Morgunblaðið - 18.12.2021, Síða 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2021
ÚR BÆJARLÍFINU
Reynir Sveinsson
Sandgerði
Byggt og byggt. Kraftur hefur
verið í húsbyggingum á þessu ári.
Einu sinni söng maður fyrir börnin:
„Heimskur maður byggði á sandi
hús.“ Þótt nafn bæjarfélagsins sé
Sandgerði þá er ekki byggt á sandi
hér í bæ.
Hér er mjög stutt niður á klöpp
og víða stendur klöppin upp úr. Það
eru breyttir tímar. Áður fyrr mok-
uðu menn frá klöppinni og steyptu
beint á grjótið, en nú er klöppin
fjarlægð og húsgrunnar reistir á
sléttu efni.
- - -
Í dag eru um 30 nýbyggingar á
misjöfnu byggingastigi. Auk þess er
búið að breyta nokkrum húsum í
einstaklingsíbúðir. Meðal bygginga
má nefna pitsustað, beitningaskúra
og rafmagnsverkstæði. Allt þetta ið-
ar nú af mannlífi.
- - -
Skerjahverfi er nýtt íbúðar-
hverfi, ofan við knattspyrnuvöllinn
við Stafnesveg. Í þessu hverfi verða
yfir 300 íbúðir. Nú er langt komið
að leggja götur og lagnir í fyrsta
áfanga. Lóðir hafa verið auglýstar
og hafa umsóknir borist um þær all-
ar. Hverfið stendur aðeins hærra en
byggðin í Sandgerði og verður gott
útsýni út á hafið og til Eldeyjar.
- - -
Nýr leikskóli rís hér í Sandgeði.
Jarðvegsvinna er hafin en lóðin er
norðan við Byggðaveg. Þar mun
koma hringtorg en nokkrar umræð-
ur hafa verið um staðsetningu leik-
skólans. Þarna er mesta snjóakistan
í þau fáu skipti sem snjór er vanda-
mál hér í bæ.
- - -
Covid-19 ætlar að vera til vand-
ræða eina ferðina enn. Veiran hefur
herjað á leikskólann Sólborg og
einnig grunnskólann. Margfeldis-
áhrifin eru töluverð. Foreldrar
þurfa að taka sér frí frá vinnu á
meðan þessi vágestur gengur yfir.
Lionsklúbbur Sandgerðis var búinn
að gera ráð fyrir skemmti- og mat-
arveislu fyrir eldri borgara í Suð-
urnesjabæ 4. desember síðastliðinn
en henni var frestað. Einnig þurfti
að fresta þessari veislu í fyrra en
veiran tekur vonandi enda.
- - -
Rafhlaupahjól eru greinilega
mjög vinsæl. Mikið er af þeim hér á
götum bæjarins og oft er hraðinn
stundum of mikill. Full þörf er á að
börnum verði kenndar umferð-
arreglurnar en oft hef ég séð tvo á
hjóli í einu. Einnig mætti minna
meira á gildi endurskinsmerkja.
Skyldi vera að koma líf aftur í
Rockville hverfið, þar sem banda-
ríski herinn var með radarstöð? Þar
eru engin hús á svæðinu, aðeins
steyptar grunnplötur undir fjölda
húsa, og allar götur malbikaðar. Nú
vantar bara starfsemi á þetta svæði.
Einu sinni átti að setja þarna upp
gagnaver, enda kostir svæðisins
góðir fyrir vindkælingu. Lagðar
voru fram teikningar af svæðinu á
sínum tíma en svo varð ekki neitt úr
neinu.
- - -
Út er komin bók um strand
Jamestowns, skipsins sem strand-
aði úti fyrir Höfnum árið 1881.
Halldór Svavarsson hefur unnið í
fjögur ár við að safna heimildum og
sögu þessa skips, sem var 100
metra langt og 20 metra breitt.
Skipið var fullt af úrvalstimbri.
Í bókinni er rakin saga þess
hvert timbrið fór hér á landi. Svein-
björn Þórðason útvegsbóndi byggði
glæsilegt hús við tjörnina í Sand-
gerði og nefndi það Efra-Sand-
gerði. Séra Sigurður Sívertsen,
prestur á Útskálum, segir í ann-
álum 1883 að víða sé verið að
byggja timburhús á Suðurnesjum,
en glæsilegast sé hús Sveinbjörns
Þórðarsonar í Sandgerði. Lions-
klúbbur Sandgerðis á húsið núna og
hafa Lionsfélagar unnið í mörg ár
við að endurbyggja það. Allt timbur
í þessu elsta húsi Sandgerðis, sem
orðið er 138 ára, er úr lestum skips-
ins Jamestowns.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Sandgerði Elsta húsið í bænum er Efra-Sandgerði, reist árið 1883. Lionsmenn hafa þar aðsetur í dag.
Ekki byggt á sandi hér í bæ
Skip Bókin um strand Jamestowns.
