Morgunblaðið - 18.12.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021
Tillaga til þingsályktunar um at-
hugun á rekstrarumhverfi
einkarekinna fjölmiðla á Íslandi var
lögð fram á Alþingi 3. október
2016, fyrir rúmum fimm árum. Til-
löguna flutti Illugi Gunnarsson, þá-
verandi menntamálaráðherra, sem
í framhaldinu
skipaði nefnd til
að kafa í þessi
mál.
- - -
Tilefnið var í
greinargerð
sagt vera að
fulltrúar einka-
rekinna fjölmiðla hefðu vakið at-
hygli stjórnvalda á erfiðleikum sem
blöstu við í rekstri þeirra og rekja
má til ýmissa utanaðkomandi að-
stæðna.
- - -
Síðan hefur margt verið rætt og
ritað um þessi mál og ófáir
stjórnmálamenn lýst yfir miklum
skilningi á óviðunandi aðstæðum.
Gripið var í plástra í formi ríkis-
styrks, sem að vísu var hvort
tveggja rýr miðað við umfang
vandans og að auki sérstaklega
hannaður til að nýtast illa þeim fjöl-
miðlum sem helst halda úti frum-
vinnslu frétta og reka burðugar rit-
stjórnir eða fréttastofur.
- - -
Á sama tíma hefur Ríkisútvarpið
fengið að vaxa og dafna með
auknum framlögum og ágengri
starfsemi á auglýsingamarkaði. Þá
hefur ekkert verið gert vegna
ójafnrar samkeppni erlendra miðla
af ýmsu tagi, þrátt fyrir áralangar
yfirlýsingar um skilning á vand-
anum.
- - -
Og enn stíga ráðherrar fram og
lýsa skilningi á vandanum og
áhyggjum af stöðunni. Vonandi
fyrirgefst þeim sem starfa á þess-
um markaði þó að þeir taki ekki
nema hóflega mikið mark á þeim
orðum nú.
Skrafað og
skeggrætt í 5 ár
STAKSTEINAR
Tvö tilboð bárust í rekstur áætlunarflugs á norð-
austurhorni landsins, en tilboð voru nýlega opnuð
hjá Vegagerðinni. Norlandair á Akureyri átti
lægra tilboðið en það flugfélag hefur annast flug á
þessum leiðum undanfarin ár.
Um er að ræða sérleyfi fyrir Vegagerðina á eft-
irtöldum flugleiðum: Akureyri - Grímsey - Akur-
eyri og Akureyri - Vopnafjörður - Þórshöfn -
Akureyri.
Norlandair á Akureyri bauð krónur
470.614.427, sem var 5% yfir áætluðum verktaka-
kostnaði, sem var tæpar 448 milljónir. Mýflug hf. í
Mýatnssveit bauð krónur 641.077.920.
Tilboðin eru án virðisaukaskatts og miðast við
samningstímann, sem er þrjú ár. Miðað er við
endurgreiðslu kostnaðar sem af rekstri í áætl-
unarflugi leiðir, að frádregnum tekjum, þ.e. að
annast áætlunarflug með farþega og vörur til og
frá Grímsey, Vopnafirði og Þórshöfn, eins og segir
í útboðslýsingu.
Samkvæmt upplýsingum G. Péturs Matthías-
sonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, er
búið að yfirfara tilboðin og ganga úr skugga um að
lægstbjóðandi, Norlandair, uppfyllir allar kröfur.
Því er reiknað með að gengið verði til samninga
við félagið um verkefnið. Í dag rekur Norlandair
þrjár Twin Otter-vélar, tvær Beech 200 King Air
og eina Air Van-útsýnisvél. sisi@mbl.is
Norlandair átti lægsta tilboðið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Buðu best Twin Otter-vél Norlandair í Grímsey.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Skrifstofa samgöngustjóra og borg-
arhönnunar Reykjavíkur leggur til
að dýrasta stöðugjald bíla gildi enn
víðar í borginni en nú. Þannig færist
eftirtaldar götur úr gjaldsvæði 2 í
gjaldsvæði 1:
Bergstaðastræti, milli Skóla-
vörðustígs og Bjargarstígs. Bjarnar-
stígur. Frakkastígur, milli Njáls-
götu og Grettisgötu. Garðastræti,
milli Túngötu og Vesturgötu. Hall-
veigarstígur. Ingólfsstræti, bílaplan
norðan við Hallveigarstíg 1. Ingólfs-
stræti, milli Amtmannsstígs og Spít-
alastígs. Kárastígur. Mjóstræti.
Njálsgata, milli Klapparstígs og
Frakkastígs. Skólavörðustígur, milli
Týsgötu og Njarðargötu.
Þá er lagt til að Félagstún breyt-
ist úr gjaldsvæði 4 í gjaldsvæði 3.
Eftirtaldar götur verði gjaldskyldar
og á gjaldsvæði 2: Barónsstígur,
milli Bergþórugötu og Grettisgötu.
Njálsgata, milli Barónsstígs og
Snorrabrautar og Ægisgata.
Þá verði Bergþórugata, milli Bar-
ónsstígs og Snorrabrautar, auk bíla-
plans á lóð nr. 1 við Frakkastíg gerð
gjaldskyld og þar á að gilda gjald-
svæði 3. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Stöðugjöld Margar götur sem eru gjaldsvæði 2 verða gjaldsvæði 1. Þá þarf
að borga fyrir að leggja á nokkrum götum sem nú eru gjaldfrjálsar.
Dýrara að leggja
- Leggja til stækkun á gjaldsvæði 1
- Gjaldskylda verður víðar en nú
STÆRÐIR 1428
Sundkjóll
15.990 kr
Stærðir 42-56
Bikiní haldari
8.990 kr
C-H skálar
Bikiní haldari
8.990 kr
Stærðir 42-54
Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Zizzi
glimmer blússa
6.990 kr
Kaffe Curve
sparikjóll
14.990 kr
Kaffe blússa
11.990 kr
Frá
Pant
veg
ey
rá .
.
.
.