Morgunblaðið - 06.12.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.12.2021, Qupperneq 4
Óöryggi Björg Loftsdóttir segir sjúkraliða sem starfa í efri byggðum upp- lifa mikið óöryggi eftir að bílarnir voru teknir af nagladekkjum. Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Björg Loftsdóttir, sjúkraliði hjá Reykjavíkurborg, segir starfsmenn sem sinna heimahjúkrun á vegum Reykjavíkurborgar í efri byggðum borgarinnar upplifa mikið óröyggi í starfi eftir að ákveðið var að bílar á vegum borgarinnar skyldu ekki vera á negldum dekkjum í vetur. Hún segir það einnig geta bitnað á þjón- ustunni. Bílar Reykjavíkurborgar voru teknir af nagladekkjum fyrir ekki svo löngu, eftir að kvörtun barst vegna nagladekkjanna. Bílarnir höfðu verið á nagladekkjum síðan í október. Hún bendir á að ákvörð- unin hafi verið tekin í flýti og kosti skattgreiðendur háar fjárhæðir. Björg sinnir heimahjúkrun í efri byggðum borgarinnar og þarf oft að keyra út á Kjalarnes. „Það er allt annað verðurfar í efri byggðum. Ég myndi ekki fara út í óveðri á mínum bíl. En ég þarf að fara út í hvaða veðri sem er til að sinna vinnu minni. Ég er að fara til fólks sem er veikt. Ég þarf að koma því í rúmið, gefa því lyf,“ segir Björg í samtali við Morgunblaðið. Bitnar á þjónustu Björg segir vanbúna bílana vel geta bitnað á þjónustu við þau sem þurfa á heimahjúkrun að halda. „Ef ég festi mig, þá mun það taka mig lengri tíma en ella að komast í að sinna þeim verkefnum sem ég þarf að sinna þann daginn. Þannig bitnar þetta á þjónustunni. Við þurfum að fara af stað snemma á morgnana, oft áður en bú- ið er að ryðja snjó í öllum hverfum. Við förum langt inn í hverfi og veðurfarið í efri byggðum er alls ekki það sama og niðri í bæ,“ segir Björg. Hún bendir á að bílarnir sem standi sjúkraliðum til boða séu smá- bílar á borð við Nissan Micra, Toyota Yaris og Kia Rio. Björg fór með bílinn sem hún hef- ur til afnota í dekkjaskipti í síðustu viku, en þá snjóaði einmitt talsvert á höfuðborgarsvæðinu. Það vakti athygli hennar á dekkjaverkstæðinu að ekki voru sett vetrardekk undir bílinn heldur not- uð heilsársdekk. „Það kostar skatt- greiðendur mikið að þurfa að standa undir þessum kostnaði. Þetta hleyp- ur ekki á einhverjum hundrað- köllum, þetta eru tugir þúsunda fyr- ir hvern bíl,“ segir Björg. Hún segir að einfaldara hefði verið að halda nagladekkjunum út veturinn og á vormánuðum yrði skipt yfir á heils- ársdekk. Íhugar að segja upp Björg segist hafa viðrað áhyggjur sínar við yfirmenn sína og mætt litlum skilningi. Þeir hafi reynt að mótmæla ákvörðuninni en ekkert hafi gengið. „Ég sagði þeim að ef ég myndi festast einhver staðar í brjál- uðu veðri, þá væri ég ekki að fara út að ýta og moka. Ég myndi skilja bíl- inn eftir, labba niður á stöð og sú manneskja fengi ekki þjónustuna sína þann daginn.“ segir Björg. „Þegar ég spurði hvað ég ætti að gera í þessum aðstæðum fékk ég þau svör að ég ætti að koma niður á stöð, fá leigubílakort og fara með leigubíl í heimahjúkrunina,“ segir Björg. Hún segist vera að íhuga að segja upp starfi sínu. „Ég þarf að fara innst inn í Mos- fellsbæ um helgar og á kvöldin. Það er ekki alltaf búið að ryðja þar. Ég upplifi bara mikinn kvíða að hugsa um að fara þangað á ónegldum dekkjum.“ Upplifa óöryggi á vanbúnum bílum - Bílar heimahjúkrunar á vegum borgarinnar teknir af nagladekkjum - Sjúkraliði íhugar að segja upp störfum 4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið é i á lík A h ð ð b á f i 595 1000 Skelltu þér í sól eftir jól! ei ðr ét 3. janúar 2022 88.000 ug & hótel frá 8nætur irv ar a. ve r Kanarí Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Nú á föstudag rennur út athuga- semdafrestur vegna fyrirhugaðrar þrengingar á Bústaðarvegi. Líkt og oft vill vera þegar skipulagsmál eru annars vegar þá eru ekki allir á eitt sáttir um framkvæmdirn- ar, en til stendur að byggja báðum megin við Bú- staðaveg, heilt yfir sautján fjöl- býlishús eða á bilinu 150-170 íbúðir. Íbúasamtök Bústaða- og Fossvogshverfis hafa boðað til íbúafundar á miðviku- dagskvöldið næsta í Réttarholts- skóla. Fundurinn hefst klukkan átta og hefur Gísli Kr. Björnsson, lögmaður og formaður íbúasamtak- anna, „skorað á Dag B. Eggertsson borgarstjóra og Eyþór Arnalds, oddvita sjálfstæðismanna í borg- inni, að mæta á fundinn“. Eyþór hefur boðað komu sína og segir Gísli í samtali við Morgunblaðið að Dagur stefni á að mæta, að öllu óbreyttu. Íbúar ekki sammála í afstöðu sinni „Það gætir ákveðinnar óánægju meðal íbúa hverfisins með þann hluta framkvæmdanna er snúa að Bústaðavegi og um það snýst þessi fundur.