Gert er ráð fyrir að afgangur af
rekstri Sveitarfélagsins Ölfuss á
næsta ári verði alls 283 millj. kr., skv.
fjárhagsáætlun sem samþykkt var í
vikunni. Ráðgert er að tekjur sam-
stæðu sveitarfélagsins verði tæplega
3,6 ma. kr og rekstrargjöld vel liðlega
þrír ma. Fjármunatekjur og fjár-
magnsgjöld verði um 133 millj kr. og
afskriftir nærri 218 millj. kr.
Ráðgert er að veltufé samstæðu frá
rekstri verði 612 milljónir kr. og að
fjárfesting nemi 1.529 millj. kr. Fyrir-
hugað er að greiða niður 221 millj. kr.
langtímalán en samhliða taka nýtt lán
að upphæð 740 millj. kr., vegna hafn-
arframkvæmda í Þorlákshöfn og upp-
byggingar sem fylgir vexti og fjölgun
íbúa, segir í tilkynningu.
Meðal stærstu verkefna fram und-
an eru bygging leikskóla, stækkun á
þjónustumiðstöð aldraðra, frekari
uppbygging tengd íþróttamann-
virkjum, gatnagerð, fráveita og feira.
Sé litið til reksturs málaflokka aukast
útgjöld verulega á vissum sviðum,
einkum í félagsþjónustu, skólastarfi
og á sviði æskulýðs- og íþróttamála.
Lækka fasteignaskatta
Samhliða þessu er leiða leitað til að
létta álögur af bæjarbúum. Þar ber
hæst að fasteignaskattur er lækkaður
úr 0,33% í 0,31%.þ Alls hefur álagn-
ing lækkað um 18% á fjórum árum.
Íbúar í Sveitarfélaginu Ölfusi eru
nú, skv. nýjustu tölum Hagstofu,
2.369 en voru 2.279 þegar manntal
var tekið á síðasta ári. Í Þorlákshöfn
búa nú 1.847 manns, borið saman við
1.730 í fyrra. sbs@mbl.is
Ölfusið
sterkt og
er í plús
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ölfus Ráðhúsið í Þorlákshöfn.
- Öruggur fjárhagur
og fólkinu fjölgar
Icelandair hefur bætt við nýjum
áfangastað í Bandaríkjunum næsta
sumar, borginni Raleigh-Durham í
Norður-Karólínu. Flogið verður
fjórum sinnum í viku, frá 12. maí til
30. október 2022.
Raleigh er höfuðborg Norður-
Karólínufylkis á austurströnd
Bandaríkjanna og þar búa um 10,5
milljónir. Í tilkynningu Icelandair
segir að borgin hafi stækkað hratt
undanfarin ár og þar risið sterk
fyrirtæki í tæknigeiranum.
Icelandair segist ætla að bjóða
tíðar ferðir til og frá Íslandi og öfl-
ugar tengingar áfram til áfanga-
staða félagsins í Evrópu, en frá Ra-
leigh-flugvelli eru ekki margar
beinar tengingar við Evrópu í dag.
Góðar tengingar eru sagðar frá Ra-
leigh áfram til fjölda áfangastaða í
Bandaríkjunum.
Haft er eftir Boga Nils Bogasyni
forstjóra að N-Karólína hafi upp á
margt að bjóða og Raleigh sé
spennandi viðbót við leiðakerfið.
Bandaríkin Borgin Raleigh-Durham hefur
upp á margt að bjóða fyrir ferðamenn.
Icelandair hefur flug
til Raleigh-Durham
í Norður-Karólínu
Ásmundur Einar
Daðason nýtur
mests trausts
ráðherra meðal
almennings, sam-
kvæmt nýrri
könnun MMR,
eða hjá 61% að-
spurðra. Næst-
mest traust hefur
Katrín Jakobs-
dóttir, eða 60%.
Fæstir treysta Jóni Gunnarssyni,
eða 16%. Nokkur munur er á
trausti til ráðherra eftir flokks-
línum en ráðherrar Framsóknar-
flokksins njóta meira trausts og
minna vantrausts heldur en allir
aðrir ráðherrar, að forsætisráð-
herra undanskildum. Þá mældust
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins með
meira vantraust en ráðherrar ann-
arra flokka.
Mest traust til
Ásmundar Einars
Ásmundur Einar
Daðason
Fulltrúaráð Samfylkingarfélag-
anna í Reykjavík ákvað á fundi sín-
um í fyrradag að viðhafa flokksval
við val á framboðslista flokksins
fyrir borgarstjórnarkosningarnar í
vor. Flokksvalið verður opið fyrir
flokksbundið fólk og fólk sem
undirritar stuðningsyfirlýsingu við
flokkinn. Fer valið fram helgina 12.
til 13. febrúar næstkomandi.
Samfylkingin með
flokksval í borginni
STUTT