Morgunblaðið - 06.12.2021, Qupperneq 6
VIÐTAL
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Guðný Þóra Guðmundsdóttir og
Hjálmar Bogi Hafliðason hafa þekkst
frá því að þau voru börn á Húsavík.
Þau felldu hugi saman á fullorðins-
aldri á sama tíma og heilsu Guðnýjar
hrakaði mjög vegna nýrnameins.
Upp úr sambandi Hjálmars og Guð-
nýjar slitnaði þegar hún ákvað að
flytjast til Noregs vegna aðstæðna
barna sinna en þar taldi hún að börn-
in hennar þrjú fengju betri umönnun
meðan á veikindum hennar stóð. Eft-
ir nokkurra mánaða dvöl í Noregi var
Guðný orðin svo veik að hún neyddist
til að auglýsa eftir nýrnagjöf. Hjálm-
ar Bogi, þá fyrrverandi kærasti Guð-
nýjar, reyndist bæði geta og vilja
gefa henni nýra. Síðan þá hafa Guðný
og Hjálmar Bogi tekið saman aftur
og stefna á að flytja inn í nýtt hús á
Húsavík á nýju ári. Þau ræddu sögu
sína við blaðamann Morgunblaðsins
kvöldið fyrir aðgerðir þeirra beggja.
Aðgerðin fór fram á þriðjudaginn og
gekk vel.
Bitnar mest á börnunum
Guðný var aðeins tólf ára þegar hún
fékk streptókokka líkt og fjölmörg
önnur börn. Sýkingin lagðist í tilfelli
Guðnýjar á nýrun og er hún í dag með
svokallað IgA-nýrnamein.
Sjúkdómurinn lýsir sér í háum blóð-
þrýstingi, ofsaþreytu, vöðvaslappleika,
taugaverkjum, ógleði, krömpum í fót-
um, lystarleysi, húðvandamálum og
fleiru. „Þetta er mjög víðfeðmt, það er
þetta hefur áhrif á mörgum stöðum.
En auðvitað fyrst og fremst á börnin
mín.“
Árið 2004 fékk Guðný nýra frá föð-
ur sínum. „Það entist mér bara mjög
vel. Ég gekk til að mynda í gegnum
þrjár meðgöngur með það nýra. Ég er
búin að vera með nýrað í sautján ár og
það entist mér í raun mjög vel í þrett-
án til fjórtán ár,“ segir Guðný. Síðustu
þrjú ár hafa veikindi Guðnýjar tekið
sig upp. „Þegar fór að halla undan fæti
gerðist það í raun mjög hratt.“
Guðný hefur því gengið í gegnum að
veikjast, læknast og veikjast aftur og
þekkir rússíbana heilsu og tilfinninga
vel.
Á svipuðum tíma og Hjálmar Bogi
og Guðný kynnast upp á nýtt á fullorð-
insárum og taka saman er heilsu Guð-
nýjar tekið að hraka. „Ég myndi ekki
segja að ég hafi verið orðin mjög veik
þá, en ég var ekki fullfrísk,“ útskýrir
Guðný um tímann þegar hún tekur
saman við Hjálmar Boga.
Eftir eins árs samband ákvað
Guðný að flytjast með börnin sín til
Noregs, þar sem faðir barnanna bjó
og þau höfðu búið saman áður. „Ég
flutti til Noregs til þess að fá aðstoð
með börnin mín. Ég fékk mikla aðstoð
frá Hjálmari, ég fékk mikla aðstoð frá
foreldrum mínum og vinkonum en
mér leið eins og ég gæti ekki sinnt
börnunum mínum eins og þau þurftu á
að halda,“ segir Guðný. Hjálmar bend-
ir á að Guðný hefði sömuleiðis getað
átt von á því að vera kölluð inn í nýrna-
skipti hvenær sem er, og þá þurfti hún
að geta stokkið til með skömmum fyr-
irvara.
Eins og hún væri í kviksyndi
Guðný segir að ákvörðunin hafi ver-
ið henni þungbær og að hún eigi oft
erfitt með að útskýra hana fyrir fólki,
„en mér leið eins og ég væri í kvik-
syndi og ég gat varla haldið sjálfri mér
á floti, hvað þá þeim. Þarna var ég bú-
in að vera í kviðskilun fjórum sinnum á
dag í fjóra mánuði og hefði átt að gefa
skiluninni lengri tíma og koma öllu í
betri rútínu,“ segir Guðný.
Spurður út í hvernig hann hafi tekið
þessari breytingu segist Hjálmar
viðurkenna að tíminn hafi verið hon-
um erfiður. „Ég viðurkenni að ég hafði
tekið stór skref í átt frá mínu frelsi að
skuldbindingu og ég viðurkenni að ég
var mjög dapur yfir því. Ég var það,“
segir Hjálmar Bogi. Hann hafi þó allt-
af tekið tillit til ákvörðunar hennar og
ákveðið að reyna að hafa ekki áhrif á
hana. „Hún tók þessa ákvörðun og ég
studdi hana, eins langt og ég gat,“
bætti hann við. Spurður frekar út í
hans líðan á þessum tíma, segir
Hjálmar ekki ástæðu til gera mikið úr
sínum persónulegu erfiðleikum á þess-
um tíma „í samanburði við hennar erf-
iðleika,“ segir Hjálmar Bogi hógvær.