“ Gísli segir að íbúar hverfisins skiptist í raun í tvennt í afstöðu sinni til framkvæmdanna. Sumir séu ánægðir með tillöguna en aðrir telja hugmyndina um að þrengja Bústaðaveg í raun fásinnu. „Af þeim sökum hefur okkur í íbúasamtökunum fundist eðlilegt að það fari fram meiri umræða og að það fáist aðeins meiri dýpt í hana. Það er hvað þessar fram- kvæmdir þýða fyrir hverfið.“ Framkvæmdirnar ríma vel við þá stefnu sem hefur verið leiðandi í borginni hvað varðar skipulagsmál. Þétta eigi byggð og færa verslun og þjónustu í nærumhverfi hverfanna. Gísli segir þá einfaldlega ekki þörf á slíkri aðgerð í hverfinu enda sé það vel sett í þessu samhengi. „Við erum með stórmarkaði og búðir allt um kring og allt í göngufæri.“ Verið sé að þétta byggð umfram það sem eðlilegt er og þörf er á. Hann bendir á að reisa eigi fjögur eða fimm fjölbýlishús á svæði norð- an megin við Bústaðaveg, en sá reitur er í raun umferðareyja. Rauður þráður í viðhorfi til borgaryfirvalda Alla jafna er sama hvort um er að ræða skipulagsmál, skólamál eða hver önnur mál sem snúa að hverf- um borgarinnar. Þeir sem eru ósáttir virðast nær alltaf upplifa að ekki sé hlustað á raddir íbúa hverf- isins. Gísli segir þetta vera upplifun margra íbúa. „Við sem erum á móti þessum framkvæmdum, hvort sem er að hluta til eða alfarið, okkur finnst einfaldlega ekki hlustað á okkar raddir. Þetta virðist vera þráðurinn hjá borginni og hefur verið lengi.“ Þeir sem eru mótfallnir fram- kvæmdunum vísa þá helst til auk- innar umferðar um hverfið enda fylgi á annað hundrað nýrra íbúða óhjákvæmilega aukin umferð. Gísli segir áhrifin á umferðina í hverfinu ekki hafa verið mælda nægilega vel og bendir á að Bústaðavegur verði einbreiður við þessa breytingu. Hann segir ljóst að umferðin leiti þá bara á aðrar götur hverfisins. Aukist sem sagt alls staðar. Frem- ur hefði Gísli viljað sjá fram- kvæmdir sem stuðla að auknu um- ferðaröryggi um veginn, til að mynda brú sem gerði börnum kleift að fara hættulaust yfir Bústaðaveg. Lengri tími til meðferðar Eins og áður segir rennur at- hugasemdafrestur út nú á föstudag og segist Gísli fremur vilja gefa íbúum og sér í lagi húsfélögum lengri tíma til þess að fjalla um málið og senda inn athugasemdir. „Húsfélögin eru í raun lögbæri að- ilinn til þess að taka ákvarðanir um skerðingar á lóðum, en nær alls staðar er komið inn á lóðir húsanna með þessum framkvæmdum.“ Gísli vonast eftir góðri mætingu íbúa hverfisins og vonar að hlustað verði á raddir sem flestra. Varð- andi framhaldið segir hann: „Borg- in segist reiðubúin til þess að hlusta voðalega mikið á okkur, en það verður bara að koma í ljós hvað gerist.“ Framtíð Bústaðavegar rædd á fundi - Borgarstjóri og Eyþór Arnalds hafa boðað komu sína - Íbúar hverfisins skiptast í tvennt í afstöðu sinni - Þétting byggðar þegar ekki er þörf á þéttingu - Áhyggjur af aukinni umferð um Bústaðaveg Gísli Kr. Björnsson Líneik Anna Sævarsdóttir hefur ásamt öðrum þingmönnum Fram- sóknar lagt fram tillögu til þings- ályktunar þess efnis að skipaður verði starfshópur til að vinna að- gerðaáætlun við frekari eflingu fjarnáms á há- skólastigi. Í til- lögunni má finna áherslur í sex liðum og lagt er til að starfshóp- urinn skili af sér eigi síður en í árslok 2022. Í greinargerð- inni stendur að möguleikarnir á því að nota stafræna kennsluhætti til að tryggja aðgengi að námi og bestu aðstæður til náms og kennslu aukist stöðugt. Því vex krafa samfélagsins um það að allt nám á háskólastigi sem mögulegt er að bjóða fram með stafrænum hætti verði í boði sem slíkt. Ályktunin snertir líka á ávinn- ingnum fyrir samfélagið og þar er talað um að samkeppnishæfni byggða og þjóða byggist á mennt- un íbúa. Því er fjárfesting í mennt- un, fjárfesting til framtíðar. Tæki- færin hafa aldrei verið betri en nú og öflugt fjarnám getur auðveldað íslenskum háskólum að koma til móts við kröfur atvinnulífsins, landsbyggðarinnar og ein- staklinga sem búa við ólíkar að- stæður. Covid-faraldurinn hefur flýtt stafrænni framþróun fjarnáms til muna og eru nú flestallir mennta- skóla- og háskólanemar mjög van- ir því að mæta á Zoom-fyrirlestur. Í ályktuninni er minnst á það að mikilvægt sé að nýta reynsluna sem fékkst í faraldrinum og halda áfram hraðri þróun og ljúka við það að gera nám sem mögulegt er að bjóða í fjarnámi aðgengilegt fyrir alla landsmenn. Í því felst ákveðið tækifæri fyrir háskólana þar sem þeir geta átt aðgang að nemendum og kennurum utan bygginga háskólanna. logis@mbl.is Vilja frekari efl- ingu fjarnáms - Stórt tækifæri fyrir háskólana Líneik Anna Sævarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.