Morgunblaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021 Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur JÓLASÖFNUN Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Varðskipið Freyja er væntanlegt til heimahafnar í Siglufirði á sunnudag- inn eftir að hafa verið við eftirlit á Ís- landsmiðum í tæpan mánuð. „Freyja hefur reynst frábærlega þennan fyrsta mánuð sem hefur verið tölu- vert annasamari en gert var ráð fyr- ir,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýs- ingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Freyja lagði úr höfn frá Reykjavík hinn 23. nóvember sl. í jómfrúarferð sína. Á þessum vikum hefur varð- skipið tekið fjögur skip í tog. Flutn- ingaskipið Franciscu frá Straumsvík til Akureyrar, fiskiskipið Janus frá Akureyri til Hafnarfjarðar, fiskiskip- ið Masilik af strandstað á Vatnsleysu- strönd til Hafnarfjarðar í fyrrinótt og loks varðskipið Þór frá Hafnarfirði til Reykjavíkur í gærkvöldi. Hefur komið sér vel að Freyja er með mestu dráttargetu íslenskra skipa, eða allt að 200 tonnum. Freyja er mjög vel búið dráttarspilum svo taka má stór og öflug skip í tog Grænlenska fiskiskipið Masilik strandaði við Gerðistanga undan Vatnsleysuströnd um kvöldmatar- leytið í fyrrakvöld. Um borð var 19 manna áhöfn. Svo heppilega vildi til að Freyja var í nágrenninu eftir að hafa dregið Janus suður og var hún kölluð strax á staðinn og sömuleiðis dráttar- báturinn Hamar. Björgunarskipin Sjöfn, frá Ársæli á Seltjarnarnesi, og Stefnir, frá Hjálparsveit skáta í Kópa- vogi, sáu um að ferja 14 manns úr áhöfn Masilik í land ásamt því að að aðstoða Freyju með að koma dráttar- taug yfir í skipið. Vel gekk að losa Masilik af strand- stað í fyrrinótt því skipið losnaði fljót- lega eftir að byrjað var að toga í það. Freyja dró Masilik til Hafnarfjarðar og voru skipin komin þangað um klukkan sjö í gærmorgun. Rannsókn- arnefnd samgönguslysa hefur hafið rannsókn á tildrögum strands Masi- lik. Þá verður kannað hvort skemmd- ir hafa orðið á botni skipsins. Óvænt viðhald á Þór Í raun er Freyja í sínu öðru úthaldi nú þar sem viðhald stendur yfir á báð- um aðalvélum varðskipsins Þórs. Við- haldið var óvænt en Þór verður aftur orðinn tilbúinn til útkallsstarfa um miðjan janúar, að sögn Ásgeirs Er- lendssonar. Upphaflega stóð til að Þór leysti Freyju af hólmi 7. desember síð- astliðinn, en ekki gat orðið af því vegna viðhaldsvinnunnar. Sem fyrr segir kemur Freyja úr þessari annarri ferð sinni á sunnudag þegar skipið kemur til Siglufjarðar og áhöfnin fer til síns heima degi síðar. Áhöfn Freyju verður svo á útkalls- vakt yfir hátíðirnar og er gert ráð fyr- ir að Freyja fari aftur til eftirlits- starfa frá Siglufirði þann 4. janúar næstkomandi. Friðrik Höskuldsson hefur verið skipherra á Freyju undanfarna daga og fer aftur út með skipið í janúar. Hann leysir af Einar Valsson skip- herra sem er í langþráðu fríi, segir Ásgeir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Í höfn Masilik kom til Hafnarfjarðar um sjöleytið í gærmorgun. Skipið ligg- ur við Suðurbakka. Masilik var smíðaður árið 2001 og er 1.425 brúttótonn. Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson Með skip í togi Freyja dró fiskiskipið Janus frá Akureyri til Hafnarfjarðar og voru skipin nýkomin þangað þegar útkallið barst vegna Masilik. Janus er 1.468 brúttótonn að stærð, smíðaður árið 1968 og er skráður á Cooks-eyjum. „Freyja hefur reynst frábærlega“ - Dró grænlenska skipið Masilik af strandstað - Dró einnig tvö önnur skip landshorna á milli Guðni Einarsson gudni@mbl.is Alls voru 114 nemendur og starfs- menn Klettaskóla í Reykjavík í ein- angrun eða sóttkví í gær vegna Co- vid-19. Í