Flutti út og heim, þeirra vegna
Guðný segist ekki hafa sjálf viljað
flytja út, heldur hafi hún talið sig vera
að létta líf barnanna sinna. Þau hafi þó
ekki fundið sig úti og vildu flytja aftur
heim til Húsavíkur. Það hafi glatt
Guðnýju mjög.
„Ég tók þá ákvörðun að flytja út,
þeirra vegna, og tók sömuleiðis
ákvörðun um að koma heim, þeirra
vegna,“ segir Guðný.
Þau fluttu heim í júní og höfðu þá
búið í Noregi í tæpt ár. Hún segir að
ákvörðunin um að koma heim hafi
ekki síður verið erfið.
Spurð hvernig Guðný tilkynnti
Hjálmari um ákvörðunina um að hún
ætlaði að flytja aftur heim segja þau
bæði að sambandið hafi aldrei slitnað
og þau hafi verið í talsambandi allan
tímann. „Svo bara hringdi hún og
sagði: Ég ætla að flytja aftur heim,“
sagði Hjálmar Bogi sem hafði verið
nýkominn heim af gönguskíðum.
„Hann gat ekki leynt því hversu
glaður hann var,“ sagði Guðný og hló.
Guðný og Hjálmar tóku upp þráð-
inn hægt og rólega. Þau viðurkenna að
fyrstu dagarnir eftir að Guðný og börn
fluttu heim hafi verið svolítið vand-
ræðalegir. Fyrsta skref hafi verið að
endurnýja vinskapinn. „Við fórum
ekkert beint í sleik sko,“ sagði Hjálm-
ar. Guðný segir að hún hafi frekar ver-
ið tilbúin til þess að taka upp þráðinn
aftur en Hjálmar hafi verið á brems-
unni. „Hvað vissi ég nema að hún
myndi fara aftur,“ sagði Hjálmar
Bogi.
Vissu hvert endamarkið væri
„Vissuð þið bæði innst inni að þið
mynduð taka aftur saman?“ spyr
blaðamaður. „Já,“ svarar Hjálmar um
hæl. „Við vissum alltaf hvert enda-
markið væri, við vissum bara ekki al-
veg leiðina sem við ætluðum þangað,“
segir Guðný. Þau segjast ekki geta
sagt til um hvenær þau urðu par að
nýju, tengingin var alltaf til staðar eft-
ir að Guðný kom heim.
„Hvenær kom nýrnagjöfin svo til?“
spyr blaðamaður enn frekar.
Guðný segir að Hjálmar hafi löngu
áður boðist til þess að gefa henni nýra
en fengið neitun vegna eigin heilsu. Í
vor, skömmu áður en hún flutti heim,
hafði Guðný gripið til þess örþrifaráðs
að auglýsa eftir nýra. Hjálmar fór í
blóðprufu um vorið og í ljós kom að
hann var í sama blóðflokki og Guðný,
sem þarf til þess að geta gefið nýra, en
fékk engu að síður aftur neitun.
Þegar Guðný kom aftur til landsins
í sumar sá hann hversu veik hún var
orðin. Margir buðust til þess að gefa
nýra eftir að Guðný auglýsti en allir
sem buðust fengu neitun. Þegar frek-
ar var grennslast fyrir um ástæður
þess að Hjálmar mætti ekki gefa nýra
kom í ljós að lítið stríddi gegn því.
„Eins og læknirinn sagði þegar ég fór
í allsherjarskoðun: Ég er mjög fal-
legur að innan.“
Hjálmar segir að nýrnagjöfin hafi
aldrei verið spurning eftir það. Hann
hafi ekki hikað og tilhugsunin ekki
yfirþyrmandi fyrr en daginn fyrir að-
gerðina, daginn sem viðtalið er tekið.
Þá hafi mikið spurningaflóð sérfræð-
inga og þéttur undirbúningur dunið
yfir.
Guðný og Hjálmar hafa þurft að
velta upp öllum möguleikum og ræða
hvernig þeim myndi líða með ákvörð-
unina, kæmi til sambandsslita. Hjálm-
ar segir líffæragjöfina að sjálfsögðu
skilyrðislausa, enda hafi hann verið
tilbúinn í hana í eða utan sambands og
að vel hafi verið farið yfir þetta í undir-
búningi.
Brýnt hafi verið fyrir Guðnýju að
henni mætti ekki líða eins og hún væri
skuldbundin Hjálmari vegna þessa.
„Ég get ekki annað gert en að hugsa
það samt,“ segir Guðný og bætir við
klökk: „Hann er að gefa mér nýtt líf.
Hann er að gefa börnunum mínum og
mér dýrmæt lífsgæði.“
„Hann er að gefa mér nýtt líf“
- Tilbúinn að gefa fyrrverandi kær-
ustu sinni nýra - Hafa þekkst frá því
að þau voru börn - Aldrei spurning
Göngutúr Hjálmar og Guðný röltu í miðbæinn, virtu fyrir sér Alþingishúsið, hvar Hjálmar sat oft sem varaþingmað-
ur Framsóknar, daginn fyrir aðgerð og dreifðu huganum. Hann er sömuleiðis oddviti Framsóknar í Norðurþingi.
Horft yfir Hjálmar vaknaður en Guðný enn sofandi eftir aðgerðina sem
fram fór á þriðjudaginn. Aðgerðin gekk vel og dvelja þau á sjúkrahóteli.
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2021
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum