Morgunblaðið - 18.12.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021
Skipholti 29b • S. 551 4422
ðinni sXDAL er í lei
Opið
laugardag
11-17
sunnudag
13-17
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Öllum gjöfum
er pakkað í
fallegar
gjafaöskjur.
Vönduð náttföt
í miklu úrvali!
Stærðir 36-52
Verð
12.980,-
Opið:
Laugardag 10-16
Sunnudag 13-17
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Söfnum í jólasjóðinn hjá
Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt
okkur lið er bent á
bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Jólasöfnun
Guð blessi ykkur öll
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Það er að mínu mati langskyn-
samlegast að ríkið eigi þessar fast-
eignir 100%, en ekki í samkrulli
við bæjarfélagið. Það er algjör
tímaskekkja að hafa þann hátt á,“
segir Guðmundur Baldvin Guð-
mundsson, for-
maður bæjar-
ráðs Akureyrar.
Akureyrarbær
fékk tilboð í hús-
eignir dvalar- og
hjúkrunarheimil-
is bæjarins,
Hlíðar og Lög-
mannshlíðar, í
nóvember síðast-
liðnum. Bærinn
vill selja sinn
hluta og segir
Guðmundur að bærinn hafi ítrekað
frá því tilboðið barst óskað eftir
viðræðum við ríkið um framtíð
fasteignanna, en engin svör hafi
borist.
Bæjarráð Akureyrar hefur sett
fram þá kröfu að ríkið bregðist nú
án tafar við og kaupi eignarhluta
Akureyrarbæjar í þessum fast-
eignum.
Borga enga leigu
Akureyrarbær, ásamt þremur
sveitarfélögum öðrum; Vest-
mannaeyjum, Fjarðabyggð og
Höfn í Hornafirði, ákvað í kjölfar
vanfjármögnunar af hálfu ríkisins
að endursemja ekki um rekstur
hjúkrunar- og dvalarheimila.
Á Akureyri varð niðurstaðan sú
að samið var við félagið Heilsu-
vernd ehf. um rekstur heimilanna í
bænum. Það félag tók við rekstr-
inum á liðnu vori. Ríkið ákvað
jafnframt að Heilsuvernd þyrfti
ekki að greiða leigu vegna hús-
næðis sem notað er fyrir öldr-
unarþjónustuna.
„Við eigum stóran hluta í þess-
um eignum en ríkið telur sig geta
ráðskast með þær án nokkurs
samráðs við okkur. Það þykir okk-
ur verulega undarleg vinnubrögð,“
segir Guðmundur.
Akureyrarbær á mismikinn hlut
í fasteignum sem um ræðir, en
sem dæmi á hann elstu bygg-
inguna á Hlíð og þegar hafist var
handa við uppbyggingu á þeirri
lóð, við húsnæði sem nefnist Vest-
urhlíð, greiddi bæjarfélagið 30%
kostnaðar. Þá fjármagnaði Akur-
eyrarbær að fullu byggingu á ný-
legu húsnæði Lögmannshlíðar og
leigir ríkinu það húsnæði. Guð-
mundur segir að bærinn vilji
gjarnan selja þessar húseignir en
slíkt sé ómögulegt án þess að ríkið
taki þátt í því ferli. „Það er al-
gjörlega ótækt að ríkið hagi sér
með þessu hætti, við fáum ekki
einu sinni svör um hvort það ætli
sér að ræða við okkur,“ segir
hann.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hjúkrunarheimili Akureyrarbær fjármagnaði að fullu byggingu á nýlegu
húsnæði hjúkrunarheimilisins Lögmannshlíðar og leigir ríkinu það.
Ríkið kaupi hlut Akur-
eyrar í dvalarheimilum
- Núverandi háttur tímaskekkja, segir formaður bæjarráðs
Guðmundur
Baldvin
Guðmundsson
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Borgarstjóri hefur lagt það til að
engin bifreið, hvort sem hún er í
eigu Reykjavíkurborgar eða tekin á
leigu, sé á nagladekkjum. Miðað er
við að almennur farartækjafloti
borgarinnar verði nagladekkjalaus
eigi síðar en um næstu áramót og
sorpbílar verði án nagla frá og með
miðjum apríl nk. Þá leggur borgar-
stjóri einnig til að þeir starfsmenn
sem vegna starfa sinna aka í vetrar-
færð fái boð í sérstaka fræðslu um
akstur ökutækja að vetrarlagi.
Nagladekk hafa átt undir högg að
sækja að undanförnu. Hefur m.a.
Reykjavíkurborg hvatt íbúa til að
velja önnur dekk undir ökutæki sín
auk þess sem Samfylkingin hefur nú
lagt til breytingar á umferðarlögum
sem heimila sveitarfélögum að inn-
heimta gjald, allt að 40 þúsund
krónum, fyrir notkun negldra hjól-
barða.
Sumar aðstæður
kalla á nagla
Á meðan borgarráðsfulltrúar
meirihlutans taka undir tillögu
borgarstjóra benda fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins á að upp kunna
að koma aðstæður í borgarlandinu
sem kalla á nagladekk. Er þá rekst-
ur skíðasvæðanna og sorphirða
nefnt sem dæmi. Miðflokkurinn seg-
ir dekkjaskipti meirihlutans mikið
ábyrgðarleysi og að borgarstarfs-
menn hafi sumir jafnvel hótað að
segja starfi sínu lausu gangi áform-
in eftir. Um sé að ræða enn eina for-
ræðishyggju borgarstjóra og meiri-
hlutans í Reykjavíkurborg.
Naglana burt og starfsfólk í nám
- Borgarstjóri vill naglalaus ökutæki sem fyrst og boðar sérstaka fræðslu um
vetrarakstur handa borgarstarfsmönnum - Ruslabílarnir sleppa ekki heldur
Morgunblaðið/Hari
Puð Þótt búast megi við rauðum jólum í ár þá er snjór og hálka ekki óþekkt
vandamál í Reykjavík. Góðir naglar geta hjálpað þegar ekki er skafið vel.
18. desember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.5
Sterlingspund 173.04
Kanadadalur 101.35
Dönsk króna 19.741
Norsk króna 14.469
Sænsk króna 14.327
Svissn. franki 140.38
Japanskt jen 1.1347
SDR 181.27
Evra 146.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.9759
Atvinna