Þau eru að vanda
langefst í deildinni í Úkraínu þegar deildin þar er
að verða hálfnuð.
Í liði OSC Metalist Kharkiv, eins og mótherjar
Blika heita hjá UEFA, eru átta núverandi lands-
liðskonur Úkraínu ásamt landsliðsmarkverði
Tyrklands og landsliðsframherja frá Bosníu.
Þekktust þeirra eru Daria Apanashchenko, 35
ára framherji eða miðjumaður, sem hefur verið í
lykilhlutverki í landsliði Úkraínu um árabil. Hún
var Stjörnunni erfið í 32ja liða úrslitum Meist-
aradeildarinnar haustið 2014 og skoraði þá í báð-
um leikjum Zvezda frá Rússlandi gegn Garðabæj-
arliðinu.
OSC Metalist sló út Pomurje frá Slóveníu og
NSA Sofia frá Búlgaríu með 4:1 og 5:1 sigrum í 1.
umferð keppninnar í ágúst. Í 2. umferð vann
úkraínska liðið síðan Þórdísi Hrönn Sigfúsdóttur,
fyrrverandi leikmann Breiðabliks, og stöllur
hennar í kýpverska meistaraliðinu Apollon Li-
massol, 3:1 og 2:1, og komust með því í riðla-
keppnina.
Úkraínska liðið er í 16 liða úrslitum í fyrsta
skipti en liðið komst áður í 32ja liða úrslit 2009 og
2018. Liðið hefur ekki átt góðu gengi að fagna
gegn mótherjum frá vesturhluta Evrópu og tap-
aði m.a. 0:4 fyrir Glasgow City frá Skotlandi fyrir
nokkrum árum og þar á undan 1:10 samanlagt í
tveimur leikjum gegn Linköping frá Svíþjóð.
Stefnir í tvo hörkuleiki hjá Blikum
- Besti leikmaður OSC Metalist gerði Stjörnunni lífið leitt fyrir sjö árum