einangrun voru 29, þar af 20 nemendur og 9 starfsmenn. Í sóttkví voru 85, þar af 33 nemendur og 52 starfsmenn. Arnheiður Helgadóttir skólastjóri segir þetta ástand hafa útheimt mikla vinnu starfsmanna skólans og mikið álag á nemendur og fjölskyld- ur þeirra. Hefðbundið skólastarf var fellt niður í fyrradag, samkvæmt leiðbeiningum frá almannavörnum og skóla- og frístundasviði Reykja- víkurborgar. Allir nemendur sem ekki voru þá þegar í sóttkví eða ein- angrun komu í skólann í fylgd for- ráðamanna til að gangast undir PCR-próf. Tóku sýnin í skólanum Starfsfólk frá almannavörnum mætti í skólann og setti upp skoð- unarstöðvar til að taka sýni og hélt utan um framkvæmdina. Allir starfs- menn skólans, frístundar og fé- lagsmiðstöðvar sem ekki voru í sóttkví eða einangrun voru einnig prófaðir. Fjögur ný smit greindust í gær og eru þau talin með í fyrr- greindum tölum. Í gær var unnið að því að skipu- leggja skólastarfið í ljósi aðstæðna. Síðasti kennsludagur fyrir jólafrí er á mánudag en þá verður ekki full kennsla. Þá verða „litlu jólin“ haldin í stofum nemenda í stað þess að vera með sameiginlega jólaskemmtun á sal. Ekkert sameiginlegt jólaball „Við getum ekki komið öll saman til að dansa í kringum jólatréð og viðhalda öðrum gömlum hefðum við þessar aðstæður. Hver og einn bekk- ur verður í sinni stofu og við reynum að eiga notalega stund og hafa gam- an. Ef til vill kemur jólasveinn og kíkir á glugga, en hann fer ekki inn,“ segir Arnheiður. Hún segir nemend- ur skólans hafa sérstöðu og þurfi mikla þjónustu. Frístund og fé- lagsmiðstöðin hafa haft opið fyrir börnin fram að jólum eftir að kennslu lýkur og eins á virkum dög- um á milli jóla og nýárs. „Við reynum að gera allt sem við getum til að halda uppi þjónustu við nemendur og foreldra, hvort heldur sem grunnskóli, frístund eða fé- lagsmiðstöð,“ sagði Arnheiður. Í Klettaskóla eru 124 nemendur. Starfsmenn eru um 160 talsins og margir í hlutastarfi. Útbreitt kórónuveiru- smit í Klettaskóla - Alls 114 nemendur og starfsmenn í einangrun eða sóttkví Ljósmynd/klettaskoli.is Klettaskóli Smit kom upp og virðist það hafa breiðst talsvert út. Nemendur og starfsmenn sem ekki voru í einangrun eða sóttkví voru allir skimaðir. 22 einstaklingar frá Afganistan eru væntanlegir til landsins næsta þriðjudag en þeir lentu í morgun í Georgíu. Heildarfjöldi þeirra sem ís- lensk stjórnvöld hafa þá tekið á móti er 83. Fram kemur í sameiginlegri til- kynningu frá forsætisráðuneytinu, félagsmálaráðuneytinu, utanríkis- ráðuneytinu og dómsmálaráðuneyt- inu að 40 einstaklingar sem fengu boð frá íslenskum stjórnvöldum hafi þegið boð um skjól í öðru ríki. Taka á móti 120 Ríkisstjórnin samþykkti í ágúst að taka á móti allt að 120 einstaklingum frá Afganistan vegna ástandsins sem skapaðist þar í landi í kjölfar valda- töku talíbana. Áhersla var lögð á þá sem unnu með eða fyrir Atlantshafs- bandalagið, fyrrverandi nemendur alþjóðlega jafnréttisskólans á Ís- landi og einstaklinga sem áttu rétt á fjölskyldusameiningu eða voru þeg- ar komnir með samþykkta umsókn um dvalarleyfi. Stjórnvöld í Katar aðstoðuðu ís- lensk stjórnvöld við að koma hluta hópsins þangað sem fulltrúar frá ís- lenskum stjórnvöldum tóku á móti honum og fylgdu til Íslands. Ráðu- neytin segja að Útlendingastofnun og borgaraþjónusta utanríkisráðu- neytisins hafi átt í náinni samvinnu við stjórnvöld í Georgíu, Svíþjóð og Katar til að gera fólkinu kleift að komast hingað til lands og sameinast fjölskyldum sínum en um sé að ræða flóknar aðgerðir sem krefjist mikill- ar samhæfingar þar sem huga þurfi að öryggi allra. Von á 22 frá Afgan- istan í næstu viku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.